Morgunblaðið - 23.05.1993, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAI 1993
Prófin aó batna
mið, þá mundu fáir deila um að
þau ættu að geta reiknað svona
dæmi í lok grunnskólans. Vegna
þess að nú er í fyrsta sinn fært
að greina þetta svona í sundur
getur hver sem er spurt sjálfan
sig og gefið sín eigin svör, þótt
aðstandendur prófanna vilji ekki
tjá sig um það.
Ekki er búið að vinna úr öðrum
og þriðja lið spurningalistans til
kennaranna sem Einar segir að
þurfi að skoða nánar, enda fyrst
og fremst hugsað sem vinnuplagg.
En hann veit þó að ágæt svör
komu þarna fram og mörg for-
vitnileg gögn.
„Útkoman úr þessu er mjög
uppörvandi," segir hann að lokum.
„En framundan er mikið starf.
Og við munum halda áfram að
auka samstarfið við kennarana."
100'
1 65%
% 5CÚ
:
i | 00 . iHjll
Almenn Brot
40%
54%
(N } «1
>
P' |
37%
* *
:i c*Y- ;
v4!
T
Samlagning Frádráttur Margföldun Deiling
© Rannsóknarslofnun uppcldis og menntamála 1993
Myndin sýnir hlutfall nemenda í
10. bekk á landinu öllu sem leysa
rétt dæmi í samlagningu, frá-
drætti, margföldun og deilingu
almennra brota á samræmdu
prófi í stærðfræði vorið 1993.
Dæmin eru sýnd inni f súlum.
20%
n------------n
Hlutfall nemenda sem
leysa öll 4 dæmin rétt
© Rannsóknarstofiiun uppeldis og menntamála 1993
Mat stærðfræðikennara í 10. bekk á samræmdu prófi f stærðfræði vorið 1993 saman
borið við samræmt próf í stærðfræði 1992.
Myndin sýnir hlutfall nemenda í 10. bekk á landinu öllu sem leysa rétt dæmi í samlagn-
ingu, frádrætti, margföldun og deilingu tugabrota á samræmdu prófi í stærðfræði vor-
ið 1993. Dæmin eru sýnd inni í súlum.
Samræmd próf
i4. og7. bekk
í áfangaskýrslu nefndar um mótun
menntastefnu undir formennsku Sigríðar
Önnu Þórðardóttur alþingismanns er lögð
áhersla á að efla mat á skólastarfi í grunn-
og framhaldsskólum og veita nemendum
nauðsynlegan stuðning til þess að nám
þeirra beri árangur. Er þar m.a. talað um
samræmdar mælingar á frammistöðu
nemenda og lagt til að þær verði efldar
í grunnskólum og komið á í framhalds-
skóium. Samræmd próf í völdum greinum
verði lögð fyrir í lok 4. bekkjar og 7.
beklgar grunnskólans til viðbótar við 10.
bekkjar prófin, sem nú fara fram. Sam-
ræmt námsmat er ekki í framhaldsskólum
landsins en bent er á að samræmd próf
í völdum greinum gætu auðveldað háskól-
um inntöku nemenda og gefið nemendum
dýrmætar upplýsingar um stöðu sína í
þeim greinum. Aætlað er að nefndin skili
lokaskýrslu og frumvarpsdrögum í haust.
Áfangaskýrslan var send út til umfjöllun-
ar hjá samráðsaðilum og fjölmörgum öðr-
um sem skólamál varða og hefur fengið
mjög jákvæð viðbrögð.
Iskýrslunni er lögð sérstök áhersla á að
efla innra eftirlit í skólum og lagt til
að tekið verði upp heildarmat á mennta-
kerfinu á næstu árum til að afla áreið-
anlegra upplýsinga um þætti eins og
innra eftirlit í skólum, skólanámsskrá, náms-
árangur nemenda, umgengni nemenda og
aga í skólum, kennsluhætti og áhrif þeirra á
námsárangur og tengsl skóla og heimila. Til
að fá nánari upplýsingar um tillögurnar um
aukningu á samræmdum prófum var leitað
til Sigríðar Önnu Þórðardóttur.
„Við tölum um samræmd könnunarpróf
við lok 4. bekkjar og 7. bekkjar samhliða
hefðbundnu skólamati þannig að nemandinn,
kennari og foreldrar fái skýra mynd af náms-
gengi nemandans og hægt sé að grípa til
viðeigandi ráðstafana ef þörf krefur og koma
nemandanum til hjálpar. Þá þarf að koma
til öflugur stuðningur við þá nemendur sem
standa höllum fæti í kjarnagreinum við náms-
lok 7. bekkjar. Við leggjum semsagt til að
námsmat á unglingastigi verði eflt til muna
frá því sem nú er. En einnig þarf að koma
til annað regluiegt hlutlægt námsmat sem
gefur nemendum tækifæri til að fylgjast með
eigin framförum á unglingastiginu. Nú eru
samræmd próf aðeins við lok grunnskólans
og ekkert svigrúm til að koma nemendum
til aðstoðar á grundvelli niðurstaðna úr þeim
ef ekki er allt með felldu í þeim greinum sem
þau taka til. Gagnrýnin á samræmdu prófin,
eins og þau eru nú framkvæmd, hefur verið
tvennskonar. Annars vegar að þau séu ein-
göngu haldin við lok grunnskóla og hins veg-
ar að þau stýri of mikið kennslunni."
í sjálfu sér segir Sigríður að stýring þurfi
ekki að vera slæm ef skólastarfi er stýrt í
þá átt sem að er stefnt. Skýr markmið og
viðmiðunarstundaskrá eigi að tryggja að
skólastarf stjórnist ekki um of af þeim náms-
greinum sem prófað er úr á samræmdum
prófum. Hægt sé að draga úr óæskilega
miklum áhersium á tilteknar greinar með því
að ákveða með litlum fyrirvara í hvaða náms-
grein verður prófað og hvenær.
Notkun samræmdra prófa segir hún að
geti verið með ýmsum hætti og munur á því
hvort þau eru lögð fyrir á skólaferlinu eða í
lok þess.„Við leggjum áherslu á að nemandi,
foreldrar og skóli hafi sem gleggsta hug-
mynd um stöðu nemandans. Samræmd próf
eru eingöngu hluti af matinu í skólanum.
Mikilvægast er þetta daglega mat sem alitaf
fer þar fram, alla daga. Matið þarf að vera
bæði hlutlægt og sveigjaniegt. Ymsir þættir
eru í skólastarfínu sem erfitt er að mæla,
svo sem frumkvæði, gagnrýnin hugsun o.fl.
Samræmd próf, sem lögð eru fyrir nemendur
einu sinni á námsferlinu, eru ekki sérlega
hentug til að mæla innra starf skólans. Þó
má nota niðurstöður samræmdra prófa í þess-
um tilgangi með því að bera saman sambæri-
lega skóla í sambærilegu umhverfi.
Þegar íslenskt skólastarf er skoðað rekur
maður sig á hve lítið er um upplýsingar. Lít-
ið er vitað um hvernig skólarnir eru og hvern-
ig þeir stanaa sig. Það er svo lítið um skipu-
legt mat á námsárangri. Að frátöldum sam-
ræmdum prófum í lok grunnskóla fer fram
lítið skipulegt mat á námsárangri eða innra
starfi skóla. Þessu viljum við breyta. Við
leggjum til að samræmdar mælingar verði
efldar og prófagerð endurskoðuð. Meðal ann-
ars þarf að skilgreina þau námsmarkmið sem
■’SI
Morgunblaðið/RAX
Viðtal við Sigríði
Önnu Þórðardóttur
prófað er úr á samræmdum prófum. Tryggt
verði að kennarar af grunn- og framhalds-
skólastigi taki þátt í prófagerð. Kennurum
verði tryggður aðgangur að stöðluðum kunn-
áttuprófum og fái einnig ráðgjöf um notkun
slíkra prófa, Þessi endurskoðun er nú hafin
og Rannsóknastofnun uppeldis og mennta-
mála annast nú framkvæmd samræmdra
prófa.“
Samræmd próf úr framhaldsskóla
Eins og málum er nú háttað er ekki sam-
ræmt námsrhat í framhaldsskólum landsins
og Sigríður segir mikilvægt að komið verði
á samræmdu námsmati í tilteknum greinum
til stúdentsprófs. Sú umræða sem verið hefur
undanfarið um inntökuskilyrði í háskóla hafí
mótast af því. hve nemendur hafi reynst mis-
jafnlega undir það búnir að takast á við há-
skólanám. Samræmd próf í völdum greinum
gætu auðveldað háskólum inntöku nemenda
og gefið nemendum dýrmætar upplýsingar
um stöðu sína í þeim greinum. Nefndin legg-
ur því til að komið verði á samræmdum próf-
um í lok framhaldsskólans. Er þá miðað við
að nemendur geti sjálfír valið hvort þeir fara
í samræmd próf. Þeir sem ætla í háskóla
taka þá samræmd próf í þeim greinum sem
deildin sem þeir ætla í gerir kröfur um. Sig-
ríður segir að Háskólinn hafi tekið þessari
tillögu fagnandi.
Um leið og Nefnd um mótun menntastefnu
leggur mikla áherslu á markvissa aukningu
námsbrauta á sviði starfsmenntunar er lagt
til að dregið verði úr námsframboði til stúd-
entsprófs. Er þar m.a. átt við fælckun náms-
brauta til stúdentsprófs, en skilgreindar leið-
ir þar um eru nú 13. „Of mikil áhersla er á
stúdentspróf hér á landi á kostnað annars
framhaldsnáms, en hlutfalislega færri nem-
endur stunda hér starfsmenntun en gerist í
mörgum öðrum löndum."
Verður þetta þá ekki viðbótar umstang,
heilmikið bákn?
„Nei, það tel ég fráleitt. Við höfum tals-
verða reynslu af samræmdum prófum í 10.
bekk. Ekki tekur nema 3-4 vikur að vinna
úr þeim. Að vísu þarf góðan tíma til að semja
prófin og vissulega er þetta viðbót við það
sem fyrir er, en bákn verður það varla.“
Nefndin um mótun menntastefnu var skip-
uð í mars á síðasta ári af Ólafi G. Einars-
syni með það hlutverk að endurskoða lög um
grunnskóla og framhaldsskóla. Hún skilaði í
janúar sl. áfangaskýrslunni sem var send út.
Hún hefur fengið fjölmargar umsagnir frá
aðilum sem starfa að skólamálum. „Við höf-
um fengið mjög vandaðar umsagnir og erum
þakkiát fyrir hve fólk hefur lagt mikla vinnu
í þær,“ segir Sigríður. Hún segir að augljóst
sé af umsögnunum að margir séu mjög
hlynntir samræmdum prófum. Skiptar skoð-
anir séu hins vegar á útfærslu þeirra og ljóst
að prófín þurfa ekki að vera sömu tegundar
á öllum aldursstigum. Eitt fagfélag, Félag
dönskukennara, hafi sérstaklega ályktað um
nauðsyn samræmdra prófa. Þarna sé frekar
um áherslumun að ræða en grundvallarmun.
Kennarasamband íslands tali t.d. frekar um
samræmd könnunarpróf en samræmd próf.
Sigríður kveðst ekki vera í nokkrum vafa
um að nota eigi samræmd próf og að mikil-
vægt sé að fá þau einnig fyrr í grunnskólun-
um en nú er. „Samræmd próf eru eitt af
þeim tækjum sem við eigum að nota í skóla-
starfi. Við eigum að nota öll tiltæk meðul
til að bæta skólastarfið, jafnt samræmd próf
sem annað,“ segir Sigríður. „Matið í skólan-
um er mikilvægt. Og svo koma þau til viðbót-
ar. í mínu kennarastarfi hefði ég ekki viljað
vera án samræmdu prófanna. Þessi próf hafa
tilgang og gefa miklar upplýsingar. Þau eru
því mjög mikilvæg ásamt öðru skólamati.
En þótt samræmd próf séu sjálfsögð og
nauðsynleg í nútíma skólastarfi er það þó
fyrst og síðast innra starf skólans og það
eftirlit og mat sem þar fer fram sem skiptir
sköpum um farsælt skólastarf," segir Sigríð-
ur Anna Þórðardóttir að lokum.