Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993 Þórhallur Sigjóns- son — Minning Fæddur 12. maí 1919 Dáinn 17. júlí 1993 Laugardaginn 17. júlí síðastlið- inn andaðist Þórhallur Sigjónsson, fyrrverandi vörubílstjóri, á Vífils- staðaspítala eftir langvarandi veik- indi, sem hann bar með sannri prýði þótt vitað væri að hveiju stefndi. Hann var 74 ára þegar hann andað- ist, fæddur 12. maí 1919 á Skafta- felli í Vestmannaeyjum. Faðir hans var Sigjón Halldórsson vélstjóri og smiður í Vestmannaeyjum og víðar, sonur Halldórs Sæmundssonar bónda á Stóra-Bóli, Mýrum, Aust- ur-Skaftafellssýslu og konu hans Guðríðar Sæmundsdóttur frá Efri- Steinsmýri, Meðallandi, Vestur- Skaftafellssýslu. Móðir Þórhalls var Sigrún Runólfsdóttir húsmóðir, dóttir Runólfs Ingvarssonar bónda á Eystra-Hóli, Vestur-Landeyjum, Rangárvallasýslu. Kona Þórhalls, sem lifír mann sinn er Ólöf Hannesdóttir, fædd 21. september 1922 í Hnífsdal. Foreldr- ar hennar voru Hannes Ólason, verkstjóri og kona hans Valgerður Björnsdóttir frá Hólum, Vestur- Barðastrandarsýslu. Þau Þórhallur og Ólöf eignuðust þrjú börn, tvær dætur og einn son. Böm þeirra eru: Edda Friðrika, fædd 12. mars 1945, búsett í Kaliforníu; Birna Kristín, fædd 12. ágúst 1946, húsmóðir, býr í Vestmannaeyjum; Sigjón Rúnar, fæddur 12. desember 1947, vél- stjóri í Ólafsvík. Þórhallur stundaði sjómennsku og siglingar á árum fyrr, en lengst af var hann bílstjóri á Vörubílastöð Þróttar og starfsmaður Reykjavík- urborgar hjá gatnamálastjóra, og þar kynntumst við Þórhallur og áttum gott og farsælt samstarf. Hann var starfsmaður SVR og vagnstjóri hjá Strætisvögnum Minning Gyða Thorlacius Mig langar til að skrifa nokkur kveðjuorð vegna fráfalls vinkonu minnar Gyðu Thorlacius. Við kynnt- usmt fyrir meira en 50 árum er við vorum báðar meðlimir í fímleika- deild Armanns undir stjóm Jóns Þorsteinssonr. Þetta var hress hóp- ur, sem hefur haldið saman öll þessi ár. Gyða er sú þriðja sem fellur frá á tæpu ári. Vinátta okkar styrktist við það að eiginmenn okkar voru starfs- bræður og góðir vinir. Áttum við margar góðar stundir saman. Gyða og Hermundur Tómasson giftust 18. maí 1940 og áttu upp frá því sitt heimili á Bústaðavegi 93 í Reykjavík og þar bjó Gyða ein síð- ustu 10 árin, en Hermundur lést 1983. Heimili þeira bar vott um myndarskap og vandvirkni þeirra hjóna og ekki má gleyma að nefna garðinn, sem er fallegur svo af ber. Hann var Gyðu sannkallaður sælureitur. Þau hjónin eignuðust þijú böm, Sigmund, Bergljótu og Auði, sem er mesta dugnaðar- og sómafólk, og það má einnig segja um barnabörnin, sem em átta. Einnig átti Gyða tvö langömmu- börn. Hún hafði mikinn áhuga á ferða- lögum og náði á seinni árum að ferðast talsvert sér tii skemmtunar og fróðleiks. í nokkmm þessara ferða vomm við hjónin ferðafélagar hennar og eigum við mjög góðar minningar fra þeim. Síðast fómm við saman fyrir tæpum tveimur árum til Spánar og þar héldum við þijú upp á sjötíu og fímm ára af- mæli hennar. Eg vil svo fyrir mína hönd og Hallgríms votta börnum hennar og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Vigdís Jónsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og tengdasonur, HELGI HJÁLMARSSON, Granaskjóli 36, lést á heimili sínu mánudaginn 26. júlí. Berglind Sigurðardóttir, Arnar Sigurður Helgason, íris Alda Helgadóttir, Helgi Steinar Helgason, Margrét Guðmundsdóttir og Hjálmar Gislason, Alda Jónsdóttir og Sigurður Gunnarsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG PÉTURSDÓTTIR, Skarðsbraut 15, Akranesi, áður Ránarstíg 2, Sauðárkróki, lést í Sjúkrahúsi Akraness 18. júlí. Haukur Ármannsson, Sigrún Sigurðardóttir, Sigurður Ármannsson, Edda Bolladóttir, Sigþrúður Ármannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, RAGNHILDUR DAGBJÖRT JÓNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. júlí kl. 13.30. Jón Böðvarsson, Vilhelmfna S. Böðvarsdóttir, Valborg Sofffa Böðvarsdóttir, Bjarni Böðvarsson, Böðvar Böðvarsson, Sigmundur Böðvarsson. Jón Trausti Krist- jánsson — Minning Fæddur 1. júní 1928 Dáinn 21. júlí 1993 Reykjavíkur frá 1. maí 1966 til ágústloka 1969, og ók þá leið sem hét Austurhverfí, sem nú er aflögð fyrir allnokkrum árum. Hræddur er ég um að Þórhallur hafí ekki verið sáttur við þær breytingar sem nú eru fyrirhugaðar á starfsemi Strætisvagna Reykjavíkur. Hann taldi þær ekki til bóta. Þórhallur var ræðinn maður og fróðleiksfús, viðræðugóður og vin- sæll af sínum samstarfsmönnum. Hann hafði mikinn áhuga á stjóm- málum og var einlægur stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins og Mál- fundafélagsins Óðins, sem er félag launþega innan raða Sjálfstæðis- flokksins. Hann unni mjög þjóðleg- um fróðleik og alþýðlegum kveð- skap. Þórhallur var mikill og víðsýnn ferðamaður, bæði hérlendis og er- Iendis, skoðaði landið og kynnti sér af eigin raun landshagi og rekstur þjóðarbúsins. Oft lágu leiðir hans á æskuslóð- ir, til Eyja, í Landeyjamar og Með- allandið, en þar er fegurst fjalla- og jöklasýn á landi hér. Þórhallur var vinur vina sinna, þeim trúr og traustur bakhjarl og er hans saknað af vinum og samstarfsmönnum, sem minnast góðs félaga og vinar, sem alltaf var glaður og reifur, þótt á móti blési. Þess má geta að hann var svo bamgóður að til var tekið, og munu barnabörnin ekki síst hafa notið þess. Eg votta konu hans, börnum, barnabörnum og öðrum vanda- mönnum samúð. Góður maður er genginn. Pétur Hannesson. Einum æskufélaganum færra. Þannig er gangur þessa lífs. Þegar árin færast yfír, hverfa félagamir hver af öðmm niður í þá mold sem þeir em komnir af. Ég sem þessar línur rita, þekkti vel hinn látna, sem ég geri tilraun til að minnast. Orð era fátækleg þegar við stönd- um andspænis dauðanum, sem engu eirir. Jón Trausti var hann skírður. Falleg nöfn. Guðmundur Magnús- son, rithöfundurinn góðkunni, tók upp þetta nafn sem rithöfundar- heiti. Hinn látni var raunar oftast nefndur aðeins Trausti af þeim sem þekktu hann persónulega. Trausti var fæddur á Sjávarborg við Sauðárkrók, en þar vora þá foreldrar hans í húsmennsku. Það vora hjónin Kristján Guðbrands- son, dáinn 1943, um fertugt, og Sigrún Jónsdóttir (f. 1904). Ekki dvöldu þau lengi á Sjávarborg. Heimilið leystist upp síðar og Trausta var komið í fóstur. Hann var heppinn þar, því að hjónin á Efri-Mýram í Engihlíðarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu, tóku hann upp á arma sína og ólu hann upp frá fímm ára aldri. Bjarni Óskar Frímannsson, bóndi og odd- viti, og Ragnhildur Þórarinsdóttir vora Trausta sem bestu foreldrar. Hann hélt og tryggð við heimilið á Efri-Mýram alla tíð og fólkið þar við hann. Snemma þótti Trausti duglegur til allra starfa. Hann fór líka snemma að vinna. Man ég hann sem komungan dreng fara með póstinn fram á Laxárdal, en Refs- staðir var endastöðin þar. Mér fannst hann vera orðinn fullþroska mjög snemma. Vafalaust flýtir það fyrir andlegum og líkamlegum þroska að þurfa snemma að bera ábyrgð. Trausti vann allt fram að þeim tíma, að hann slasaðist í bíl- veltu við Bakkasel í september 1987 og lamaðist upp að mitti. Reiðarslag var það fyrir vin minn, Trausta. Lengi var tvísýnt um líf hans eftir þetta mikla slys, en hann hlaut furðu góðan bata og þrótt, svo að hann gat ekið sérhönnuðum bíl um skeið. Þegar Trausti varð sextugur, 1. júní 1988, var hann til æfinga á endurhæfíngardeild Borgarspítal- ans. Haldið var upp á afmælið að kvöldi afmælisdagsins í anddyri spitalans. Ekki hef ég tekið þátt í afmæli fyrr né síðar við slíkar að- stæður. Trausti lék þar við hvem sinn fíngur. Þetta gleymist ekki. Þarna las ég ljóð til Trausta, þar sem lífsbraut hans er rakin að nokkra, svo og uppruni og uppeldis- staður. Ekki mátti gleyma hjónun- um á Mýrum, sem fyrr er getið: Þar var engin eymd og kröm úti á lífsins hjami. Reyndust honum rausnarsöm Ragnhildur og Bjami. Trausti vann lengstaf við akstur bifreiða. Lengi var hann mjólkur- póstur um snjóasæla dali Austur- -Húnaþings. Þótti hann oft sýna þar mikinn dugnað og áræði. En síð- ustu árin sá hann um dreifingu pósts sem verktaki um meginhluta Húnaþings austan Gljúfurár. Ævistarfið: ökufór eftir Húnaþingi meður póst og mjólkurvör- ur - maðurinn orkuslyngi. Trausti var sem betur fór ekki einn á báti í lífínu. Ungur kvæntist hann henni Stellu Jóns, sem heitir raunar fullu nafni Anna Guðbjörg Jónsdóttir og er frá Blönduósi, skólasystir mín frá Reykjaskóla. Þeim fæddust fimm börn, sem öll lifa Hann sér ei til hugartjóns hraktist einn á vegi. Starfsöm konan, Stella Jóns, áuddi á nótt sem degi. Fæddust böm í búið þar, blómgast náði hapr. Áfram leið svo ævinnar annasamur dagur. Þessi minningarorð eru kveðja frá gömlum æskuvini. Ég þakka Trausta allt gamalt og gott og votta fjölskyldu hans og öðrum ættmennum innilega samúð við frá- fall hans. Auðunn Bragi Sveinsson frá Refsstöðum. Sigurborg Magnús dóttir — Minning Fædd 4. mars 1911 Dáin 21. júlí 1993 Þessi sumarmorgunn var ein- staklega fallegur. Sólin skein á Sogaveginum og borgin var rétt að hrista af sér nóttina. Fuglasöngur- inn hljómaði og upplagt fyrir Kela kött að reyna í sér veiðieðlið eða bara stríða fuglunum. Sennilega hefur það síðarnefnda orðið fyrir valinu, enda Keli köttur svo vel al- inn hjá henni ömmu Boggu. Hún hafði líka sagt að það skyldi nú ekki standa upp á sig að fæða katt- argreyið fyrst hann væri kominn inn á hennar heimili. Það sama gilti reyndar um alla þá sem komu á Sogaveginn; þar var alltaf hægt að fá skjól hjá henni ömmu Boggu, í víðustu merkingu þess orðs. Enda þótt fjölskyldan væri dreifð um heiminn, börn í Kanada og Danmörku og barnabörn í Svíþjóð, vissu allir hvar lífæð fjöl- skyldunnar og hjarta sló; á Soga- veginum hjá ömmu Boggu og Kidda. Einhvern veginn féllu öll vötn þangað. Á Sogaveginum sameinaðist fjöl- skyldan til að deila sínum gleði- og sorgarstundum. Þar var amma Bogga miðpunkturinn í tilveranni sem allir gátu treyst á. Það var alltaf heitt á könnunni og kaffið bragðaðist enn betur ef vísukom fékk að fljóta með. Amma Bogga átti nefnilega viðeigandi vísu við hvert tækifæri, hversu hversdags- legt sem það var. Hjá ömmu Boggu var nær stöðugur gestagangur, gestir sem rétt litu inn og þeir sem komu til að dvelja lengur. Enginn kom að læstum dyram á þeim bæ. Reyndar furðaði maður sig oft á því hve margir komust fyrir í litla húsinu, en lærðist jafnframt að gestrisni ræðst ekki af húsrými, heldur hjartarými húsráðenda. Af slíku var af nógu að taka hjá ömmu Boggu. Á meðan Keli köttur eltist við fuglana fór amma Bogga á fætur. Hún hellti auðvitað upp á könnuna og las Moggann sinn eins og alla aðra daga. Otrúlega margir höfðu fundið að Sogavegurinn kallaði þá til sin þessa síðustu daga og vikur. Það má segja að það hafí verið stanslaust ættarmót á Sogavegin- um því fólk dreif að, börn, barna- börn, bamabarnabörn óg vini. Þennan fallega morgun endurómaði allt húsið gleði þeirra stunda. Um- vafin ánægjulegum minningum síð- ustu daga og vikna dó hún amma Bogga. Ættingjar og vinir fjær og nær vita að ekkert verður samt eftir fráfall hennar. Sogavegurinn er all- ur annar. Hjarta fjölskyldunnar hefur misst úr takt. Saman verður hún að feta áfram veginn og fínna sér nýjan. Þegar sárastu sorginni og sökn- uðinum sleppir munu ljúfar minn- ingar um ljúfa konu létta leitina. Eitt ég hræðist, ef svo fer, að ég kunni að gleyma þér, þér sem gafst mér lífsins týndu trú. Allt hið bezta, er á ég geymt, allt sem mig hefur Ijúfast dreymt, það er gleymt og týnt um leið, því það varet þú. (Tómas Guðmundsson.) Anna Sigrún Baldursdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.