Morgunblaðið - 14.05.1993, Síða 36
736
8feM,ORqyNffl4Ðift itiV, 'MAf(^^93_
Skortir jafnrétti í bótagreiðslum?
eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur
Þann 19. apríl sl. var athyglis-
vert mál til umræðu í dægurmálaút-
varpi Rásar 2. Þar kom fram að
mikið ósamræmi virðist vera í
tryggingagreiðslum til þeirra sem
hljóta varanlega örorku og hinna
sem hljóta tímabundna örorku
vegna slysa. í umflöllun Rásar 2
var m.a. talað við móður ungrar
stúlku sem slasaðist lífshættulega
í umferðarslysi fyrir fjórum árum
með þeim afleiðingum að hún
skaddaðist á mænu og verður að
dveija svo lengi sem hún lifír í hjóla-
stól. Þar kom einnig fram að hin
unga dóttir hennar var svo „ógæfu-
söm“ að slasast áður en hún lauk
námi, enda var hún aðeins 16 ára
þegar slysið átti sér stað. En þrátt
fyrir að það sé ekki í hennar valdi,
né nokkurra annarra, að ákveða
slíkar örlagastundir í lífínu er víst
hún hefði kosið að hafa verið búin
að ljúka námi áður en að því kom.
Þetta eru vissulega kaldhæðnisleg-
ar athugasemdir, en þó er þeim
kastað fram að gefnu tilefni.
Þannig háttar nefnilega til að
örorkumat tryggingafélaganna
miðast við skattskýrslu þeirra sem
eru svo ógæfusamir að verða
óvinnufærir. Unga stúlkan var að-
eins 16 ára þegar hún slasaðist og
þar af leiðandi ekki enn búin að
mennta sig. Og það var hennar
„ógæfa“. Þegar örorkubætur henn-
„Til samanburðar má
geta þess að ef unga
stúlkan hefði t.d. verið
starfandi verkfræðing-
ur, læknir, eða lögfræð-
ingur, hefðu bætur
hennar orðið umtals-
vert hærri...“
ar voru reiknaðar út var stuðst við
meðallaun iðnaðarmanna, og það
ekki full laun, heldur aðeins 75%
af meðallaunum iðnaðarmanna! Það
var með öðrum orðum gengið út
frá því sem vísu að hin unga og
efnilega menntaskólastúlka myndi
aldrei hafa hærri laun en sem því
nemur. Með tilliti til þess voru henni
dæmdar 7 milljónir í tryggingabæt-
ur og 1 milljón í miskabætur. Sam-
tals 8 milljónir.
Til samanburðar má geta þess
að ef unga stúlkan hefði t.d. verið
starfandi verkfræðingur, læknir,
eða lögfræðingur, hefðu bætur
hennar orðið umtalsvert hærri, enda
eru þessar stéttir, sem hér eru
nefndar af handahófi, mun hærra
launaðar en iðnaðarmenn.
Það sér hver maður að með þess-
um fáránlegu reglum er réttlætinu
gróflega misboðið. Ung mennta-
skólastúlka sem verður fyrir því
áfalli að mænuskaddast í blóma lífs-
ins hefur ekki sömu möguleika að
bjarga sér og sá sem þegar hefur
Fylgstu meb á föstudögum!
Heimili/fasteignir kemur út á föstudögum. Fasteignablaöiö er helsti vettvangur
fasteignaviðskipta hvort sem um er að ræða húsnæði til eigin nota eða til atvinnurekstrar. Þeir
sem hugsa sér til hreyfings eða vilja bara fylgjast með fasteignamarkaðinum og kynnast
nýjungum á sviði skipulags, viðhalds og nýsmíði fasteigna láta þetta blað ekki fram hjá sér
fara. í blaðinu er einnig að finna innlendar og erlendar fréttir sem tengjast fasteignum auk
þess sem fjallað er um heimilið og ótal möguleika til að prýða það og lagfæra.
- kjarni máhinsl
HEIMILI
BLAV
'itt.i.éi'tiN tÁ&m
Sjálfs-
elgnar
steftiai
Crí þét hthbréíékérf'00 v
r tomiá.hiliötmhni
komrð hun huflmyédr um i
,fnem.t»rlr*Wbyr9ÍiW
J#m tf á húsbréfvnum. Þ«tt
hufu
gtrztitengshjm
yiðumrmSurog
útgáfuhw-
bréia, útstreymi
þ#rraetol*ni-
fiérþorfhiniop-
Inbeta. AIMÓ-
i/tgámar af'
nimírfld*-
Iflsari víðmWunarmork vorfr-
andi veShmfni og tennileg*
sœ
Ragnheiður Davíðsdóttir
menntað sig og komið sér fyrir í
lífinu. Unga stúlkan sem hér hefur
verið nefnd verður því að láta þess-
ar 8 milljónir duga til þess að koma
sér upp sérhönnuðu húsnæði og
bifreið sem er forsenda þess að
fatlaðir geti lifað mannsæmandi lífí.
Varla þarf að taka fram að þeir
aurar duga skammt til slíkra fjár-
festinga.
Það eru vægast sagt einkennileg-
ar reglur sem ákveða að hálauna-
manneskja fái meiri bætur en sú
sem enn er í skóla, þrátt fyrir að
hinn líkamlegi skaði sé hinn sami.
Þar með er gengið út frá því sem
vísu að skólastúlkan verði aldrei
annað en láglaunamanneskja.
Samkvæmt skýrslu Umferðar-
EYFRIM 93
á Akureyri
29.-31. maí
Frímerki /
Jón Aðalsteinn Jónsson
Félag frímerkjasafnara á Akur-
eyri gengst fyrir frímerkjasýningu
á Akureyri um hvítasunnuhelgina í
lok þessa mánaðar. Nefnist hún
EYFRÍM 93 og verður haldin í
Iþróttahöllinni á Akureyri. Sýningin
verður opnuð laugardaginn 29. maí
kl. 14.00 með stuttri setningarat-
höfn, en síðan verður hún opin þann
dag til kl. 22.00. Sunnudaginn 30.
maí verður sýningin opin frá kl.
13.00 - 22.00 og frá kl. 13.00 -
17.00 á mánudeginum, sem er ann-
ar í hvítasunnu. Pósthús verður
opið alla sýningardagana og sér-
stimpill í notkun fyrir þá, sem þess
óska.
Islenzka póststjórnin verður með
sérstakan sölubás og eins póst-
stjórnir Færeyja og Grænlands. Þá
er þess vænzt, að einhverjir kaup-
menn verði með sölubása, en að
sjálfsögðu verður Félag frímerkja-
safnara á Akureyri og Akka, félag
safnara á Dalvík og nágrenni, með
sölubás. Þar verða til sölu sérgtök
umslög með merki sýningarinnar,
sem menn geta notað fyrir sérstimp-
il póststjórnarinnar. Eins verður
sýningarblokk gefm út með mynd
af Akureyrarfrímerkinu frá 1963.
Barmmerki með merki sýningarinn-
ar verða til sölu svo og minnispen-
ingar í takmörkuðu upplagi.
Á EYFRÍM 93 verður margt fróð-
legt að sjá. Sérstök áherzla verður
lögð á efni í unglingadeild, enda er
öllum ljóst, að nauðsynlegt er ein-
mitt að örva unglinga til þess að
sinna þessu holla og áhugaverða
tómstundastarfi. í þessari deild
verða mörg skemmtileg mótífsöfn
frá rúmlega 20 sýnendum, innlend-
um og erlendum. Hafa sum þeirra
fengið verðlaun á sýningum. Má þar
nefna safn Björgvins Inga Ólafsson-
ar, Fuglar í Norður-Evrópu, sem
fékk gyllt silfur (vermeil) á NÓRDJ-
UNEX 93 í Danmörku í marz sl.
Eru það hæstu verðlaun, sem ís-
lenzkt unglingasafn hefur fengjð til
þessa. Þetta safn var á NORDIU
93 í Finnlandi fyrir fáum dögum
og hlaut þar stórt silfur. Annað
verðlaunasafn nefnist Blóm í N.-
Evrópu. Það á Ólafur Kjartansson.