Morgunblaðið - 23.05.1993, Qupperneq 48
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, POSTHÓLF 1665 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 71 90
SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Bandaríkin gera
athugasemd við
ummæli ráðherra
UMMÆLI Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra í sjónvarpsfrétta-
tíma nú fyrir skömmu, í þá veru að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hafi horft á of margar mafíukvikmyndir, hafa dregið dilk á eftir sér.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins í Washington líta bandarísk
stjórnvöld á þessi umrnæli sem móðgun í garð Bandaríkjaforseta og
hefur verið komið á framfæri mótmælum af hálfu bandarískra sljórn-
valda við íslenska utanríkisráðuneytið vegna þessara ummæla.
Þorsteinn Pálsson segist engar
athugasemdir hafa fengið vegna
þessara ummæla sinna, en sér sé
kunnugt um að bandarísk stjórn-
völd hafí komið á framfæri athuga-
semdum við utanríkisráðuneyti Is-
—Jands. Þorsteinn telur að ummælin
hafí verið „mjög saklaus og hóg-
vær“ miðað við framkomu Banda-
ríkjamanna í garð íslendinga.
íslensk stjórnvöld fámál
íslensk stjómvöld telja að hér sé
um erfitt og vandræðalegt mál að
ræða, og vilja sem minnst um mál-
ið segja.
Stefnt er að því að viðræðufund-
ur íslenskra og bandarískra emb-
ættismanna um framtíð og fyrir-
komulag varnarstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli fari fram hér í
Reykjavík hinn 7. og 8. júní næst-
komandi. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins stóð til að senda
nefnd embættismanna til Washing-
ton þann 19. maí, en frá því var
horfíð, þar sem íslensk stjómvöld
mátu svör Bandaríkjamanna á þann
veg, að slík sendiför þjónaði að svo
stöddu engum tilgangi.
Sjá bls. 23: „Móðgaði ráðherra
forsetann?“
-Mannbjörg er And-
vari VE-100 sökk
MANNBJÖRG varð er Vest-
mannaeyjabáturinn Andvari
VE-100 sökk um 12 sjómílur
suður af Vík í Mýrdal upp úr
kl. hálfeitt í gær. Átta manna
áhöfn Andvara var bjargað um
borð í Smáey VE-144, sem var
á veiðum skammt frá.
Áhöfn Andvara sendi út neyðar-
kall um kl. 12.40 í gær. Skipveijar
á Gjafari VE heyrðu kallið og kl.
12.43 barst Landhelgisgæzlunni
tilkynning frá Vestmannaeyjarad-
íói um að báturinn væri að sökkva.
Þyrlan kölluð út
Þyrla Landhelgisgæzlunnar var
kölluð út þegar í stað og varðskip-
inu Óðni og nærstöddum bátum
stefnt á staðinn, en kl. 12.51 barst
tilkynning um að mennimir hefðu
bjargazt um borð í Smáeyna.
Ekki var ljóst í gær hvort mönn-
unum hefði verið bjargað úr sjónum
eða hvort þeir hefðu komizt í gúm-
-bát. Smáey var á leið til Eyja með
mennina af Andvara í gær, en ekki
tókst að ná sambandi við bátinn.
Sökk skyndilega
Samkvæmt upplýsingum frá Vest-
mannaradíói sökk Andvari mjög
skyndilega, en ekki er vitað um or-
sakir slyssins. Að sögn Veðurstofu
"IJÍ1 sæmilegt veður á þessum slóðum
í gær, breytilegur vindur en hægur.
Andvari VE var 127 brúttólesta
stálbátur, smíðaður 1983 í Póllandi,
en umbyggður og stækkaður 1989.
Safnar kröftum fyrir átökin
Morgunblaðið/Kristinn
NÚ líður að keppni sumarsins á seglskútum og þar skiptir rétt þyngd, lengd, breidd og seglastærð sköpum
þegar forgjöf er reiknuð. Kæmr bámst til keppnisnefndar þess efnis að tvær aðalskútumar í einkaeign hérlend-
is væra vitlaust mældar og var farið fram á endurmat. Á myndinni sést önnur skútan við Ingólfsgarð í Reykjavík
þar sem verið er að vigta og mæla hana.
Virðisaukaskattur á matvælum verður 14% frá áramótum
Útgjöld meðalfjölskyldu
lækka um 29.000 kr. á ári
LÆKKUN virðisaukaskatts á matvælum í 14%
frá og með næstu áramótum mun verða til
þess að matarreikningur meðalfjölskyldu lækk-
ar um 29.000 krónur á ári, samkvæmt upplýs-
ingum frá fjármálaráðuneyti. Það svarar til
2.500 kr. lækkunar matarútgjalda á mánuði.
Lækkun virðisaukaskattsins var ákveðin í
tengslum við gerð kjarasamninga. Gert er ráð
fyrir að útgjöld fjölskyldna til matarkaupa lækki
um 5,3%, en það svarar til 1,12% lækkunar á
heildarútgjöldum meðalfjölskyldunnar.
Mismikil lækkun
Matvörur lækka mismikið, ýmist vegna þess
að hluti virðisaukaskatts á þeim er endurgreiddur
nú þegar, eða vegna þess að vörugjöld verða lögð
á þær til að jafna út lækkun skattsins. Þannig
lækka nýmjólk, undanrenna, nýtt dilkakjöt, ýsa,
lúða, saltfískur og íslenzkt grænmeti ekki, en hluti
skatts á þeim hefur verið endurgreiddur þannig
að svarar til 14% vsk. Gosdrykkir, sælgæti, kakó
og ávaxtasafi lækka ekki heldur, þar sem skatta-
lækkun verður vegin upp með vöragjaldi.
Lækka allt að 8,4%
Ýmsar aðrar vörur lækka um allt að 8,4%,
miðað við að virðisaukaskattur á þeim sé nú 24,5%
og verði 14%. Þannig lækkar nýtt svínakjöt um
5%, sem svarar til þess að kílóið af svínalundum
lækki úr 1.789 kr. í 1.700 kr. (miðað við verð í
Hagkaupi í gær). Hrossakjöt lækkar um 8,4% og
myndi því kílóið af folaldalundum lækka úr 1.739
kr. í 1.593 kr. Kíló af reyktum laxi myndi lækka
um 8,4%, úr 2.163 kr. í 1.981 kr. og kíló af harð-
fiski myndi lækka jafnmikið, úr 3.228 kr. í 2.957 kr.
Kílóið af brauðosti myndi, ásamt öðrum unnum
mjólkurvöram, lækka um 8,4%, eða úr 799 kr. í
731 kr.
Verð á kaffi- og veitingahúsum lækkar
Gert er ráð fyrir að verðlag á kaffi- og veitinga-
stöðum lækki um 8,4% vegna lækkunar virð-
isaukaskattsins. Kaffibolli, sem kostar 150 kr.,
myndi því lækka í 137 kr. Skyndibitar eiga einn-
ig að lækka um 8,4% og kjúklingaborgari með
meðlæti, sem nú kostar 365 kr. á skyndibitastað,
myndi því lækka í 334 kr.
Sjá bls. 2: „Ýmsar vörur .. .“og bls. 39.
AndvariVE-100
Andvari VE-100. Myndin er tekin í innsiglingunni til Vestmannaeyja.