Morgunblaðið - 29.06.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
5
Hættulausar æfingakúlur í Helguvíkurhöfn
Virtust vera sprengi-
kúlur á röntgenmyndum
LANDHELGISGÆSLAN hefur lokið við að ná æfingakúlum úr
höfninni í Helguvík og reyndust þarna vera um tvö tonn af kúl-
um. Gylfi Geirsson varðstjóri hjá Landhelgisgæslunni segir að
allt það upphlaup sem varð í kringum þetta mál skrifist að mestu
leyti á fjölmiðla. Kúlurnar voru með öllu hættulausar, að sögn
Gylfa.
„Ætli það megi ekki skrifa upp-
hlaupið sem varð í kringum þetta
á fjölmiðlana. Málið var blásið upp
og mönnum stillt upp við vegg,“
sagði Geir. Hann sagði að fjölmiðl-
ar hefðu viljað fá umsögn gæsl-
unnar tafarlaust um hvað hér
væri á ferð og með röntgenmynd-
un leit út fyrir að þetta væru
sprengikúlur. „Grundvallarreglan
er sú að menn reyna að hafa vað-
ið fyrir neðan sig. Síðan var sýslu-
manni í Keflavík stillt upp við vegg
og þá fer allt batteríið af stað.“
Rétt að gera þetta nú
Hann sagði að það hefði verið
rétt að ná kúlunum upp úr höfn-
inni en það hefði ekki þurft svo
mikið tilstand í kringum þetta
mál. „Ef kúlunum hefði ekki verið
náð upp núna er viðbúið að þetta
mál hefði komið upp aftur og þá
þurft að skoða 'það," sagði Gylfi.
Hann sagði að það væri sóðaskap-
ur að losa sig við kúlurnar á þenn-
an hátt.
Morgunblaðið/Ingvar
Ekkert lát á slysum við Lönguhlíð
EKIÐ var á gangandi vegfaranda við gatnamót Miklubrautar og
Lönguhlíðar rétt fyrir kl. 15 í gær. Ekki er nánar vitað um tildrög
slyssins en hemlaför bílsins mældust um 16 metrar. Vegfarandinn
slasaðist ekki alvarlega. Ekkert lát virðist á slysum við þessi gatna-
mót því auk banaslyssins þar í síðustu viku varð þar harður árekst-
ur tveggja bifreiða sl. föstudag. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar
var fluttur á slysadeild.
Hálkublettir
á leirlagi á
Gjábakkavegi
HÁLKUBLETTI á leirkenndu
lagi á Gjábakkavegi um helgina
má að sögn Sigurðar Jóhanns-
sonar tæknifræðings Vega-
gerðarinnar á Selfossi rekja til
mikillar rigningar. Lagið var
borið á veginn vegna kvartana
yfir grófleika hans.
Sigurður sagði að svokallað silt,
þ.e. leirkennt lag, hefði verið borið
í veginn á miðvikudag, fimmtudag
og föstudag vegna kvartana öku-
manna yfir grófleika hans. Seinni-
partinn á föstudag hefði verið allt
í lagi með veginn og þrátt fyrir
gífurlega rigningu nóttina á eftir
hafi aðeins verið tveir pyttir á
miðjum veginum á laugardag.
Aðspurður sagði Sigurður að
silt hefði verið borið í brekkur með
góðri reynslu um nokkurt skeið.
Efnið þurfi helst að bera á í rign-
ingu og þoli mikla rigningu. Hún
hafí hins vegar verið gífurlega
mikil aðfaranótt laugardags. Lokið
hefur verið við að gera við
skemmdirnar á Gjábakkavegi.
Jeep Grand Cherokee Laredo
Fullkominn Farkostur!
Vörur til heyvinnslu
0,5-10,3%
hækkuná
2 árum
SAMKVÆMT könnun Sam-
keppnisstofnunar hefur verð á
ýmsum vörum til heyvinnslu
hækkað á bilinu 0,5%-10,3% frá
sumrinu 1991 þar til í sumar.
Meðalverð á heyrúlluplasti hef-
ur hins vegar lækkað að meðal-
tali um tæplega 30% á tímabil-
inu.
Könnun Samkeppnisstofnunar
náði til 20 sölustaða á landinu og
leiddi hún meðal annars í ljós að
mestur verðmunur á varahlut í
heyvinnsluvél var 130%, en dý-
rasti varahluturinn var frá fram-
leiðanda vélarinnar og komu ódýr-
ari varahlutir frá öðrum framleið-
endum. Á öðrum vörum til hey-
vinnslu var munur á hæsta og
lægsta verði á bilinu 6% til 39%,
en mesti verðmunurinn var á hvítu
rúllubindigarni. Dýrast var það hjá
Kaupfélagi Héraðsbúa á Egils-
stöðum, en ódýrast hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga á Akureyri.
o ber
burði við aðra jeppa. Samkeppnin á ekkert svar vi
...... -. . ...... v Y&L*
strokka 190 hestafla vél, Quadra-Trac sídriíl, Quadra-
Coil íjöðrun, hemlalæsivörn, og loftpúða í stýri, en
þennan búnað er að llnna í öllum Grand Cherokee,
svo fátt eitt sé talið. Snilldarhönnun í hvívetna og
glæsilegt útlit fullkömna þennan einstæða farkost.
erokee
do
ste