Morgunblaðið - 14.05.1993, Qupperneq 42
ffclK í
fréttum
KÓNGAFÓLK
Myndir af Andrési fylla
skrifborð Söru
Sara Ferguson segir að hún og
Andrés prins séu bestu vinir,
þrátt fyrir sambúðarslitin. „Ég hef
gert mistök og ég er mjög leið yfir
því, en Andrés er eftir sem áður
besti vinur minn. Við erum foreldrar
tveggja yndislegra stúlkna og hlut-
verk okkar er að vera faðir og móð-
ir þessara barna,“ sagði Sara í sam-
tali við blaðamenn fyrir nokkru. Við-
talið fór fram heima hjá henni, þar
sem blaðamennirnir sögðu að á skrif-
borði hennar væri fjöldi stórra og
smárra mynda af fyrrverandi eigin-
manninum — en engin mynd væri
þar hins vegar að finna af Johnny
Bryan, fyrrverandi elskhuga Söru.
Sara segist vera að jafna sig á
skilnaðinum og umtalinu og hún sé
mun hamingjusamari nú en hún hafi
verið að undanfömu. Lífið snúist um
að verða fullorðin, læra að verða
sjálfstæð og standa á eigin fótum.
Hún vill gjarnan sinna góðgerðar-
starfsemi og segir að miðað við öriög
fólks í Júgóslavíu sé líf hennar þrátt
fyrir allt rósum stráð.
Fergie er farin að brosa aftur
og segist nú vilja sinna góðgerð-
armálum af fullum krafti.
Bessastaðahrepps, f.v. Ása
Atladóttir, formaður kvenfé-
lagsins, Svanhvít Jónsdóttir
og Sigrún Knútsdóttir. Með
þeim á myndinni er farar-
stjóri þeirra i París, Laufey
Helgadóttir listfræðingur.
FERÐALÖG
„Bossaklúbbutínn44 fór
utan án Ola
safna fyrir lögfræðikostnaði vegna
01a,“ skríkti í þeim. Þess má geta,
að nafnið Bossastaðahreppur kom
frá þeim félögum í Imbakassanum,
sem gerðu óspart grín að málinu.
Fjáröflun á ýmsan máta
Fjáröflun fór fram með ýmsum
hætti. Meðal annars gáfu þær út
matreiðslubók, sem fékk nafnið
Fiskiréttir og var úrval eigin físki-
rétta. Sala bókarinnar gekk mjög
vel og fengu færri en vildu, að
sögn kvennanna.
Heilmikil dagskrá var í París
undir stjórn Laufeyjar Helgadóttur
listfræðings, sem búsett er þar.
Hún hafði á orði, að það sem kom
henni einna mest á óvart var hversu
ungar konurnar væru. „Þetta hefur
verið mjög líflegur og skemmtileg-
ur hópur,“ sagði hún við blaðamann
þegar hún hafði kvatt konurnar
úti á flugvelli. Meðal þess sem
hópurinn upplifði var að sigla á
Signu, fara í skoðunarferð um Par-
ís og heimsækja Rauðu mylluna.
Á flugvellinum í Frankfurt þar
sem var millilent, f.v. Sólbjörg
Karlsdótir, Ragnhildur Jó-
hannsdóttir, Þórhalla Þórhalls-
dóttir, Ragnheiður Rögnvalds-
dóttir og Sigríður Jónsdóttir.
Fjörutíu og sex ungar og hressar
konur úr Kvenfélagi Bessa-
staðahrepps tóku París með trompi
fyrir skömmu. Þegar blaðamaður
hitti þær í flugvélinni var mikill
galsi og gleði ríkjandi. „Gárungarn-
ir héldu því fram, að við værum
að halda upp á að Óli hefði ekki
fengið inngöngu í kvenfélagið, en
það er nú ekki rétt, því við höfum
verið að safna fyrir ferðinni í rúm
tvö ár,“ sögðu þær. Eins og menn
rekur kannski minni til sótti Ólafur
Schram fyrir skömmu um að fá
að ganga í kvenfélagið en var hafn-
að.
Þær segjast hins vegar eiga Ólafi
ýmislegt að þakka. Til dæmis
hversu fjáröflunin gekk vel í Kola-
portinu um það leyti sem Ólafur
sótti um inngöngu. Þær höfðu leigt
sér bás þar sem þær seldu meðal
annars kökur. Það virtist þó ekki
draga mesta athyglina að básnum
heldur yfirskriftin sem var: Kvenfé-
lag Bossastaðahrepps (án Óla).
„Við seldum mikið út á þetta og
sumir spurðu hvort við værum að
Morgunblaðið/Hildur Friðriksdóttir
Örkin hans Nóa
Laugavsjp 45 - *. 21255
í kvöld:
GCD
BUBBIOG RÚNAR
Laugardagskvöld:
TODMOBILE
Sunnudagskvöld:
MAKE UP HÓPURINN
Þóra, Anna Lára, Baddý,
Tóta og Áróra.
L I F A N D I T Ó IM L I S T Ö L L KVÖLD
í KVÖLD: Dúettinn „KOKKTEILPINNAR“ úr
„KÁTUM PILTUM".
LAUGARDAGSKVÖLD: LIFANDI TÓNLIST.
Skólabrú 1
SíniL 153 54
Harmoniku-
unnendur
Jóna
Einarsdóttir
þenur nikkuna
frá kl. 21-03
Tilboðsverð á mat
MAMMA
RÓSA
Hamniborg 11. sími 42166
DWSIHSII)
5UMAR5VEIFIA
Hljómsveit
Birgis Gunnlugssonar
leikur fyrir dansi
Aðgangseyrir kr. 800.- Opið frá kl. 22-03
Borðapantanir í síma 68 62 20
TÍSKU-DANSSÝNING
lcelandic Models
sýna fatnað frá
Fallhlifarklúbbur
Reykjavfkur
býður ofurhuga
kvöldsins i frjálst
fall um háloftin
Þeir sem mæta
á réttum tíma
fáölá
kostnaðarverði