Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
fl'II0A(1'J14M U8 CHGAJÍIMUUli
Emkavæðing kynnt
á fundum um landið
Framkvæmdanefndin um
einkavæðingu mun á næstu dögum
halda fundi þar sem stefna og
störf ríkisstjórnarinnar varðandi
einkavæðingu verða kynnt. Verð-
ur fundað á sjö stöðum víðs vegar
um landið að þessu sinni.
Fyrsti fundurinn verður á mánu-
daginn í Félagsbæ í Borgarnesi og
hefst kann klukkan 20. Á þriðjudag-
inn kl. 20 verður haldinn fundur á
Hótel KEA á Akureyri, á fimmtudag-
inn á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
og hefst hann klukkan 20.30.
Þá verður fundur á Hótel Selfossi
miðvikudaginn 2. júní kl. 20, á Hótel
Borg þriðjudaginn 8. júní kl. 20 og
á Hótel Kefiavík fimmtudaginn 10.
júní kl. 20. Loks verður fundur í sal
Sveinafélags járniðnaðarmanna í
Vestmannaeyjum þriðjudaginn 15.
júní kl. 20.
Að sögn Hreins Loftssonar, for-
manns framkvæmdanefndarinnar, er
verkefni þessara funda, að koma á
framfæri til almennings upplýsingum
um markmið og tilgang einkavæð-
ingar, árangurinn frám til þessa og
hvað standi til á næstunni.
„Nokkuð hefur borið á því að reynt
sé að drepa umræðunni um einka-
væðingu á dreif með því að heim-
færa nánast allar vangaveltur ólíkra
aðila um einkavæðingu þama undir.
Einkavæðingaráform ríkisstjórnar-
innar eru hins vegar afmörkuð og
skýr og taka mið af faglegu mati á
því hvað er eðlilegt og rétt að fram-
kvæma miðað við núverandi stöðu
mála. Meginmálið er að einkavæðing
er tæki en ekki trúarsetning," sagði
Hreinn.
Lions-hreyfingin
heldur umdæmisþing
ÞRÍTUGASTA og áttunda umdæmisþing Lions-hreyfingarinnar var
haldið um helgina. Dagskrá þingsins er með fjölbreyttara móti og
munu félagar ræða verkefni sem liggja fyrir. Haldinn verður sérstak-
ur embættismannaskóli fyrir væntanlega stjórnendur Lions-klúbb-
anna, auk þriggja námsstefna um alþjóðaverkefnið Baráttan gegn
blindu, alþjóðamál og önnur mál sem varða innri mál klúbbanna.
Þingsetningin á föstudag var með
sérstökum hætti því þar spiiuðu fjög-
ur ungmennanna átta sem valin voru
frá íslandi í hljómsveitina Orkester
Norden fyrr á árinu. í vetur var
ungu tónlistarfólki á aldrinum
15-25 ára boðið að sækja um þátt-
töku í hljómsveitinni. Alls bárust 415
umsóknir frá sex löndum, þar af 28
frá íslandi. Urðu átta Islendingar
fyrir valinu og mun Lions-hreyfingin
styrkja þá til þátttökunnar.
Á næsta ári verður sérstakt átak
hér á landi vegna alþjóðaverkefnis-
ins Baráttan gegn blindu, „Sigth
first“, og er markmiðið að safna 130
milljónum Bandaríkjadala fyrir 1.
júlí 1994 svo beijast megi gegn
blindu í heiminum. Talið er að 40
milljónir manna í heiminum séu
blindir en hægt sé að lækna 40%
þeirra.
Vestmannaeyjar
Hrefna Eggertsdóttir og Elísabet F. Eiríksdóttir.
Tónleikar á Ólafsfirði
ELÍSABET F. Eiríksdóttir, sópran, og Hrefna Eggertsdóttir, píanó-
leikari, halda tónleika í Tjarnarborg á Ólafsfirði miðvikudagskvöld-
ið 26. maí nk. kl. 20.30. Á efnisskránni eru íslensk og erlend lög
og operuaríur.
Elísabet Iauk söngkennaraprófi
frá Söngskólanum í Reykjavík 1980.
Hún hefur komið fram sem einsöngv-
ari með ýmsum kórum og hljómsveit-
um svo sem Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og íslensku hljómsveitinni. El-
ísabet hefur sungið ýmis óperuhlut-
verk m.a. Amelíu í Grímudansleik
eftir Verdi og Toscu í samnefndri
óperu eftir Puccini. Hún starfar nú
sem söngkennari við Söngskólann í
Reykjavík.
Hrefna Eggertsdóttir lauk einleik-
araprófí frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1976. Hún stundaði fram-
haldsnám við Tónlistarskólann í Vín
til ársins 1981. Hrefna hefur víða
komið fram sem píanóleikari bæði
sem meðleikari söngvara og í kam-
mermúsík. Hún starfar nú við Tón-
listarskólann í Kópavogi og Tónlist-
arskólann í Reykjavík.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðio/KAX
Urvals styrkþegar
ISLENSKU flytjendurnir sem valdir voru í Orkester Norden. F.v.
Halldór ísak Gylfason fagottleikari, Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleik-
ari, Hrafnkell Örri Egilsson sellóleikari, Vigdís Másdóttir sem leikur
á lágfiðlu, Stefán Ragnar Höskuldsson sellóleikari og Halla Steinunn
Stefánsdóttir fiðluleikari, en þau fjögur síðasttöldu léku við setningu
þingsins. Á myndina vantar Eydísi Sigríði Úlfarsdóttur frá Akur-
eyri sem leikur á lágfiðlu.
Landsþing* Landsbjargar
Vestmannaeyum.
LANDSBJÖRG, landssamband
björgunarsveita, hélt ársþing sitt
í Vestmannaeyjum um helgina.
Þingið er fyrsta ársþing sam-
bandsins eftir stofnþingið á síð-
asta ári. Þingið var sett á föstu-
dagsmorgun og í máli manna kom
fram að fyrsta starfsárið hefði
leitt í ljós að með stofnun Lands-
bjargar hafi verið stigið skref til
góðs.
Þingfulltrúar komu flestir til Eyja
á fimmtudag og á fimmtudagskvöld
var varðeldur með tilheyrandi söng
og gleði í Heijólfsdal. Á föstudag
voru almenn þingstörf og á laugar-
dag lauk þinginu með kosningu
stjórnar og lokahófi um borð í Her-
jólfí. Grímur
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þingfulltrúar við setningu þings Landsbjargar í Eyjum.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
fnmhjólp
Almenn samkoma verður í dag
í félagsmiöstöð Samhjálpar,
Hverfisgötu 42, kl. 16.00.
Mikill söngur. Ræðumaður Þórir
Haraldsson ráðgjafi.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í dag kl.
16.30. Sunnudagaskólabörn
sýna leikritið Himinninn.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
VEGURIIM
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Fjölskyldusamkoma kl. 11.00.
Barnakirkja, ungbarnastarf,
fræðsla o.fl.
Almenn samkoma kl. 20.30.
Allir velkomnir!
„Jesús lifir, Halleluja"
Munið bibliulestur sr. Halldórs
S. Gröndal miðvikudag kl. 18.00.
Frá Sálarrannsóknafélagi
íslands
Skoski sönnunarmiðillinn Mary
Armour býður upp á einkafundi
á vegum félagsins. Enn eru
nokkrir tímar lausir.
Tímapantanir í símum 18130 og
618130.
Stjórnin.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Hjálpræðisherinn
f dag kl. 11.00 fjölskyldusam-
koma. Kl. 19.30 bæn. Kl. 20.00
hjálpræðissamkoma, Ingibjörg
og Óskar Jónsson.
Allir velkomnir.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Almenn samkoma í dag kl. 11.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sjónvarpsútsending á OMEGA
kl. 14.30.
Bænaskóli kl. 18.
auglýsingar
Auðbrekka 2 . Kópavoqur
Sunnudagur:
Almenn samkoma kl. 16.30.
Þriðjudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Samkoma með Hillhjónunum frá
Bandaríkjunum kl. 20.30.
Laugardagur:
Samkoma kl. 20.30. Rev. Hill frá
Bandaríkjunum predikar.
SÍK, KFUM/KFUK
v/Holtaveg
Hátíðarsamkoma í kvöld kl.
20.30 í nýjum aðalstöövum
KFUM og KFUK við Holtaveg.
Samkoman er í tilefni af að þann
25. maí nk. eru liðin 125 ár frá
fæðingu Sr. Friðriks Friðriksson-
ar, stofnanda félaganna.
Flutt verða erindi um sr. Friörik
og störf hans, m.a. flytur Ástráð-
ur Sigursteindórsson erindi um
köllun hans. Kór og einsöngvar-
ar flytja sálma og söngva eftir
sr. Friðrik og lesið veröur úr
verkum hans. Hugleiðingu hefur
sr. Sigurður Pálsson.
Veitingar verða í samkomulok.
Allir eru velkomnir á sam-
komuna!
UTIVIST
Hallveigarstíg 1 • simi 614330
Dagsferðir sunnud.
23. maí
Kl. 10.30: Skólagangan, loka-
áfangi, og Skógfellaleið.
Kl. 10.30: Fuglskoðun - Hafnar-
berg. Vegna veðurs féll niður
ferðin sem átti að vera 20. maí
sl. og er hún því aftur á dagskrá.
Brottför í ofangreindar ferðir er
frá BSÍ bensínsölu, stansað við
Fitjanesti í Njarðvík kl. 11.15.
Verð kr. 1200/1300. Frítt fyrir
börn 15 ára og yngri í fylgd full-
/ oröinna.
Kl. 11.00: íþróttir fyrir alla -
hjólreiðaferð. I samvinnu við
(slenska fjallahjólaklúbbinn verð-
ur efnt til hjólreiðaferðar á
sunnudag.
Brottför kl. 11.00 frá hesthúeun-
um við Bústaðaveg (Fák). Hjólað
verður eftir Elliðaárdalnum inn í
Heiömörk og lýkur ferðinni kl.
14.00 í Laugardal.
Ferðir um hvítasunnu:
1. Öræfajökull: Gengin
verður Sandfellsleið á jökul-
inn.
2. Skaftafell - Öræfasveit:
Skipulagðar göngu- og
skoðunarferðir. Gist í
húsi/tjaldi að Bölta í Skafta-
felli.
3. Básar við Þórsmörk:
Gönguferðir með fararstjóra
um Þórsmörkina og Goða-
landið. Góð gistiaðstaða í
vel útbúnum skála.
Dagsferðir um hvítasunnu:
Sunnud. 30. maí kl. 10.30:
3. áfangi í fjallasyrpu -
Víf ilsfell.
Mánud. 31. mai kl. 10.30:
Svínaskarð - gömul
þjóðleið.
Útivist.
FERÐAFÉLAG
© ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533
Opið hús
f Mörkinni 6, mánudaginn 24.
maí kl. 20.30. Hvítasunnuferðir
kynntar, fararstjórar gefa upp-
lýsingar!
Allir með í gönguferð á Göngu-
degi Fl sunnudaginn 23. maf
kl. 11 og kl. 13.
Kl. 11.00 Heiðmörk - Búrfell -
Kaldársel (3 klst.) Gengið frá
Heiðmerkurreit Ferðafélagsins
um suðurhluta Heiðmerkur að
Kolhól, Búrfellsgjá í Valabóli.
Kl. 13. Fjölskyldugangan í Vala-
ból (1-1'/! klst.). Gengið frá
Kaldárseli umhverfis Vala-
hnúka að Valabóli. Hóparnir
hittast við Valaból (Músarhelli),
þiggja léttar veitingar og taka
lagið með gítarundirleik. Sann-
kölluð fjölskyldustemmning -
skemmtileg gönguferð í fallegu
umhverfi. Munið að gönguferð
er besta heilsubótin fyrir fólk á
öllum aldri.
Brottför verður frá Umferðar-
miðstöðinni, austanmegin, og
Mörkinni 6, (stansað v/kirkju-
garðinn í Hafnarfiröi). Verð að-
eins kr. 300,- og frítt fyrir börn
15 ára og yngri. í fjölskyldu-
gönguna kl. 13.00 geta allir þátt-
takendur komið á eigin bílum í
Kaldársel (næg bllastæði). Allir
þátttakendur fá Göngudags-
merki.
Hvitasunnuferðir F(
28.-31. maí:
1. Snæfellsnes-Snæfellsjök-
ull. Gist i svefnpokaplássi að
Görðum í Staðarsveit.
2. Öræfajökull-Skaftafell.
Gangan á Öræfajökul tekur um
14 klst. Gist I svefnpokaplássi
og tjöldum.
3. Skaftafell-Öræfasveit.
Gengið um þjóðgarðinn. Gist i
svefnpokaplássi og tjöldum.
4. Þórsmörk. Gist I Skagfjörðs-
skála. Gönguferðir um Mörkina.
Brottför í ferðirnar er kl. 20.00.
Farmiðasala á ' skrifstofunni,
Mörkinni 6.
5. 29.-31. maí. Brottför kl.
8.00. Fimmvörðuháls-Þórs-
mörk. Ekið að Skógum og geng-
ið þaðan yfir til Þörsmerkur.
Þriðjudaginn 25. maí að kvöldi
sér Ferðafélagið um fjórar
hverfagöngur í Reykjavik, sem
hefjast kl. 20 og taka um 1 klst.
hver, í samvinnu við „íþróttir
fyrir alla“ (heilsuvika).
Þriðjudaginn 26. maí kl. 20.
Mosfell í Mosfellsdal.
Ferðafélag (slands.