Morgunblaðið - 23.05.1993, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ
—----
ATVINNA/RAÐ/SMÁ ^ffffjpiMGLfR 23. MAÍ 1993
ATVIN N U A UGL YSINGAR
AS/400
kerfisfræðingur
Óskum eftir að ráða AS/400 kerfisfræðing,
með góða þekkingu á RPGIII, sem fyrst.
Mikil og áhugaverð verkefni framundan.
Aðeins vanur maður kemur tii greina.
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri störf
sendist auglýsingadeild Mbl., merktar:
„Vanur AS/400 kerfisfræðingur",
fyrir 28. maí 1993.
Öllum umsóknum verðúr svarað og farið
verður með þær sem trúnaðarmál.
Véifræðingur
sem lýkur námi í inðrekstrarfræði um næstu
áramót, óskar eftir sumarstarfi.
Maður með mikla reynslu.
Upplýsingar í síma 11052 á kvöldin.
AMIN
Atvinnumiðíun iðnnema
Atvinnurekendur
- iðnmeistarar
Atvinnumiðlun iðnnema hefurá skrá stóran hóp
af hæfum starfskröftum. Stuðlið að aukinni
starfsreynslu og starfsmenntun iðnnema.
Nánari upplýsingar í símum 10988 og 14318,
fax 620274, alla virka daga á skrifstofu Iðn-
nemasambands íslands, Skólavörðustíg 19.
Fyrsti vélstjóri
Fyrsta vélstjóra vantar á skip með 2100 ha
vél frá og með 6. júní næstkomandi.
Upplýsingar í síma 93-12456 eða 93-11675.
Tannlækningastofa
Aðstoð óskast á tannlækningastofu frá 1.
júní nk. Um er að ræða hálft starf eftir há-
degi.
Umsóknum sé skilað til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 26. maí merktum: „T - 3747“.
G/óbusp
Lágmúla 5, sími 601555
Vélvirkjar
Globus hf. óskar eftir vélvirkjum til starfa á
vélaverkstæði nú þegar.
Upplýsingar gefur verkstjóri milli kl. 10 og 16
á staðnum.
Sérkennari
Staða sérkennara er laus til umsóknar við
Sólvallaskóla á Selfossi.
Upplýsingar í síma 98-21256 eða 98-21178.
IÐSTOÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT
Opiö mánudaga til föstudaga frá kl. 14.00 til 17.00
ADAGSKRA
vikuna 24. maítil 28. maí
Þriðjudaginn 25. maíkl. 15.00:
Ólafur Ragnar Grfmsson,
alþingismaður,
ræðir um stefnu atvinnumála.
Fimmtudaginn 27. maí kl. 15.00:
Sighvatur Björgvinsson,
heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra,
ræðir um þjónustu fyrir
atvinnulaustfólk.
MIÐSTÖÐ
FÓLKS í ATVINNULEIT.LÆKJARGÖTU 14A
SIMI 628180/FAX 628299
Mosfellsbær
Félagsráðgjafi
óskast til starfa hjá Mosfellsbæ.
Um er að ræða hálft starf. Starfið er fólgið
í ráðgjafaþjónustu við grunnskóla bæjarfé-
lagsins.
Laun eru skv. kjarasamningi launanefndar
sveitarfélaga og Mosfellsbæjar.
Umsóknarfrestur er til 9. júní 1993.
Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri í
síma 666218 kl. 10.00-11.00 virka daga.
Félagsmálastjóri.
FRAMHALDSSKðUNN
A HÚSAVÍK
Lausar kennarastöður
Umsóknarfrestur um kennarastöður í eftir-
töldum greinum við Framhaldsskólann á
Húsavík skólaárið 1993-1994 er framlengdur
til 28. maí 1993: Bifvélavirkjun (hálf staða),
ensku, frönsku (hálf staða), hjúkrunarfræði
(hálf staða), íslensku (hálf staða), stærð-
fræði, tölvufræði (hálf staða) og viðskipta-
greinum (hálf staða). Nánari upplýsingar veit-
ir skólameistari í síma 96-41344 eða
96-42075.
Skólameistari.
Kennarastaða
Við Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar er laus
kennarastaða næsta vetur.
Kennslugreinar: Danska auk kennslu yngri
barna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í vinnusíma
97-51224 og heimasíma 97-51159.
Bókari
Starfskraftur óskast í lítið fyrirtæki í Reykjavík.
Leitum að góðri manneskju sem getur starfað
sjálfstætt við daglegan rekstur og bókhald.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist til auglýsingadeildar
Mbl. merktar: „0410" fyrir 1. júní nk.
Skrifstofustörf
-1/2 störf -
Traust matvælaframleiðslu fyrirtæki óskar
að ráða í tvö krefjandi og sjálfstæð V2 dags
störf sem fyrst.
Starfið felst í skráningu innkaupa, birgða-
skráningu, reikningaútskrift o.fl.
Vinnutími 8.30-12.30 og 12.30-16.30.
Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „tölvuvinnsla", fyrir 27.
maí nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Vinnuveitendur
athugið!
Við viljum vekja athygli á eftirfarandi aðil-
um, sem allir eru reiðubúnir að taka að sér
verkefni í lengri eða skemmri tíma svo og
að kanna áhugaverð framtíðarstörf. Við-
komandi eiga það sameiginiegt að vera
menntaðir á viðskiptasviði auk þess að
hafa aflað sér marktækrar reynslu í ís-
lensku atvinnulífi.
Karlmaður, f. 1958, BSc, „Business Admin-
istration“ frá United States International
University, San Diego Californiu. Reynsla
m.a. af sölu- og markaðsstörfum, starfs-
mannastjórnun, uppsetningu tölvukerfis,
gerð rekstraráætlana, þátttaka í uppsetningu
og uppbyggingu framleiðslufyrirtækis, um-
sjón með rekstri, vöruþróun, innkaup auk
annars.
Karimaður, f. 1960, MBA í viðskiptafræðum
frá University of Central Florida með aðal-
áherslu á markaðsmál. Reynsla: Markaðs-
og sölustjóri hjá leiðandi framleiðslufyrirtæki
í Reykjavík; gerð söluáætlana, umsjón og
skipulagning söluherferða, gerð auglýsinga,
vöruþróun, ræktun og myndun viðskipta-
tengsla við erlenda sem og innlenda við-
skiptaaðila auk viðskiptaferða til Evrópu og
Bandaríkjanna.
Kvenmaður, MSc, „International Marketing“
frá University of Strathclyde. Reynsla af
rekstri þjónustufyrirtækis; framkvæmda-
stjórn, bókhald, áætlanagerð, textagerð,
verkefnastjórnun, gerð auglýsinga- og kostn-
aðaráætlana. Einnig unnið sjálfstætt við
markaðsráðgjöf og greinaskrif. Tungumála-
kunnátta; enska, danska og þýska.
Karlmaður, f. 1965, BBA, „Marketing" frá
Pacific Lutheran University. Marktæk
reynsla af sölu- og markaðsmálum hjá inn-
flutnings- og smásölufyrirtæki auk 2ja ára
reynslu af markaðsstjórnun hjá vel þekktu
útgáfufyrirtæki. Hafði þareinnig umsjón með
auglýsingamálum, samskipti við hönnuði,
fjölmiðla, prentsmiðjur og erlend framleiðslu-
fyrirtæki. Áhugi fyrir útflutningsfyrirtæki.
Karlmaður, f. 1954, BSc í viðskiptafræðum
frá Háskóla íslands af fyrirtækjasviði.
Reynsla af skrifstofustjórnun og fram-
kvæmdastjórnun hjá innflutningsfyrirtæki;
stjórnun og skipulagning daglegs reksturs,
þátttaka í stefnumótun og markmiðasetn-
ingu. Umsjón með sölu- og markaðsmálum,
verkefna- og sölustjórnun, sölu- og rekstr-
aráætlanagerð, starfsmannahald auk ann-
arra fjölþættra starfa.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
L Ö öMM CIS
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavik
Simi 91-628488