Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVIMNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 ATVIHMIIAf 1^1 Y^ÍMC^AR Ritstjóri Félag háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga og Hjúkrunarfélag íslands auglýsa lausa 50% stöðu ritstjóra vegna fyrirhugaðrar útgáfu á sameiginlegu tímariti félaganna. Staðan er veitt í 6 mánuði til reynslu frá og með 1. ágúst nk. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á útgáfu- störfum og góða íslenskukunnáttu. Umsóknir, með upplýsingum um starfsferil og menntun, sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „H - 2000“ fyrir 4. júní nk. Verslunarstarf Stór og glæsileg húsgagnaverslun í austur- hluta Reykjavíkur í örum vexti óskar að bæta við starfskrafti á sölugólf við að selja hús- gögn og þjónusta fólk. Skemmtilegt starf í tryggu umhverfi með góðu fólki. Aðeins kemur til greina mjög vanur starfs- kraftur við sölu á verslunargólfi þ.e.a.s. að afgreiða út úr búð. Vinsamlegast sendið strax á auglýsingadeild Mbl. stutta og greinargóða eiginhandarum- sókn merkta: „Kunnátta - 829“. Skrifstofustarf Við erum að leita okkur að starfsmanni á skrifstofu. Starfið er hefðbundin skrifstofuvinna. Við leitum að hressum, samviskusömum starfsmanni sem kann að tala og skrifa ensku, getur unnið á tölvu og ekki er verra ef þú kannt að færa bókhald. Þarf að geta byrjað fljótlega. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 28. maí merktar: „Stundvís - 10914'1. Reykjavíkurborg óskar að ráða í eftirtalin störf hjá íþrótta- og tómstundaráði (ÍTR); Fjölskyldu- og húsdýragarður Rekstra rstjór n u n Fjölbreytt stjórnunarstarf, m.a. umsjón með starfsmannamálum og framkvæmd á dag- legri dagskrá Fjölskyldugarðsins o.fl. Æskilegt er að umsækjendur hafi háskóla- menntun og reynslu af stjórnunarstörfum. Kynningarmál Fjölbreytt starf við Fjölskyldu- og húsdýra- garðinn í Laugardal, sem m.a. er fólgið í að miðla upplýsingum til gesta með texta- og skiltagerð, hönnun og uppsetningu sýninga, vinnu að kynningarmálum o.fl. Æskilegt er að umsækjendur séu ritfærir, hafi menntun á sviði myndlistar-, handíðar- og/eða leiklistarsviði eða hafi aðra menntun sem nýtist í starfi. Störfin hefjast fljótlega og laun eru skv. kjara- samningi borgarstarfsmanna. Umsóknum skal skilað til ÍTR, Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar fást (en einnig er hægt að nálgast eyðuþlöð á Ráðningar- stofu Reykjavíkur, Borgartúni 3 og í Húsdýra- garði fyrir þriðjudaginn 1. júní 1993. Nánari upplýsingar gefur Tómas Guðjóns- son, forstöðumaður, í síma 684640. Hárgreiðslusveinn Hárgreiðslusveinn óskast til starfa á Hársnyrtistofu Dóra, Langholtsvegi 128. Upplýsingar í síma 685775 og 71878 eftir kl. 18.00. Lögreglumaður Laus er til umsóknar staða lögregluþjóns til sumarafleysinga í lögregluliði Seyðisfjarðar. Ráðningartími er frá 15. júní til 1. september 1993. Umsækjendur þurfa að hafa lokið próf- um frá lögregluskóla ríkisins. Umsóknum ber að skila fyrir 1. júní. Nánari upplýsingar um starfið gefur undirrit- aður í síma 97-21408. Sýslumaðurirm á Seyðisfirði, 21. maí 1993. ATVINNUMIÐLUN NÁMSMANNA Sumarstarfsfólk Atvinnumiðlun námsmanna útvegar fyrir- tækjum og stofnunum sumarstarfsfólk. Yfir 1000 námsmenn á skrá með margvíslega menntun og reynslu. Skjót og örugg þjónusta. Atvinnumiðiun námsmanna, Stúdentaheimilinu við Hringbraut, sími 621080. Reykjavík Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar eða hjúkrunarfræði- nemar óskast til sumarafleysinga á heilsu- gæslu og hjúkrunardeildir. Ýmsar vaktir koma til greina m.a. 8-16, 16-24, 16-22, 17-23. Upplýsingar veita ída hjúkrunarforstjóri og Jónína hjúkrunarframkvæmdastjóri í símum 35262 og 689500. Frá Háskóla íslands Laus er til umsóknar tímabundin dósents- staða á sviði raforkufræða við rafmagns- verkfræðiskor verkfræðideildar. Dósentinn á að leysa af fastan kennara sem verður í leyfi í allt að tvö ár. Gert er ráð fyrir að ráða í stöðuna í eitt ár frá 1. september 1993 að telja, en framlenging ráðningar um eitt ár getur komið til greina. Kennsla miðar við skyldunámskeið í vinnslu og dreifingu raf- orku, svo og hugsanleg valnámskeið á raforku- sviði. Rannsóknir verða í raforkufræðum. Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum sínúm rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Með umsóknum skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Laun skv. kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðuneytisins. Umsóknarfrestur er til 28. júní 1993 og skal umsóknum skilað til starfsmannasviðs Há- skóla íslands, aðalbyggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Þór Kjart- ansson, skorarformaður rafmagnsverkfræði- skorar, í síma 694633. p———q Kennararóskast Kennara vantar í Grunnskóla Suðureyrar. Ýmis hlunnindi í boði. Upplýsingar gefa formaður skólanefndar í hs: 94-6250 eða skólastjóri í vs: 94-6129/ hs: 94-6140. Kópavogsbær Skólaritari Staða skólaritara við Snælandsskóla er laus til umsóknar frá 15. ágúst 1993 að telja. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 44911. Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skilað til skólastjóra Snælandsskóla í síðasta lagi 7. júní nk. Starfsmannastjóri. iS! BORGARSPÍTALINN Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðing vantar nú þegar til starfa í dagvinnu alla virka daga. Starfið felst aðal- lega í hjúkrun barna eftir aðgerðir. Upplýsingar veitir Laura Scheving Thor- steinsson, hjúkrunarframkvæmdastjóri starfsmannaþjónustu, í síma 696356. Tónlistarkennarar Skólastjóra og einn tónlistarkennara vantar við Tónlistarskóla Raufarhafnar næsta skóla- ár. Þurfa m.a. að geta kennt á píanó og gít- ar. Þurfa einnig að annast tónmennta- kennslu við Grunnskólann á Raufarhöfn, svo og starf organista og kórstjórn kirkjukórs Raufarhafnarkirkju. Húsnæði er til reiðu á staðnum. Frekari upplýsingar veita grunnskólastjóri í síma 96-51131 og sveitarstjóri í síma 96-51151. Umsóknir skal senda skrifstofu Raufarhafn- arhrepps, Aðalbraut 2, Raufarhöfn, fyrir 10. júní nk. Efnablöndun Fyrirtækið er rótgróið og öflugt framleiðslu- fyrirtæki á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Starfið felst í umsjón með blöndun á hrá- efni, mælingum, sýnatöku og öðrum sér- hæfðum störfum. Áhersla er lögð á að umsækjendur hafi reynslu af sambærilegu, séu heiðarlegir, nákvæmir og skipulagðir í vinnubrögðum auk þess að sýna árvekni í hvívetna. Umsóknarfrestur er til og með 28. maí nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Reykleysi er skilyrði. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. RÁÐNINGARÞJÓNUSTA 1/Q Cí P ÍH f ) Q Guðný Harðardóttir Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavik Sími 91-628488

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.