Morgunblaðið - 23.05.1993, Blaðsíða 16
16
■ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAI 1993
Í MOSKVU, ÞAR SEM GLÆPIR VORU ÁÐUR FÁTÍÐIR,
ER FÓLK ÁHYGGJUFULLT
OG FORÐAST AÐ VERA EITT Á Á FERLI
eftir Lórus Jóhonnesson, Moskvu
Glæpaalda hefur riðið yílr Rússland að undanförnu. Gildir þar einu
hvers eðlis þeir eru, en þó virðist aukningin hafa oröið mest í ofbeld-
isverkum og moröum. Á þrengingartímum stendur lögreglan ráð-
þrota, fáir glæpir eru upplýstir. í Moskvu, sem áður var mjög örugg
borg, er fólk áhyggjufullt og forðast að vera eitt á á ferli. Vegna skorts
á nákvæmum ijpplýsingum hefur sérfræðingum reynst erfitt að graf-
ast fyrir um orsakir vandans. Flestir þeirra eru þó sammála um að
rótin liggi í því stórkostlega öngþveiti sem nú ríkir í landinu.
egar sá sem þetta ritar kom
til Rússlands í byrjun árs
fengust 400 rúblur fyrir
einn bandaríkjadal, í dag fást 850
rúblur fyrir sama dalinn. Það sem
af er árinu hefur verð á matvælum
hækkað um 70% að meðaltali.
Neysla á kjöti, fiski og mjólk hefur
dregist saman jafnt og þétt og er
nú um 60% af því sem hún var 1990.
Talað er um fátækramörk við 10.000
rúblna mánaðarlaun en mikill meiri-
hluti manna hefur minna.
í fyrra enduðu þijú af hveijum
fjórum hjónaböndum með skilnaði í
Moskvu. Þessar tölur eru lægri til
sveita, mjög erfitt er fyrir ungt fólk
að fá húsnæði í borgum og ef það
tekst er oftast þröngt á þingi. Stofn-
un og slit hjúskapar er ekki vand-
kvæðum bundið, vígsla kostar rúblu
en skilnaður tvær og tekur gildi um
leið. Á sama tíma fækkar Rússum,
11% færri fæðingar voru í fyrra en
1991. Það sem af er árinu er dánar-
tíðni 2,6 sinnum hærri en fæðingar.
Hér eru 6 fóstureyðingar á móti
hverri fæðingu. Atvinnuleysi eykst
jafnt og þétt. I byijun mánaðarins
var rúmlega ein milljón manna skráð
opinberlega atvinnulaus. Talað er
um aðrar 3 milljónir sem dulbúna
atvinnuleysingja, það er þá, sem
vinna hjá ríkisfyrirtækjum sem eru
í raun gjaldþrota en er haldið gang-
andi. Vinnuafl í Rússlandi er áætlað
73 milljónir þannig að atvinnuiausir
eru um 6%. Þetta segir þó ekki alla
söguna, hagræðing er óhjákvæmileg
og erfiðlega gengur að skapa ný
atvinnutækifæri.
Við götuna þar sem greinarhöf-
undur býr eru strákar sem deyja
ekki ráðalausir. Þeir bjóða bílaþvott
hveijum sem vill og verðið er samn-
ingsátriði. Roman og Alexander
ætla báðir að verða moldríkir og búa
í útlöndum. Þeir eru 13 ára og til-
heyra her ungs fólks sem leggur
Gömul kona reynir að kaupa fisk fyrir gamla peysu á flóamarkaði í Moskvu.
Fólk gerir ekki neitt, það er hrætt.
Nýlega kom upp í Moskvu dæmi um
mafíu, eða skipulagða glæpastarf-
semi, sem vakið hefur óhug. Það
hefur tíðkast í nokkurn tíma að gam-
alt fólk selji fasteignasölum íbúðir
sínar fyrirfram. Fólk fær þá greitt
við undirskrift samnings og fast-
eignasalan fær íbúðina að fólkinu
látnu. Báðir aðilar hagnast, ef svo
má að orði komast, gámla fólkið
hefur samastað til æviloka auk
nægra peninga, fasteignasalan fær
íbúðina oftast langt undir markaðs-
verði. íbúðir sem venjulega kosta
um 35 þúsund dollara seljast á 8
þúsund. Nú kemur til sögunnar ný
fasteignasala og velur úr gamalt
fólk sem á við vandamál að stríða,
svo sem sykursýki. Samningar tak-
ast en fólkið hverfur stuttu síðar eða
lendir í slysum. Lögregluyfirvöld eru
að rannsaka að minnsta kosti 20
slík tilfelli.
Ýmislegt bendir tl að mafían sem
við þekkjum, t.d. Cosa Nostra hin
sikileyska, sé komin til Rússlands
til samstarfs. Yfirvöld telja að verið
sé að kenna rússnesku mafíunni að
þvo peninga. Þá er peningum sem
aflað er með ólöglegum hætti komið
inn í lögleg fyrirtæki og þar með
hægt að nota þá. Sérfræðingar Iög-
reglunnar segja að skipulagðir
hringar hafi flutt úr landi í fyrra
17 milljarða dala. Því er einnig hald-
ið fram að Pólland sé staðurinn þar
sem mafía austurs og vesturs ræður
ráðum sínum. Þar hafi þegar farið
fram mikilvægir fundir um sameig-
inlegar aðgerðir og innra skipulag.
Innanríkisráðuneyti Rússlands hefur
skipað sérstaka deild til að stemma
stigu við þessari þróun. Það hefur
farið fram á 3,7 milljarða dala til
baráttunnar. En hvað er hægt að
gera í landi þar sem flestir sjóðir
eru tómir? Á meðan halda glæpir
áfram að aukast.
skólagöngu á hilluna og fer út í
„bissness". Oleg er 22 ára „vemd-
ari“ ungra stráka sem selja varning
við Rauða torgið. „Hvers vegna að
ganga menntaveginn, vinur minn er
viðskiptafræðingur og fær 28 dollara
á mánuði ég hef 1.500. Ef strákarn-
ir eru duglegir fá þeir 25 dollara á
dag, meira en foreldrar þeirra á
mánuði. Skilurðu?"
í gamla kerfinu voru æskulýðs-
hallir vettvangur unglinga þar sem
boðið var upp á allt milli himins og
jarðar. Þessum stöðum er nú lokað
í hundraðatali og ekkert kemur í
staðinn. Tónlistarskólar eru nú til
dæmis lokaðir efnilegu ungu fólki
nema það geti borgað rándýr skóla-
gjöld. Börn eiga æ erfiðara með að
fóta sig, samkvæmt opinberum
tölum frömdu 2.000 börn sjálfsmorð
í fyrra. í Moskvu einni komu 1.000
börn á spítala eftir misheppnaðar
tilraunir til sjálfsmorðs. Það bendir
til þess að opinberar tölur séu allt
of lágar. 154 þúsund börn flýðu að
heiman í fyrra og 34 þúsund mæður
neituðu að taka börn sín heim af
fæðingardeild. Munaðarleysingja-
hæli eru yfirfull og aðbúnaður slæm-
ur, 70% barna þar eiga við geðræn
vandamál að stríða. í vor drápu tveir
11 ára strákar vin sinn á hæli í
Pétursborg. Ástæðan: Þá langaði að
eignast leðuijakkann hans. Á sama
tíma eyða stjórnvöld 0,1% af útgjöld-
um til mannúðarmála og sömu tölu
til byggingar skóla og stofnana.
Vændi verður nú sífellt meira
áberandi. í Moskvu eru starfandi
200 skipulagðir vændishringir.
Margar stúlkur eiga sér ekki
vðreisnar von, þær eru oft pikkaðar
upp á lestarstöðum og fengnar til
starfa. Þær koma í leit að betra lífi.
Olga og Marina eru frá Sfberíu, þar
var ekkert að hafa. „Á lestarstöðinni
kom til okkar maður og spurði hvort
vð hefðum samastað. Við hugsum
um hvern dag fyrir sig og reynum
að vera saman uppá öryggið. Við
störfum á hótelum og þekkjum stelp-
ur sem sendar hafa verið utan.“
Alþjóðleg samtök sem beijast
gegn eyðni hafa áhyggjur af þróun
mála í Rússlandi. Hinn 15. mars
voru þó aðeins 111 skráð tilfelli af
eyðni frá upphafí. Margir vita lítið
um smitleiðir og landið gæti verið
tímasprengja. Um daginn rakst
fréttaritari á frétt í Pétursborgar-
fréttum þar sem sagt var frá að
margir hefðu látist í vetur af völdum
farsótta sem hefði mátt koma í veg
fyrir með bólusetningu. í samtali við
Morgunblaðið sagði Gennady Kole-
snikov hjá heilbrigðisráðuneytinu í
borginni að fólk þyrði ekki í spraut-
ur af ótta við eyðni. Hann nefndi
einnig hættuna af völdum aukinnar
eiturlyfjaneyslu. Samkvæmt nýlegri
könnun hafa um 5 milljónir unglinga
í Rússlandi prófað eiturlyf þar af
hálf milljón sem notar þau reglu-
lega. Menn búast við að neytendur
almennt verði orðnir hátt á áttundu
milljón eftir 2 ár. Rússnesk löggjöf
er í þessum efnum brothætt, í fljótu
bragði verður ekki annað séð en
ólöglegt sé að kaupa og selja efni
en löglegt að neyta þeirra. Eins
banna lög framleiðslu á 5 tegundum
hamps en 295 aðrar tegundir eru
ræktaðar víðs vegar um Rússland.
Hvort er mikilvægara í dag lýð-
ræði eða lög og regla? Þessa spurn-
ingu lagði Moskvufréttir fyrir 2.000
borgarbúa um miðjan síðasta mán-
uð. 9% voru ekki viss 8% völdu lýð-
ræði en 83% vildu röð og reglu.
Þetta fólk hefur kannski haft í huga
91 morð sem framið var í borginni
í fyrsta mánuði þessa árs. Yfirvöld
benda á að talan sé ekki há miðað
við borg af þessari stærð en það sem
veldur áhyggjum er hve aukningin
er hröð. í janúar 1992 voru framin
42 morð og allt það ár 886 en 1991
voru þau 464. Glæpir gegn útlend-
ingum verða stöðugt fleiri og hefur
þeim Ijölgað um 63% frá því í fyrra,
sem samt var metár er glæpir tvö-
földuðust frá 1991. Hjá sendiráðum
Bandaríkjanna, Þýskalands og Nor-
egs hafa menn orðið varir við þessa
aukningu en tölur þeirra innihalda
einungis þá sem leita sérstaklega til
þeirra. Fjölmörg tilfelli, sérstaklega
varðandi ferðamenn sem stoppa
stutt, koma aldrei til þeirra kasta.
Nú eru milli 80 og 100 þúsund út-
lendingar að staðaldri í Moskvu og
búa gjaman í blokkum eða samstæð-
um þar sem öryggisgæsla er fyrir
hendi. Undanfarið hafa þó komið
upp tilfelli þar sem brotist hefur
verið inn og hafa yfirvöld lofað
bættri gæslu.
Helga Berthelsen, ritari í íslenska
sendiráðinu, býr í blokk sem einung-
is hýsir útlendinga en hefur ekki
orðið fyrir óþægindum. Hún sagði
útlendinga vera illa setta ef þeir
lentu í vandræðum hér, fólk væri
ekki hjálplegt og lögreglu stæði oft-
ar en ekki á sama. Þeir sem þyrftu
að sækja sjúkrahús heim lentu í erf-
iðleikum og læknar færu oftar en
ekki fram á peninga undir borðið.
Venjulegt fólk í Rússlandi kann
illa að bregðast við þessum þjóðfé-
lagsbreytingum. Þegar talað er um
glæpi eða svartamarkaðsbrask er
orðið mafía aldrei langt undan. Oft
er ekki gott að átta sig á hvað er
átt við. Þegar ekkert grænmeti nema
kál fékkst í Pétursborg í vetUr nema
á sérstökum mörkuðum og það á
uppsprengdu verði, sem enginn
venjulegur maður hafði efni á að
borga, er það mafía. Um áramótin
gerðu margir í einu hverfi sömu
borgar sér glaðan dag og keyptu
kampavínsflösku. Meðalmánaðar-
laun hefðu dugað fyrir 8 flöskum
og þegar flöskurnar voru teknar upp
var sápuvatn í þeim. Það er mafía.