Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 30.04.1993, Síða 30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993, 30 JA, RAÐHERRA eftirHöskuld Einarsson Flestir muna eflaust eftir þætti í ríkissjónvarpinu er nefndist Já, ráð- herra. Var þar óspart gert grín að ráðherra nokkrum er lét embættis- menn sína spila með sig á alla kanta. Ekki er laust við að okkur slökkviliðs- menn gruni að eitthvað slíkt sé á döfinni hjá pólítíkusum og embættis- mönnum Reykjavíkurborgar varð- andi viðurkenningu á Landssam- bandi slökkviliðsmanna sem stéttar- félagi slökkviliðsmanna. Pólítíkusihn segist vera hlynntur málinu og að það fari örugglega í gegn en embætt- ismaðurinn segir að það komi ekki til mála, slökkviliðsmenn uppfylli ekki reglumar. Forsagan Fyrir um það bil 20 ámm stofnuðu slökkviliðsmenn með sér landssam- band er starfaði að félags- og hags- munamálefnum stéttarinnar. Slökkviliðsmenn voru eftir sem áður hver í sínu stéttarfélagi, t.d. við hér í Reykjavík í Starfsmannafélagi Reykjavíkur. Eins og gefur að skilja hefur fámenn stétt slökkviliðsmanna átt á brattann að sækja í stóm stétt- arfélagi þar sem að mörgum þarf að hyggja og illmögulegt að taka fyrir sérstakar starfsaðstæður, menntun og hættur þær er hver slökkviliðsmaður leggur sig í svo til á hveijum degi. Menntun, aðstæður og sérhæfing gerir starf þetta þann- ig að fáir aðrir en slökkviliðsmenn geta sett sig inn í hugsanagang og málefni stéttarinnar. Það var því á þeim grundvelli sem slökkviliðsmenn ígmnduðu hvort þeir sjálfir gætu ekki samið um kaup sín og kjör. Enginn skyldi þó halda að þetta hafí verið gert í einhverju fljót- ræði eða án athugunar á lögum og rétti, umhugsunin, umræðumar og athugunin tók yfir nokkur ár. Leitað var m.a til hæstaréttarlögmannsins Ammundar Backmans sem sérhæft hefur sig m.a. í vinnurétti og f um- sögn hans frá 11 september 1987 segir m.a. að þáverandi landssam- band verði að breyta lögum sínum á nokkmm stöðum sem og að bæta í lögin ítarlegri ákvæðum um réttindi og skyldur. í niðurstöðu Ammundar Backmans segir orðrétt: „Fyrst af öllu þarf að taka þá grundvallar- ákvörðun á þingi Landssambands slökkviliðsmanna, að breyta eigi sambandinu í stéttarfélag með um- boði til að gera kjarasamninga og fylgja kjaradeilum eftir með vinnu- stöðvun. Til þess þarf töluverðar lagabreytingar. í annan stað þarf að gera mönnum ljóst að slíkur flutning- ur á samningsrétti kann að þýða ágreining við fyrrverandi stéttarfé- Iög og deilu um samningsumboð. Slík deila getur hæglega orðið nokk- uð hörð og verður ekki til lykta leidd nema í kjaradeilu við lausa samn- inga. Landssamband slökkviliðs- manna virðist vera í fullum rétti sam- kvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna til að fara inn á framangreinda braut og verður, að frágengnum formsatriðum, að til- kynna viðsemjendum sínum, eigi síð- ar en við upphaf samningaviðræðna, hveijir skipi samninganefndir þeirra, sbr. 8. gr. laganna.“ Eftir rækilega skoðun var fagfé- laginu breytt í stéttarfélag 2. maí ’92 og fyrsta þing þess haldið 19.-21. maí sl. Þrátt fyrir það var áfram leitað eftir hvort ekki væri í hvívetna farið að lögum og réttarstöðu stéttarfé- lagsins og þá leitað til Viðars Más Matthíassonar hæstaréttarlögmanns með spurninguna: Fullnægir Lands- samband slökkviliðsmanna skilyrð- um 3. mgr. 5. gr. 1. nr. 94/1986 um kjarasamning opinberra starfs- manna, til þess að geta talist stéttar- félag? Viðar Már gerir grein fyrir afstöðu sinni á eftirfarandi hátt: „Þau skilyrði sem sett eru í 3. tl. 5. gr. laganna, fyrir því að stéttarfé- Iag öðlist rétt til að vera samningsað- ili skv. lögum, er að félag taki til 7« hluta starfsmanna sem undir lögin heyra og eru í starfsstétt með lög- formleg starfsréttindi, eða uppfylla skilyrði um formlega menntun, sem jafna má til slíkra starfsréttinda, og að félagsmenn séu 40 eða fleiri. í skýringum við þetta atriði, sem fylgir frumvarpi því, sem síðar varð að lögum nr. 94/1986, segir m.a. að greinin taki til þeirra starfsstétta sem — hafa starfsréttindi sem eru bundin í lögum eða reglugerðum. — fagstétta, sem þurfa hliðstæða sérhæfingu eða sérþjálfun til þeirra starfa sem þær annast. Af því, sem síðar segir í skýringun- um má ráða, að með orðunum „hlið- stæðu (námi) og sérhæfíngu" er fyrst og fremst, en þó ekki eingöngu, ver- ið að vísa til háskólamenntaðra starfsmanna. Mér er ekki kunnugt um, að á þetta ákvæði hafi reynt sérstaklega fyrir dómstólum, að minnsta kosti ekki að því er þetta atriði varðar. Sé litið til slökkviliðsmanna, og þá eingöngu þeirra slökkviliðsmanna sem hafa brunavamir að aðalstarfí, hafa eftirfarandi atriði þýðingu: Um slökkviliðsmenn gilda nú ákvæði laga 41/1992 um brunavarn- ir og brunamál. í II. kafla þeirra laga er fjallað um slökkvilið og slökkvistarf, en í þessum kafla er ekki sérstaklega vikið að menntun slökkviliðsmanna eða starfsréttind- um. Hins vegar er í gildi reglugerð nr. 197/1991, sem sett var sam-, kvæmt eldri lögum um brunavamir og brunamál nr.74/1982, en sam- kvæmt lögskýringareglum gildir sú reglugerð áfram, sbr. og 8. gr. hinna nýju laga. Reglugerð nr. 197/1991 heitir „Reglugerð um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna". í þeirri reglugerð, sem skv. 1. tl. 1. gr. tek- ur m.a. til þeirra sem hafa bmna- vamir að aðalstarfi, er í 2. gr. ijallað um skilyrði þau, sem umsækjendur um starf slökkviliðsmanna verða að fullnægja. Lúta þau skilyrði bæði að formlegri menntun sbr. 1. og 4. tl., svo og öðrum atriðum sbr. 2. og 3. tl. Ekki er heimilt að víkja frá þess- um skilyrðum þegar um er að ræða ráðningu í aðalstarf. I 3. gr. reglugerðarinnar er svo fjallað um menntun og starfsþjálfun þeirra, sem starfa sem slökkviliðs- menn. Er þar bæði um grunnnám að ræða og fullnaðarnám. Segir að Höskuldur Einarsson „Sem íbúi Reykjavíkur vildi ég ekki fá þjónustu af hendi slökkviliðs- manns, sjúkraflutnings- manns, lögreglumanns eða læknis sem aðeins hefði lært sitt fag í skóla.“ slökkviliðsmenn að aðalstarfi skuli hafa lokið grunnnámi innan eins árs en fullnaðarnámi innan ijögurra ára frá því þeir hófu störf. Af ákvæðum reglugerðarinnar er ljóst, að hér er um skyldubundið nám að ræða, en auk þess leiðir það af D. lið 2. gr. 1. nr. 41/1992 og skýr- ingum við hana í lögskýringargögn- um. Þegar þetta er ljóst, að slökkviliðs- menn þurfa bæði að uppfylla skilyrði um tiltekna formlega menntun til þess að hljóta ráðningu til starfa og einnig til þess að fá að starfa sem slökkviliðsmenn. Þegar litið er til skilyrða þeirra, sem margar starfs- stéttir þurfa að uppfylla til þess að lögformleg starfsréttindi, t.d. ýmsar starfsstéttir í heilbrigðisþjónustu, þá má fullyrða að skilyrðum þeim um menntun sem slökkviliðsmenn þurfa að uppfylla má fyllilega jafna til slíkra starfsréttinda. Afstaða mín er því sú, að ef skil- A UGL YSINGAR HUSNÆÐI I BOÐI Til leigu I Stelkshölum er til leigu 3ja herbergja enda- íbúð, björt með fallegu útsýni í austur. Leigist til 1 árs. Nánari upplýsingar veitir Eignamiðlunin í síma 679090. TILKYNNINGAR Verkamannafélagið Dagsbrún DAGSBRUN Fyrstimaí Félagar! Fjölmennum í kröfugönguna og á útifundinn á Lækjartorgi. Lagt verður af stað frá Hlemmi kl. 13.00. Eftir útifundinn verður kaffi í boði Dagsbrún- ar á veitingahúsinu Tveir vinir, Laugavegi 45. Stjórn Dagsbrúnar. OPIÐ HÚS Opið hús hjá Verzlunarmannafélagi Reykja- víkur eftir útifundinn á Lækjartorgi 1. maí í Húsi verslunarinnar á fyrstu hæð. Kaffiveitingar. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. I.O.O.F. 12 = 1744308V2 = 9. III I.O.O.F. 1 = 175430872 = 9.0.* □ Sindri 599304307 - LF. Innanfélagsmót skíðadeildar Ármanns í aldurs- flokkum 13-14 ára og 15 ára og eldri verður í Bláfjöllum laug- ardaginn 1. maí. Keppni í aldursflokkum 13-14 ára hefst kl. 10.00, 15 ára og eldri kl. 12.00. Stjórnin. Frá Guöspeki fólaginu Ingótfsstraati 22. Áskrlftarsfmi Ganglera er 30673. Föstudagurinn 30. apríl 1993 í kvöld kl. 21 heldur Kristján Fr. Guðmundsson erindi „Hugrækt frá kristnu sjónarmiði" í húsi fé- lagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag er opið hús frá kl. 15 til kl. 17 með fræðslu og umræðum. Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis. auglýsingar FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Dagsferðir Ferðafélags- ins 1. og 2. maí: Laugardagur 1. maí kl. 10.30: Skíðagönguferð í Innstadal. Ekið að Kolviðarhóli og gengið þaðan. Skemmtilegt skíða- gönguland - nægur snjór. Verð kr. 1.100. Kl. 13.00 á laugardaginn verður hellaskoðunarferð í Arnarker, sem er í hraunbreiðunni skammt neðan við vesturenda Hlíðar- fjalls í Ölfusi. Nafngiftin Arnarker er lítið notuð, í daglegu tali kall- ast hellirinn einfaldlega Kerið, lýsandi nafngift fyrir niðurfallið. Þessi ferð er tilvalin skoðunar- ferð fyrir alla fjölskylduna. Hafið með vasaljós og húfu. Verð kr. 1,100. Sunnudaginn 2. maí - kl. 13.00 - verður gengin 5. áfangi f Borgargöngunni - frá Hjalla- enda um Búrfellsgjá að Kald- árseli. Þessi ganga tekur um 27z til 3 klst. Verð kr. 600. Börn fá frítt í ferðirnar I fylgd fullorðinna. Brottför í ferðirnar er frá Um- ferðarmiðstöðinni, austanmeg- in, og Mörkinni 6. Ath.: Miðvlkudaginn 5. maf verður myndakvöfd í Sóknar- salnum, Skipholti 50a, - m.a. verða kynntar ferðir sumarsins. Ferðafélag íslands. yrðum um að, félagsmenn séu fleiri en 40 og ef Landssamband slökkvi- liðsmanna tekur til að minnsta kosti 2A starfsmanna er undir lögin heyra, þ.e. þeirra sem vinna við slökkvistörf eða brunavamir að aðalstarfi, geti ekki leikið vafl á því að félagið hafí rétt til samningsgerðar skv. 5. gr. laganna og þannig talist stéttarfélag , í skilningi þeirra.“ Hvað er þá að? Jú, 27. júlí ’92 er viðsemjendum okkar tilkynnt um stofnun hins nýja stéttarfélags og 8. febr. ’92 hvetjir skipi samninganefnd þess. Framan ’ af bárust engin formleg andmæli við lögmæti félagsstofnunar heldur kom eingöngu fram neikvæð afstaða gagnvart greiðslu félagsgjalda til LSS og frá hvetjum, ekki þeim er Arnmundur Backman lögfræðingur hafði spáð að yrði ásteitingarsteinn- inn, þ.e. Starfsmannafélagi Reykja- víkurborgar. Nei, viðskilnaðurinn við okkar fyrri félaga þar var báðum til sóma og enginn ágreiningur. Það var við Reykjavíkurborg sem ágreining- urinn varð. Það er síðan fyrst 17. des. ’92 sem formleg viðbrögð berast sameigin- lega frá ríki, Samb. ísl. sveitarfélaga og Reykjavíkurborg. Bréf þeirra er á þá leið, að engan veginn er hægt * að sjá að þeir ágætu menn er skrifa undir það hafí haft fyrir því að kynna sér lög og reglugerðir né menntunar- N kröfur slökkviliðsmanna. í bréfínu segir orðrétt: I svari Landssambands slökkvi- ( liðsmanna er því m.a. haldið fram með vísan til 2. gr. rgl. nr. 197/191, um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna, að umsækjendur um stöður slökkviliðsmanna þurfí að uppfylla skilyrði um formlega mennt- un til að hljóta ráðningu í starf. Samkvæmt þessu virðist Landssam- bandi slökkviliðsmanna telja nægjan- legt, að viðkomandi einstaklingur hafí lokið einhverskonar formlegri menntun, sem vinnuveitandi telur gilda, til þess að uppfylla áskildar menntunarkröfur reglugerðarinnar. Að mati vinnuveitenda geta mennt- unarkröfur 1. og 4. tl. rgl. 197/1991 ekki talist svo sérhæfar að hægt sé að byggja stofnun fagstéttarfélags ( slökkviliðsmanna á þeim. Að mati vinnuveitenda þarf starfsstétt, sem hyggst stofna fagstéttarfélag á I grundvelli 3. tl. 5. gr. 1. nr. 94/1986, að uppfylla skilyrði um lögformleg starfsréttindi eða formlega sérhæfða 1 menntun sem jafna má til slíkra starfsréttinda strax við það tíma- mark er starf er hafið. Þegar af þess- ari ástæðu þykir ljóst að Landssam- band slökkviliðsmanna fullnægir ekki skilyrðum 3. tl. 5. gr. 1. 94/1986 um kjarasamning opinberra starfs- manna. Er því ósk félagsins um samningsrétt sér til handa hafnað.“ Hverjar skyldu vera þessar aumu menntunarkröfur? Slökkviliðsmaður I Til að uppylla kröfur þurfa um- sækjendur að hafa lokið iðnmenntun sem er fjögurra ára framhaldsnám eða sambærilegri menntun er nýtist í starfí, hafa meirapróf bifreiða- stjóra, standast þrekpróf og vera á aldrinum 18-28 ára. Að uppfylltum þessum skilyrðum fara umsækjendur ( á 47 klst. námskeið er miðar að því að gera þá hæfa til starfa á almenn- um sjúkrabílum með vönum starfs- ( manni, vinna á skiptiborði stöðvar- innar og vinna ýmis störf utanhúss í eldútköllum. Námskeiðið er 47 bók- legar og 33 verklegar kennslustund- ir. Slökkviliðsmaður II Eftir að hafa unnið sem sumaraf- leysingamaður minnst átta mánuði sækja menn námskeið nýliða. Mark- miðið er að eftir námskeiðið séu þeir hæfir til að sinna neyðartilvikum í sjúkraflutningum, aka og stjóma dælubíl utan fyrsta dælubíls, stunda reykköfun og vinna sem aðstoðar- maður reykkafara. Kunna að fara með lausa stiga, handslökkvitæki, ýmiskonar sérhæfð handverkfæri og kunna skil á einföldum þrýstitaps- ( reikningum, rennslisfræði, dælu- tækni, eðli elds og helstu slökkviefn- Þú svalar lestrarþörf dagsins á sídum Moggans! jý. (

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.