Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993 29 Litlu munaði að illa færi þegar eldur kviknaði í mannlausu húsi Sótti föður sinn sem slökkti eldinn Eldurinn logaði rétt við þrjá gaskúta Ása sýnir í Gallerí AUraHanda ÁSA Ólafsdóttir myndlistarmað- ur opnar sýningu á verkum sín- um í Gallerí AllraHanda í Gróf- argili á morgun, laugardaginn 1. maí kl. 15. Á sýningunni mun Ása sýna myndvefr.að en hún er ein af fremstu veflistamönnum þjóðarinnar. Ása stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands á árunum 1969 til 1973 og við Konstintustri- skolan Göteborgs Universitet í Gautaborg frá 1976 til 1978. Eftir það bjó hún í nokkur ár og starfaði í Svíþjóð. Landið og sagan Sýningin í Gallerí AllraHanda er tíunda einkasýning Ásu, en hún hef- ur haldið sýningar bæði hér heima og erlendis auk þess að taka þátt í fjölda samsýninga á undanförnum árum. Þótt Ása hafi fengist við fleiri greinar myndlistar hefur hún eink- um helgað veflistinni krafta sína og er landslag ásamt eigin tilfmningum einatt yrkisefni hennar. Ása hefur einnig sótt efni í sögu þjóðarinnar • •• s ^ ^ ^ og túlkað í verkum sínum. M]olkursamlagKEA skilaðium 34 mxlljonumí hagnað i fyrra MINNSTU munaði að illa færi er eldur kviknaði í mannlausu íbúðarhúsi á Grenivík um miðjan dag á miðvikudag. Það var um klukkan fjögur að Hermann Daði Hermannsson kom heim út skólanum að hann fann sterka brunalykt í húsinu og sá fljótt að reyk lagði úr geymslu inn af eldhúsi. Hermann opnaði dyrnar og gaus þá á móti honum mikill reykur og sá hann að eldur logaði í einhverju, líklega rafmagnstæki. Hermann Daði stökk þegar af stað og sótti föður sinn sem var við vinnu í u.þ.b. fimm hundruð metra fjarlægð frá hús- inu. Honum tókst að slökkva eld- inn með handslökkvitæki. Gaskútar Þarna hefði getað farið illa því þarna er allt úr timbri, bæði hillur og skilrúm, auk þess sem uppi í efstu hillu voru þrír ga- skútar frá gasgrilli. Ekki þarf að fjölyrða um hvemig farið hefði ef Hermann Daði hefði farið að slóra eitthvað á heimleið- inni úr skólanum. Ekki er ýkja langt síðan slíkir gaskútar ollu miklu tjóni á Eskifirði. Aldrei verður heldur nægilega brýnt fyrir fólki að geyma ekki slík gashylki í íbúðum. Haukur HERMANN Daði sýndi snarræði þegar reykinn lagði á móti honum úr geymslunni og náði í föð- ur sinn, sem slökkti eld- inn. Á myndinni hér að ofan sést að sót hylur allt í geymslunni, en í hillum standa m.a. þrír gaskútar. næstkomandi. _^ j ^ ^ (Fréttatilkynning) Afkoman batnaoi pratt tyrir véisieðarog samdrátt á innlagðri mjólk vaxtarrækt Ná þarf meiri sparnaði til að mæta hagræðingarkröfum og vöruverðslækkun Meira skyr REKSTRARHAGNAÐUR Mjólkursamlags Kaupfélags Ey- firðinga nam 33,7 milljónum króna á síðasta ári. Aðalfundur samlagsins var haldinn á mið- vikudagskvöld. í máli Þórarins E. Sveinssonar mjólkursamlagsstjóra kom fram að samlagið hefði tekið á móti rúmlega 19,9 milljónum lítra af mjólk á liðnu ári og væri það um 2,5% samdrátt- ur frá fyrra ári, en í lítrum talið er magnminnkunin tæplega 528 þúsund lítrar. Á síðustu tveimur árum nemur samdráttur á innveg- inni mjólk um tveimur milljónum lítra. Félag verslunar- og skrifstofufólks Krafist að gengið verði til samninga Að mestu voru unnar sömu vörur úr mjólkinni, en Þórarinn sagði að sú neyslubreyting héldi áfram, að sala léttmjólkur og undanrennu eykst á kostnað mjólkur. Þá varð áfram verulegur samdráttur í jóg- úrtsölu, en sala á skyri jókst um rúm 9%. „Rekstur Mjólkursamlagsins var viðunandi á árinu. Þrátt fyrir sam- drátt í innlagðri mjólk tókst að bæta afkomuna,“ sagði Þórarinn. „Vonandi minnkar mjólkurfram- leiðslan ekki verulega frá því sem nú er. Það er samt ljóst að litlar ef nokkrar verðhækkanir fást á þessu ári,“ bætti hann við og ítrek- aði að ná þyrfti meiri sparnaði til að hægt verði að mæta þeim hag- ræðingarkröfum og vöruverðslækk- un sem samið hefði verið um við mjólkuriðnaðinn. 1,8 milljarðar í telqur Rekstrartekjur samlagsins voru tæplega 1,8 milljarðar á síðasta ári og rekstrargjöldin um 1,6 milljarð- ar. Fyrir fjármagnsliði var hagnað- ur af rekstrinum 147,4 milljónir, en um 102 milljónir voru greiddar í fjármagnsgjöld. Heildarskuldir samlagsins nema 613 milljónum króna, þar af eru skammtímaskuldir um 480 milljón- ir. Eignir fyrirtækisins eru metnar á rösklega 1,5 milljarð króna. KJARTAN Guðbrandsson ný- krýndur íslandsmeistari í vaxtar- rækt mun sýna siguratriði sitt í Sjallanum annað kvöld, laugar- dagskvöld. Koma Kjartans tengist íslands- mótinu í vélsleðaakstri sem fram fer í Hlíðarfjalli um helgina, en tímarit- ið 3T er styrktaraðili íslandsmót- anna í vélsleðaakstri og vaxtarrækt. Á meðal keppenda í Hlíðarfjalli eru allir bestu vélsleðaökumenn iandsins, m.a. Akureyringarnir Finn- ur Aðalbjörnsson, Arnar Valsteins- son og Gunnar Hákonarson, sem verið hafa ósigrandi í fjallaralli, einni grein af fjórum í íslandsmótinu, en auk þess er keppt í spyrnu, brauta- keppni og snjókrassi, vinsælli grein meðal áhorfenda. Búist er við fjölda áhorfenda af höfuðborgarsvæðinu og gisting stendur til boða á Skíðastöðum í Hlíðarfjalli. STAÐAN í samningamálunum var mikið rædd á aðalfundi Félags verslunar- og skrifstofu- fólks á Akureyri sem haldinn var á miðvikudagskvöld og fram kom mikil óánægja með þá stöðu sem upp er kominn. í ályktun sem samþykkt var á fundinum er lýst furðu á þeirri Hádegis- tónleikar BJÖRN Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju, heldur hádegistónleika í kirkj- unni á morgun, laugardaginn 1. maí, kl. 12. Á efnisskrá eru verk tengd páskum eftir Jo- hann Sebastian Bach og Franz List. Eftir tónleikana verður boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimili Akureyrar- kirkju. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. afstöðu VSÍ og VMF að neita að ganga til samninga við ASÍ þrátt fyrir afstöðu Dagsbrúnar og gerir fundurinn þá kröfu að gengið verði til samninga nú þegar. Byijunarreitur „Við erum kominn á byrjunar- reitinn aftur og fólk er mjög óánægt, okkar taxtar eru ekki til að hrópa húrra fyrir og það er búið að rýra þá enn frekar. Nú eru menn hræddir um láglauna- bætur og orlofsuppbót, þannig að það er mikið í húfi,“ sagði Jóna Steinbergsdóttir formaður félags- ins og bætti við að mikilvægt væri að knýja fram samninga hið fyrsta. Um 100 félagsmenn í Félagi verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri eru á atvinnuleysisbót- um, sem er með því mesta sem þekkst hefur hjá félaginu, en hæst fór atvinnuleysistalan upp í 112 manns fyrir um einum mánuði. „Þetta er mjög slæmt ástand, en auðvitað eru menn alltaf að vona að framundan sé bjartari tíð,“ sagði Jóna. Þriðja kirkjulistavikan KIRKJULISTAVIKA hefst í Akureyrarkirlqu á sunnudag, 2. maí, en efnt er til kirkjulistaviku annað hvort ár og er þetta í þriðja sinn sem hún er haldin í Akureyrarkirkju. Listviðburðir af margvíslegu tagi verða á dagskrá auk fjölbreytilegs helgihalds. Kirkjulistavika verður sett við fjölskyldumessu í kirkjunni á morgun, sunnudaginn 2. maí kl. 11, en að henni lokinni verður opnuð í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju sýning á kirkjumun- um á vegum Minjasafnsins á Ak- ureyri og Þjóðminjasafns íslands. Sýndir verða munir eftir feðgana frá Naustum, Hallgrím Jónsson og Jón Hallgrímsson, en þeir máluðu kirkjur og kirkjugripi, þar á meðal altaristöflur. Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika í Akureyrarkirkju kl. 17 á sunnudaginn þar sem m.a. verður flutt sinfónía nr. 4 eftir Mendelssohn, stjórnandi verður Páll P. Pálsson. Frumflutt tónverk Aftansöngur verður í Minja- safnskirkju kl. 18 á mánudag og þar syngur 16 manna Kammerkór Akureyrarkirkju undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar. Um kvöldið, heldur Blásarakvint- ett Reykjavíkur tónleika í Akur- eyrarkirkju á vegum Tónlistarfé- lags Akureyrarkirkju. Frumflutt verður tónverk eftir Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld sem hann samdi sérstaklega fyrir kirkju- listavikuna, en það er samið fýrir tréblásarakvintett og sópran við ljóð Þorgeirs Sveinbjarnarsonar, en auk þess verða flutt verk frá síðari hluta 19. aldar og nútíma- verk. Margrét Bóasdóttir sópran- söngkona syngur með Blásarak- vintett Reykjavíkur. Hallgrímur Leikfélag Akureyrar flytur dagskrá í tali og tónum um ævi- feril og skáldskap Hallgríms Pét- urssonar sem Signý Pálsdóttir tók saman, en Kór Akureyrarkirkju og Jón Þorsteinsson tenór taka þátt í þessari uppfærslu með leik- félaginu. Dagskráin um Hallgrím verður sýnd í Akureyrarkirkju á þriðjudags- og miðvikudagskvöld. Annan laugardag, 8. maí verð- ur haldið málþing í Safnaðarheim- ilinu og er yfirskrift þess „Tónlist í kirkjunni." Þar verða flutt nokk- ur erindi um þetta efni og að þeim loknum verða pallborðsum- ræður. Kirkjulistaviku lýkur sunnu- daginn 9. maí með hátíðarmessu í kirkjunni og síðdegis þann dag verða lokatónleikar Kammer- hljómsveitar Akureyrar á starfs- árinu haldnir þar sem hljómsveitin flytur m.a. sálumessu eftir Gabri- el Fauré. Kirkjulistavika er haldin í þriðja sinn og er um að ræða sameigin- legt átak tíu aðila.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.