Morgunblaðið - 04.06.1993, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
123. tbl. 81. árg. FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sihanouk
tekurvið
völdum í
Kambódíu
Phnom Penh. Reuter.
NORODOM Sihanouk prins
tók við völdum í Kambódíu
í gær sem þjóðhöfðingi, for-
sætisráðherra og æðsti yfir-
maður hersins, samkvæmt
samkomulagi tveggja flokka
sem báru sigur úr býtum í
þingkosningum í vikunni
sem leið.
Sihanouk var við völd í landinu
frá 1941, þá 18 ára, til 1970 og
aftur 1975-76. Þjóðarflokkur
Kambódíu, næststærsti flokkur-
inn eftir kosningamar, sagði að
Hun Sen, fráfarandi forsætisráð-
herra, yrði aðstoðarforsætisráð-
herra ásamt Norodom Ranariddh
prins, leiðtoga Einingarflokks
Kambódíu, Sem fór með sigur af
hólmi í kosningunum. Ranariddh
er sonur Sihanouks.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
eftir að 90% atkvæða höfðu verið
talin fær Einingarflokkurinn 57
þingsæti og Þjóðarflokkurinn 52.
Nýkjörið þing fær það hlutverk
að semja nýja stjómarskrá, sam-
kvæmt friðaráætlun Sameinuðu
þjóðanna.
Talsmaður stjómarinnar sagði
að Þjóðarflokkurinn hefði krafíst
þess að Rauðu khmeramir ættu
ekki aðild að nýju stjóminni. Si-
hanouk og Ranariddh hefðu fallist
á kröfuna þótt þeir hefðu áður léð
máls á því að Rauðu khmeramir
fengju einhver ráðherraembætti.
Sihanouk stofnaði Einingar-
flokkinn en lét af formennsku í
honum árið 1991 þegar hinar
stríðandi fýlkingar í landinu sam-
þykktu að gera hann að hlutlaus-
um þjóðhöfðingja.
Tankskip alelda eftir árekstur í svartaþoku undan Oostende í Belgíu
Brennandi eldsmatur
KOLSVARTUR reykjarmökkur stígur upp af breska tankskipinu British Trent eftir árekstur við flutningaskip frá Panama undan
Oostende í Belgíu. Björgunarskip dæla sjó án afláts á skipið til þess að reyna að slökkva elda um borð.
„Stukkum í logandi hafið“
„SJÓRINN logaði þegar við stukkum fyrir
borð. Ég hélt að dagar okkar allra væru
taldir, en þegar ég stökk í sjóinn hugsaði
ég um það eitt að slá án afláts í hafflötinn
og skyndilega komst ég út úr bálinu," sagði
Raymond Manlon, annar vélstjóri á breska
tankskipinu British Trent sem varð alelda
eftir árekstur við vöruflutningaskipið
Western Winner í svartaþoku 15 sjómílur
undan belgísku borginni Oostende í gær.
Sjö sjómenn af breska skipinu biðu bana
og tveggja var saknað.
Við áreksturinn rifnaði stórt gat miðskips
bakborðsmegin á tankskipinu. Fossaði bensín
þar út bæði ofan og neðan sjólínu. Gífurleg
sprenging varð við áreksturinn og eldhnöttur
gaus upp. Varð skipið strax alelda en um
borð voru 24.000 tonn^ af bensíni sem flytja
átti frá Antwerpen til Ítalíu.
Áhöfnin, 3f manns, átti ekki annarra kosta
völ en hraða sér frá borði og stökk í sjóinn
af brúarvæng. „Við reyndum að setja niður
björgunarbáta en þá kviknaði í sjónum þeim
megin. Við urðum að fleygja okkur í logandi
hafíð,“ sagði Manlon. Nokkrir félaga hans
kváðust hafa synt kafsund er þeir flúðu bensín-
eldana á haffletinum.
Síðdegis tókst að ráða að mestu niðurlögum
eldanna í breska skipinu og var það tekið í
tog út frá ströndinni. Ráðgert er að draga það
til hafnar í dag og dæla upp því sem eftir er
af farmi þess. Fimm kílómetra löng bensínbrák
var á sjónum en talið var að hún myndi gufa
upp á tveimur dögum og sagði umhverfísráð-
herra Belgíu að ekki væri lengur nein hætta
á mengun.
Þrír skipveijanna sem fórust voru Bretar,
tveir írar og tveir voru frá Sierra Leone. Sakn-
að var Breta og manns frá Sierra Leone.
„Mennirnir brunnu lifandi í eldhafinu umhverf-
is skipið,“ sagði Charles Demey, yfirlóðs í
Oostende. Sex þeirra sem komust lífs af hlutu
slæm brunasár, þar á meðal skipstjórinn.
*
Reuter
Harmi slegnir Tyrkir stofna til óeirða
ÓEIRÐIR brutust út í Köln í Þýskalandi í gær að lokinni minningar-
athöfn um stúlkurnar þijár og konumar tvær sem biðu bana í
íkveikjuárás í Solingen sl. laugardag. Nokkur hundmð Tyrkir gengu
berserksgang, bmtú rúður og rændu verslanir. Ef grannt er skoðað
sést byssa detta úr vasa óþekkts manns í ryskingum við ungan
Tyrkja. Að sögn sjónarvotta veifuðu þátttakendur tyrkneska fánanum
og hrópuðu Tyrkland, Tyrkland í sífellu.
Sjá „Forsetinn segir árásina . . .“ á bls. 24.
Meirihluti í öryggisráði SÞ fyrir að senda liðsauka til Bosníu
Gæsluliðar fá aukið svig-
rúm til að beita vopnum
New York, Sarajevo. Reuter.
ALLT benti til þess í gærkvöldi að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
(SÞ) samþykki í dag tillögu Frakka, Breta, Spánverja og Rússa um
að senda hersveitir til þess að gæta sérstakra vemdarsvæða SÞ í Bosn-
iu og leyfa friðargæsluliðum að beita vopnum. Mikill meirihluti var á
bak við tillögu af þessu tagi en freista átti þess að ná fullri samstöðu
alls ráðsrns.
Evrópskir stjómarerindrekar
sögðu að bil ólíkra sjónarmiða ríkja
í öryggisráðinu hefði verið svo til
alveg brúað en Pakistanar hefðu þó
enn verið ósáttir við orðalagið. Þeir
em í forystu samtaka islamskra ríkja
og stuðningur þeirra því talinn mikil-
vægur.
Tiliagan gerir ráð fyrir því að
sendur verði 5.000 hermanna liðs-
auki til þess að gæta sex vemdar-
svæða múslima í Bosníu, en þar á
meðal em höfuðborgin Sarajevo,
Gorazde, Srebrenica, Tuzla og Bihac.
Einnig miðar tillagan að því að
auka svigrúm friðargæsluliða til þess
að beita vopnavaldi, þar á meðal
loftárásum, í sjálfsvöm, svo sem
þegar skotið er á eða ráðist inn á
verndarsvæði eða flutningar hjálp-
argagna eru hindraðir.
Owen lávarður og Thorvald Stolt-
enberg, milligöngumenn Evrópu-
bandalagsins (EB) og SÞ, sögðu að
tveggja stunda viðræður við Radov-
an Karadzic leiðtoga Bosníu-Serba
í Pale í gær hefðu engan árangur
borið.
Inúítar fá
sjálfstjórn
Toronto. The Daily Telegraph.
STJÓRN Kanada hefur samið
um að veita eskimóum í
Nunavut sjálfstjórn.
Nunavut er álíka stórt og öll
ríki Evrópubandalagsins, um
fimmtungur alls landsvæðis í
Kanada en samt búa þar aðeins
22.000 manns, þar af 80% esk-
imóar. Þeir fá eigið þing sem
tekur m.a. ákvarðanir um
vinnslu málma og olíu, sem
svæðið gæti verið auðugt af.