Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
KYIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga gamanmyndina Groundhog Day, Daginn
langa, með Bill Murray 1 aðalhlutverki. Mynd þessi hefur hlotið feikigóða dóma og er af
mörgum gagnrýnendum talin ein besta gamanmynda síðari ára.
Stórfréttin
SJÓNVARPSMAÐUR-
INN Phil Connors, sem
Bill Murphy leikur, er
sendur til Punxsutawn-
ey í Pennsylvaníu
ásamt l'.vikmyndatöku-
manni og upptökustjór-
anum Ritu, sem Andie
Mac Dowell leikur, til
að fylgjast með því hvar
skuggi múrmeldýrsins
falli þegar það skríður
úr híðinu.
mynd Steve Sonderberghs,
Sex, lies and videotape frá
1989, og fyrir það hlutverk
hlaut hún meðal annars til-
nefningu til Golden Globe-
verðlauna. Síðan hefur hún
m.a. leikið í Green Card á
móti Gerard Depardieu og
The Object of Beauty á móti
John Malkovich. Andie var
þekkt og vel launuð fyrirsæta
þegar hún hafði fyrst kynni
af kvikmyndaleik í Tarzan-
myndinni um Graystoke-
lávarð sem Christophe Lam-
bert lék. Eins og fleiri stjörn-
um sást henni bregða fyrir i
mynd Roberts Altmans, The
Player, og nýlega hefur hún
lokið við leik í nýrri mynd
Altmans, Short Cuts, og
einnig í myndinni Ruby Cairo
þar sem hún leikur á móti
Liam Neeson.
GROUNDHOG Day, Dag múrmelsdýrsins, ber
upp á kyndilmessu, 2. febrúar. Þá er haft fyr-
ir satt í Ameríku að múrmeldýr, sem eru amer-
íska útgáfan af broddgöltum, vakni af dvala
og skríði úr híði sínu. Sjái múrmeldýrið skugg-
ann sinn þegar það lítur dagsljósið snýr það
við og leggur sig aftur. Þá segir þjóðtrúin að
enn séu sex vikur eftir af vetri. Komi dýrið
alla leið út er vorið komið. Myndin Groundhog
Day eða Dagurinn langi fjallar um sjónvarps-
manninn Phil Connors (Bill Murray). Hann er
veðurfréttamaður á sjónvarpsstöð. Fjórða árið
í röð er hann gerður út af örkinni til að fylgj-
ast með þessum merkisdegi í alþýðuveðurfræð-
um frá háborg þeirra vísinda í Bandaríkjunum,
smábænum Punxsutawney í Pennsylvaníu-
fylki. Af óljósum og óútskýrðum ástæðum lend-
ir Phil í því meðan á ferðinni stendur að festast
í tíma. Hjá honum er alltaf dagur múrmeldýrs-
ins. Þannig verður það þangað til Phil tekst á
við sjálfan sig og breytir sér úr sjálflægum
montrassi í almennilegan mann. * .
Það tekur Phil langan
tíma að sjá að sér og
gera það sem hann þarf að
gera til að losna undan hin-
um endalausa degi múrmel-
dýrsins, Punxsutawney, og
því að flytja sömu fréttina
dag eftir dag. Áður en að
því kemur lendir hann í ýms-
um ævintýrum og Phil er
fljótur að gera sér grein fyr-
ir að fátt er svo með öllu illt
að ekki boði nokkuð gott.
Alltaf með hreint borð
Kosturinn við þá aðstöðu
sem Phil er kominn í er sá -
frá hans bæjardyrum séð -
að hann þarf ekki að taka
afieiðingunum af gerðum
sínum. Það er alveg sama
hvað hann lætur eftir sér að
gera, hvaða áhættu hann kýs
að taka, og í hvaða ótrúlegu
ævintýrum hann lendir, alltaf
byijar hann með hreint borð
næsta-dag. Hins vegar kem-
ur að því að jafnvel náungi
eins og Phil er búinn að
skemmta sér nóg.
Manneskjan sem getur
leyst Phil undan því helvíti
sem dagur múrmeldýrsins
verður honum smám saman
er Rita Hanson, upptöku-
stjórinn hans, sem leikin er
af Andie MacDowell. Phil
nýtur umtalsverðrar kven-
hylli meðal heimasætanna í
Punxsutawney en eftir því
Ekki ást við fyrstu sýn
PHIL Connors er með sjálfan sig á heilanum. Ritu Hanson finnst ekki mikið
til hans koma ekki í fyrstu og honum er hjartanlega sama.
sem hann upplifir sama dag-
inn oftar heillast hann meira
og meira af uppfökustjóran-
um sínum sem viil hins vegar
ekkert hafa með hann að
gera. Phil fer að temja sjálf-
an sig og þegar það hefur
tekist þannig að Rita vilji líta
við honum losnar hann undan
degi múrmeldýrsins og getur
haldið áfram að lifa.
Þetta er sjötta kvikmyndin
sem Harold Ramis gerir í
samvinnu við Bill Murray.
Ýmist hefur Ramis verið í
hlutverki leikara, leikstjóra,
handritshöfundar eða fram-
leiðanda, gjarnan í tveimur
eða fleiri þessara hlutverka
í hverri mynd. Þekktastar
mynda hans með Murray til
þessa eru Ghostbusters-
myndirnar tvær en hinar eru
Stripes, Meatballs og Cadd-
yskach. Ramis skapaði sér
nafn við lok 7. áratugarins
sem meðlimur í National
Lampoon hópnum, ásamt
John Belushi, Gilda Radner,
Chevy Chase, Bill Murray og
eldri bróður Bills, Brian Do-
yle-Murrray, sem leikur
einnig í Groundhog Day.
Fyrsta stórvirki Ramis var
handritið að einni þekktustu
gamanmynd allra tíma, Nat-
ional Lampoon’s Animal Ho-
use, þar sem John heitinn
Belushi var í aðalhlutverki.
Eins og fyrr sagði er Bill
Murray óumdeilanlega
stjarna Dagsins langa en í
hinu eiginlega titilhlutverki
myndarinnar — ef miðað er
við hið enska heiti hennar —
er þó 10 kg múrmeldýr að
nafni Scooter. Kvenhetja
myndarinnar er eins og fyrr
sagði Rita Hanson, leikin af
Andie MacDowell. Andie sló
eftirminnilega í gegn í kvik-
Á morgun kemur
aftur dagurínn í dag
Enn einn úr Laugardagsgenginu
ÞVÍ HEFUR verið spáð í sumum erlendum tíma-
ritum að þegar frá líði muni Groundhog Day,
Dagurinn langi, teljast tíl klassískra gaman-
mynda og að ástæðan fyrir því sé að hluta góð
útfærsla á fyndinni sögu en þó einkum og sér
í lagi frábær leikur Bills Murrays. Til þessa
hafa bíógestír nokkuð skipst í tvö horn hvað
varðar viðhorf til Bills Murrays; sumir hafa
dýrkað hann en aðrir þola hann ekki. Talið er
víst að eftir Daginn langa margfaldist fyrr-
nefndi hópurinn en sá síðarnefndi látí verulega
á sjá. íslenskir aðdáendur Bills Murrays eiga
góða daga um þessar mundir því auk Ground-
hog Day gefur að líta kappann í Háskólabíói í
myndinni Mad Dog and Glory, eða Bófinn, stúlk-
an og löggan, þar sem Murray leikur á móti
Robert De Niro og Uma Thurman.
Ódrepandi
ÞAÐ ER sama hvaða vitleysu Phil Connors tekur upp
á meðan hann situr fastur í Deginum langa. Alltaf
mun hann vakna sem nýr maður að morgni.
Bill Murray á eitt sameig-
inlegt með flestum ef
ekki öllum bandarískum
gamanleikurum sem eitt-
hvað hefur kveðið að síðast-
liðna áratugi..Eins og John
Belushi, Dan Aykroyd, Steve
Martin, Chevy Chase, Martin
Short, Eddie Murphy og
hvað þeir allir heita, lék hann
um árabil í sjónvarpsþáttun-
um frægu Saturday Night
Live.
Murray er fæddur í
Chicago og eftir framhalds-
skólanám gerðist hann árið
1969 meðlimur í leikhóp þar
í borg, sem heitir Second
City Theatre. Þar naut hann
góðs af bróður sínum Brian
Doyle-Murphy og kynnum
hans við Harold Ramis og
fleiri. 1974 stofnaði Bill
Murray, ásamt fólki á borð
við Harold Ramis, John Bel-
ushi og Gildu Radner hinn
sögufræga Nationai Lampo-
on-hóp, sem fyrst um sinn
lét einkum að sér kveða í
útvarpi.
Saturday Night Live
Árið 1976, á öðru starfs-
ári hinna frægu sjónvarps-
þátta NBC-stöðvarinnar,
Saturday Night Live, bauðst
Bill Murray að leysa Chevy
Chase af hólmi og nýtti það
tækifæri til iiins ýtrasta.
Næstu þrjú árin skapaði
hann þar marga karaktera
sem síðan hafa notið álíka
hylli meðal bandarískra sjón-
varpsáhorfenda og Ragnar
Reykás og Kristján Ólafsson
meðal íslenskra.
Fyrsta kvikmyndin sem
Murray lék í var gaman-
mynd gerð árið 1979. Sú hét
Meatballs og Jeikstjóri var
Ivan Reitman. í Caddyshack
(1980) var'National Lampo-
on-hópurinn enn á ferðinni
en ekki fer miklum sögum
af myndinni Where the Buff-
alo Roam, sem gerð var
sama ár. Murray vann enn
á ný með Reitman og Harold
Ramis í í Stripes (1981). Til
þessa eru þekktustu myndir
Murrays Ghostbusters-
myndirnar (1984 og 1989)
sem enn eru í hópi mest sóttu
kvikmynda sögunnar vest-
anhafs. Eins og nafnið gefur
til kynna var myndin Raz-
or’s Edge (1984) ekki bein-
línis á léttari nótunum en
auk þess að leika í henni
átti Bill Murray þátt í gerð
handritsins. Sama ár lék
hann í Nothing Lasts forever
(1984).
Margir muna eftir Bill
Murray í nútímaútfærslu á
Jólaævintýri Dickens í
myndinni Scrooged (1988),
þar sem hann lék saman-
saumaðan sjónvarpsstjóra
sem verður nýr maður á jóla-
nótt, en í myndinni Tootsie
(1982) var Murray hins veg-
ar í skugga Dustins Hoff-
mans og ekki er víst að
margir tengi hann við þá
mynd þar sem hann lék
meðleigjanda Hoffmans.
Þá var hann eftirminnileg-
ur í hlutverki masókista sem
settist í stólinn hjá kvala-
sjúka tannlækninum sem
Steve Martin lék í nýjustu
útgáfunni af Litlu hryllings-
búðinni (1986).
í myndinni What About
Bob? (1991) lék hann geð-
sjúkling,sem gerir geðlækn-
inum Richard Dreyfuss lífíð
leitt og í Quick Change
(1990) var hann í senn trúð-
ur, bankaræningi og unnusti
Geena Davis.
Enn sem komið er hefur
Murray ekki verið tilnefndur
til Óskarsverðlauna, og ekki
hlotið önnur af eftirsóttustu
verðlaunum bransang en
Emmy-verðlaun fyrir fram-
lag sitt til handrita Saturday
Night Live þáttanna. Margir
telja að erfitt verði að ganga
fram hjá honum eftir
frammistöðuna í Deginum
langa og þótt Óskarsverð-
launaathöfnin sé nýlega búin
eru sumir þegar farnir að
gæla við að Bill Murray
muni eiga erindi á þá næstu.