Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 31
Þýsk sálu-
messafluttí
Glenirkii’kju
KÓR Glerárkirkju efnir til tón-
leika í Glerárkirkju sunnudaginn
16. maí og hefjast þeir kl. 17.
Efnisskráin er tvíþætt að þessu
sinni. í fyrri hlutanum eru nokkur
stutt kórverk og útsetningar eftir
listamenn sem bjuggu eða búa á
Akureyri, Björgvin Guðmundsson,
Jakob Tryggvason, Jón Hlöðver
Áskelsson, Elísabetu Geirmundsdótt-
ur og Áskel Snorrason, svo og kór-
verk tveggja þýskra tónskálda,
Dressler og Schutz, en verkið eftir
þann síðarnefnda er fyrir tvo kóra og
orgel.
Á seinni hluta efnisskrárinnar er
Þýsk messa eftir Franz Schubert, en
hann gerði tvær útgáfur af verkinu,
aðra fyrir blandaðan kór og blásara-
sveit en hina fyrir blandaðan kór og
orgel. Á tónleikunum á sunnudaginn
verður messan flutt með undirleik
orgels sem Hjörtur Steinbergsson
leikur á.
Fyrir réttum 10 árum, 8. maí
1983, flutti Kirkjukór Lögmannshlíð-
arsóknar, eins og kór Glerárkirkju
hét áður, þýsku messuna í nýgerðri
íslenskri þýðingu Sverris Pálssonar,
sem þá var einn kórfélaga. Þykir því
vel við hæfi að flytja kórverkið aftur
á fyrstu tónleikum kórs Glerárkirkju
í nývígðri kirkjunni, 10 árum eftir
frumflutning íslenska textans.
---------♦ ♦ ■»--
Meistarar o g
verktakar
funda á KEA
AÐALFUNDUR Meistara- og
verktakasambands bygginga-
manna verður haldinn á Hótel
KEA á morgun, laugardag, og
hefst hann kl. 9.00. Þessi samtök
I atvinnurekenda í byggingaiðnaði
voru stofnuð árið 1958 og verða
því 35 ára á árinu.
Ingvar Á. Guðmundsson, for-
maður MVB, flytur skýrslu stjórnar
og síðan taka við önnur aðalfundar-
störf. í hádegisverðarhléi mun
Bernharð Haraldsson, skólameist-
ari Verkmenntaskólans á Akureyri,
flytja erindi, en eftir hádegi verður
m.a. kynning á samtökum iðnaðar-
ins. Boðið verður upp á skoðunar-
ferð í byggingarvörudeild KEA að
þingi loknu og loks verður efnt til
lokahófs um kvöldið.
Nemendur áttunda bekkjar í Stóruljarnaskóla í Ljósavatnsskarði
Viðurkenning fyrir kennsluforit
ÁTTUNDUBEKKINGAR í Stórutjarnaskóla bjuggu til kennslufor-
rit um orku og Norðurlönd og hlutu viðurkenningu, en þau kynntu
starfsmönnum Rafmagnsveitu ríkisins á Akureyri forritið í gær.
Frá vinstri, Manfred Lemke, Tryggvi Aðalsteinsson og Ingólfur
Árnason, þá nemendurnir Kári, Árni Brynjar, Árni, Auður, Krist-
ín, Ólafur, Benjamín, Hörður, Valur og Elín Sigríður.
Bjuggu til kennsluforrit
um orku á Norðurlöndum
KRAKKARNIR í áttunda bekk í Stj órutj arnaskóla í Ljósa-
vatnsskarði _ hlutu viðurkenningu Sambands íslenskra
rafveitna, SÍR, fyrir verkefni sem þau unnu i samkeppni
sem bar yfirskriftina orka, æska og framtíðin. Þau
brugðu sér bæjarieið í gær og kynntu starfsfólki Raf-
magnsveitna ríkisins á Akureyri afrakstur vinnu sinnar,
kennsluforrit um orku, sem heitir Orka og Norðurlönd.
í tilefni af 90 ára afmæli raf-
veiturekstrar og að 50 ár eru frá
því að rafveitur landsins mynduðu
með sér samband verður efnt til
afmælisþings og sýningar í Há-
skólabíói í haust og verður einn
þáttur þess tileinkaður æskunni.
Grunnskólum landsins var boðið
til samstarfs, þ.e. þeim nemendum
sem lærðu um rafmagn, en þeir
gátu unnið að verkefni sem tengd-
ist raforku og nýt.ingu hennar
Mikil vinna
Kennsluforritið heitir Orka og
Norðurlönd og í því má finna
margvíslegar upplýsingar um
þetta efni, m.a. á hvem hátt mis-
munandi orka er framleidd, meng-
un af hennar völdum, hvar hún
finnst og margt fleira og einnig
er greint frá hveiju og einu Norð-
urlandanna og hvernig orkuþörf
er leyst í hveiju þeirra fýrir sig.
Manfred Lemke, eðlisfræði-
kennari, sagði að mikil vinna hefði
farið í gerð forritsins, en krakk-
amir hafa unnið að því í vetur
að búa það til, viða að sér fróð-
leik um orku og koma honum
fyrir í kennsluforritinu.
Skoða Kröflu
Ingólfur Árnason rafveitustjóri
sagði að nemendunum yrði boðið
að kynna kennsluforritið á afmæl-
isþinginu sem haldið verður í
haust og eins myndi þeim á næst-
unni verða boðið að skoða Kröflu-
virkjun og kynnast þeirri starf-
semi sem þar fer fram.
I SAMBAND íslenskra mynd-
listarmanna, SÍM, hefur ákveðið
að boða til málþings um samskipti
opinberra aðila við íslenska lista-
menn og samtök þeirra sem ber
yfirskriftina „Stjórnkerfi menn-
ingarinnar". Þingið verður á Hótel
Borg (Gyllta sal), sunnudaginn
16. maí nk. kl. 10.00-17.00. Mál-
þingið er öllum opið.
Frummælendur á þinginu verða
margir en áhersla lögð á að erindi
þeirra verði stutt (10. mín.) þannig
að gott svigrúm gefist til umræðna
og skoðanaskipta meðal þinggesta.
Meðal frummælenda verða m.a.
listamenn, áhugamenn um íslenska
menningu og stjórnmál, stjórnmála-
menn og fulltrúar Menntamála-
ráðuneytis og Reykjavíkurborgar.
Sú staðreynd að listamönnum og
eða samtökum þeirra er ljóst og
leynt haldið utan við alla ákvarð-
anatöku varðandi mikilvæga þætti
1 í íslensku menningarlífi hefur vakið
upp spurningar um stjórnkerfi
menningarinnar, áhrif stjómmála-
* og embættismanna, stýringu fjár-
magns, forgangsverkefni, pólitískar
mannaráðningar, valddreifingu o.fl.
< o.fl.
Nokkrar umdeildar ákvarðanir
stjórnmálamanna varðandi menn-
inguna má nefna, en nýleg dæmi
sem vakið hafa spurningar eru m.a.
- þær miklu framkvæmdir sem fyrir-
hugaðar era á Korpúlfsstöðum og
hafa ýmist verið nefndar Errósafn
eða listamiðstöð Reykjavíkurborg-
ar. Einnig mætti nefna nokkrar
ákvarðanir varðandi menningar-
stofnanir ríkisins, s.s. Þjóðleikhúsið,
Þjóðminjasafnið, Ríkisútvarpið,
Listasafn íslands, Listaháskólann
og e.t.v. fleiri. Þá má einnig gera
ráð fyrir að áform menntamálaráð-
herra um skiptingu ráðuneytis síns
í Mennta- og Menningarráðuneyti
veki upp einhveijar spurningar.
Það er von þingboðenda að mál-
þing þetta verði til þess að skerpa
meðvitund þeirra sem tengjast ís-
lensku menningarlífi um samskipti
listamanna og opinberra aðila, svari
einhveijum spurningum og kveiki
ijölmargar nýjar.
(Fréttatilkynning)
■ FRAMHALDSSKÓLANUM á
Lauguin í Suður-Þingeyjarsýslu
verður slitið laugardaginn 15. maí
1993 kl. 14. Gestum og velunnurum
skólans er velkomið að koma og
vera við athöfnina og þiggja kaffi-
veitingar í boði skólans að henni
lokinni.
í vetur stunduðu 120 nemendur
á aldrinum 15-20 ára nám við skól-
ann. Tuttugu og átta nemendur
ljúka grunnskólaprófí við skólann.
Nám er stundað til tveggja ára á
mála- og náttúrafræðibraut. Einnig
nám til fjögurra ára á ferða-, mála-
og íþróttabraut. Fyrstu nemendur
skólans ljúka nú fjögurra ára námi
til stúdentsprófs. Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ metur námið og útskrif-
ar stúdentana. Allt nám og prófin
sín taka þeir hins vegar heima á
Laugum. Skólinn hefur verið í örum
vexti frá stofnun og skólastarf
gengið vel í vetur.
(Fréttatilkynning)
■ í marsmánuði sl. lék Ríó-Tríóið
f Naustkjallaranum. Þeir félagar
hafa ákveðið að syngja um þessa
og næstu helgi þar í kjallaranum
og gera ráð fyrir að Islendingar
m,æti til að taka lagið með þeim.
Þeir syngja þjóðlög og önnur lög
en einkum öll góðu gömlu Ríó-lög-
in, sem svo margir kunna. Það hef-
ur verið þéttsetinn bekkurinn í
Naustkjallaranum, þegar þeir fé-
lagar hafa verið þar og stemmning
góð. Með þeim leikur á gítar Björn
Thoroddsen, sem þekktari er sem
djassgítarleikari. Ríó heldur upp á
þrjátíu ára söngafmæli sitt á næsta
ári.
Kennarar-kennarnr
Skólastjóra og kennara vantar til starfa við
Grunnskóla Grímseyjar.
Á komandi skólaóri verða 13 nemendur í skólanum
ó aldrinum 6-1 2 óra.
Sóst er eftir að fó par til starfa.
Húsnæðisfríðindi eru í boði. Upplýsingar gefur formað-
ur skólanefndar, Sigrún Þorlóksdóttir, í síma 731 15.
Skólcmefnd Grimseyjar.
HÁSKÓLINN
A AKUREYRI
Fyrirlestur
Tími: Laugardagurinn 15. maí kl. 14.00.
Staður: Hóskólinn ó Akureyri við Þingvalla-
stræti, stofa 24.
Flytjandi: Tryggvi Gíslason, skólameistari.
Efni: Mól og mannshugur, hugsun og orð -
um rétt mól og rangt.
Öllum er heimill aðgangur