Morgunblaðið - 22.06.1993, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
31
Kringlu-
kast hefst í
Kringl-
unnií dag
MARKAÐSDAGAR Kringl-
unnar sem nefndir eru
Kringlukast hefjast í dag. Þar
bjóða 65 verslana- og þjón-
ustufyrirtæki Kringlunnar
ótal tilboð á nýjum vörum.
Kringlukast stendur frá
þriðjudegi til fimmtudags og
er hægt að gera mjög góð
kaup á sumarvörum og ýms-
um öðrum vörum, fá mat á
veitingastöðum á tilboðsverði
og taka þátt í skemmtilegum
leikjum.
Á Kringlukasti eru verslanir og
flest þjónustufyrirtæki í Kringl-
unni með sérstök tilboð. Lögð er.
áhersla á að einungis sé boðið upp
á nýjar vörur, þannig að ekki ér
um útsölu að ræða. Fyrirtækin
bjóða nokkrar vörutegundir eða
tvo vöruflokka á sérstöku tilboði
á meðan á Kringlukastinu stend-
ur. Algengast er að veittur sé
20-40% afsláttur af þeim vörum
sem tilboðin ná til, en í sumum
tilvikum er afslátturinn enn meiri.
Efnt er til tveggja skemmtilegra
leikja á Kringlukasti sem báðir
tengjast vel markaðsþema dag-
anna. Annars vegar er leikurinn
Stóri Afsláttur endurtekinn en
hann var einnig á síðasta Kringlu-
kastí í mars sl. og heppnaðist mjög
vel. í leiknum bjóða nokkur fyrir-
tæki í Kringlunni örfáa hluti á
ótrúlegum afslætti en hlutimir eru
allir í dýrum verðfjokki, þannig
að afslátturinn af þeim nemur tug-
um þúsunda króna. Leikurinn
snýst um það að útnefna þá sem
fá rétt til að eignast hlutina á
þessum afslætti. Hinn leikurinn
er Kauphallarleikur Fjárfestinga-
félagsins Scandia. Hann snýst um
að þátttakendur reyna að ávaxta
ímyndað fé í erlendum verðbréfum
og sigrar sá sem nær bestri ávöxt-
un á bréfín.
Verslanir Kringlunnar eru opn-
ar frá kl. 10 til 18.30 alla virka
daga nema föstudaga þegar opið
er til kl. 19. Laugardaga er opið
frá kl. 10 til 16.
(Fréttatilkynning)
♦ » ♦-
Sumarblót á
Þingvöllum
HIÐ árlega sumarblót ása-
trúarmanna verður haldið á
Þingvöllum fimmtudaginn 24.
júní.
Alþing hið forna var sett ár
hvert á fimmtudegi í tíundu viku
sumars þá sól er hæst á lofti. Að
þessu sinni ber það upp á Jóns-
messu. Auk hefðbundinna blótat-
hafna verða bronsaldarlúðrar
þeyttir, bumbur barðar, leikinn
gráskinnsleikur og fleira gert sér
til skemmtunar. A blótinu verður
kynnt nýtt málgagn heiðingja á
íslandi.
Safnast verður saman á Hótel
Valhöll kl. 20.
(Fréttatilkynning)
r
Gæti þetta komið
fyrir konuna þína?
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Háskólabíó/Bíóhöllin:
Ósiðlegt tilboð — Indecent Pro-
posal
Leikstjóri Adrian Lyne. Handrit
Amy Holden Jones. Byggt á
skáldsögu Jacks Engelhards.
Tónlist John Barry. Aðalleikend-
ur Robert Redford, Demi Moore,
Woody Harrelson, Oliver Platt,
Seymour. Cassell. Bandarísk.
Paramöunt 1993.
Þau hjónakornin, Moore og
Harrelson, hafa elskast heitt og
innilega, allt frá því í menntó. Þau
hafa verið gift í sjö ár er myndin
hefst og lífið verið svona mestan
part dans á rósum. Hún fasteigna-
sali, hann vaxandi arkitekt. En
þegar þau eru rétt byijuð á
draumahúsinu koma þrengingar og
bæði missa vinnuna.
Þá er stormað til Las Vegas og
gæfan reynd án árangurs uns hjú-
in hitta milljarðamæringinn Red-
ford sem býðst til að borga þeim
milljón dali slétta fyrir nótt með
frúnni. Þau sjá draumavilluna rísa
og allt ganga í haginn og slá til.
Ekki líður á löngu uns afbrýði
fer að hrjá Harrelson, öfund og svo
hrynur undirstaða allra venjulegra
hjónabanda — traustið. Og Redford
vill meira...
Myndin fer bærilega af stað,
ungu leikararnir aðlaðandi og vel
valdir og aldurinn virðist ekki hafa
níðst á Robba — frekar en afar-
mjúkar linsur tökuvélanna. Myndin
varpar fram áleitinni og áhuga-
verðri spurningu hvað fólk geri
undir kringumstæðum sem þess-
um; eru allir falir fyrir rétta upp-
hæð? En hún svarar henni í versta
(fjórða áratugar-) stíl og endirinn
er úr öllu sambandi við allt sem
getur kallast raunveruleiki og heil-
brigð skynsemi, reyndar þolir
myndin öll illa minnstu nærskoðun.
Henni er því miður ekki ætlað að
vera neitt annað og meira en fal-
lega framleidd glansmynd og það
lukkast bærilega. Hún hefur geng-
ið vel í fjöldann, sem vissulega
þarf sitt „dóp“, engu síður en á
árum áður. En hún vekur óneitan-
lega þá spumingu hvort okkur
hafi nokkuð farið fram því vissu-
lega er Ósiðlegt tilboð ekkert annað
en staðnaður skemmtiiðnaður.
Fokið í öll skjól
Bíóborgin:
Spilltur lögregluforingi — Bad
Lieutenant
Leikstjóri og handritshöfundur
Abel Ferrara. Kvikmyndatöku-
stjóri Ken Kelsch. Aðalleikendur
Harvey Keitel, Victor Argo, Paul
Calderone, Leonard Thomas,
Robin Burrows. Bandarísk. Gu-
ild Film Dist. 1992.
Keitel leikur lögregluforingja
sem kominn er fram á ystu brún
andlega sem líkamlega. Hann er
orðinn gjörspilltur, forfallinn eitur-
lyfjaþræll og fyrir löngu farinn að
líta á starfið í þeim tilgangi einum
að fjármagna neysluna og halda
sér og sínum gangandi. Hann er
varasamur sýkill í rotnu umhverfí.
Þá síðustu daga í lífi hans sem
myndin fjallar um fær hann einnig
mafíuna á móti sér þegar hann
stendur ekki í skilum við veðmang-
arana. Það er fokið í öll skjól hjá
þessum laganna verði.
Það er ekki að undra þó Spilltur
lögregluforíngi hafi vakið athygli
og umtal að undanfömu í ná-
grannalöndunum, svo hrikaleg og
ofsafengin sem hún er. En það er
fyrst og fremst stórleikur Harvey
Keitels sem gerir hana þess virði
að hún sé barin augum, hann hefur
tæpast verið betri og aldrei vakið
slíka athygli ef undan er skilið
melludólgshlutverk hans í Taxi
Driver. Hann skilar þessum djúpt
sokkna mannræfli eftirminnilega
vel þó hann sé nánast aldrei eðlileg-
ur heldur sífellt undir áhrifum
hinna margvíslegustu vímugjafa,
kolruglaður á sál og líkama. Hann
er ómennskt úrhrak í flestum atrið-
unum, sem sum eru minnisstæðari
öðrum einsog nístandi ljótu og kyn-
ferðislega afbrigðilegu sjálfsfróun-
aratriði. Keitel er konungur sorans
í þessari ógeðslegu mynd sem dreg-
ur upp verri og kannski sannari
mynd af ástandinu í versu hverfum
stórborga Vesturheims þar sem
löggan er spilltust allra.
Þau atriði þar sem reynt er að
leita uppi vott af gömlum sómatil-
finningum í lögregluforingjanum
eru mikið mun veikari, enda er
hann gjörsamlega útbrunninn.
Lokaatriðið, er hann reynir að
koma tveim ungum og upprennandi
skítseyðum til hjálpar, ekki trú-
verðugt. Ferrara hefur nokkrum
sinnum vakið athygli fyrir óvenju
harðskeyttar og kuldalegar glæpa-
myndir, hér nær hann nýjum hæð-
um í afar hráum lýsingum sínum
á mannlífsdreggjum stórborgarinn-
ar og á það ekki síst Keitel að
þakka.
Landsins hesta verð!
Vegna hagkvæmra innkaupa getum við boðið fatnað frá
Englandi og Þýskalandi á verði, sem á sér ekki hliðstæðu
hérlendis. Af tilefni opnunar verslunarinnar nýlega,
bjóðum við að auki allar vörur
með 25% kynningarafslætti til 1. iúlí nk.
Dæmi:
m/25% afsl.
Peysur. frá kr. 1.750 1.312
Bolir frákr. 880 660
Pils frá kr. 1.100 825
Buxur frá kr. 1.399 1.049
Jakkar. frá kr. 2.200 1.650
Kjólar frákr. 2.799 2.099
Náttföt frá kr. 839 629
Skyrtur frá kr. 1.049 786
Skór frá kr. 1.259 944
Leðurjakkar.. frákr. 9.799 7.549
Kápur frá kr. 3.199 2.399
Náttsloppar.. frákr. 909 681
Franskar snyrtivörur
Dæmi um verð:
Varalitur og naglalakk.....
Varalitur.................
Naglalakk.................
o.fl. o.fl.
.596
.344
447
258
...344 258
.ÖSTV*<
PÓSTVAL
Skútuvogi 1 (næsta hús sunnan Miklagarðs), sími 68 44 22.
i -
ií