Morgunblaðið - 29.06.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 1993
9
Auglýsing
um merki fyrir
Samiðn,
samband iðnfélaga
Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, aug-
lýsir eftir merki fyrir samtökin. Samiðn er sam-
tök félaga og deilda launafólks í iðnaði. Þær
starfsgreinar sem eiga aðild sambandinu eru:
Málm- og byggingariðnaður ásamt garðyrkju.
Merkið þarf að hafa víða skírskotun og vera
einfalt í sniðum. Greiddar verða 50.000 kr. fyr-
ir þá tillögu sem valin verður sem merki samtak-
anna. Senda skal tilllögur til Samiðnar, Suður-
landsbraut 30, 108 Reykjavík. Skilafrestur er
til 15. ágúst nk. Frekari upplýsingar veittar í
símum 686055 og 813011.
fiin m
RAmUNAíí!
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
HAGSTÆTT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndurvið íslenskaraðstæður.
Einar Farestveit & Co. hf.
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
Frihandel bra for Baltikum
• Dct svcnska frihandclsav-
talct mcd Baltikum utgör ing-
ct hot mot EG:s inrc mark-
nad, sadc Frcdrik Rcinfcldt
ordförandc for modcrata
ungdomsforbundct vid Nor-
diska ungkonscrvativa unio-
ncns, NUU, drsmötc i Stock-
holm igár. Rcinfcldts upp-
..:ng jjr att Svcrigc i BG-
mllinp.lrna inlp him.
tafaldigat sin cxport till vSst
undcr dct scnastc árct.
Frihandcln gcr ocksá mðn-
niskorna i Baltikum möjlig-
hct att fá förstáclsc för mark-
nadsckonomins funktioncr
som Tör dc flcsta 3r ctt nytt
tðnkcsátl.
Mcn dct ár intc alltid látt
atl pá kort tidIbyi
fcktcrnapácfterfrágan. Mcn-
cffcktcrna kom lorstás ándá.
Efterfrágan minskadc och
hamncn tar nu intc cmot ná-
grasvcnskaturistfárjorscdan
fárjcbolagct gjort konkurs.
Frihandcln, som bidrar till
cn forstárkning av mark-
nadsckonomin, páskyndar
ÍH^cktlösningcnav m c r
Fríverslun og Eystra-
saltsríkin
Blaðið Svenska Dagbladet gerir mikil-
vægi fríverslunar fyrir Eystrasaltsríkin að
umræðuefni í forystugrein í síðustu viku.
Staldrar blaðið sérstaklega við aðalfund
Samtaka ungra íhaldsmanna á Norður-
löndum (NUU), sem haldinn var í Stokk-
hólmi á dögunum, þar sem fram komu
kröfur í þá veru, að Norðurlöndin gerðu
fríverslunarsamninga, áþekka þeim sem
Svíar hafa þegar gert, við Eystrasaltsrík-
in.
Ögnar ekki
innri markaði
I forystugrein Svenska
Dagbladet segir: „Frí-
verslunarsamningur Svia
við Eystrasaltsríkin ógn-
ar ekki innri markaði
EB, sagði Fredrik Rein-
feldt, formaður ungliða-
hreyfingar Hægriflokks-
ins á aðalfundi Samtaka
ungra ihaldsmanna á
Norðurlöndum, NUU, i
Stokkliólmi. Það er álit
Reinfeldts að Svíar eigi
ekki að gefa fríverslun-
arsamninginn við Eystra-
saltsrikin á bátinn í við-
ræðunum um EB-aðild.
Það er mikilvægt að
efla samvinnuna við
Eystrasaltsríkin og önn-
ur ríki Austur-Evrópu.
Vilji Evrópubandalagsins
í þá átt virðist hins vegar
vera meira í orði en á
borði að mati Ójafs Þ.
Stephensens frá Islandi,
sem nú lætur af störfum
sem forseti NUU. Island
hefur gert samning inn
efnahagssamvinnu við
Eystrasaltsríkin en
Stephensen lítur á frí-
verslunarsamnmg Svía
sem fyrirmynd aukinnar
samvinnu við Eystra-
saltsríkin.“
Lofsverður
áhugi
Áfram segir: „Aliugi
hinna ungu norrænu
íhaldsmanna á að efla
þróunina í átt að mark-
aðskerfi í Eystrasalts-
rílgunum með fríverslun
er lofsverður. Fríverslun
er úrslitaatriði fyrir
Eystrasaltsrikhi sem
hafa misst mikið af við-
skiptum sínum við Sovét-
ríkin fyrrverandi og vijja
nú auka viðskipti sín við
Vesturlönd. Eistlending-
ar liafa til að mynda átt-
faldað útflutnhig sinn til
Vesturlanda á undan-
fömu áiá.
Fríverslun veitir líka
íbúum Eystrasaltsrílg-
anna tækifæri á að skilja
betur hvernig markaðs-
hagkerfi starfar en fyrir
flesta krefst það algjör-
lega nýs hugsunarháttar.
Það er ekki alltaf auð-
velt að byggja upp þær
stofnanir sem nauðsyn-
legai- eru fyrir snurðu-
laust markaðshagkerfi á
skömmum tima. Til að
mynda skortir vemlega
skilning á verðmyndun.
Dæmi um það er nýja
höfnin í Riga, sem meðal
annars á að taka á móti
ferðamannafeijum frá
Svíþjóð. Til að auka tekj-
urnar hækkuðu hafnar-
yfirvöld, sem lieyra undir
sveitarstjórnina, hafnar-
gjöld verulega án þess
að velta fyrir sér hvaða
áhrif það myndi hafa á
eftirspum. Ahrifaima
gætti hins vegar auðvitað
engu að síður. Það dró
úr eftirspuminni og eng-
ar.sænskar ferðamanna-
ferjur koma nú til hafn-
arinnar eftir að feijufyr-
irtækið varð gjaldþrota."
Leysir flókn-
ari vandamál
I lok forystugreinar
Svenska Dagbladet segir:
„Fríverslun, sem stuðlar
að því að styrkja mark-
aðshagkerfið, flýtir lika
óbeint fyrir lausn á flókn-
ari vandamálum á borð
við eignarrétt og rétti til
ríkisborgararétts.
A himi bóginn myndi
það hægja á þróuninni í
átt að markaðshagkerfi
og réttarríki í Eystra-
saltsríkjunum, sem ný-
lega hafa öðlast sjálf-
stæði, ef umheimurínn
takmarkar möguleika
þeirra á fríverslun.“
Námskeið Rauða Kross íslands
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir námskeiði í al-
mennri skyndihjálp sem hefst
miðvikudaginn 30. júní, kennt
verður fjögur kvöld. Kennslu-
dagar verða 30. júní, 1. júlí, 5.
og 7. júlí. Kennt verður frá kl.
20 til 23. Námskeiðið telst vera
16 kennslustundir. Leiðbeinandi
verður Guðlaugur Leósson.
Námskeiðið verður haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð.
Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er blástursmeðferðin,
endurlífgun með hjartahnoði, hjálp
við bruna og mörgu öðru. Einnig
verður fjallað um það hvernig má
reyna að koma í veg fyrir helstu
slys. Að námskeiðinu loknu fá
nemendur skírteini sem hægt er
að fá metið í ýmsum skólum.
Þann 6. júlí verður haldið nám-
skeið um það hvernig á að taka á
móti þyrlu á slysstað. Leiðbeinandi
verður Kristján Þ. Jónsson. Þegar
slys eiga sér stað eða maður veik-
ist alvarlega getur það haft úrslita
þýðingu fyrir hann að komast í
hendur læknis sem fyrst. Þetta
gildir sérstaklega þegar slys verða
utan þeirra svæða sem njóta þjón-
ustu sjúkrabíla. Þá getur sjúkra-
flutningur með þyrlu verið nauð-
synlegur. Þetta er námskeið sem
er gott fyrir fararstjóra, leiðsögu-
menn, rútubílstjóra og aðra sem
fara mikið um óbyggðir landsins.
Þeir sem hafa áhuga á að kom-
ast á ofangreind námskeið geta
skráð sig í síma 688188 frá kl.
8-16. Tekið skal fram að Reykja-
víkurdeild RKÍ útvegar leiðbein-
endur til að halda namskeið fyrir
þá sem þess óska.
(Fréttatilkynning)
í mörgum stærðum
á tilboðsverði!
ílf
Vinnuvernd
í verki
Skeifan 3h - Sími: 81 26 70 - Fax: 68 04 70
Varði doktorsrit-
gerð í vélaverkfræði
JÓHANNES B. Sigurjónsson
varði doktorsritgerð sína í véla-
verkfræði við Tækniháskólann í
Þrándheimi Noregi fyrir nokkru.
Ritgerðin ber heitið „Framlag til
aðferðarfræði við val fram-
leiðsluferla í hönnunarfasanum"
(A Contribution to a Theory for
Selecting Production Methods)
og fjallar um áhrfi hönnunar á
val framleiðsluefna og hvernig
þekking á þeim getur bætt liönn-
unina. Jafnframt er bent á að
form og efnisval eru í auknum
mæli orðnir ráðandi þættir við
val að framleiðsluaðferðum.
I frétt frá Tækniháskólanum seg-
ir svo um Jóhannes og verk hans:
„Rannsóknir Jóhannesar hafa leitt
til aukins skilnings á hönnunarferl-
inu og fræðilegum aðferðum sem
beitt er við hönnun vélhluta. Það
er forsendan fyrir því að þróa ný
verkfæri sem hægt er að nota til
upplýsingavinnslu í hönnunarfasan-
um. í ritgerðinni er sýnt fram á
hvernig val á framleiðsluaðferð og
vinnskutækni tengist fyrstu skref-
um hönnunarfasans eins og hug-
myndasköpun og lausnarþróun og
er framsetning miðuð við það að
vera grunnur að tölvukerfi, sem
hönnuðir geta notað til að með-
höndla upplýsingar um framleiðlsu-
tækni fyrir mismunandi lausnir.
Sett er fram upplýsingalíkan fyrir
hluti þar sem sérstök áherzla er
lögð á að tengja við formlýsingu
upplýsingar um vikmál, yfirborðs-
meðhöndlun og efnaeiginleika. í
verkefninu er framleiðslu hluta lýst
sem röð aðgerða, þar sem hver
aðgerð leggur til einstaka eiginleika
eða einkenni hlutarins. Þessi út-
færsla er grundvöllur fyrir því að
geta sett fram aðferðafræði við val
á framleiðsluferli eða efni.“
Ritgerðin var unnin við Vélaverk-
fræðideild Tækniháskólans í Þránd-
heimi í Noregi undir umsjón pró-
fessors Marvin Rausand, en aðal-
leiðbeinandi var tekn. dr. Mogens
Nyrup Andreasen frá Tækniháskó-
lanum í Danmörku.
Jóhannes er fæddur í Skagafirði
árið 1956 og ólst þar upp, en stúd-
entsprófi lauk hann frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1976 og verk-
fræðiprófi frá verkfræðideild Há-
skóla íslands árið 1982. Foreldrar
Jóhannesar eru hjónin Siguijón Sig-
urbergsson og Heiðbjört Jóhannes-
dóttir að Hamrahlíð í Skagafirði.
Eiginkona Jóhannesar er norsk,
Kari Elise Mobeck og eiga þau tvö
börn, Heiðu Karine og Magnús.
Jóhannes starfar nú við Tæknihá-
skólann í Noregi við að byggja upp
nýja þverfaglega deild í arkítektúr
og verkfræði, þar sem áherzla er
Dr. Jóhannes B. Siguijónsson
lögð á tæknihönnun og kerfis-
bundnar hönnunaraðferðir. Þessi
nýja verkfræðimenntun er byggð
upp í samtengingu arkítektúrs og
vélaverkfræði.
------» ♦ «----
Lézt í Kanada
LÁTIN er í Kandada frú Helga
Rögnvaldsson, ekkja Snorra Rögn-
valdssonar múrarameistara frá Ak-
ureyri. Snorri lézt í Kanada 1989.
Helga var fædd í Kanada af íslenzk-
um ættum.