Morgunblaðið - 30.04.1993, Page 47
47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
FRJALSIÞROTTIR
Stefnir að þátttöku í Ólympíuleikunum í Atlanta 1996
BANDARÍSKI frjálsíþróttamaðurinn Carl Lewis,
sem er áttfaldur ólympíumeistarrog heimsmet-
hafi í 100 metra hlaupi, stefnir að þátttöku í
fjórðu Ólympíuleikum sínum, í Atlanta 1996,
en þá verður hann 35 ára gamail. Hann er nú
að hefja nýtt keppnistímabil og keppir í 400
metra hlaupi í fyrsta sinn í 14 ár á móti í Hous-
ton á sunnudaginn.
Lewis sagðist í samtali við Reuter reikna með að
keppa í langstökki og boðhlaupi á leikunum í
Atlanta 1996, en hann hafði áður lýst því yfír
að hann myndi fylgjast með leikunum í Atlanta úr
áhorfendastúkunni. „Fyrir leikana í Barcelona-talaði
ég ekki mikið um framtíð mína,“ sagði Lewis. „Nú
veit ég að ef ég held áfram af sama krafti og keppnis-
vilja og líkaminn leyfir það get ég keppt í Atlanta
eftir fjögur ár. En það er erfítt að fullyrða um svona
hluti svo langt fram í tímann. Það er jafnvel erfitt,
þegar maður er 31 árs, að horfa til 35 ára aldursins."
Hann er ákveðinn í að keppa ekki í langstökki í
sumar, heldur einbeita sér að 100 og 200 metra hlaup-
um. „Með því að hvíla mig á lagstökkinu í bili verður
aðeins minna álag á líkamann. Eg hef öft verið slæm-
ur í baki eftir stökk,“ sagði Lewis, sem er þrefaldur
ólympíumeistari í langstökki og segist keppa aftur í
langstökki eftir eitt eða tvö ár.
Lewis ætlar að keppa í átta til tíu mótum í sumar
eins og hann hefur gert undanfarin ár. „Markmiðið
hjá mér er að vinna gullverðlaun fyrir Bandaríkin í
100 og 200 metra hlaupi og 200 metra boðhlaupi á
heimsmeistaramótinu í Stuttgart. Ég hef aldrei keppt
í 200 metra hlaupi á heimsmeistaramóti áður.“
Keppnistímabilið hjá Lewis hefst í Houston á sunnu-
daginn, en þar keppir hann í 400 metra hlaupi og
mætir þar m.a. ólympíumeistaranum í 200 metra
hlaupi, Michael Mars. Lewis hefur ekki hlaupið 400
metra á móti í 14 ár. „Eftir að ég ákvað að hvíla mig
á langstökkinu vildi ég prófa eitthvað annað. Ég hef
ekki hlaupið 400 metra á móti síðan 1979.“ Þá hljóp
hann á 50 sekúndum. „Ég á að geta hlaupið á 45
sekúndum. Á æfíngu á mánudaginn hljóp ég á 46,2
sekúndum. Ég kem vel undirbúinn fyrir tímabilið og
held að ég geti náð bestu tímum mínum bæði í 100
og 200,“ sagði Lewis sem á heimsmetið í 100 metra
hlaupi, 9,86 sekúndur.
Gulldrengurinn!
„Markmiðið er að vinna gullverðlaun fyrir Bandaríkin í 100 og 200 metra hlaupi
og 200 metra boðhlaupi á heimsmeistaramótinu í Stuttgart," segir Carl Lewis.
Carl Lewis keppir í
400 í fyrsta sinn í 14 ár
SNÓKER || HANDKNATTLEIKUR / UNDANÚRSLIT KARLA
Wattana
eryfir
Tælendingurinn James Wattana
hefur tekið forustuna gegn
Englendingnum Jimmy White í
undanúrslitum heimsmeistara-
keppninnar í snóker, sem fer fram
í Sheffield í Englandi. Hann vann
fyrstu fímm rammana í gær og er
yfír 5-2 þegar búið er að leika sjö
ramma af 31: (71-37, 68-21, 80-24,
77:36, 83-10, 39-71, 1-60).
í hinum undanúrslitaleiknum er
Stephen Hendry frá Skotalndi, sem
stefnir á þriðja heimsmeistaratitil á
Qórum árum og landi hans, Alan
McManus, jafnir 4:4 þegar búið var
að leika 8 ramma af 31: (111-32
79-46 88-0 53-69 5-75 51-63 0-93
67-17). Keppnin heldur áfram í dag.
Verðlaunafé fyrir heimsmeist-
aratitilinn er 16,5 millj. ísl. kr. Ef
Wattan verður heimsmeistari verð-
ur hann annar snókarspilarinn utan
Bretlandseyja til að verða meistari.
Fyrstur til þess var Kanadamaður-
inn Cliff Thorbiirn, sem varð meist-
ari 1980. Þess má geta að Wattana
fær aukalega 486 millj. ísl. kr. fyr-
ir þriggja ára samning við auglýs-
ingafyrirtæki.
ÚRSLIT
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið
Leiknir - Ármann...........3:3
~ Morgunblaðið/Júllus
Útlendingarnir, Branislav Dimitrivitsch, ÍR og
Alexej Trúfan, FH, mætast þriðja sinni í undanúr-
slitum í kvöld.
Dagsformið
ræður mestu
- segir Þorbjöm Jensson
um leik FH og ÍR í kvöld
FH og ÍR leika þriðja leik sinn í undanúr-
slitum 1. deildar karla í íþróttahúsinu
Kaplakrika í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.
Fyrri Ieikir liðanna hafa verið gríðarlega
spennandi. Framlengja þurfti fyrsta leikinn
og í öðrum leiknum réðust úrslit ekki fyrr
en 3 sekúndur voru eftir.
Valsmenn eru þegar komnir í úrslit með
tveimur sigrum á Selfyssingum og bíða því
spenntir eftir því hvort mótheijar þeirra
verða FH eða ÍR. Þorbjöm Jensson, þjálfari
Valsmanna, sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera sama hvoru liðinu hann mætir
í úrslitum. „Vonandi verður það liðið sem
verðskuldar sigur. ÍR-ingar hafa sýnt að
þeir standa FH-ingum ekki langt að baki,“
sagði Þorbjörn. Hann sagði að reynsla
FH-inga gæti vegið þungt og eins væru
þeir á heimavelli. „Á móti kemur að fyrri
leikirnir hafa tekið mikinn toll hjá eldri leik-
mönnunum, sem eru fleiri í herbúðum FH.
Ég held að ÍR-ingar séu í betri líkamlegri
æfíngu og hafa vaxið með hvequm leik.
Markmið IR var að komast í átta liða úr-
slit en hefur gert gott betur. ÍR er spútni-
klið deildarinnar það er engin spurning. En
eins og ég hef svo oft sagt áður er það
dagsformið sem ræður mestu í svona leikj-
um.“
En er ekki erfitt fyrir ykkur Valsmenn
að bíða og vita ekki hvoru liðinu þið mætið?
„Nei, nei. Við förum saman á leikinn i Hafn-
arfírði annað kvöld [í kvöld] og komum síð-
an saman á laugardaginn og spáum i mót-
heijann í úrslitunum,“ sagði Þorbjörn.
KNATTSPYRNA
Marco Tanasic
afturtilÍBK
Serbinn Marco Tan-
asic leikur með
Keflvíkingum í 1. deild-
inni í knattspymu í
sumar. Hann lék með
liðinu í 2. deild síðustu
þijú keppnistímabil og
ætlaði sér ekki að ieika
með í sumar. En vegna
ástandsins í heima-
landinu, Serbíu, ákvað
hann að koma aftur til
íslands og leika með
ÍBK.
„Tanasic styrkir
hópinn mikið. Hann er
tr\jög góður miðvallarleikmaður og við erum
famir að þekkja hann vel. Hann getur lfka leikið
í framlínunni," sagði Jóhannes Ellertsson, formað-
ur knattspymudeildar ÍBK og bætti við að þeir
væru bjartsýnir á gott gengi í 1. deild í sumar.
„Vorleikimir lofa góðu fyrir sumarið."
ÞYSKALAND
Schuster til
Leverkusen
Bernd Schuster, knattspyrnukappinn kunni frá
Þýskalandi, sem hefur leikið á Spáni síðan
Barcelona keypti hann frá Köln 1980, hefur
ákveðið að snúa heim og gerast leikmaður með
Bayer Leverkusen. Schuster, sem er 33 ára mið-
vallarleikmaður, mun skrifa undir þriggja ára
samning við félagið um helgina.
Schuster hefur leikið með Atletico Madrid, en
áður lék hann með Real Madrid og Barcelona.
Hann á hús í rétt utan við Leverkusen. Schust-
er, sem vakti heimsathygli í Evrópukeppni landsl-
iða 1980 á Ítalíu, lék aðeins 21 landsleik fyrir
V-Þýskaland á árunum 1979 til 1984.
SKOTLAND
McCoist
fótbrotinn
Skoski landsliðs-
maðurinn Ally
McCoist, markakóngur
Evrópu, mun ekki leika
meira á þessu keppnis-
tímabili. Hann fót-
brotnaði í landsleik
gegn Portúgal í Lissa-
bon á miðvikudaginn.
Þegar skoska landsliðið
komið til Edinborgar-
flugvallar í gær, var
McCoist fluttur beint í
sjúkrabíl til Glasgow,
þar sem hann fór í
skoðun á sjúkrahúsi. Eftir röntgenmyndatöku
kom í ljós að hægri fótleggurinn var brotinn.
McCoist brotnaði eftir samstuð við vamarmann-
inn Oceano rétt fyrir lok leiksins, sem Portúgal
vann 5:0.
ENGLAND
Gascoigne
kjálkabrotinn
E^aul Gascoigne er kjálkabrotinn og verður frá
■ keppni í minnst tvær vikur. Hollenski lands-
liðsmaðurinn Jan Wouters, sem leikur með Bay-
ern Miinchen, gaf Gascoigne olnbogaskot í andlit-
ið í HM-leik á Wembley á miðvikudaginn. Wout-
ers sagði um atvikið að hann og Gascoigne hafí
stokkið upp saman. „Ég veit ekki hvað gerðist.
Það andar ekki köldu á milli mín og Gascoigne.“