Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 27

Morgunblaðið - 23.05.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993----------— 27 Jóhanna Jóhannes dóttír — Minning Fædd 12. desember 1896 Dáin 13. maí 1993 Elskuleg amma okkar lést 13. maí síðastliðinn 96 ára gömul. Hún bar aldurinn vel, var em og virtist nokkuð heilsuhraust, svo að við áttum alveg eins von á því að hún næði 100 ára aldri. Þegar talað var um að henni yrði haldin herleg veisla brosti hún í kampinn og sagðist mundu mæta. En svo veikt- ist hún skyndilega, var lögð inn á sjúkrahús og reyndist haldin ill- kynja sjúkdómi, sem ekkert varð ráðið við. Viku síðar var hún dáin. Hún fæddist á Bakkabæ í Fróð- árhreppi 12. desember 1896 og ólst þar upp. Foreldrar hennar voru Jóhannes Bjamason og Anna Sigurðardóttir. Amma var næstelst sjö systkina. Elst var Sigurborg, svo kom amma Jóhanna, næstur var Ágúst, þá Valdís, síðan Soffía, Ámi var sjötti í röðinni og Bjarni var þeirra yngstur. Þijú systkin- anna, Ágúst, Árni og Soffía, em enn á lífi háöldruð. Amma giftist afa okkar, Guðmundi Óskari Olafs- syni, sjómanni frá Ólafsvík, 22. nóv. 1920. Fyrstu hjúskaparárin bjuggu þau í Ólafsvík, en fluttust í bæinn 1928. Þau áttu heima víða í Reykjavík til ársins 1942, en flutt- ust þá í nýtt parhús sem þau byggðu í Miðtúni 66 í samvinnu við systur afa og eiginmann henn- ar. Áfi stundaði sjóinn og amma var heima að gæta bús og barna, en þau eignuðust fimm börn á 13 áram. Þau eru: Björn Jóhanns, f. 1921, skipstjóri og síðar fiskmats- maður, d. 1981, maki Sigríður Ólafsdóttir; Sigurður Kristófer f. 1925, stýrimaður og síðar kennari við Fiskvinnsluskólann, maki Sig- ríður Guðmundsdóttir; Karl Ólafur, f. 1926, flugvélstjóri, d. 1980, maki Guðlaug Magnúsdóttir, d. 1971; Nanna Dísa, f. 1929, hús- móðir, maki Halldór Geir Lúðvíks- son; og Jórunn Jóna, f. 1934, skrif- stofumaður, maki Kristinn Þór- hallsson. Barnabörnin eru tíu og barnabarnabörnin á þriðja tug. Það var mikið áfall fýrir ömmu þegar afi dó um aldur fram haustið 1955 eftir skamma sjúkdómslegu. Þá kom sér vel hvað systkinin hafa alltaf verið til fyrirmyndar um samheldni. Fjölskylduboðin þeirra á jóladag og heita súkkulaðið hennar ömmu voru órjúfanleg heild, sem lifir áfram í minning- unni. Bærist tal að pólitík í góðra vina hópi hvein í ömmu þegar hall- að var á kratana. Hún var alla tíð mikil Alþýðuflokksmanneskja. Upp úr 1960 minnkaði hún við sig, fluttist úr Miðtúninu og keypti litla íbúð í Hátúni 4. Hún fór út á vinnumarkaðinn og vann við ræst- ingar til sjötugs. Gegn vilja sínum varð hún að hætta fyrir aldurs sakir og taldi sig ekkert gefa yngra fólki eftir. Um svipað leyti kynnt- ist hún miklum ágætismanni, Skarphéðni Vémundssyni. Þau ferðuðust saman mörg sumur vítt og breitt um landið með tjald, við- legubúnað og veiðistöng. Veiði- ferðimar að Apavatni urðu ófáar og eftirminnilegar og hún vílaði ekki fyrir sér að sofa í tjaldi kom- in hátt á áttræðisaldur. Þau Skarp- héðinn bjuggu saman í 15 ár eða þar til hann lést á gamlaárskvöld árið 1979. Sorgin knúði aftur dyra rétt rúmum mánuði síðar þegar Karl sonur hannar varð bráðkvadd- ur og að ári varð elsti sonurinn, Björn, einnig bráðkvaddur við skyldustörf. Amma hafði góða lund og sterkt hjarta og bar harm sinn í hljóði. Níræð hætti hún að búa ein og fluttist á Hrafnistu í Hafnar- firði. Hún var ánægð með dvölina þar og var starfsfólkinu þakklát fyrir góða aðhlynningu. Varla leið sá dagur að eitthvert barnannar hennar liti ekki inn auk þess sem þau töluðu daglega við hana í síma. Milli hennar og Soffíu systur henn- ar var einnig einstaklega gott sam- band og er missir hennar og ann- arra ástvina mikill. í tómarúminu sem myndast er það styrkur að eiga fallegar minningar um elsku- lega og góða ömmu. Við þökkum henni fyrir allt og allt. Megi hún hvíla í Guðs friði. Drottinn vakir, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson) Lúðvík, Guðríður og Jóhanna. Minning Sæmundur Jónsson fv. bóndi á Bessastöðum Fæddur 28. nóvember 1915 Dáinn 13. maí 1993 Mér er bæði ljúft og skylt að minnast Sæmundar föðurbróður míns örfáum þakkarorðum, en hann lést að heimili sínu 13. maí síðastliðinn á sjötugasta og áttunda aldursári. Kynni mín af Sæmundi hófust er ég var svo lánsamur að fara til hans og hans góðu konu Mínervu í sveit er ég var sjö ára og sátu þau uppi með mig næstu átta sum- ur. Fyrstu sumrin gerði maður nú lítið annað en að þvælast fyrir enda þótt alltaf hefði maður einhver verkefni og héldi sjálfur innst inni að maður gerði heilmikið gagn auk þess sem þessi fyrstu sumur voru notuð til að kenna manni ýmsa mannasiði svo sem að borða góðan mat. Öll sú tilsögn og kennsla sem maður varð aðnjótandi hjá þessum indælu hjónum á þessum árum var ávallt framreidd þannig að ein- hvern veginn síaðist hún inn í mann og allt í rólegheitunum. Ég kem í Bessastaði upp úr 1960. Þá er vélvæðingin að ryðja sér til rúms, en þó var ég svo hepp- inn að sjá rétt í endann á vinnu án véla þar sem hesturinn og mannshöndin léku aðalhlutverkið Tryggvi Héðinsson Hver fugl skal þreyta flugið móti sól. Að fótskor Guðs, að lambsins dýrðar stól og setjast loks á silfurbláa tjörn og syngja fyrir lítil englabðrn. (Davíð Stefánsson) Svo fljótt lauk hinn ungi maður Tiyggvi Héðinsson sínu flugi og settist á silfurtjörnina fögru, en hann lést tæpra nítján ára gam- all, sunnudagskvöldið 16. maí. Eftir glæsilegt flug um storma- sama slóð. Glæstara ungmenni að gáfum og gæðum er vandratað á. Svo vel var hann af Guði gerð- ur, greindur, styrkur, iðinn og vandvirkur, allra manna hugljúfí. Það er missir að slíkum manni. Öll höfum við verkefni að vinna hér á jörð og til þess ætlaður mis- langur tími. Tryggvi vann mikið á skömmum tíma og tók út sinn þroska fyrr en margur. Við sem í kringum hann lifðum minnumst hans með gleði, þar sem fögur fyrirmynd hans geymist allt til hinsta dags. Hvíl í friði og gleði, frændi. Föðursystkini og fjölskyldur. Blóm Skreytingar Gjafavara Kransar Krossar Kistuskreytingar Opið alla daga frá kl. 9-22 Fákafeni 11 s. 68 91 20 og varð manni snemma ljóst hvílík erfiðisvinna það hefur verið fyrir bændur á þessum tímum, enda bar frændi minn þess glögg merki um mikla vinnu þar sem 3/5 hlutar starfsævi hans með orfið, hrífuna, dugnaðarkonu og krakkana sína. Við Halla og dætur okkar þökk- um samveruna og umhyggjuna, sérstaklega vil ég þakka uppeldið. Mína mín, megi Guð styrkja þig í þinni sorg. Guð blessi börn þeirra, tengdabörn, barnabörn og barna- barnabörn. Blessuð sé minning Sæmundar Jónssonar. Löngum við mér lífið hló, lék á strengi snjalla. Sætast jafnan syngur þó sumarið upp til flalla. Er mig dreymir okkar vegi, um mig streymir sælan mesta, honum gleymir hjartað eigi honum geymi ég allt það bezta. (Jón Jónsson Skagfírðingur) Kristinn Valtýsson. Btömostqfa Fríðfinns Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opíð öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. Inga Þórbjörg Svav- arsdóttir - Minning í augum þínum sá ég fegri sýnir en sólhvít orð og tónar geta lýst, - svo mildir voru móðurdraumar þínir, þó marga þeirra hafi frostið níst. Sem hetja barst þú harmana og sárin, huggaðir aðra - brostir gegnum tárin, viðkvæm í lund, en viljasterk. Þau bregða um þig ljóma liðnu árin. Nú lofa þig - þin eigin verk. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Inga Þórbjörg Svavarsdóttir fæddist 11. júní 1938 á Akureyri. Foreldrar hennar vora Helga Ingi- marsdóttir, sem lifir dóttur sína, og Svavar Helgason, verksmiðjustjóri hjá Smjörlíkisgerð KEA. Hann lést fyrir nokkrum áram. Tvær systur átti Inga, Valborgu og Agnesi, sem 'búsettar eru á Akureyri. Kynni okkar Ingu hófust í æsku, fyrst í Bamaskóla Akureyrar. Bekk- urinn var samheldinn, og einn vetur- inn stofnaði Júdit Jónbjömsdóttir, kennari og skátaforingi, ljósálfa- flokk með stúlkunum í bekknum. Var þetta upphafi ævilangrar veru hennar í skátastarfi. Við vinkonur munum söngkvöld í Gunnarshólma og víðar, þar sem hún sat með gítar- inn, spilaði og söng. Ógleymanlegar eru útilegur í Vaglaskógi og Sigríð- arstaðaskógi. Hún unni útiveru og var hrókur alls fagnaðar. Eftir bamapróf fóram við í Gsgn- fræðaskóla Akureyrar, eftir það fór Inga í húsmæðraskóla á Laugalandi í Eyjafírði. Hún var afburðanáms- kona. Hún giftist Guðmundi Þor- steinssyni, verkstjóra og organista. Þau stofnuðu heimili í Vanabyggð lOd á Akureyri. Þangað var gott að koma. Þrjá indæla syni eignuðust þau, Ingimar, Ármann Helga og Svavar Þór. Ingimar færði henni sólargeisl- ann Loga, sem líf hennar snerist um síðustu árin. Hennar heitasta ósk var að geta fylgst með udp- vexti hans. Hún ljómaði, þegar myndirnar vora sýndar, sem hún dró fram úr skúfunni við rúmið er komið var í heimsókn. Synir henn- ar, tengdadætur og ástkær eigin- maður stunduðu hana af alúð í veik- indum hennar, sem urðu bæði löng og ströng. Elsku vinkona, margar eru minn- ingarnar sem við geymum og of langt er upp að telja. Með þessum fátæklegu línum viljum við þakka þér trygga vináttu og samvera. Biðj- um við algóðan Guð að blessa þína góðu fjölskyldu. Vertu svo Guði fal- in, þökk fyrir allt. Þínar vinkonur, Heba og GuðnyT t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ELÍNAR SNÆBJÖRNSDÓTTUR, Bústaðavegi 105. Guðbrandur Vigfusson, Guðrún Guðbrandsdóttir, Guttormur Þormar. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BIRGIR KRISTJÁNSSON frá Dalvík, Fálkagötu 14, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Hvalneskirkju miðvikudaginn 26. maí kl. 14.00. Björg Þórisdóttir, Jórunn Birgisdóttir, Kristján Birgisson, Guðlaug Birgisdóttir, tengdabörn og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐMUNDA JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1 b, Kópavogi, verður jarðsungin þriðjudaginn 25. maí kl. 13.30 frá Fossvogs- kirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Björn Jóhann Óskarsson, Erna Guðiaugsdóttir, Sigurbjörg Edda Óskarsdóttir, Hörður Gfslason, Sjöfn Oskarsdóttir, Kristján Pétur Ingimundarson, Jóhanna Axelsdóttir, Þorsteinn Ingimundarson, Álfdís Gunnarsdóttir, Inga Ólöf Ingimundardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Líkkistuvinnustofa Lijvindar Arnasonar Utf ara f jón uslo lt I íllistusinícli Vesturhlíð 3 ♦ Sími: 13485 ♦ Davíð Osvaldsson Heimasími: 39723

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.