Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
45
YELVAKANDI
FYRIRSPURN TIL
VEIÐIMÁLASTJÓRA
*
KÆRI Velvakandi.
Mig langar að fá birtar í dálki
þínum spumingar til Áma Ísaks-
sonar veiðimálastjóra er komu
upp í huga mér eftir lestur grein-
ar er hann r-itaði í Morgunblaðið
2. júní sl. undir fyrirsögninni
„Netaveiðar á laxi og silungi -
Réttindi og skyldur“.
Spurningin er í sambandi við
veiðieftirlit en í gi-ein sinni segir
veiðimálastjóri m.a.: í einstaka
tilfellum hafa veiðimálastjóri og
hagsmunaaðilar á landsbyggð-
inni sameinast um að ráða eftir-
litsmann til eftirlits með sjávar-
lögnum, en þá hefur þess ætíð
verið gætt að viðkomandi eftir-
litsmaður væri óháður hags-
munaaðilum og nyti óskoraðs
trausts viðkomandi lögregluyfir-
valds. Hér er ég sammála veiði-
málastjóra og fínnst þetta mjög
eðlilegt að hafa þennan háttinn
á. Nú vill svo til að mér er kunn-
ugt að þessu er ekki svona farið
Hrútafirði því sl. 3-4 ár hefur
sami maður haft eftirlit með veiði
í Hrútafjarðará og Síká ásamt
því að hafa eftirlit með sjávar-
lögnum í Hrútafirði. Samtímis
þessu hefur hann setið í stjórn
veiðifélags Hrútafjarðarár og
Síkár. Því er spurning mín til
veiðimálastjóra: Hvemig má
þetta vera, stenst þetta miðað
við tilvísun hér að framan í grein
þína? Því hef ég áhuga á að vita
hvort embætti veiðimálastjóra
hefur haft eitthvað með ráðningu
veiðieftirlitsmanns í Hrútafirði
að gera. Ef ekki, getur þá veiði-
málastjóri upplýst mig og aðra
um það hver ræður eða skipar
veiðieftirlitsmann í þessu tilfelli?
Að lokum væri gaman að fá álit_
veiðimálastjóra á þessari skipan
veiðieftirlits við Hrútafjarðará.
Með fyrirfram þökk,
Trékyllingur.
TÍBET
ÞEGAR íslendingar öðluðust
sjálfstæði eftir þref við Dani
hefði mátt ætla að skilningur
þeirra á frelsi öðrum til handa
hefði aukist. Aukin samvinna á
ýmsum sviðum við kúgunar-
stjómina í Kína ber öðra vitni.
1950 réðust herir Kínveija inn í
Tíbet og eru þar enn. Leiðtogi
Tíbeta, Dalai Lama, flúði frá Tí-
bet og hefur aðsetur á Indlandi.
I dag reyna kínversk stjómvöld
að hefta friðarboðskap Dalais
Lamas. Þeim mistókst. Við skul-
um vona að þetta sé aðeins byij-
unin á fullum stuðningi Vestur-
velda, og raunar allra þjóða, fyr-
ir frelsun Tíbet.
Már Kjartansson
ÁNÆGJULEGT
SKREFHJÁSVR
JÓN Bjömsson hringi og vildi
lýsa jrfir ánægju sinni með breyt-
ingar á rekstri SVR. Hann telur
að þessar breytingar séu mjög
jákvæðar og telur að þær muni
skila sér í öflugra fyrirtæki. Með
þessum breytingum er SVR
breytt í fyrirtæki í takt við
breytta tíma.
ÞEKKIR EINHVER
HITT ERINDIÐ
JÓNA Vilhjálms á Skagaströnd
hringdi og langaði að vita hvort
einhver þekkti seinna erindi eftir-
farandi kvæðis:
Nú brosir sólin björt og unaðsblíð
sem breytir sorg og gleði í júnídag.
Nú óma gleðilögin ljúf og þýð
og landið ómar af söngfuglabrag
SÆTAFERÐIR FRÁ
ROKKTÓNLEIK-
UNUM BRUGÐUST
RAGNHEIÐUR hringdi og sagð-
ist tala fyrir sinn munn og ann-
arra foreldra um það að illa hefði
verið staðið sætaferðum eftir
rokktónleika sem haldnir vora í
Kaplakrika fyrir nokkra. Hún
sagði að talað hefði verið um að
unglingunum yrði ekið heim í
strætisvögnum að hljómleiknum
loknum, en það hefði hins vegar
ekki staðist að öllu leyti og hún
vissi til þess að fjöldinn allur af
unglingum hefði þurft að ganga
frá Hafnarfirði alla leið til
Reykjavíkur um nóttina.
Einnig vildi hún vekja athygli
á því að erfitt virðist vera fyrir
unglinga að verða sér úti um
leigubíla á nóttunni vegna þess
að bílstjórarnir vilja ekki stoppa
fyrir þeim. Meira að segja lög-
reglan virðist einnig vera áhuga-
laus gagnvart þeim ef þeir eru
ekki með neinar óspektir. Þannig
getur verið mjög erfitt fyrir þorra
unglinga að komast leiðar sinnar
á nóttunni.
Það mætti líka stundum minn-
ast á í fjölmiðlum allan þann
fjölda unglinga sem engin vand-
ræði stafa af, í stað þess að blása
alltaf upp í fréttum þegar ein-
hveijir þeirra valda óspektum,
því í raun og vera er það afskap-
lega lítill hópur reykvískrar æsku
sem er til vandræða.
GÆLUDÝR
Kettlingur fæst gefins
FALLEG svört og hvít tólf vikna
læða fæst gefins á gott heimili.
Upplýsingar í síma 615525.
Köttur í óskilum
LÍTIL svört og hvít læða er í
óskilum í Furubyggð í Mos-
fellsbæ. Hún fannst þann 16.
júní sl. og er greinilega nýgotin.
Upplýsingar í síma 666191 eða í
Kattholti.
TAPAD/FUNDIÐ
Úr tapaðist í Miðbænum
GUCCI-kvenúr, svart og gyllt,
týndist í miðbæ Reykjavíkur 17.
júní. Finnandi vinsamlega hringi
í Huldu í síma 53730.
Týnt úr
KARLMANNSÚR, stállitað, tap-
aðist annaðhvort við Álfaland eða
Eyrarland. Finnandi vinsamlega
hringi í Reyni í síma 39086 eða
814422.
Pennavihir
Franskur 23 ára piltur með
áhuga á tungumálum, safnar frí-
merkjum og myndböndum:
Patrick Pastor,
9 Place du Guery,
63800 Cournon,
France.
Sænskur heimspekinemi með
áhuga á tónlist og ferðalögum í
óbyggðum, skrifar bréf sitt á bjag-
aðri en auðskiljanlegri íslensku vill
eignast pennavini og óskar eftir því
að þeir skrifí honum á íslensku:
Thomas Fahrenholz,
Dalabergsvagen 5,
30241 Halmstad,
Sweden.
Frá Ghana skrifar 26 ára kona
með margvísleg áhugamál:
Mary Gimah,
P.O. Box 997,
Cape Coast,
Ghana.
LEIÐRÉTTINGAR
Lína féll niður
í minningargrein Ingu um Björgu
Björnsdóttur í Morgunblaðinu 17.
júní féll niður lína og raskaði það
samhenginu. Málsgreinarnar, sem
urðu fyrir hnjaski af þessum sökum,
birtast hér að nýju: „Eftir það fór
hún að lesa skáldsögur á dönsku,
því að hún var mikill bókaormur,
en lítið var um skáldsögur á ís-
lensku þegar hún var ung. Þegar
fóra að koma skáldsögur á ís-
lensku, sneri hún sér að þeim, svo
að dönskukunnáttuna hafði hún lít-
ið sem ekkert notað í 40-50 ár,
þegar hún kom til Kaupmannahafn-
ar.“ Hlutaðeigendur era vinsamleg-
ast beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
Ekki gjaldþrot
Sigurður Arnórsson fram-
kvæmdastjóri Súkkulaðiverksmiðj-
unnar Lindu á Akureyri vildi koma
á framfæri leiðréttingu vegna
greinarinnar „Akureyri í djúpum
dal“ sem birtist í síðasta sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins.
I greininni segir að Landsbanki
Islands eigi meirihluta í Súkkulaði-
verksmiðjunni Lindu eftir gjaldþrot
fyrirtækisins, en hið rétta er að
fyrirtækið varð ekki gjaldþrota, það
gekk í gegnum greiðslustöðvun og
nauðasamninga á síðasta ári.
Landsbanki íslands kom að rekstri
Lindu vegna uppgjörs á þeim samn-
ingum.
i
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
4.561.964 kr.
upplýsingar:sImsvari 91 -681511 lukkul!na991002
Þórisstaóir
Tjðld - golf - veiði
Við vekjum othygli ó fjölbreyttri útivistaroðstöðu okkar ó hórisstöðum
í Svinadal. Hentug fyrir einstoklinga, ættormót, vinnustaða- og vino-
hópa, íþróttahópa, reiðhópa o.fl.
Félagsheimili sem tekur 55 manns í sæti ó staðnum. Stutt í sundlaug
og verslun (4 km). Hægt er að leigja staðinn um lengri eðo skemmri tíma.
Upplýsingar í sima 93-20200 milli kl. 7.30 og 16.00.
SíarfcmaHttafélag isl. iórnblendif élagsins,
s*t*j*A»
□
„ ...i bilinn. ,
9 við brosum íuinfcfðinn
Arc 591 MW/FM sterió hljómgæöi, útvarp og segulband
í sama tæki. Magnari 2x7 wött. Sjálfvirkur stoppari á snældu.
sjálfvirkur stoppari á snældu. Bassa og hátóna
stílling. Magnari er 2x10 wött. Stafrænn gluggi sem sýnir bylgjulengd og fleirí
upplýsingar. Tengi aö framan fyrir CD geislaspilara.
og „skanner,, sem finnur allar rásirnar og spilar brot af hvem' þeirra - Stafrænn
gluggi er sýnir bæöi bylgjulengd og klukku. Möguleiki á 4 hátölurum.
Tengi fyrir CD geislaspilara.
SÆTÚNI 8 ■ SÍMI 69 15 00
utvarp og segulband. Sjátfvirkur
leitari og „skanner,, Magnari 2x25 wðtt.
Frábær hljómgæði. Síspilun. Tenging fyrir CD geislaspilara.
wött. Upplýstur stafrænn gluggi sem sýnir allar aðgerðir. Allar aðgerðir
framkvæmdar með snerti-tökkum. Tenging fyrir CD geislaspilara.Slspilun.
Viö bjóðum þér í heimsókn í Sœtún 8,
þargeturþú hlustað ísérútbúnu hátalaraherbergi
og notið þess besta sem völ er áí dag.
Góðfl/f0;
Fjármagn til framtiaf
hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar tagÉ IÐNÞROUNARS JOÐUR
Kalkofnsvegi 1 150Reykjavík slmi: (91) 69 99 90 fax:62 99 92
HhinSIXHlrt NfíNNQH XS/flVtfO