Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 + mnm ,ss auoAciuvíViu8 (uci ajbhuojiom MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993 a ss 25 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1200 kr. á mánuði innan- lands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Rétturinn til lífsbjargar Menn beina gjarnan sjónum sínum að fyrirtækjum sem í hvað mestum rekstrarörðugleik- um eiga hveiju sinni og hugleiða þá meðal annars hvað hafí farið úrskeiðis, hveiju sé um að kenna, hvað megi betur fara og hvernig sé hægt að hrinda umbótum í framkvæmd. Ýmis sjávarútvegs- fyrirtæki hafa þannig undanfarna mánuði verið undir smásjá þjóðar- innar og má í þeim efnum benda á Einar Guðfinnsson hf. í Bolung- arvík, sem nú er þrotabú EG, Borgey hf. á Höfn í Homafirði, ísfélag Vestmannaeyja í Vest- mannaeyjum og Vinnslustöðina hf. í Vestmannaeyjum. Ugglaust munu mörg önnur sjávarútvegs- fyrirtæki verða í fréttum á næstu vikum og misserum vegna rekstrarörðugleika og erfiðrar af- komu. Segja má að vandi sjávarútvggs Bolvíkinga sé vándi sjávarútvegs íslendinga í hnotskum, og að gall- ar kvótakerfísins kristallist í þeim vanda sem Bolvíkingar eiga nú við að glíma. Ekki verður í fljótu bragði séð hvernig Bolvíkingar leysa þann vanda, svo að blómleg byggð og útgerð haldi áfram í þessari eitt sinn öflugu verstöð. Kvótakerfíð hefur fest sig í sessi með slíkum hætti í hugum útgerðaraðila, að það er sama hversu bág staðan er, fæstir mega hugsa þá hugsun til enda að bjarga rekstri sínum með því að selja fískiskip, því veiðiheimildirn- ar eru bundnar skipunum. Al- mennt er litið þannig á, að kvóta- kerfíð sé lokað veiðikerfí, sem nýir aðilar eigi erfitt með að kom- ast inn í og þeir sem selji fiskskip- in séu þar með að afsala sér um aldur og ævi aðgangi að sameigin- legri auðlind íslendinga, fískimið- unum. Þetta er höfuðástæða þess að Bolvíkingar leita nú allra leiða til þess að reyna að halda báðum togurum þrotabús EG í Bolungar- vík, Dagrúnu og Heiðúmu. Þeir vita að með því að neyta forkaups- réttár bæjarfélagsins á skipunum, eru þeir líklega að nýta þann eina möguleika sem þeir hafa til þess að halda skipunum í byggðarlag- inu. Bolvíkingar vita að þeir munu ekki hafa bolmagn til þess að kaupa fiskiskip og aflaheimildir á fijálsum markaði í náinni framtíð. Þeir telja að hrein auðn blasi við byggðarlaginu, neyðist þeir til þess að láta Dagrúnu af hendi og þann kvóta sem bundinn er því skipi. Þá sé ekki nema um 2.000 tonna kvóti eftir í Bolungarvík. Til þess að missa ekki hin svo- kölluðu „áunnu réttindi" til sjó- sóknar til frambúðar, leita fyrir- tæki og bæjarfélög allra annarra leiða, en að selja frá sér fiskiskip- in. Það gera raunar þeir einir sem hyggjast hætta útgerð. Aðrir vilja fremur selja burtu veiðiheimildirn- ar, en binda skipin kvótalaus við bryggju og bíða betri tíma. Þótt slík nýting á fjárfestingunni sé eins óarðbær og hugsast getur, sjá menn alltént möguleikann á því að kaupa síðar kvóta á nýjan leik og hefja aukna sjósókn. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, kveðst ekki sjá ástæðu til að „gefa umsögn um íslenska smíð sem þýdd er í OECD,“ þegar Morgunblaðið leitar álits hans á efnisatriðurn í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar í Par- ís, þar sem fram kemur að grund- vallarvanda sjávarútvegs sé ekki að fínna í rangri gengisskráningu krónunnar, heldur megi fyrst og fremst rekja hann til of mikillar afkastagetu í greininni. Formaður LÍÚ sér ekki ástæðu til þess að svara þessum augljósu sannind- um, vegna þess að hann telur að þau hafí verið fest á blað á íslandi. Kvótakerfíð er ekki einungis hróplega ranglátt kerfí, heldur vinnur það beinlínis gegn því að hægt sé að draga úr umfram- afkastagetu greinarinnar, eins og glöggt sést á dæmi því frá Bolung- arvík, sem greint er frá hér að ofan. Fiskveiðistjórnunin verður með- al annars að gera hagsmunaaðil- um í sjávarútvegi kleift að draga úr offjárfestingunni, án þess að heilu byggðarlögin, oft og tíðum þær verstöðvar sem hvað mesta nálægð hafa við gjöfulustu fiski- miðin, þurfí um aldur og ævi að afsala sér réttinum til lífsbjargar. Það var markmiðið með fyrirhug- aðri stofnun Þróunarsjóðs^jávar- útvegsins. Er ekki tími til kominn að horf- ast í augu við galla kvótakerfisins og sameinast í átaki sem skili þióðinni betra, hagkvæmara og réttlátara stjómunarkerfi í undir- stöðuatvinnugrein okkar íslend- inga, sjávarútvegi? Hetjur og ljóð IMÉR ER TIL • efs að ljóðið gegni lengur neinu sérstöku hlutverki einsog áðurfyr. Við lifum ekki á ljóðrænum tímum ef svo mætti segja. Við erum fædd inní plast. Og umbúðirnar um Iíf okkar eru úr gerviefni. Fyrr á öldum nærðist fólk á goðsögulegum dæmisögum einsog við sjáum í hómerskviðum og biblíunni og ljóðlistin stóð í órofatengslum við þessa klassísku menningu sem birtist svo með sér- stæðum hætti í eddukvæðum og dróttkvæðum erindum og konunga- kvæðum síðar. Konungakvæða- hefðin átti sér ekkisízt rætur í því að konungar vildu láta mæra sig og í skáldskap átti nafn þeirra og orðstír að lifa. Við sjáum þetta einn- ig í hómerskviðum þarsem hetjum- ar vildu láta syngja um sig í kvæð- um og takmark þeirra var ekkisízt að eignast nafn einsog segir ein- hvers staðar í Hómer, en þessi ár- átta var ein helzta hvötin að íslenzk- um miðaldakvæðum þarsem kon- ungarnir voru dýrkaðir, þótt ekki væri það með sama hætti og hóm- ershetjur sem urðu helzt að vera guðlegar verur, eða aðminnstakosti af guðlegu ætterni. í kristinni menningu var slík dýrkun einungis ætluð frelsaranum og fjölskyldu hans og svo helztu dýrlingum. En konungakvæðin studdust ekkisíður en annar miðaldakveðskapur við goðsöguleg heiti og kenningar sem voru merkingarlaus ef menn skildu ekki goðsögur ásatrúarmanna. HELGI spjall Þannig gekk hómers- menningin aftur ef svo mætti segja í kon- ungakvæðaarfleifð okkar. En hún heyrir nú sögunni til. Tilgangur ljóðlist- arinnar er ekki orðinn annar en ljóð- listin sjálf. Það vantar því miður á að hún gegni sama hlutverki og áður. En sem vitnisburður um mannlegar kenndir, tilfínningar, ást, þrá, ótta og hatur svo eitthvað sé nefnt, er hún að sjálfsögðu mikil- væg listgrein og verður væntanlega áfram. Ljóðlistin er ágæt leið að mannin- um sjálfum því hún getur sagt hið ósagða og þótt hún geti verið áleit- in þarf hún ekki að vera óvinur eða andstæðingur, heldur góð sam- fylgd. En hún er að sjálfsögðu einn- ig afhjúpandi í hlédrægni sinni, myndmáli, líkingum og margræðni og af þeim sökum heldur illa séður gestur í einræðisríkjum. Hún gegn- ir kannski ekki miklu hlutverki í tæknibúnu allsnægtarríki þarsem allt snýst um peninga og koma sér fyrir, en er þá því mikilvægari þar- sem þjáning og ótti eru helztu fylgi- fískar mannlífsins. En þarsem dauðinn er sú byrði sem við þurfum öll að bera á ljóðlist- in einnig erindi við þá sem er ekki íþyngt af neinni þjóðfélagsógæfu, en þurfa einfaldlega að horfast í augu við sjálfa sig og örlög sín. Hlutverk Ijóðlistar er þannig ekki á enda svo lengi sem maðurinn er háður tilfinningum sínum og sigð dauðans er í augsýn. Þarsem á því verður engin breýting einsog mað- urinn er af guði gerður og örlög hans afráðin andspænis dauðanum og þá ekkisízt þarsem ástin er aug- sýnilega dýpsta kennd hans mun ljóðlistin gegna því hlutverki í lífi ■ hans sem nú blasir við, þótt hún hafi glatað goðsögulegu hlutverki sinu gagnvart hetjunni. En dýrkun hennar er ekkiheldur úr sögunni, síðuren svo, og nægir að minna á John Wayne og ýmsar aðrar plast- hetjur kvikmyndanna, svoog Elvis Presley, Martin Luther King, John F. Kennedy og Pavarotti. Gyðjurnar eru meira að segja á sínum stað, Marilyn Monroe og Madonna. Hetjurnar kunna nú bezt við sig í kvikmyndum og öðrum fjölmiðlum, en enginn veit hversu þar er lífvæn- legt þegar plastið hrúgast upp og enginn hefur tök á að fylgjast með allri framleiðslunni. Þá má telja lík- legt að tíminn sigti verðmætin frá einsog hann hefur alltaf gert og kannski hann verði þá til að rétta hlut ljóðsins. Það á enn margt ósagt. Ef ljóðlistin dæi á íslandi yrði það eitthvað svipað því og ef ís- lenzka birkið hætti að laufgast einn góðan veðurdag. Þá yrðum við ís- lenzkum skógarilmi fátækari. Og landið yrði naktara og fáskrúðugra. Tengslin við arfleifð okkar og upp- runa yrðu ekki hin sömu. Nú þegar ljóðlistin hefur yfírgef- ið guði og hetjur og snúið sér að venjulegu fólki og hversdaglegu lífi er vonandi að hún verði áfram einn þáttur þess og mikilvæg tenging við arfleifð okkar og uppruna. Ljóð- listin er tæki tungunnar sem hefur gert okkur að sérstakri þjóð, enda helzta einkenni okkar. M (meira næsta sunnudag) Enn um uppgjörið við marxista í SÍÐASTA BREFI var fjallað um upp- gjör við gamla marxista og sam- fylgdarménn þeirra og bent á að það sé ekkert sérstakt hlutverk Morg- unblaðsins að.gera upp við þá nú þegar kommúnisminn er hruninn. Vitnað var til orða Milans Kundera í nýlegri grein og skal nú enn vikið að henni hér í upp- hafí bréfs, ef það mætti verða til þess menn gerðu sér betur grein fyrir því en ella hve viðkvæmt og vandmeðfarið slíkt uppgjör er. Vísast það missi marks án þess hver og einn horfíst í augu við sjálf- an sig og samtíð sína og taki á sig þá ábyrgð sem honum ber að axla. Við skul- um líta á þann kafla í grein Milans Kund- era sem heitir Réttarhöldin yfir öldinni, en það er áhrifamikill pistill sem okkur öllum væri hollt að hugleiða á þeim mikil- vægu en óvissu tímamótum sem við nú lifum. Það gæti verið að einhveijir græfu stríðsöxina og væru fremur fúsir til sátta og samstarfs eftir þann lestur. í Réttar- höldum yfír öldinni kemst Milan Kundera svo að orði: „Evrópa hefur lotið ægivaldi réttarhalda undanfarin sjötíu ár eða svo. Hefur nokkur af helstu_ listamönnum heimsins sloppið við þau? Ég ætla aðeins að nefna þá sem skipta einhveiju máli fyrir mig. Á þriðja áratugnum var sið- ferðisdómstóll byltingarinnar á höttunum eftir mönnum eins og: Búnín, Andreíev, Meyerholt, Pílnía, Veprik (rússneskur tónlistarmaður af gyðingaættum, gleymdur píslarvottur nútímalistarinnar; hann dirfðist að setja sig upp á móti Stalín og veija óperur Sjóstakkóvits, sein þá voru bannaðar, hann var umsvifalausí.' sendur í þrælkunarbúðir, ég minnist þess að faðir minn hafði unun af því að leika píanóverk hans), Mandelstam, Halas (skáld sem Lúðvík í Brandaranum dáði mjög, en skáldið sætti ofsóknum post mortem), eða, við aðrar kringumstæður, Malraux. Síðan voru það þeir sem voru hundeltir af byltingardómstól nasista: Broch (ég er með mynd af honum á skrif- borðinu mínu, þaðan sem hann horfír á mig með pípu í munnvikinu), Schönberg, Werfel, Brecht, Mann, Musil. Alræðis- veldin með sín blóðugu réttarhöld eru liðin undir lok, en andi réttarhaldanna heldur uppi merki þeirra, hann er enn fyrir hendi og sér um öll uppgjör. Þannig hafa réttarhöld verið haldin eða verða hugsanlega haldin yfír mönnum á borð við: Hamsun, Céline, Heidegger (allir tékkneskir hugsuðir sem hafa verið í útlegð eiga honum skuld að gjalda, eink- um og sér í lagi Patocka), Richard Strauss, Gottfried Benn, Drieu de la Rochelle, von Doderer; yfír stuðnings- mönnum Mússolinis: Malaparte, Mari- netti, Ezra Pound (bandaríski herinn læsti hann inni í búri, í brennandi sólinni á Ítalíu, eins og skepnu); yfir friðar- sinnanum í Míinchen: Giono, Alain, Monr- and, Montherland, Saint-John Perse (hann var í frönsku sendinefndinni í Miinchen og átti því beina aðild að því að niðurlægja fæðingarland mitt). Síðan voru það kommúnistamir og stuðnings- menn þeirra: Majakovskí (hver skyldi enn muna eftir ástarljóðunum hans, og mynd- hverfunum ótrúlegu), Gorkí, G.B. Shaw, Brecht (sem lenti þá í réttarhöldum öðru sinni), Eluard (þessi engill eyðileggingar- innar sem teiknaði tvö sverð við undir- skrift sína), Picasso, Léger, Aragon (hvernig get ég gleymt því að hann rétti mér hjálparhönd á erfiðu tímabili í lífi mínu?), Nezval (sjálfsmynd hans máluð með olíu hangir hjá bókunum mínum), Sartre, Gabriel Garcia Márquez. Verið er að halda tvenn réttarhöld yfir sumum þeirra. Fyrst eru þeir ákærðir fyrir að hafa svikið byltinguna og síðan fyrir að hafa þjónað henni á sínum tíma: Gide (sem var tákngervingur Guðs í gömlu kommúnistaríkjunum), Sjostakkovits (hann skrifaði allskyns dellu fyrir stjórn- völd til að bæta fyrir hvað hann hafði skrifað erfíð tónverk; hann hélt því fram að gildisleysi væri einskis virði fyrir lista- söguna; hann vissi ekki að einmitt gildis- leysið er það sem mestu skiptir fyrir dómstólinn), Breton, Tibor Dery (hann var dæmdur og fangelsaður eftir upp- reisnina í Búdapest árið 1956; stutta skáldsagan og þær fáu smásögur sem hann náði að skrifa áður en hann var handtekinn voru fyrstu bókmenntalegu viðbrögðin, sem ég gleymi aldrei, við ofsóknum stalínismans). Fegursta blóm aldarinnar, nútímalist þriðja og fjórða áratugarins, var meira að segja dregið fyrir dómstóla í þrígang: fyrst fyrir dóm- stól nasistanna, sem Entartete Kunst, „úrkynjuð list“; síðan fyrir dómstól kommúnista sem „formgerðarstefna sem almenningur skilur ekki og nær aðeins til fárra útvalinna", og loks, fyrir dóm- stól hins sigri hrósandi auðvalds sem segir að þessi list hafi nærst á blekking- um byltingarinnar. Hvernig má það vera að mesta þjóðar- remba Sovétríkjanna, maðurinn sem samdi áróðurskvæði, sá sem sjálfur Stal- ín kallaði „mesta skáld okkar tíma“, hvemig má það vera að þrátt fyrir að allt þetta sé Majakovskí stórkostlegt skáld, eitt mesta skáld allra tíma? Átti það ekki fyrir ljóðræna skáldskapnum, þessari ósnertanlegu gyðju, með allan sinn ástríðublossa, táraflóð sem var svo ákaft að varla sá út úr augum, að liggja að verða einhvern daginn að fegrandi hjúp um grimmdarverk og „vinna af fórn- fysi í þeirra þágu“? Það voru spumingar sem þessar sem heilluðu mig fyrir tutt- ugu og þremur ámm, þegar ég var að skrifa skáldsöguna Lífíð er annars stað- ar, sem fjallar um Jaromil, tæplega tví- tugt ungskáld, sem gerist dyggur þjónn stalínískra stjórnvalda. Ég var skelfíngu lostinn þegar gagnrýnendur, sem annars lofuðu bókina mjög, litu á aðalhetjuna mína sem lélegt skáld, jafnvel skíthæl. Ég leit á Jaromil sem ósvikið ljóðskáld, fróma sál. Ef ekki, var lítið varið í skáld- söguna mína. Var það ég sem olli mis- skilningi? Orðaði ég hugsun mína illa? Ég held ekki. Að vera ósvikið skáld og taka um leið þátt í óumdeilanlegum grimmdarverkum (eins og Jaromil eða Majakovskí) er hneyksli. Það er orðið sem Frakkar nota yfír atburð sem ekki er hægt að réttlæta, sætta sig við, sem gengur gegn heilbrigðri skynsemi en er þó raunverulegur. Innst inni langar ekk- ert okkar að horfast í augu við hneyksli. Þess vegna kjósum við heldur að segja um þá menningarstólpa sem flæktust í hryllingsmál aldarinnar, að þeir hafi ver- ið skíthælar. En það er ekki rétt, heim- spekingar og listamenn vita að það er horft á þá, fylgst með þeim, þeir eru dæmdir og því reyna þeir, þó ekki væri nema til að sýnast, að vera heiðvirðir og hugrakkir, vera réttum megin og hafa á réttu að standa. Það gerir hneykslið enn illþolanlegra, enn óskiljanlegra. Ef menn vilja ekki ljúka þessari öld jafn heimskir og þeir hófu hana verða menn að leggja af hina auðveldu siðapredikun réttarhald- anna og hugsa hneykslið allt til enda, jafnvel þótt það þýði að við neyðumst til að hugsa manninn, allar hans föstu sann- færingar og öll hans heilögu gildi alveg upp á nýtt. EN HIÐ ÍHALDS- sama almennings- álit hefur tekið sér vald dómstólsins, og dómstóllinn má ekki vera að því að eyða tíma í flóknar bollaleggingar, hann á að sjá um réttarhöld. Nýlega las Uppljóstr- anir í kirkju- görðum REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 22. maí Morgunblaðið/Kristinn ég eftirfarandi frétt í dagblaði: borgar- stjómin í franskri borg hefur ákveðið að skíra upp breiðgötu sem ber nafn Alexis Carrels. Ég slæ nafni hans upp í alfræði- orðabók: „Fæddur árið 1873, dáinn 1944, franskur skurðlæknir, hlaut Nóbelsverð- laun í læknis- og lífeðlisfræði 1912 fyrir uppgötvun aðferða við tengingu æða í skurðaðgerðum.“ En árið 1935 skrifar þessi vísindamaður aðgengilega bók í anda amerísku erfðafræðinganna, þar sem segir meðal annars að „fjöldi andófs- manna og glæpamanna" valdi slíkum vandamálum að þau verði ekki leyst á annan hátt en með „aftökustofnun sem útbúin yrði viðeigandi gasi“. Þessi orð Carrels höfðu alls engin áhrif og féllu brátt í gleymsku. En eins og við vitum eru uppljóstrarar í kirkjugörðunum. „Ég eins og margir fleiri las um skrif hans í blöðunum fyrir fáum vikum, og ég er þeirrar skoðunar að við getum ekki hald- ið áfram að heiðra minningu Alexis Carr- els,“ útskýrir borgarstjórinn og nafna- gjafínn og mig langar að hvísla þessu að honum: það er hægur vandi að nefna götu upp á nýtt. Vandamálið er hins vegar að hreinsa læknisfræðina af öllu því sem þessi hræðilegi læknir færði henni. Og ef til er fólk sem á líf sitt uppgötvunum hans að þakka (því miður er líklegt að það sé talsverður fjöldi) verður að fá það til að skila aftur því lífí sem þessi hroðalegi maður bjargaði." Baráttan umjörðina sjálfa í SÍÐASTA Reykjavíkurbréfí var einnig rætt um regnskógana og því ekki úr vegi að hverfa út hingað heim til íslands og líta á hvað dr. Ágúst Valfells hefur til málanna að leggja um gróðurfar hérlendis í skýrslu sinni Aftur til framtíðar, ísland 2000. Hann segir að gróið land muni vera u.þ.b. 20.000 km2, þar af séu tún um 1.500 km2. Af- gangurinn sé mýrlendi, valllendi, móar og skóglendi. Árleg nýræktun túna sé nú um 30 km2 og sé þá aðallega um að ræða breytingu á valllendi og mýrlendi í tún. Góður árangur hefur orðið af vemd- un og uppgræðslu lands eins og kunnugt er og samkvæmt síðustu skoðanakönnun- um er ljóst að íslendingar vilja stórefla þessa starfsemi og endurheimta það gróna land sem glatazt hefur í áranna rás, bæði vegna náttúruhamfara og bú- skaparhátta, því að búseta hefur ekki ein valdið rýrnun gróðurlendis heldur einnig náttúran og þá ef til vill ekki sízt kóln- andi veðrátta, svo og eldgos. Auðvitað hefur gróðureyðing alltaf átt sér stað af völdum kulda, vatnavaxta og eldgosa fyrir landnám, en þá nær gróðurinn sér aftur miklu fljótar en nú þegar ekki var um að ræða beit né skógarhögg til kola- gerðar og annarra nytja. Um það hefur verið rætt að rækta mætti land upp að 400 metra hæðarlínu og þá gæti gróið land orðið u.þ.b. 40 þúsund km2 eða svipað og áætlað er að það hafí verið við landnám. „Hinsvegar krefst slík uppgræðsla mikils áburðar og annars tilkostnaðar,“ segir dr. Ágúst, „auk þess sem friða þarf landið um all- langan tíma. Því mun endurræktun ógró- ins lands ekki arðbær fyrr en eftir tals- vert langan tíma. Endurræktun ógróins lands mun nú líklega vera heldur meiri en 20 km2 á ári, en áframhaldandi lan- deyðing líklega um 20 kmz á ári (sam- kvæmt upplýsingum frá Ingva Þorsteins- syni, deildarstjóra Landnýtingardeildar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins). Því er ekki víst, að landgræðslan geri meira en að halda í við landeyðinguna." Þó að regnskógabeltið sé okkur mikil- vægt eins og öðrum þjóðum á jörðinni höfum við nóg með okkur ef vel á að takast til um jarðvemd og uppgræðslu. En með því að veija landið og rétta gróðr- inum hjálparhönd ættum við að geta unnið marktæka sigra í þessari hörðu baráttu. Átökin um ísland og framtíð þess eru þannig ekki ósvipuð þeirri bar- áttu sem nú fer fram á regnskógabelti Amazon-fljóts. Verndun lífs og gróðurs á jörðinni er undir því komin að vel tak- ist til í þessari baráttu, hvar sem hún er háð. Það er í raun barátta um jörðina sjáífa og sköpunarverkið eins og það horfir við okkur jarðarbúum. „Átökin um ísland og framtíð þess eru þannig ekki ósvipuð þeirri baráttu sem nú fer fram á regn- skógabelti Amazon-fljóts. Verndun lífs og gróðurs á jörðinni er undir því kom- inað veltakisttil í þessari baráttu, hvar sem fiún er háð. Það er í raun barátta um jörð- ina sjálfa og sköp- unarverkið eins og það horfir við okkur j ar ðarbú- um.“ H-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.