Morgunblaðið - 05.05.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAI 1993
^ 19
Höfundur bókarinnar „Ekki án dóttur minnar“ til íslands
Betty Mahmoody að-
stoðar Sophiu Hansen
andi til þess að líta yfir stöðuna,“
sagði hún í samtali við Morgun-
blaðið.
Hún játti þvi að málið væri
afar erfitt. „Þannig er því líka
yfirleitt farið þegar börn eru flutt
til þessa heimshluta. Ehi málið er
mjög áríðandi vegna þess að
stúlkurnar eru orðnar þetta gaml-
ar og af þeim upplýsingum sem
þær hafa gefið er ljóst að þær
vilja koma aftur til íslands. Svo
skiptir líka miklu máli að þær fá
ekki að lifa eðlilegu lífi í Tyrk-
landi og er haldið föngnum. Ég
segi það fyrir mig að ég hefði
sennilega haldið út að vera í íran
ef mér hefði ekki verið haldið þar
fanginni. Ef ég hefði getað um
frjálst höfuð strokið eins og hitt
fóikið þar,“ bætti Betty við.
Hlakka til heimsóknarinnar
Þegar spurst var fyrir um Is-
landsheimsóknina sagðist Betty
hlakka til að koma til íslands.
yBókin mín kom út á íslensku á
Islandi en ég hef aldrei komið
þangað þó ég hafi komið til
margra annarra landa. Fólkið sem
unnið hefur að málinu og hefur
talað við mig er líka mjög indælt.
Mér finnst aðeins leiðinlegt að
geta ekki verið lengur á íslandi
til þess að fá tækifæri til þess að
sjá svolítið af landinu ykkar,“
sagði hún að lokum.
Framkvæmdastj óri Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum
Getum ekki sætt okkur við
að fatlaðir séu varavinnuafl
„SAMTÖK fatlaðra á Norður-
löndum inunu á næstunni leggja
mesta áherslu á atvinnumálin,
en því miður vill það oft verða
svo þegar samdráttur verður,
að þá detta fatlaðir fyrst út af
vinnumarkaðnum og eiga jafn-
framt erfiðast með að komast
inn á hann. Við getum auðvitað
ekki sætt okkur við að fatlaðir
séu þannig einhverskonar vara-
vinnuafl í samfélaginu," segir
Boo Fogelberg, framkvæmda-
stjóri Bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum, en hann er nú
staddur hér á landi til að und-
irbúa stjórnarfund bandalags-
ins sem haldinn verður á Akur-
eyri 17.-19 júní næstkomandi.
Fundurinn er haldinn til skiptis
á Norðurlöndunum, en forseti
bandalagsins nú er Jóhann Pét-
ur Sveinsson, og gegnir hann
formennskunni til 1996
140 þúsund manns
innan samtakanna
Bandalag fatlaðra á Norður-
löndum var stofnað árið 1948, og
innan vébanda þess eru samtals
140 þúsund manns. Bandalagið
vinnur á félagslegu sviði og að
sögn Boo Fogelberg er eitt af
stærstu verkefnum þess að skipt-
ast á hugmyndum og reynslu milli
aðildarsamtakanna.
„Bandalagið hefur nokkrar
áhyggjur af þeirri þróun í sam-
starfi Norðurlandanna sem fram
kemur í yfirlýsingu forsætisráð-
herra Norðurlanda um að breyta
eigi eðli Norðurlandasamstarfsins
og leggja meiri áherslu á menning-
arleg tengsl. Við vonum hins vegar
að það muni ekki draga úr vægi
samstarfs fatlaðra á Norðurlönd-
um, og þeirra nefnda og ráða sem
starfa að málefnum fatlaðra,"
í forystusveit
TRYGGVI Friðjónsson, framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar, Jóhann
Pétur Sveinsson, forseti Bandalags fatlaðra á Norðurlöndum, og
Boo Fogelberg, framkvæmdastjóri bandalagsins.
sagði Boo Fogelberg í samtali við
Morgunblaðið.
Norðurlöndin langt á undan
Fogelberg sagði að á flestum
sviðum væru Norðurlöndin nokkuð
langt á undan flestum öðrum Evr-
ópuþjóðum hvað varðar málefni
fatlaðra, og þar munaði kannski
mest um það að á Norðurlöndum
væri litið á það sem sjálfsagðan
hlut að skattpeningum væri varið
til að jafna aðstöðu milli fatlaðra
og ófatlaðra á meðan slíkt væri
almennt ekki viðurkennt annars
staðar í Evrópu.
„Þá skilur það líka að að samtök
fatlaðra annars staðar í Evrópu
eru kannski viljugri til að sætta
sig við sérlausnir á ýmsum hlutum
á meðan samtök á Norðurlöndum
telja slíkt mjög óæskilegt og telja
að málefni fatlaðra eigi að vera
hluti af heildarmálefnum samfé-
lagsins og lausnir á vandamálum
þess eigi að ná yfir alla í samfélag-
inu.“
Full atvinna
verði tryggð
FRAMKVÆMDASTJÓRN
Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra, sainþykkti á 250.
fundi sínum, sem haldinn var
á Bolafjalli við ísafjarðardjúp
1. maí, ályktun þar sem skorað
er á ríkisstjórn íslands og hið
háa Alþingi að taka höndum
saman við hagsinunasamtök
atvinnuveganna til að tryggja
fulla atvinnu og koma í veg
fyrir lífskjararýrnun almenn-
ings í landinu.
I fréttatilkyunningu frá
Sjálfsbjörg er bent á að aldrei
sé meiri þörf á breiðri samstöðu
þjóðarinnar en á samdráttartím-
um sem nú. Sjálfsbjörg treysti
því að á þessu sé víðtækur skiln-
ingur og að sameinaðir muni
Islendingar vinna sig út úr þess-
um vanda sem öðrum.
BETTY Mahmoody, höfundur bókarinnar „Ekki án dóttur
minnar", kemur í tveggja daga heimsókn til Islands 12. maí næst-
komandi. Tilgangur Islandsfararinnar er að afla gagna um for-
ræðismál Sophiu Hansen í þeim tilgangi að verða henni að liði í
deilunni. Arið 1990 stofnaði Betty samtökin „Einn heimur fyrir
börn“ og hafa þau unnið að mannréttindamálum barna.
Betty er búsett í Bandaríkjun-
um en fór ásamt írönskum eigin-
manni sínum og ungri dóttur
þeirra til íran 3. ágúst árið 1984.
Aðeins átti að vera um tveggja
vikna sumarleyfisferð að ræða en
eiginmaður hennar hélt henni og
dóttur þeirra nauðugum í landinu
þar til þeim tókst að flýja úr landi
við illan leik og komast til Banda-
ríkjanna 7. febrúar 1986.
Eftir heimkomuna skrifaði
Betty bókina „Ekki án dóttur
minnar“ um reynslu sína og dótt-
ur sinnar í íran. Bókin aflaði Betty
heimsfrægðar enda var hún gefin
út á fjölda tungumála, m.a. ís-
lensku, og kvikmynd með Sally
Field í aðalhlutverki var gerð í
kjölfarið. Seinna skrifaði svo
Betty aðra bók og er í henni aðal-
lega fjallað um áðurnefnd samtök,
„Einn heimur fyrir börn“. Sú bók
hefur ekki verið gefin út hér á
landi.
Erfið staða
Betty staðfesti að hún væri á
leið til Islands í því skyni að hjálpa
Sophiu Hansen þegar haft var
í íran
Betty í fatnaði sem hún varð
að vera í þegar hún dvaldist í
íran.
samband við hana. „Ég ætla að
afla mér þeirra upplýsinga sem
ég þarf á að halda til þess að
geta ráðlagt Sophiu og skipulagt
aðgerðir henni til hjálpar. Stund-
um þegar fólk hefur í langan tíma
fylgst náið með einhveiju máli ei
betra að fá einhvern utanaðkom-
Styrkþegarnir
INGA Lóa Hannesdóttir og Svala Sigurðardóttir ásamt Einari Sveins-
syni, framkvæmdastjóra Sjóvá-Almennra.
Námsmenn styrktir
í UPPHAFI ársins 1992 settu Sjóvá-Almennar á markað fyrir náms-
menn sérstakar vátryggingar sniðnar að þeirra þörfum, Námsmanna-
tryggingar. Jafnframt var ákveðið að veita tveimur námsmönnum
úr hópi viðskiptavina námsstyrki
Fystu námsmannastyrkjum Sjó-
vár-Almennra var úthlutað sl.
föstudag og eru styrkbafar þær
Inga Lóa Hannesdóttir og Svala
Sigurðardóttir, báðar nemendur í
Háskóla íslands.
að fjárhæð 100.000 kr.
í dómnefnd voru Almar Eiríks-
son, formaður BÍSN, Ólafur Jón
Ingólfsson, deildarstjóri hjá Sjóvá-
Almennum, og Pétur Óskarsson,
formaður Stúdentaráðs.
Þijú frumvörp um sjávarútvegsmál bíða hausts
Greiðslur frestast
úr Þróunarsjóði
ÞRJÚ frumvörp sjávarútvegsráðherra um sjávarútvegsmál
verða ekki lögð fram á Alþingi fyrr en í haust vegna ósætt-
is í sljórnarliðinu um veiðar smábáta. Misritun varð í frétt
á blaðsíðu 2 í Morgunblaðinu í gær, en þar var frumvarp
haft í eintölu í stað fleirtölu og mátti skilja að einungis
væri um eitt sjávarútvegsmálafrumvarp að ræða.
Frumvörpin, sem um ræðir, eru
frumvarp um breytingar á lögum
um fiskveiðistjórnun, frumvarp um
stofnun Þróunarsjóðs sjávarút-
vegsins og frumvarp um afnám
Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegs-
ins.
Frestun framlagningar frum-
varpanna þýðir að núgildandi lög
um fiskveiðistjórnun munu gilda
óbreytt á næsta fiskveiðiári, sem
hefst í september. Frestun frum-
varpsins um Þróunarsjóð hefur í
för með sér að ekki er hægt að
byija að greiða úr sjóðnum til úr-
eldingar skipa eða vinnslustöðva
fyrr en í fyrsta lagi næsta haust
eftir að frumvarpið hefur verið
samþykkt á þingi.'
VIÐ RYMUM TIL
Vegna breytinga mikill
AFSLÁTTUR
af nýju sumarvörunum
Dragtir - pils - buxur o.m.fl.
'04/77l,r
FAXAFENI5
Faxafeni 5
TILBOÐSDAGAR
íGARNHÚSINU, FAXAFENI5
Prjónagarn á tilboðs- og kynningarverði.
Ull, bómull, mohair, angora o.m.fl. frá
JAEGER, PATOIMS OG
BOUTON D’OR