Morgunblaðið - 23.05.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
33
ATVINNUAUGÍ YSINGAR
Bifvélavirki
Sundkennari óskast
Sundkennari óskast til að vera með sund-
námskeið á Suðureyri nú í byrjun júní.
Upplýsingar gefa sveitarstjóri í síma
94-6122, skólastjóri í síma 94-6129 og
formaður skólanefndar í síma 94-6250.
Borgarbókasafn
Reykjavíkur
Staða bókasafnsfræðings (deildarstjóra) er
laus til umsóknar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist borgarbókaverði fyrir
6. júní 1993.
Upplýsingar í síma 27155.
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sumarafleysing
Lögreglumann vantar í sumarafleysingu í
lögreglu Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
Laun skv. launakerfi ríkisstarfsmanna.
Umsækjendur skulu hafa lokið námi í
Lögregluskóla ríkisins.
Upplýsingar veitir undirritaður.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir
1. júní 1993.
Sýslumaðurinn áEskifirði,
19. maí 1993,
Sigurður Eiríksson.
ÉXÉ
Frá Fræðsluskrif-
stofu Austurlands-
umdæmis
Staða skólastjóra við Grunnskólann á
Vopnafirði er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 19. júní nk.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar
í síma 97-31458.
Fræðslustjóri.
Tónlistarskólinn í Keflavík
Söngkennari
Tónlistarskólinn í Keflavík vill ráða söngkenn-
ara með mikla kennslureynslu til að annast
kennslu á efri stigum.
Um hlutastarf er að ræða.
Umsóknir, ásamt meðmælum, sendist til
skólastjóra fyrir 15. júní.
Kjartan Már Kjartansson,
Freyjuvöllum 17,
230 Keflavík.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra
í síma 92-11549 til 25. maí.
REYKJALUNDUR
Aðstoðarlæknir
Okkur vantar aðstoðarlækni, eftir atvikum
aðstoðarlækna, frá um það bil 15. júní næst-
komandi til ágústloka.
Ráðningartími eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir,
sími 666200.
Reykjalundur,
endurhæfingarmiðstöð.
Menntaskólinn á
Egilsstöðum
Umsóknir um eftirfarandi störf er framlengd-
ur til 28. maí nk.:
Kennarastöður í félagsfræði (1/1), frönsku
(1/1), íslensku (1/2), sálfræði (1/2), líffræði
(1/1), stærðfræði (2/1), viðskiptagreinum
(1/1) og tölvufræði (1/2).
Upplýsingar gefur skólameistari ME, s.
97-11140 og 97-11979.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist Menntaskólanum á Égils-
stöðum, 700 Egilstaðir.
Skólameistari.
Byggingaverk-
fræðingur
Opinber aðili óskar að ráða byggingaverk-
fræðing til starfa í fjölbreytt og sjálfstætt
starf.
Starfið felst í skipulagningu og úrvinnslu
umferðartalninga, uppbyggingu upplýsinga-
kerfa og fleiri verkefna á sviði umferðarmála.
Við leitum að drífandi aðila vönum fjöl-
breyttri tölvuvinnu, sem á auðvelt með
samskipti og sjálfstæð vinnubrögð.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon
hjá Ráðgarði í síma 679595.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs, merktar: „Umferðarmál", fyrir 2.
júní nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
IANDSPITALINN
Landspítalinn
Reyklaus vinnustaður
KVENNADEILD
Deildarlæknir
Staða deildarlæknis (yngri sérfræðingur,
sem starfar eingöngu á kvenlækningasviði)
er laus til umsóknar frá 1. september 1993.
Umsóknarfrestur er til 1. júlí 1993.
Nánari upplýsingar gefur Jón Þ. Hallgríms-
son, yfirlæknir, í síma 601000.
RIKISSPIT AL AR
Ríkisspítalar eru einn fjölmennasti vinnustaður ó íslandi með starfsemi
um land allt. Sem háskólasjúkrahús beitir stofnunin sór fyrir markvissri
meöferð sjúkra, fræðslu heilbrigðisstétta og fjölbreyttri rannsóknastarf-
semi. Okkur er annt um velferð allra þeirra, sem við störfum fyrir og með,
og leggjum meginóherslu á þekkingu og virðingu fyrir einstaklingnum.
Starfsemi Ríkisspítala er helguð þjónustu við almenning og við höfum
ávallt gæði þjónustunnar, gagn hennar og hagkvæmni að leiðarljósi.
Sérhæft þjónustufyrirtæki í borginni á sviði
bifreiðastillinga, sem hefur ákveðið að
breikka þjónustusvið sitt, óskar að ráða bif-
vélavirkja til starfa, samkvæmt nánara sam-
komulagi.
Leitað er að fagmanni sem getur unnið sjálf-
stætt og hefur reynslu af almennum viðgerð-
um t.d. rafmagni ásamt véla og hjólastilling-
um.
Stefnt er að því að væntanlegur starfsmað-
ur verði sfðar meir hluthafi í fyrirtækinu.
Hér er um að ræða gott tækifæri fyrir dugleg-
an einstakling að skapa sér gott framtíðar-
starf. Farið verður með allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 3. júní nk.
ClJDNT ÍÓNSSON
RAÐCJÖF &RAÐNINCARMONL1STA
T|ARNARGÖTU 14,101 REYKJAVÍK. SÍMI62 13 22
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Stuðningsstarf
Þroskaþjálfar óskast í stuðningsstarf í
neðangreinda leikskóla:
Suðurborg v/Suðurhóla, s.73023
Fálkaborg v/Fálkabakka, s. 78230
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi
leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Kværner Eureka a.s
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða í stöðu framkvæmdastjóra
hjá Kværner Eureka a/s. í Reykjavík.
Kværner Eureka a/s. á íslandi er leiðandi
fyrirtæki í sölu og þjónustu á hvers konar
búnaði til frystingar, mjölvinnslu o.fl. Fyrir-
tækið er m.a. umboðsaðili fyrir Sabroe+Söby
Köleteknik.
Starfssvið framkvæmdastjóra:
★ Stefnumótun, skipulagning og stjórnun
daglegs reksturs fyrirtækisins.
★ Fjármálastjórnun, gerð áætlana um
rekstur og fjármál og umsjón með skrif-
stofuhaldi.
★ Skipulagning og þátttaka í markaðs- og
söluaðgerðum og kynningu á starfsemi
fyrirtækisins.
Við leitum að manni með verkfræði- eða
tæknimenntun á sviði rekstrar og véla og
reynslu af sjálfstæðum og skipulögðum
vinnubrögðum. Reynsla af stjórnun, sölu- og
markaðsmálum æskileg. Góð norsku og
enskukunnátta nauðsynleg. Sérþekking á
frystibúnaði æskileg. Viðkomandi þarf að
vera drífandi, atorkusamur og tilbúinn í krefj-
andi og árbyrgðarmikið starf.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar:
„Kværner Eureka", fyrir 5. júní nk.
Hagvangur hf