Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 íbúðir fyrir 60 ára og eldri í Árskógum 6 og 8 í Suður-Mjódd 1 " >/'! 1 ........ ...." ! ii * 1-1 r |ÉÉ| * É m il •■i f. s Enn eru til örfáar 2ja herb. 70 fm íbúðir og nokkrar 4ra herb. íbúðir sem eru 104 fm nettó og 130 fm brúttó að stærð á hinum ýmsu hæðum. Sérgeymsla i kjallara. Frá- bært útsýni. Stutt í verslanir. Fullkomin þjónustumiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar. íbúðirnar í Árskógum 6 eru til afh. nú þegar en í Arskóg- um 8 verða þær tilbúnar í september nk. Allar upplýsingar gefur Svan Friðgeirsson á skrifstofu Félags eldri borgara, Borgartúni 31, á virkum dögum V kl. 9-12 og miðvikud., fimmtud. og föstud. frá 13.30- 16.00. Einnig verða ibúðirnar til sýnis í Árskógum Suður- Mjódd mánudaga og þriðjudaga kl. 13.30-16.00. Sími 674513. m:l\(í LLDIU FE B I >( )l{( iAI l\ Söluskrifstofa, Borgartúni 31, sími 621477. Bjarnveig Bjama dóttir - Minning Bjamveig er látin. Fólk af yngri kynslóðum þjóðar okkar veit víst harla lítið um hið fágæta starf er hún vann í litla húsinu við Bergstaðastræti eftir lát frænda síns Asgríms Jónssonar listmálara. Starfíð var einkum fólgið í því að ganga frá húsi og verkum meistarans á þann veg að hvort tveggja yrði aðgengilegt bæði gestum hér heima og frá öðrum þjóðum — reyndar öllum þeim sem vilja komast inn fyrir skurn og snerta blóma verka þessa frumhveija nútímamálaralistar. Bjamveig sá til þess af einstök- um dugnaði að Qölmörg verk Ás- gríms voru send utan til Kaup- mannahafnar til hreinsunar, innrömmunar og viðgerða, jafnvel nokur sem málarinn hafði hirt lítt um en áttu sér svo sannarlega lífs- von. Með tímanum fór samt drýgstur hluti orku Bjamveigar til þess að kynna myndir Ásgríms Jónssonar. Sjálfur hafði hann falið henni að annast listaverkasafnið eftir sinn dag. Ekki var laust við að menn skopuðust að bæði gerðum og orð- um forstöðumannsins þegar hann — hún — var að tíunda mikilleik listaverkanna í fjölmiðlum eða hvarvetna annars staðar þar sem tækifæri gafst, enda var hún hvorki málari né listfræðingur. En slíkar raddir þögnuðu smám sam- an. Árin hafa leitt í ljós að Bjam- veig hafði rétt fyrir sér í mikils- verðum atriðum um verk Ásgríms og kynningaraðferðir hennar vom vel á undan samtíðinni. Sjálf átti hún allmargar Ásgrímsmyndir og tók snemma þá ákvörðun að færa þær Ámesingum að gjöf ásamt verkum annarra listamanna. Mér er kunnugt um að lengst af hélt hún áfram að bæta við safnið á Selfossi og naut til þess vinsælda sinna hjá ýmsum góðum höfund- um. Ég kynntist Bjamveigu Bjama- dóttur um 1960 þegar ég var ráð- inn til að annast kynnisferðir nem- enda gagnfræðaskóla Reykjavíkur á söfn í borginni. í fyrstu atrennu var farið í Þjóðminjasafn íslands en síðan listasöfnin eftir því sem tími og ástæður leyfðu. Þegar kom að safni Ásgríms við Bergsstaða- stræti hikaði ég stutta stund við að beija að dymm. Ég hafði heyrt utan að mér að forstýran væri ráðrík og haldin mikilli óþreyju í hlutverki því sem henni hafði ver- ið fengið í hendur. En kvíði minn reyndist ástæðulaus. Okkur Bjam- veigu kom vel saman frá fyrstu tíð. Hún hafði sérstakt lag á að laða nemendur að Ásgrímssafni og þekkti marga kennara og skóla- stjóra, sem létti okkur starfíð til muna. Þannig hélst samvinnan í minni tíð mestallan áratuginn og eftir að Þórir Sigurðsson náms- stjóri tók við leiðsögninni. Rétt fínnst mér að segja frá því að Jónas B. Jónsson fræðslustjóri var upphafsmaður safnaferðanna. Þetta var brautryðjendastarf sem aðeins fáir virðast vita um nú eft- ir rúmlega þijátíu ár. En við Bjamveig áttum eftir að bralla meira saman. Fyrir áeggjan hennar var ég skipaður í stjórn Ásgrímssafns og sat í henni í meira en áratug. Saman unnum við að tugum sýninga á verkum Ásgríms í safninu sjálfu, víðsvegar um landið og í London og Kaup- mannahöfn. Stundum minnti hún mig á að tilteknar myndir sem hún hafði dálæti á en ég ýtti til hliðar hvað eftir annað, hittu að lokum andmælanda beint í hjartastað. En þannig er Ásgrímur, í senn tormeltur og opinn hveiju manns- bami. Bjamveig var hlý og elskuleg kona og rausnarleg með afbrigð- um. Trygglyndi hennar fengum við öll fjögur í ijölskyldu minni að reyna. Hún gat verið fljóthuga og stundum gleymt því að margt annað var að gerast í kringum hana en starfíð í Ásgrímssafni. Flestar athafnir hennar vom þó vel ígmndaðar og sýndu skilning á hlutskipti annarra. Eftir að ég fluttist til Noregs heimsótti ég hanajafnan á ferðum mínum heim til Islands og naut gestrisni hennar ásamt Guðmundi Benediktssyni, sem hún mat mik- ils. Nú er hún fallin frá — en merkið stendur. Hjörleifur Sigurðsson. verð- Gerið samanburð 2ja herb. fullbúin íbúð kr. 5.800 þús. 4ra herb. fullbúin íbúð kr. 7.900 þús. Stæði í bílskýli kr. 200 þús. Dæmi um Staðfestingargjald: Húsbréf: Samkomulag: greiðsl 4ra herb. 200 þús. 5.135 þús. 2.565 þús. ukjör: 2ja herb. 200 þús. 3.770 þús. 1.830 þús. Samtals: 7.900 þús. 5.800 þús. FLETTURIMI 31-35 Höfum fengið frábærar móttökur á 30 daga kynningar- verði okkar og eru margar íbúðir þegar seldar. A Opið sunnudag frá ki 1-3 br\l BYGGÐAVERK HF. Reykjavíkurvegi 60, 220 Hafnarfírbi. Grunnmyndir íbúða í einum stigagangi bækling með frekari upplýsingum. Sím' 54044, fax 54959 Nýtt þak • nýir veggir • nýir gluggar • nýtt gler • nýjar hurðir • ný eldavél • nýtt baðkar • nýr vaskur • ný teppi • nýjar flísar • ný pípulögn • nýtt rafmagn • ný málað • allt nýtt Greiðslukjör okkar hafa alltaf verið með því besta sem þekkist. Lítið á aðstæður á byggingarstað. Hringið og fáið sendan litprentaðan bækling með frekari upplýsingum. Fullbúnar íbúðir ú frúbæru ver í tilefni af sýningunni Vor '93 þá býður Byggðaverk hf., fullbúnar 2ja og 4ra herbergja íbúðir á sérstöku 30 daga kynningarverði. Frágangur: íbúðirnar afhendast fullbúnar með öllum gólfefnum, innréttingum og tækjum, sameign er fullfrágengin og lóð er þökulögð Afhending: Fyrstu íbúðirnar afhendast í apríl 1994 og þær síðustu í júní sama ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.