Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
Dræm skil lífeyris-
sjóða á reikningum
til bankaeftirlitsins
Á MILLI 20 og 30 lífeyrissjóðir hafa enn ekki skilað ársreikningum
sinum fyrir síðasta ár til bankaeftirlits Seðlabanka Islands. Sam-
kvæmt lögum ber sjóðunum að skila ársreikningum árituðum af
Iöggiltum endurskoðanda fyrir 1. maí.
um, samantekt á reikningum þeirra
og ályktanir um stöðu lífeyrissjóð-
anna í heild.
Kemur á óvart
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Sambands almennra
lífeyrissjóða, sagði að það kæmi sér
á óvart hvað margir lífeyrissjóðir
ættu eftir að skila reikningum sín-
um. Langflestir lífeyrissjóðimir
væru fyrir löngu búnir að gera árs-
reikninga sína, enda væru fulltrúa-
fundir flestra sjóðanna haldnir á
vorin. Sagði hann að meginskýring-
in á þessum drætti hlyti að vera
sú að endanlegur frágangur reikn-
inganna og formsatriði fyrir banka-
eftirlítið lenti í undandrætti hjá
löggiltum endurskoðendum lífeyris-
sjóðanna sem hefðu mikið að gera
á þessum árstíma.
Þórður Ólafsson, forstöðumaður
bankaeftirlitsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að reikningarnir bær-
ust frekar hægt og væri innheimtan
heldur slakari en á sama tíma í
fyrra, en þá var lífeyrissjóðunum í
fyrsta skipti gert að skila reikning-
um sínum til bankaeftirlitsins. Þórð-
ur sagði að bankaeftirlitið hefði ít-
rekað óskir um skil ársreikninga
við marga lífeyrissjóði.
Forstöðumaður bankaeftirlitsins
sagði að á síðasta ári hefði skýrsla
um lífeyrissjóðina ekki komið fyrir
almenningssjónir fyrr en í desember
en í framtíðinni bæri að stefna að
því að það gæti orðið skömmu eftir
lok skilafrests. Sagði Þórður að
tafir á skilum ársreikninganna
seinkuðu vinnu bankaeftirlitsins við
eftirlit með lífeyrissjóðunum. Þetta
tefði vinnu við samanburð á sjóðun-
Hugmynd um rafknuna
strætisvagna í miðbæ
RAFGEYMAVERKSMIÐJAN Pólar hf. hefur hug á að stofna fyrir-
tæki, sem myndi eiga og reka rafstrætisvagna til notkunar í mið-
borg Reykjavíkur. Borgarráði hefur borist erindi frá verksmiðjunni
þar sem óskað er eftir viðræðum við Reykjavíkurborg um mögulega
samvinnu á þessu sviði.
V-Húnavatnssýsla
Sameining 3
hreppa felld
Stað í Hrátafírði.
SAMEINING þriggja hreppa í
Vestur-Húnavatnssýslu var felld
í atkvæðagreiðslu í gær.
Atkvæði féllu þannig í Staðar-
hreppi, þar sem 75 voru á kjörskrá,
að 21 sagði já, 26 sögðu nei og einn
seðill var auður. I Fremri-Torfu-
staðahreppi, voru 43 á kjörskrá, og
sögðu 24 já og 6 nei. í Ytri-Torfu-
staðahreppi voru 150 á kjörskrá og
sögðu 57 já og jafn margir nei. Fjór-
ir seðlar voru auðir. mS
Vagnarnir myndu væntanlega
aka milli Hlemms og Kvosar, að
sögn Gríms Valdimarssonar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins. í er-
indinu til borgarráðs segir að til-
gangurinn með rekstri vagnanna
yrði að minnka mengun og spara
erlenda orku. „Án efa myndi slík-
ur rekstur verða skemmtilega
myndrænn og bæta ímynd
Reykjavíkur í umhverfismálum,“
segir í erindinu. Þá segir að einn-
ig sé vert að athuga hvort aka
beri nýjar leiðir t.d. að bílgeymslu-
húsum í þeim tilgangi að auka
nýtingu þeirra.
Erindinu var vísað til umsagnar
lögfræði- og stjórnsýsludeildar
borgarinnar.
Verdbreytingar
v. genglslaekkunarínnar
Verðið Verðið hækkar
Dansukker varkr. ernúkr. um
sykur
1 kg pakki 44 49 11%
Sykur hækk-
ar um 11%
DANSUKKER strásykur í eins
kílós pakkningum hefur hækkað
vegna gengisfellingarinnar. Sem
dæmi um þessa hækkun má nefna
að áður kostaði pakkinn 44 krón-
ur en kostar nú 49 krónur. Það
er um 11% hækkun.
í dag
Krafist aðgerða________________
ísrael beitir örþrifaráðum 21
Ekki timi til neyðarkalls
Ætiaði að bjarga bátnum 22
Hvalveiðiráðið_________________
Framtíð hvalveiðiráðsins gæti oltið
á því að leyfa hrefnuveiðar 23
Leiðari________________________
Friðarsamningar og framferði ísra-
ela 22
Viðskiptablað
► Axis og GKS-Bíró sameinast
um trésmiðju - Ólögleg álagning
á erlendan bjór - Sókn Jökla hf.
í Ameríkusiglingum - íslending-
ar spara í sumarfríinu
Viðey var vaxin birkikjarri fram á tólftu öld
ejganmiar
Morgunblaðið/Einar Falur
Við fornan langeld
ANNA Lísa Guðmundsdóttir jarðfræðingur við
langeldinn sem fundist hefur við fornleifaupp-
gröft í Viðey í sumar.
FRJÓKORNAGREINING sem gerð hefur verið í
Viðey á vegum Árbæjarsafns hefur leitt í ljós að
eyjan var vaxin birkikjarri fram á 12. öld. Að
sögn Margrétar Hallgrímsdóttur, borgarminja-
varðar, rennir þessi niðurstaða stoðum undir þá
tilgátu að eyjan hafi hlotið nafn sitt vegna þess
að hún hafi verið viði vaxin, en menn hafa ekki
verið á einu máli um uppruna Viðeyjarnafnsins.
Að hennar sögn benda niðurstöður rannsókna til
að birkið hafi fallið þegar byggð hófst að marki
í eyjunni, en þá hafi hafist þar kornrækt.
„Við erum komin mjög neðarlega í mannvistarlög
klausturbæjarins. Við erum að rannsaka rústir lang-
húss sem hefur líklega verið á klausturbænum. Þar
fundust þrír hlaðnir ofnar, sem er mjög óvenjulegt.
Einnig erum við að rannsaka aðra rúst langhúss,
svefnskála, sem er elsta rústin í bæjarhólnum. Þar
fannst í sumar langeldur í neðsta gólflaginu," segir
Margrét. Þessi hús tilheyrðu klausturbænum í Viðey
á 12. til 16 öld en af rannsóknum að dæma hafa þau
einnig verið notuð eftir siðaskipti og þá sem spítali á
vegum Bessastaða. „Hugsanlegt er að einn af ofnun-
um sé frá þeim tíma og hann hafi verið notaður til
að halda hita á þurfalingum," segir hún. Að sögn
Margrétar hafa einnig fundist ýmsir hlutir sem tengj-
ast daglegum störfum, blýkúla, tréfígúra og leifar af
fatnaði.
Styður tilgátu
umnafngift
• •
Álagningarseðlar opinberra gjalda sendir út
Álagning hátekju-
skatts 467 milljónir
LOKIÐ er álagningu opinberra gjalda vegna ársins 1992 og ákvörðun
bóta sem byggjast á framtali fyrir það ár. Verið er að senda álagning-
arseðlana til gjaldenda og inneignir vegna ofgreiddrar staðgreiðslu og
bætur verða greiddar út á morgun með innleggi á bankareikninga og
ávísunum sem sendar verða út. Endurgreiðslurnar nema samtals 5,3
miiyörðum kr. til rúmlega 100 þúsund gjaldenda. Vaxtabætur frá fyrra
ári hækkuðu um 300 mil\jónir kr. en húsnæðisbætur lækka rnn 65 millj-
ónir. Innlegg á húsnæðisspamaðarreikninga tvöfölduðust miðað við fyrra
ár. Fyrirframgreiðsla hátekjuskatts er nú lögð á í fyrsta skipti. Kemur
hún á rúmlega 7.500 gjaldendur og nemur um 467 milljónum kr.
Indriði H. Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í yármálaráðuneytinu, segir að
niðurstaða álagningarinnar virðist
vera í nokkuð góðu samræmi við
áætlanir.
Samkvæmt frétt frá flármálaráðu-
neytinu voru á einstaklinga lagðir
alls 44,8 milljarðar króna og hafði
álagning hækkað um nálægt 400
milljónir króna frá árinu á undan.
Einstaklingar skattskyldir til tekju-
skatts og útsvars voru 191.208 og
hafði fjölgað um tæplega 1% frá árinu
áður. Tekjuskattar voru lagðir á
96.834 einstaklinga sem er nærri 1%
færri en árið áður. 94.374, eða rúm-
lega 49% allra skattskyldra, voru
skattfijálsir.
Telq'uskattur til ríkisins var 24,3
Dagskm
Senditíðni útvarpsstöðva -
ynd kvenna í bandarískum
myndaflokkum - Stöð 2 framleið-
ir tvo þætti um fornar reiðleiðir
- Bíóin í borginni
milljarðar króna en var í fyrra 24,2
milljarðar króna og hafði hækkað um
100 milljónir króna. Frá þessum lið
dragast bamabætur, bamabótaauki,
vaxtabætur og húsnæðisbætur að
flárhæð 7,4 milljarðar króna þannig
að til ríkissjóðs renna tæpir 17 millj-
arðar króna sem er um 180 milljónum
króna lægri fjárhæð en á síðasta ári.
Útsvar til sveitarfélaga var 16,2
milljarðar króna og hafði hækkað um
hálfan milljarð króna.
Eignarskattar, lagðir á einstak-
linga, vom 1,8 milljarður króna sem
er um 4,5% hækkun milli ára.
Skattstofn einstaklinga var lækk-
aður um 760 milljónir króna vegna
íjárfestingar í atvinnurekstri. Sú fjár-
hæð var 812 milljónir króna á síðasta
ári.
Álagning á lögaðila var alls 14,2
milljarðar króna og hafði lækkað um
4,4 milljarða króna frá síðasta ári,
aðallega vegna niðurfellingar að-
stöðugjalds. Telq'uskattur lögaðila var
3,9 milljarðar króna og lækkaði um
300 milljónir króna, eða um 6%.
Yfirlýsing að
gefnu tilefni
Að gefnu tilefni vil ég taka
fram að plastpoki sá sem sagður
er vera eitt helsta umræðuefni
sumra íslenskra fjölmiðla um
þessar mundir var mín eign ásamt
innihaldi hans, en ekki Bryndísar
Schram. Ástæða þess að ég hef
ekki komið þessum upplýsingum
fyrr á framfæri, er sú, að ég dvelst
erlendis og hef ekki haft spumir
af fjaðrafoki í fjölmiðlum af þessu
tilefni fyrr en nú.
Jafnframt skal skýrt tekið
fram, að það var aldrei ætlunin
að smygla neinu inn í landið, enda
engin tilraun gerð til að fela poka-
slq'attann eða innihald hans fyrir
tollgæslumönnum. Mér er tjáð að
tollgæslumenn geri slíka poka
upptæka á degi hveijum, þegar
sýnt er að ekki er um smygltil-
raun að ræða, heldur ókunnug-
leika á reglugerðarákvæðum. Eg
gerði mér því ekki grein fyrir, að
ég hefði gerst sek um glæp, sem
verðskuldaði þjóðarathygli, enda
hefur mér hvergi verið birt kæran.
Mér skilst hins vegar að Bryn-
dís hafi verið ákærð — í fjölmiðl-
um. Getur verið að það sé ekki
sama hver í hlut á, Brynja eða
Bryndís? Ástæðan til þess að ég
hélt ekki sjálf á pokaskjattanum
er sú að ferðataska mín tapaðist
í þessari ferð og ég var kölluð
frá, en taskan kom ekki í leitimar
fyrr en nokkmm dögum seinna.
Mér er að sönnu leitt að hafa
valdið vinkonu minni illu umtali
að ósekju og að hafa vakið „rétt-
láta reiði“ hinna siðprúðu — að
tilefnislausu.
Virðingarfyllst,
Bryiýa Benediktsdóttir,
stödd í Hattiesburg,
Mississippi, Bandaríkjunum.