Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 Lögreglan leitar að 21 árs gamalli konu Sást síðast til hennar á fimmtudag LÖGREGLAN hóf leit á fimmtudag að 21 árs gam- alli stúlku, Helgu Helgadótt- ur, og var hennar leitað úr þyrlu á föstudag og laugar- dag. Stúlkan hélt af stað á bíl sínum, silfurgráum Renault Clio, árgerð 1992, þrennra dyra með skráning- arnúmer YZ-179, frá Skeiðarvogi í Reykjavík laust eftir hádegi á fimmtudag og var ferð hennar heitið áleiðis til Akraness, þar sem hún hafði mælt sér mót við for- eldra sína. Hún hefur ekki skilað sér þangað. Ekkert er vitað um ferðir hennar frá því um hádegis- bilið á fímmtudag. Helga er 167 sm á hæð, með ljósrautt, stutt- klippt hár. Leitað úr þyrlu Leitað var úr þyrlu á föstudag og í gær án árangurs og til stóð að lögreglan bæði um aðstoð björgunarsveita. Tveir samstarfs- menn konunnar hafa verið yfir- heyrðir en ekkertjþað komið fram sem auðveldað hefur leitina að henni. Saknað HELGU Helgadóttur hefur verið saknað frá því á fimmtudag. Bíllinn BÍLL sömu gerðar og Helga ek- ur. Bíll Helgu er Renault Clio, árgerð 1992, grá á lit og þrennra dyra. Hátt á annað þúsund stúdentar útskrifast Morgunblaðið/Kristinn Stóra stundin SKÓLASTJÓRI Verzlunarskóla íslands, Þorvarður Elíasson, út- skrifar stúdenta við hátíðlega athöfn sl. fimmtudag. RÚMLEGA 1.630 stúdentar út- skrifast um þessar mundir frá 22 framhaldsskólum um land allt. Flestir stúdentar útskrifast hjá Verzlunarskóla íslands, 203, en Menntaskólinn í Reykja- vík er næstur með 196 stúd- enta. Flestir skólanna útskrif- uðu sína stúdenta í gær. Nokkr- ir skólar útskrifa stúdenta um næstu helgi en Menntaskólinn á Akureyri útskrifar sína stúd- enta að venju 17. júní. Að sögn Hjalta Kristgeirssonar hjá Nemendaskrá Hagstofu ís- lands lætur nærri að á síðustu árum hafi þriðjungur karla og helmingur kvenna í hveijum ár- gangi tekið stúdentspróf. Árið 1991 útskrifuðust alls 1.755 stúd- entar en ekki hafði verið tekið saman hversu margir stúdentar útskrifuðust á síðasta ári. Sá fyrsti frá 1802 Bændaskólinn á Hólum útskrif- ar nú einn stúdent og er það fyrsti stúdentinn sem útskrifast frá þessu sögufræga menntasetri eft- ir að Hólaskóli hinn gamli var lagður niður árið 1802. Að sögn Jóns Bjarnasonar skólastjóra er stúdentsprófið einungis aukabú- grein hjá skólanum enda leggja margir stúdentar þar stund á bú- fræðinám. Nokkrir verkmenntaskólar út- skrifa nú stúdenta. Iðnskólinn í Reykjavík útskrifar fimm stúd- enta og Tækniskóli íslands út- skrifar 32 nemendur með raun- greinadeildarprófi sem gefur rétt- indi til inngöngu í tilteknar deild- ir Háskólans. Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað býr nemendur undir stúdentspróf en þeir taka prófið við Menntaskól- ann á Egilsstöðum. Búast má við að stúdentar með hvítar húfur setji svip á mannlífið í flestum bæjum landsins um helg- ina. Viðskipti Reykjavíkupborgar við veitínga- og gistihús 1989-93 1989 1989 1989 1989 1989 Samtals Brauðbær/ÓðinsvéA/iðey 4.392.832 4.628.454 4.107.442 2.523.830 1.179.842 16.832.400 Perlan hf. - - 6.657.697 6.156.946 379.875 13.194.518 Hótel Saga 2.742.853 2.755.944 2.145.510 1.956.051 1.037.465 10.637.823 Hótel Hólt 1.376.565 1.661.679 1.605.072 1.452.238 28.947 6.124.501 Holliday Inn - \f; 853.883 647.836 2.603.502 460.280 4.565.501 Óperukjallarinn hf. 1.010.849 3.377.722 0 0 0 4.388.571 Hótel Loftleiðir 120.050 0 755.565 899.490 16.270 1.791.375 Naustið 227.450 176.030 87.948 475.160 371.430 1.338.018 Gullni Haninn 16.492 553.800 54.020 143.760 23.220 791.292 Hallargarðurinn 0 0 310.683 188.830 288.415 787.928 Hótel Borg 89.025 46.970 37.750 373.500 16.340 563.585 61.015.512 Deilt um viðskipti við veitingahús í borgarráði Hótel Borg hefur notið minni viðskipta en aðrir MARKÚS Örn Antonsson borgarstjóri segir að Hótel Borg hafi notið minni viðskipta en önnur hótel og betri veitingahús í borg- inni. Það sé því réttlætis- og sanngirnismál að hún sitji við sama borð og önnur veitingahús. Þetta kemur fram í greinargerð borgar- stjóra, sem lögð var fram á fundi borgarráðs í gær. Fulltrúar minnihlutans létu bóka að með greinargerðinni hefði borgarstjór- inn dregið til baka tilmæli sín, sem birzt hefðu í bréfi til 46 for- stöðumanna borgarstofnana, að beina viðskiptum sinum til Hótels Borgar. Á fundi borgarráðs síðastliðinn þriðjudag var lagt fram bréf frá Sambandi veitinga- og gistihúsa, þar sem mótmælt er harðlega „þeim vinnubröðgum æðsta emb- ættismanns borgarinnar að mælast til þess við aðra embættismenn að þeir beini viðskiptum Reykjavíkur- borgar sérstaklega til eins tiltekins fyrirtækis, þegar um fjölmörg sambærileg fyrirtæki er að ræða í Reykjavík," eins og segir þar. Þá beinir stjórn sambandsins þeirri fyrirspurn til meirihluta borgar- stjórnar hvort það sé ný stefna borgaryfírvalda að koma á einokun í viðskiptum með tilskipunum frá borgarstjóra. Ekki í umboði borgarráðs í tillögu þeirri sem fulltrúar minnihlutans, þær Ólína Þor- varðardóttir, Guðrún Ágústsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir og Margrét Sæmundsdóttir, lögðu fram á þriðjudag, segir að borgarráð taki ekki undir nein tilmæli þess efnis að borgarstofnanir beini viðskipt- um sínum að einum verslunar- eða þjónustuaðila öðrum fremur. Til- mæli, sem nýlega hafi verið send borgarstofnunum um viðskipti við Hótel Borg, hafi ekki verið send í umboði borgarráðs og skuli því dregin til baka. Rangsleitni minnihlutans Borgarstjóri, sem ekki sat fund- inn á þriðjudag, svaraði fyrir sig með greinargerð á fundi borgar- ráðs í gær. Hann víkur að tillögu minnihlutans og segir: „Þetta er rangsleitni enda ekki stafkrókur í umræddu bréfi mínu um að útiloka við skipti við önnur gisti- og veit- ingahús en Hótel Borg. Það er af og frá að þann skilning hafi átt að leggja í orðalag bréfsins að um einstefnu væri að ræða í slíkum viðskiptum. Hafi einhver misskilið efni bréfsins á þann veg er það miður og skal það leiðrétt." Borgarstjóri lagði fram yfirlit um helztu viðskipti Reykjavíkur- borgar, borgarsjóðs og allra stofn- ana og fyrirtækja borgarinnar samanlagt, við veitinga- og gisti- hús í Reykjavík á árunum 1989- 1993. Borgarstjóri segir í greinargerð sinni að Hótel Borg hafi notið mun minni viðskipta við Reykjavíkur- borg en flest hótel og betri veit- ingastaðir í borginni. „Má þar vissulega því um kenna, að hótelið hafði dregizt aftur úr og var farið að láta á sjá, þegar Reykjavíkur- borg tók þá pólitísku ákvörðun árið 1990 að tryggja áframhald- andi rekstur gisti- og veitingahúss á Hótel Borg og keypti hótelið," segir borgarstjóri. Margt á döfmni á hjóladeginum ÍÞRÓTTIR fyrir alla og G.Á. Pétursson hf. gangast fyrir hjóladegi i Laugardal sunnudaginn 23. maí. Sett verður upp sérstækt svæði í Laugardalnum með mörgum tjöld- um, þar sem ýmislegt tengt hjólum og hjólaferðum verður kynnt. Meðal annars munu ÍFHK - ísl. fjallahjóla- klúbburinn, HFR - Hjólreiðafélag Reykjavíkur, Ferðafélag íslands og Útivist kynna starfsemi sína á þess- um vettvangi. Hjólað verður í Laugardal úr hverfunum og síðan heim aftur í lögreglufylgd. Lagt verður af stað kl. 13 frá Árseli, Fjörgyn, Fella- helli, Hólmaseli og Frostaskjóli. Börn innan 10 ára þurfa að vera í fylgd fullorðinna. Heimferð er áætl- uð kl. 16. Fjallahjól á hjóladegi íslenski fjallahjólaklúbburinn (ÍFHK), Ferðafélag Islands og Úti- vist ætla að halda upp hjólreiðadag- inn. í bígerð er að byija daginn á léttum hjólreiðatúr upp í Heiðmörk. Lagt verður af stað kl. 11 frá Jarlin- um við Bústaðaveg (við Fák). Hjól- að verður eftir Elliðaárdalnum upp í Heiðmörk. Ferðinni lýkur í Laug- ardalnum þar sem megindagskrá hjólreiðadagsins byijar kl. 14. Þar mun klúbburinn kynna starfsemi sína og ferðir sumarsins með FÍ og Útivist'. Auk þess munu klúbbfélag- ar ráðleggja áhugasömu reiðhjóla- fólki um undirbúning hjólaferða- laga o.fl. Tónleikar í Bústaðakirkju TÓNLISTARSKÓLINN í Reykja- vík heldur tónleika í Bústaða- kirkju mánudaginn 24. maí og hefjast þeir kl. 20.30. Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík og strengjakvartett flytja Strengjakvartett op. 44 nr. 3 eftir Mendelssohn og Holberg-svítuna eftir Grieg. Stjórnandi er Mark Reedman. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Lokaskólaganga Útivistar í dag í TÍUNDA og síðasta áfanga Skólagöngu Útivistar 1993, sunnudaginn 23. maí, verður gengið í gegnum sögu Grunnskólans í Grindavík. Sam- tímis verður genginn hluti leiðar sem nýútskrifaður cand. mag. frá Hafnarháskóla fór fyrir um hundrað árum til fjölskyldu sinnar í Grinda- vík. Þarna var á ferð verðandi brautryðjandi í rannsóknum á dýralífi í sjónum við ísland. Farið verður frá Umferðarmið- stöðinni kl. 10.30 og Fitjanesti í Narðvík kl. 11.15. Þátttakendur fá afhent göngukort sem viðurkenningu fyrir þátttöku. í barnaskólagöngunni verður gengið að gömlum skólastæðum og skólahúsum í Staðarhverfí, Jámgerð- arstaðahverfí og Hrauni. í lok göngunnar tekur Gunnlaugur Dan Olafsson, skólastjóri, og nemendur tíunda bekkjar á móti hópnum í Grunnskólanum. I embættisgöngunni verður gengin gamla Skógfellaleiðin, fom leið úr Vogunum til Grindavíkur. Frá Voga- stapa verður farið upp Vogaheiðina og með Skógfellunum uní Sund- hnúkahraun og niður Hópsheiðina að Járngerðarstöðum. Síðan verður sameinást barnaskólagöngunni. Staðfróðir heimamenn og tíunda- bekkingar Grunnskólans verða fylgd- armenn. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.