Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 23. MAÍ 1993 14 4. í BARÁTTUNNIVIÐ ELLI KERLINGU HEFUR ÝMISLEGT KOMIÐ í UÓS SEM GÆTI EKKIAÐEINS ORÐIÐ TIL ÞESS AÐ VIÐ LIFUM EITTHVAÐ LENGUR, HELDUR EINNIG MUN HEILBRIGÐARA OG BETRA LÍFI í ELLINNI eftir Urði Gunnarsdóttur, mynd Ragnar Axelsson og Ómar Óskarsson DRAUMURINN um eilíft líf viröist vera býsna lífseigur meöal manna. Allt tal um yngingarbrunna hefur þó ekki verið talið raunhæft en á því kynni að verða breyting ef marka má rannsóknir banda- rískra vísindamanna á því hvers vegna við eldumst. Þeir taka það þó skýrt fram að ósk sín sé ekki að færa fólki eilíft líf heldur að gefa því kost á að eldast með sjálfsvirðingu og reisn. í rannsóknum á or- sðkum elli kynni lykillinn að lausn ýmissa vandamála sem henni fylgja að liggja, en um leið hrannast upp siðferðileg- ar spurningar um hvar beri að setja mörkin. Vísindamenn og lækna dreymir um að eftir 15-20 ár verði búið að leysa elligátuna og telja að í fram- haldi af því takist að vinna bug á sjúkdómum tengdum elli. Þá dreymir um að ekkert veröi sjálfsagðara en að 75 ára gamall maður geti stundað líkamsrækt og lyftingar, unn- ið fulla vinnu og lifað kynlífi. Þessi sigur þurfi hins vegar ekki að þýða að við lifum miklu lengur, lieldur einfald- lega betra lífi. Líkamsklukkan sé eftir sem áður stillt og þegar okkar tími sé kominn, verði endalokin ekki umflúin. Það sem marga dreymir um, er að lifa löngu og heilbrigðu lífi sem lýkur með því að líkaminn hrömar snögglega og maður deyr standandi, eins og þeir segja í kúrekamyndunum," segir Michal Jazwinski við læknaskólann í New Orleans. Hvað felst í hrörnun? A síðasta áratug hefur þekking vísindamanna aukist mikið á því hvað felst í hrörnun; m.a. áhrif á minni, ónæmiskerfi, starfsemi hjarta- og æðakerfis og hæfnina til að bregðast við streitu. Hrörnunar- sjúkdómar eru til dæmis hjarta- og æðasjúkdómar, sumar tegundir krabbameins, gigt, beinþynning og alzheimer-sjúkdómur. „Það má líkja öldrun við það að við göngum á vara- forða líffæranna. Hann tæmist smám saman en mishratt eftir líffærum. Meðal þess sem getur leitt til ótíma- bærrar hrörnunar eru reykingar," segir Guðmundur Þorgeirsson, sér- fræðingur í hjartasjúkdómum. Vitað er að elli felst í grófum drátt- um í því að líkaminn slitnar, dagleg „notkun" veldur smám saman skemmdum á vefjum líkamans. Þetta slit tengist hins vegar ekki endilega hrörnun, hún getur ekki síst átt sér stað í líffærum sem lítið reynir á. Á sama tíma dregur úr hæfni líkamans til að verjast sjúkdómum og bæta þann skaða sem þeir valda. Þrátt fyrir að sjúkdómar leggist tilviljana* kennt á fólk; liggur hæfnin til að veijast þeim í genunum. Það er skýr- ingin á því hvers vegna sumir geta ástundað óheilbrigða lifnaðarhætti alla ævi án þess að kenna sér meins, en aðrir lúta í lægra haldi fyrir sjúk-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.