Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 10
Prófin aö batna
eftir Elínu Pólmadóttur
í grunnskólum landsins er lokið samræmdum prófum, sem
frá 1977 hafa farið fram um land allt við skólalok. Mismörg
þó, aldrei færri en 1989 en nú aftur í fjórum greinum,
íslensku, reikningi, dönsku og ensku. 3.900 nemendur
10. bekkjar um land allt gengu undir samræmd próf á
þessu vori. Að undanförnu hafa verið uppi umræður
og deilur um samræmd próf, hvort þau eigi rétt á
sér, hvort eigi að fjölga þeim og þá hvernig. Notkun
samræmdra prófa virðist vera að aukast fylgi þótt
skoðanir kennara séu skiptar. Nefnd um mótun
menntastefnu á vegum menntamálaráðuneytisins legg-
ur til í áfangaskýrslu að samræmdar mælingar á
frammistöðu nemenda í grunnskólum verði efldar sam-
hliða skólamati og samræmd próf í völdum greinum lögð
fyrir í lok 4. bekkjar og 7. bekkjar grunnskóla til viðbót-
ar við 10. bekkjarprófin. Samræmdu prófin nýafstöðnu fara
fram á vegum Rannsóknastofnunar uppeldis- og mennta
mála og þótt þau væru nú í svipuðum farvegi og undanfar
ið má marka þar ákveðnar vísbendingar til breytinga. Til
samræmis við það voru sendir samtímis út spurningalist-
ar til allra kennara í viðkomandi greinum um mat
þeirra á prófunum sem nú voru lögð fyrir og hvern-
ig þau ættu að verða 1994. Málið varðar flesta
landsmenn. Og til að fræðast um hvað er
á ferð ræddum við stuttlega annars
vegar við Sigríði Önnu Þórðar-
dóttur formann nefndarinnar um
mótun menntastefnu og hins vegar við
Einar Guðmundsson, sérfræðing hjá Rannsókna-
stofnun uppeldis- og menntamála.
„Ég er tiltölulega ánægður með hvernig til tókst með samræmdu
prófin nú. Það hafa verið gerðar nokkrar breytingar, en engu verið
bylt,“ sagði Einar Guðmundsson hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og
menntamála, en hann var einmitt byijaður að skoða mat kennar-
anna á prófunum núna eins og þau komu fram í spurningalistum
til þeirra samhliða prófunum. Svörun var góð og þar mátti m.a. sjá
að 79% þeirra telja prófið núna í stærðfræði betra en í fyrra. Það
gladdi þá sem að prófunum stóðu. „Það er sterk vísbending til okk-
ar um að okkur hafi tekist bærilega og að aukið samstarf við kennar-
ana hafi gefist vel,“ sagði hann. En það er einmitt kjarninn i við-
leitni til að draga fleiri grunnskólakennara meira inn í prófgerðina.
Aður en lengra er haldið spyij-
um við Einar hvort hann
telji samræmd lokapróf við
alla skóla nauðsynleg. Hann
svarar því til að vilji menn
hafa sundurgreindar og sam-
ræmdar upplýsingar um stöðu
nemenda til dæmis fyrir viðtöku-
skóla þá séu próf af þessu tagi
nánast nauðsynleg. Grundvallar-
spurningin sé þó ekki hvort prófin
séu alls staðar nauðsynleg heldur
hvers lags upplýsingum menn leita
eftir. Samræmd próf við lok
grunnskóla séu sameiginlegt
námsmat til að afla upplýsinga
fyrir fræðslukerfið og fyrir við-
tökuskólann til að fá hugmynd um
nýjan nemanda. Og ekki má
gleyma að prófin geta verið mikil-
væg fyrir nemendur til að vita
hvernig þeir standa, segir hann.
Samræmd próf geti líka verið
miklvæg annars staðar á skólaferl-
inu. Eiginleikar prófanna á neðri
stigum þurfa þó ekki að vera eins
og á efri stigum. Þar gætu þau
þá verið meira markbundin, þ.e.
væri ætlað að sýna hve vel hefði
tekist til við að ná tilteknum náms-
markmiðum.
Einar segir að samræmdu próf-
unum við lok grunnskólans hafi
oft verið ætlað mjög fjölþætt hlut-
Morgunblaðið/Kristinn
Einar Guðmundsson
Viðtal við Einar
Guðmundsson
verk: að bera saman námsárangur
á milli ára, skóla eða fræðsluum-
dæma, að taka ákvörðun um fram-
haldsnám nemenda og flokka þá
eftir námskunnáttu, að álykta um
ágæti eða áhrif mismunandi
kennsluhátta á námsárangur nem-
enda og álykta um hvort náms-
markmiðum skólastarfsins hafi
verið náð. En til að þau geti gegnt
því margþætta hlutverki þurfi eins
og hingað til að tryggja að færir
kennarar taki þátt í að semja próf-
in. En einnig þarf að breyta nokk:
uð vinnulagi við gerð þeirra. I
fyrsta lagi þarf að nýta þekkingu
úr svonefndri próffræði, þannig
að tryggð sé nákvæmni og að próf-
in mæli örugglega það sem þeim
er ætlað að mæla. Það sé alvar-
legt mál ef svo er ekki.
Vantar skýr markmið
Einar kvaðst líka fylgjandi því
sem hefur verið nefnt samræmd
könnunarpróf, en Bima Siguijóns-
dóttir, formaður skólamálaráðs
Kennarasambands Islands, hefur
í grein bent á þá leið að leggja
fyrir þessi samræmdu könnunar-
próf í skólunum í stað samræmdu
prófanna. En þar segir Einar að
gildi þetta sama. Ef á að finna
hvort einhver markmið hafi náðst
þarf að vita nákvæmlega hver þau
eru. Aðalmarkmið grunnskóla eru
of almenn og þyrfti þá að tiltaka
sameiginleg undirmarkmið. Þar sé
mikið verk óunnið. Sama eigi ekki
síður við um lokaprófin. Þar þurfi
að fara fram mikil vinna í sam-
bandi við markmiðsgerð.
Einar kvaðst leggja mikla
áherslu á að lokaprófin verði vel
marksett, svo hægt sé að álykta
út frá niðurstöðum hvað nemendur
kunna og hvað ekki. Það hafi ekki
verið svo. Prófin hafi hvorki verið
markbundin né staðalbundin. „Til-
gangur prófanna þarf að vera
skýr. Áður en þau eru samin þarf
að vera alveg ljóst hver tilgangur-
inn er. Það er fræðsluyfirvalda.að
skýrgreina það. Þegar við vitum
hvers konar próf á að búa til, þá
getum við farið að semja þau,“
sagði Einar og bætti við að albest
væri ef hægt væri á einu kunn-
áttuprófi að sameina eiginleika