Morgunblaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MAI 1993
IAM-fr
IiUAag7r
í©M-
-æ
39
Inga Þórbjörg Sváv-
arsdóttir — Minning
Fædd 11. júní 1938
Dáin 9. maí 1993
Þér gefíð var allt,
sem getur prýtt:
gleðinnar bros og viðmót hlýtt,
þó vekti þér sorg í sinni.
Trú þín gaf þér
í stríði styrk,
stór og göfug og mikilvirk,
og samboðin sálu þinni.
(Dr. Sveinn E. Bjömsson)
Þessar ljóðlínur minna mig á Ingu
frænku mína, sem látin er eftir
þungbær veikindi. Henni tókst ekki
að vinna bug á þeim þrátt fyrir
framfarir í læknavísindum, einstak-
an viljastyrk og lífslöngun.
Inga var fædd á Akureyri 11.
júní 1938. Hún var dóttir Helgu
Ingimarsdóttur, móðursystur
minnar og Svavars Helgasonar
verksmiðjustjóra í Smjörlíkisgerð
Kaupfélags Eyfirðinga, sem látinn
er fyrir mörgum árum. Inga ólst
upp, ásamt tveim systrum sínum,
Valborgu og Agnesi, á myndarlegu
og fallegu heimili í Kaupvangs-
stræti 25, sem nú nefnist Listagil.
Ég minnist Ingu sem lítillar glað-
legrar stelpu geislandi af lífsorku,
atorkusamrar skátastúlku og mynd-
arlegrar húsmóður í Vanabyggð 10
d, þar sem hún og eiginmaður henn-
ar Guðmundur Þorsteinsson verk-
stjóri hjá Slippstöðinni og organisti
bjuggu lengst af. Þau eignuðust
þtjá syni: Elstur er Ingimar sjúkra-
þjálfari, hann er búsettur í Noregi
ásamt Elínu Harðardóttur, frá Bol-
ungarvík. Hún stundar nám í nær-
ingarfræði við Óslóarháskóla. Þau
eiga einn son, Loga, sem var sólar-
geisli ömmu sinnar. Næstur er Ár-
mann Helgi rafeindavirki. Unnusta
hans er Elsa Guðmundsdóttir nemi
í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Yngstur er Svavar Þór, sambýlis-
kona hans er Hildur Pétursdóttir,
frá Bolungarvík. Þau stunda bæði
nám í Háskóla Islands.
Vinnudagur Ingu var aðallega
innan heimilisins og við verslunar-
störf á síðari árum. Sjaldan hef ég
séð glaðari hjón en Ingu og Guð-
mund er þau lögðu upp í ferð með
karlakórnum Fóstbræðrum í söng-
för til Kanada. Guðmundur var
fenginn til að syngja með kómum
og Inga „flaut með“, eins og hún
komst að orði sjálf. Ferðarinnar
nutu þau í ríkum mæli.
Ingu frænku minni kynntist ég
best þegar veikindin heijuðu á hana
og hún dvaldist vikum saman á
sjúkrahúsum hér í Reykjavík. Bjart-
sýnin og vonbrigðin toguðust á, er
beðið var nær daglega eftir fréttum
af því hvað rannsóknir leiddu í ljós.
Hún ræddi sjúkdóminn, krabba-
meinið af einlægni, hvemig það þró-
aðist og hvaða möguleikar virtust
vera fyrir hendi, staðráðin í því að
standast allar þrautir. Maður fór
því ríkari frá henni og fullur aðdáun-
ar. Hjá henni voru engar efasemdir
um líf eftir dauðann og trúin á
kraftaverkin leiddu hana áfram á
erfiðum stundum. í veikindum sín-
um naut hún einstakrar umönnuhar
fjölskyldunnar allrar, sem umvafði
hana kærleika og fylgdist með henni
til hinsta dags.
Með virðing og þökk kveð ég
kæra frænku mína og votta fjöl-
skyldu og vinum dýpstu samúð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Bryndís Steinþórsdóttir
Minning
Sigríður S. Bjarklind
Fædd 7. marz 1910
Dáinn 8. maí 1993
Elskuleg Sissí okkar er látin. Hún
varð 83 ára gömul 7. mars sl., fædd
1910. Hún var vinkona okkar allra
í fjölskyldunni og Húsavíkursystir
mín og hefur verið það síðan 1932,
er ég var 10 ára gömul og var svo
heppin að vera boðin í sumardvöl
til þessa góða fólks í Formannshúsi
á Húsavík. Foreldrar hennar voru
Sigurður S. Bjarklind og Unnur
Benediktsdóttir Bjarklind (Hulda).
Auk Sissíar áttu þau synina Jón og
Benedikt. Þetta var einstaklega
elskuleg fjölskylda. Benedikt lést
árið 1963.
Á heimilinu voru einnig foreldrar
Unnar, Guðný Halldórsdóttir og
Benedikt Jónsson frá Auðnum í
Laxárdal, tvær stúlkur sem sáu um
húsverkin og Fúsi sem sá um kýrn-
ar. Þetta fólk var allt svo gott við
mig, að ég fæ það aldrei fullþakk-
að. Þetta var sólskinssumar og mik-
ið um að vera, mikill gestagangur
- bæði næturgestir og aðrir sem
áttu leið um og komu í mat og kaffi.
Það var full þörf á að hafa tvær
stúlkur. Sissi tók þátt í þessu öllu
og stjórnaði heimilinu, því að móðir
hennar var oft veik.þetta sumar.
Þetta var heimili í þjóðbraut - menn-
ingarheimili.
Árið 1935 fluttist Bjarklindfjöl-
skyldan til Reykjavíkur og settist
að á Mímisvegi 4 og bjó þar fyrstu
árin. Þangað var alltaf jafn gott að
koma, í afmæli og jólaboð og hve-
nær sem var þar fyrir utan. Fljót-
lega eftir komuna til Reykjavíkur
fékk Sissí vinnu á skrifstofu Álþing-
is og starfaði þar fram yfir sjötugt.
Oft voru vökunætur fyrir jólafrí
þingmanna og fyrir þingslit á vorin.
Þá lagði hún oft nótt við dag í vinn-
unni.
Sissí var mikil handavinnukona,
saumaði t.d. mörg falleg veggteppi
og hjálpaði mörgum konum að velja
liti í teppi. Það lék allt í höndum
hennar, hvort sem það handavinna
eða matargerð. Sissí bjó í mörg ár
á Austurbrún 4, í nágrenni við okk-
ur og kom sem betur fer oft i heim-
sókn til okkar. Það var svo notalegt
að njóta tryggðarinnar sem hún
sýndi okkur alla tíð og þá var sam-
band hennar og Jóns bróður hennar
og fjölskyldna hans mjög elskulegt.
Hinn 27. nóvember 1990 veiktist
Sissí og hefur legið á Borgarspítal-
anum síðan þar til hún lést 8. mai
sl. Hún kvartaði aldrei og þakkaði
svo vel fyrir allt sem fyrir hana var
gert. Það var hugsað mjög vel um
hana. Þökk sé öllum þeim sem tóku
þátt í því.
Ég sé fyrir mér þá sem hafa tek-
ið á móti henni eftir að hún skildi
við héma megin. Það hefur verið
góð heimkoma.
Guð blessi Sissí okkar. Hafí hún
þökk fyrir allt.
Björg Jónsdóttir.
í dag er til moldar borin Sigríður
S. Bjarklind, en hún lézt á Borgar-
spítalanum 8. maí sl. eftir langvinn
veikindi.
Hún fæddist á Húsavík 7. marz
1910, og var af merkum þingeysk-
um ættum, einkadóttir hjónanna
Unnar Benediktsdóttur frá Auðn-
um, sem er betur þekkt undir nafn-
inu Hulda skáldkona, og Sigurðar
Sigfússonar Bjarklind, kaupfélags-
stjóra þar, en auk Sigríðar áttu þau
hjón tvo syni, Benedikt og Jón.
Þótt Sigríðður væri ekki lang-
skólagengin, þá var hún gagn-
menntuð kona og vel að sér og
mjög fjölhæf um margt. Hún dvald-
ist um tíma bæði í Englandi og
Danmörku, en lengst af bjó hún hér
í Reykjavík og starfaði í fjöldamörg
ár sem ritari á skrifstofu Alþingis.
Ég var ung að árum, þegar kynni
tókust með okkur Sigríði heima hjá
móðursystur minni, þar sem hún var
tíður gestur, enda þær miklar og
góðar vinkonur, frá því að þær
kynntust í Danmörku.
Þegar ég eltist, var mér það sér-
stakt tilhlökkunarefni að hitta Sig-
ríði eða Sissý, eins og hún var oft-
ast kölluð meðal vina og vanda-
manna, þá er ég og foreldrar mínir
fórum til móðursystur minnar um
helgar og hátíðir, þótt fljótlega hafi
Sissý einnig orðið aufúsugestur á
heimili foreldra minna, því að það
var alltaf svo fróðlegt og skemmti-
legt að tala við hana og heyra hana
segja frá mörgu, sem fyrir hafði
borið á lífsleiðinni. Hún var svo
margfróð um menn og málefni á
Húsavík, auk þess sem hún hafði
alltaf einhveijar ‘sögur á takteinum
af því, sem hafði gerst innan veggja
Alþingishússins fyrr og síðar, og
þá kom í ljós, hversu ríkri kímni-
gáfu hún var gædd.
Hver fugl skal þreyta flugið móti sðl,
að fótskör guðs, að lambsins dýrðarstól,
og setjast loks á silfurbláa tjörn
og syngja fyrir lítil englaböm.
Og eins og bamið ris frá svefnsins sæng,
eins sigrar lífið fuglsins mjúka væng.
Er tungan kennir töfra söngs og máls, 5
þá teygir hann sinn hvíta svanaháls.
Nú fljúga mínir fuglar, góða dís.
Nú fagna englar pðs í Paradís.
(Davíð Stefánsson)
Inga, móðursystir okkar, var
dóttir hjónanna Helgu Ingimars-
dóttur og Svavars Helgasonar á
Akureyri. Hún var gift Guðmundi
Þorsteinssyni og áttu þau þijá syni,
Ingimar, Ármann Helga og Svavar
Þór. Milli fjölskyldna okkar hefur
alltaf verið mikill samgangur og því
eigum við margs að minnast þegar
leiðir skilja um stundarsakir.
Við vitum að Inga frænka trúði
því að jarðneskur dauði væri ekki
endalok, heldur upphaf að öðru lífi,
á tilverusviði sem okkur er hulið,
en við viljum samt sem áður byggja
trú okkar á.
Þess vegna er það okkur huggun
að nú hafi fijáls andi hennar fundið
griðastað, ný verk að vinna og eitt-
hvað til að gleðjast yfir.
Reyndar er ákaflega auðvelt að
sjá hana fyrir sér syngja fyrir lítil
englaböm eins og fuglamir gera í
kvæði Davíðs því að hún hafði af-
skaplega gaman af börnum og var
okkur öllum afar góð frá því að við
munum fyrst eftir okkur. Við stelp-
‘umar höfum a.m.k. örugglega allar
fengið saumuð og pijónuð dúkkuföt-
á dúkkumar okkar í jólagjöf frá
Ingu og hún hafði gaman af að
greiða þeim og punta þær fyrir okk-
ur.
Fjölskyldur okkar hittust oft og
ég hugsa að öllum séu minnisstæðar
sameiginlegar ferðir okkar á sumrin
þegar við vorum yngri og þau okkar
sem em elst muna þegar við vomm
í Bjarkalundi í Vaglaskógi, busluð-
um í læknum og spiluðum krikket
á grasflötinni.
Síðan þetta var höfum við öll
fullorðnast og ánetjast striti hvers-
dagsins, en minningarnar um sam-
heldna og góða fjölskyldu bernsk-
unnar hafa gefíð okkur öllum gott
veganesti. Með þeim minningum
mun Inga alltaf lifa.
Inga hafði ýmis áhugamál. Hún
var gamall skáti og hafði gaman
af ferðalögum, útivem og tónlist,
auk þess sem hún var mikil handar-
vinnukona og greip í kennslu i
grunnskóla í forföllum.
En þrátt fyrir öll áhugamálin átti
fjölskyldan hug hennar og hjarta
og þá ekki síst barnabarnið sem hún
gladdist yfir síðastliðin ár.
Við þökkum Ingu fyrir allar góðu
minningarnar og biðjum Guð að
geyma hana hjá sér og styrkja
ömmu, Munda, Ingimar, Ármann,
Svavar og fjölskyldur þeirra á erfið-
um stundum.
Systrabörn.
Ég kynntist líka snemma, hver
fagurkeri hún var í bókmenntum
og listum, og hversu ákveðnar skoð-
anir hún hafði á þeim sviðum sem
öðmm. Heimili hennar bar smekk-
vísi hennar og fegurðarskyni einnig
ljósan vott, og hversu listfeng hún
var, en á því sviði áttum við margt
sameiginlegt. Hún var höfðingi heim
að sækja og góður gestgjafi.
Ég tel mig mjög lánsama og ríka
að hafa fengi að kynnast Sigríði,
enda er mikill lærdómur í því fólg-
inn að kynnast fólki eins og henni.
Hún var líka ákaflega vinholl og
trygglynd þeim, sem hún kynntist.
Því fengum við að kynnast, ég og
foreldrar mínir. Kynslóðabil virtist
heldur ekki fyrirfinnast, þar sem
hún var annars vegar, enda var
augljóst, að hún naut þess að hafa
ungt fólk í kringum sig.
Þegar ég nú kveð Sigríði Bjark-
lind, er mér efst í huga þakklæti
fyrir allar þær góðu stundir, sem
við áttum saman, góða viðkynningu,
trygga vináttu við mig og mína og
allan þann fróðleik, sem hún miðl-
aði mér og öðrum.
Ég bið Guð að blessa henni heim-
komuna og votta nánustu aðstand-
endum samúð mína.
Blessuð sé minning Sigríðar
Bjarklind.
Guðbjörg Snót Jónsdóttir.
Kveðja frá starfsfólki
Alþingis
í dag er til moldar borin Sigríður
Bjarklind er lést í Borgarspítalanum
8. maí sl. eftir langa og erfíða
sjúkrahúslegu.
Sigríður fæddist 7. mars 1910
og var því orðin 83ja ára er hún
lést. Æskuheimili hennar var á
Húsavík í Þingeyjarsýslu, en for-
eldrar hennar voru Unnur og Sig-
urður Bjarklind. Heimili hennar var
mikið menningarheimili en móðir
hennar var hin þjóðkunna skáldkona
Hulda.
Hún fluttist með foreldrum sinum
til Reykjavíkur laust fyrir heims-
styijöldina síðari og hóf störf í skrif-
stofu Alþingis um það leyti. Starf-
aði hún í skrifstofu Alþingis í meira
en 40 ár með stuttum hléum.
Þótt hún hafi látið af störfum
fyrir allmörgum árum er hennar enn
minnst með þökk og virðingu fyrir
frábær störf og samviskusemi sem
af bar. Svo er henni og þökkuð góð
og ánægjuleg viðkynning.
Sigríður giftist aldrei og eignaðist
ekki börn, en lét sér alla tíð mjög
annt um íjölskyldu bróður síns og
sakna þau því vinar í stað.
Kripalujóga
Orka sem endist
Eldri borgarar
Síðasta númskeió fyrir sumarfrí.
Kennt mónud. og fimmtud.
kl. 10.30-11.30.
Kennari Hulda G. Sigurðardóttir.
Skeifunni 19,2. hæð, s. 679181 (kl. 17-19).
HÓPFERÐIR
HÖFUM GÆÐA HÓPBIFREIÐAR
FRÁ12TIL6S FARÞEGA
jjli
LEITIÐ UPPLÝSINGA
H0PFERÐAMIÐST0ÐIN
Bíldshöfða 2a,
> ,::;1
sfmi 685055, Fax 674969
Enskunám í Englandi
í boði fjölbreytt úrval námskeiða í hinum virta Bell School,
sem staðsettur er víða i' Englandi. Upplýsingar veitir:
Erla Aradóttir,
25 Stylemanroad,
NR5 9ET, Norwich, Englandi.
Simi 90-44-603-740-669.
Málþing um gildi íþrótta
íþróttanefnd ríkisins og menntamálaráóuneytið
efna til málþings um gildi íþrótta laugardaginn
15. maí nk. í Holiday Inn, Reykjavík, kl. 13.00.
Dagskrá
Þingsetning:
Ingi Björn Albertsson,
formaður Iþrótta-
nefndar rikisins.
Ávörp flytja:
• ÓlafurG. Einarsson,
menntamálaráð-
herra.
• Ellert B. Schram,
forseti ISI
• Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, formaður
stjórnar Sambands
íslenskra sveitar-
félaga.
Erindi:
Gildi iþrótta fyrir
ungt fólk:
Prófessor Þórólfur Þór-
lindsson fjallar um niður-
stöður úr könnun á við-
horfum og þátttöku ungs
fólks i íþróttum.
Umrœöur - Kaffihlé
Erindi:
Endurskoðun
íþróttalaga:
Reynir G. Karlsson,
íþróttafulltrúi ríkisins.
Umrœóur - Önnur mál.
Ráðstefnustjórar: Hafsteinn Þorvaldsson, Selfossi, og Lovísa
Sigurðardóttir, Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að málþinginu Ijúki um kl. 16.30.
Ollum er heimil þátttaka.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku ykkar j síma 609530.
íþróttanefnd rikisins.