Morgunblaðið - 09.06.1993, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 1993
9
Viltu selja?
Oskum eftir öllum tegundum fyrirtækja á söluskrá.
Fy rirtækjasalan
Baldur Ðrjánsson
Laugavegur 95,101 Reykjavík Sími 62 62 78
Láttu áskrift aö
spariskírteinum
koma í stað
skyldusparnaðar
Áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs
er einhver besti kosturinn sem ungu
fólki býðst í stað skyldusparnaðar
sem nú hefur verið lagður niður.
Skyldusparnaðurinn hefur oft komið
fólki vel sem er að stofna fjölskyldu,
kaupa sér húsnæði,
fara í dýrt nám eða þarf að mæta
öðrum útgjöldum. Þess vegna er
mikilvægt að halda reglulegum
sparnaði áfram og þá er áskrift að
spariskírteinum einhver auðveldasti
og öruggasti sparnaðarmátinn.
Með áskrift byggir þú upp þinn
eigin sparnað sem þú getur notað
þegar á þarf að halda.
Hringdu í Þjónustumibstöb
ríkisverbbréfa í síma 91-62 60 40
og kynntu þér kosti þess
ab vera áskrifandi ab
spariskírteinum ríkissjóbs.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Metsölublad á hverjum degi!
Helmingur mannkyns
án mannréttinda
„Að minnsta kosti helmingur mann-
kyns nýtur ekki mannréttinda og horfist
í augu við pyntingar, aftökur, þrælahald
og hungur að því er fram kemur í saman-
tektfrá Mannréttindastofnun Sameinuðu
þjóðanna". Þannig er komizt að orði í
fréttabréfi Hjálparstofnunar kirkjunnar,
sem Staksteinar staldra við í dag.
125 þúsund
kvartanir um
mannréttinda-
brot
Á fyrstu þrcmur mán-
uðum líðandi árs hafa
borizt um það bil 125
þúsund kvartanir um
mannréttindabrot til
Mannréttindastofnunar
Sameinuðu þjóðanna.
Frá þessu er greint í
fréttabréfi Hjálparstofn-
unar kirkjunnar. Þar
segir:
„Talið er að þessi fjöldi
kvartana sé þó aðeins
hluti vandans og vitað er
um fimm þúsund manns
sem hafa horfið spor-
laust fyrstu þrjá mánuði
ársins en talan allt árið
1992 var 17 þúsund. Um
það bil 1,4 milljarður
manna býr við algjöra
fátækt og annar milljarð-
ur til viðbótar er á hung-
urmörkunum. Milli 150
og 200 miHjónir bama
eru neyddar til vinnu í
um 50 löndum.“
Sameinuðu þjóðimar
gangast fyrir ráðstefnu
um mannréttindi í Genf
í þessum mánuði. Við
þessa ráðstefnu em
bundnar nokkrar vonir.
Henni mun ætlað að ýta
undir marktækari við-
brögð hinna betur meg-
andi í heiminum til að-
stoðar þeim milljörðum
manna, sem búa við og
undir hungurmörkum á
síðasta áratug tækni/
tuttugustu aldar.
Hreinikyn-
stofninn í Bút-
an
Hundrað og fimmtíu
þúsundir manna hafa á
síðustu missemm flúið
úr smáríkinu Bútan til
grannrikisins Nepal. Hér
er um að ræða fólk sem
upphaflega kom frá Nep-
al tíl Bútan en snýr á ný
tíl upprunalands. Flótta-
mannastofnun Samein-
uðu þjóðaima hefur séð
þessu fólki fyrir nokk-
urri hjálp.
Skýringin á fólksflótt-
anum er hin sama í Bútan
og skýringin á hörmung-
unum í fyrmm
Júgógslavíu og skýringin
á Ijöhnörgum sjálfskap-
arvitum rnamia vítt um
heim, þjóðemisofstæki. í
tilvitnuðu fréttabréfí
Hjálparstofnunar kirkj-
unnar segir:
„Bútan er lítíð ríki,
íbúar 600-700 þúsund
talsins og landið innan
við 50 þúsund ferkíló-
metrar eða hálfu minna
en ísland. Ástæða þess
að fólk er tekið að flýja
Bútan er sú að yfírvöld
þar í landi hafa í síðustu
fimm ára áætlunum sín-
um lagt meiri áherzlu á
hreinan kynstofn og því
hafa íbúar sem rætur
eiga að rekja til Nepals
orðið annars flokks borg-
arar...“
Skókassinn
sem vísar veg-
inn
Hjálparstofnun
dönsku þjóðkirkjunnar
fékk á síðasta ári 27
mil\jónir danskra króna
í fijáls framlög, það er
gjafír án þess að sérstak-
ar herferðir væm í
gangi. Þá fékk stofnunin
nýlega stærsta arf sem
henni hefur hlotnast eða
sem svarar 43 m.ísl.kr.
Mesta ánægju hefur þó
trúlega vakið skókassi,
sem barst stofnuninni
með gjaldeyri sem sam-
svarar 1,9 m.ísl.kr. Gef-
andi lét ekki nafns getíð
en sendi miða sem á stóð:
tíl þeirra sem mest þurfa
á að halda!
Hjálparstofnun ís-
lenzku kirkjunnar hefur
hlotíð dágóðar undirtekt-
ir við starf sitt, sam-
kvæmt ársreikningum
1992. Samtals velti hjálp-
arstofnunin um 27. m.kr.
Stærstur hlutinn var
gjafafé. Þar af fóm um
17 m.kr. í erlenda aðstoð
við sártþurfandi.
íslenzkir fóst-
urforeldrar
John Winston for-
stöðumaður United
Christían Church of
Indía dvaldi hér á landi
í marzmánuði síðastliðn-
um. Kirkjan rekur
gmnnskóla fyrir um
1.500 fátæk og munaðar-
laus böm. Orðrétt segir
í fréttabréfi kirkjunnar:
„Islenzkir fósturfor-
eldrar gi'eiða kostnað við
530 af þessum bömum,
þ.e. uppihald og skóla-
vist...“
John Winston hélt
fund með islenzkum fóst-
urforeldrum, sem um 50
manns sátu. Þar skýrði
hann frá aðstæðum bam-
anna og möguleikum á
framhaldsnámi að lokn-
um grunnskóla. Mennt-
unamiöguleikar pilta em
mun meiri en stúlkna
„sem giftast ungar, jafn-
vel strax 16 ára, og þar
með væri girt fyrir
möguleika þeirra á frek-
ara námi“.
HÆKKANDIVERÐ
HLUTABRÉFA?
Allt frá miðju ári 1991 hafa hlutabréf
lækkað í verði og er það nú orðið mjög
lágt í ýmsum félögum. Síðustu daga
hefur orðið vart aukinnar eftirspurnar
eftir hlutabréfum og hefur gengi
hlutabréfa í nokkrum félögum hækkað.
Þó vissulega ríki óvissa um
framhaldið má benda á að á síðasta ári
hækkaði gengi hlutabréfa um rúmlega
8% frá miðju ári til loka árs. í ljósi
þeirrar reynslu virðist heppilegt fyrir þá,
sem ætla að nýta sér hlutabréfakaup til
lækkunar á tekjuskatd íyrir árið 1993, að
huga að kaupum nú, á meðan verðið er
hagstætt.
Ráðgjafar VIB veita frekari
upplýsingar um hlutabréf og einnig er
hægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VIB!
I síma 91 - 681530 er hœgt adfá upplýsingar um
hlutabréf.
Já takk, ég vil fá
sendar upplýsingar
um hlutabréf.
! Nafn:
Heimili:
Póstfang:
Sími:
VlB
VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANDSBANKA HF. ,
------ Ármúla 13a, 155 Reykjavík. -1