Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
31
Minning
Petrína R. Guð
mundsdóttir
Fædd 10. september 1910
Dáin 22. júlí 1993
Það var sól og sumarylur þegar
hún Peta amma kvaddi sæl í faðmi
ástkærs eiginmanns síns. Þannig
munum við ávallt minnast hennar,
glæsileg kona á velli, með sterkan
persónuleika, sem bar sterk áhrif
og hlýju hvar sem hún fór.
Petrína R. Guðmundsdóttir
fæddist á Kvíabryggju í Grundar-
firði 10. september 1910. Hún var
dóttir Guðmundar Friðrikssonar
sjómanns og Maríu Oktavíu Jó-
hannsdóttur og var eina barn
þeirra. Amma missti móður sína
ung að árum, og sökum starfa föð-
ur hennar var henni komið í fóstur.
Hún var í fóstri hjá sæmdarhjónun-
um Jóni Lárussyni og Helgu Gróu
Sigurðardóttur á þeirra mikla
menningarheimili Gröf í Grundar-
firði sín uppvaxtarár, fermdist það-
an og varð fyrir sterkum áhrifum
frá þeim bæ.
Á unglingsárunum lá leið hennar
suður til Reykjavíkur, til ömmu
sinnar. Hún stundaði nám og lauk
frá gagnfræðaskóla ísleifs Jónsson-
ar við Bergstaðastræti. Þaðan lá
leiðin út á vinnumarkaðinn, og
gerðist hún farstúlka á heimilum.
Árið 1933 eignaðist hún son af
fyrra hjónabandi,Jóhann R. Símon-
arson, sem er skipstjóri, kvæntur
Helgu Þ. Gunnarsdóttur, og eru þau
búsett á ísafirði.
Aftur lá leiðin á vinnumarkaðinn,
nú sem starfsstúlka hjá Ríkisskip-
um og var _hún þerna á Súðinni og
Esjunni. Ávallt minntist amma
þessa tíma með bros á vör, enda
þótti henni ákaflega vænt um þetta
starf. Seinna ferðaðist hún og eftir-
lifandi eiginmaður hennar mikið
sem farþegar með skipum félags-
ins, og mikil var eftirvæntingin hjá
okkur barnabörnunum og tignarleg
var aðkoman þegar Gullfoss lagðist
að bryggju á Isafirði með þau inn-
anborðs.
Upp úr 1940 kynntist amma
ungum öðlingsmanni norðan af
Siglufirði. Björgvin V. Færseth er
verslunarmaður og var um langan
tíma verslunarstjóri hjá Kron og
Mjólkursamsölunni og opnaði síðan
Hagabúðina við Hjarðarhaga.
Petrína og Björgvin giftust 18.
júlí 1942, og var einstaklega ástrikt
og kært með þeim hjónum þau lið-
lega fímmtíu og eitt ár sem þau
áttu saman. Björgvin sýndi ömmu
alveg einstaka hlýju og ástúð allt
frá fyrstu kynnum þeirra fram á
síðustu stundu. Hans fyrsta verk
var að fá hana til að hætta vinnu
og gerast heimavinnandi húsmóðir
svo að þau mættu eiga sem flestar
frístundir saman. Oftsinnis hvíslaði
hún amma að okkur barnbörnunum,
að hennar mesta gæfa í lifínu hafi
verið að kynnast honum Venna sín-
um. Þeim hjónum varð ekki barna
auðið.
Brids var stór þáttur í lífí ömmu
og Björgvins. Þau voru virkir spilar-
ar í spilaklúbbum borgarinnar, og
var amma félagi í Bridsfélagi
kvenna í Reykjavík og með fremstu
spilurum landsins. Þau hjónin spil-
uðu fram undir það síðasta og víst
er að erfitt verður að manna slíka
stöð þar sem hún Petrína fór.
Árið 1962 var stór þáttur í lífi
þeirra hjóna. Þau, ásamt Andrési
bróður Björgvins og Sigrúnu Eiríks-
dóttur konu hans, festu kaup á jörð-
inni Gilslaug í Fljótum. Þar áttu
þau margar ánægjustundirnar og
þaðan eru margar minningarnar.
Ávallt þegar komið var að Gili eftir
langa keyrslu, skoppuðum við
krakkarnir út úr bílunum eins og
kýr úr fjósi á vorin. Þegar útrásinni
hafði verið fullnægt, færðist ró yfir
menn og dýr, allir stóðu hljóðir.
Kyrrðin, árniðurinn og fuglakvakið
var svo dásamlegt að hlusta á, að
jafnvel við ærslafengin börnin upp-
lifðum dýrðina eitt andartak.
Oft var veisla á Gili. Húsbóndinn
fór niður að á með veiðistöngina
og renndi fyrir bleikju og setti jafn-
vel í lax. Á meðan arkaði húsmóðir-
in með boxið sitt rétt upp fyrir
. bæinn og tíndi bláber. Steikt bleikja
og bláber með rjóma á borðum, og
enginn fékk að standa upp fyrr en
að hafa fengið nóg. Ein síðasta
hugsun ömmu var, hvort þau hjónin
kæmust nú í berin í sumar. Víst
er að tómlegt verður á Gilslaug
þegar húsmóðurina vantar.
Þau hjón voru höfðingjar heim
að sækja á heimili þeirra í Samtúni
20. Margt var skrafað og lærdóms-
ríkt var fyrir okkur nútímabörnin
að hlusta á lífssýn konu á jafn
greindarlegan og rökfastan hátt og
Peta amma flutti mál sitt. Aldrei
var farið frá þeim hjónum án þess
að sest hafi verið að dekkuðu borði
og allir fengið nægju sína.
Öll gullin sem amma gaf okkur
krökkunum bera vott um þá um-
hyggju og hjartahlýju sem hún
sýndi okkur. Hennar verður sárt
saknað af yngstu kynslóðinni sem
hún var svo hjartahlý og góð en
fékk að njóta hennar allt of stutt.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu' og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir)
Það hlýtur að vera sæla hvers
deyjandi manns að njóta samvista
við ástvini sína á dauðastundu. Hún
Peta amma kvaddi þennan heim
umvafin ást og umhyggju elskulegs
eiginmanns síns.
Elsku Björgvin, við systkinin
Bjössi, Maja og Gummi og fjölskyld-
ur okkar vottum þér okkar innilegu
samúð og biðjum Guð að styrkja
þig á þessari erfiðu stundu. Ömmu
þökkum við fyrir árin sem við feng-
um að njóta hennar.
Blessuð sé minning liennar.
Guðmundur Fr. Jóhannsson.
Hún kvaddi þennan heim á heim-
ili sínu á fögrum sumardegi, hún
hafði átt við heilsuleysi að stríða
um lengri tíma. Aldrei gaf hún þó
upp vonina, að hún myndi hressast
svo að þau hjónin mættu njóta sum-
ardaga í sælureitnum þeirra í Gils-
laug í Fljótum. Það fór á annan
veg, hún fékk hægt andlát fimmtu-
daginn 22. júlí, með elskulegan eig-
inmann sinn sér við hlið. Þar með
gat hann uppfyllt óskir hennar að
fá að dveljast á heimili sínu sem
lengst.
Petrína giftist Björgvini Færseth
18. júlí 1942 og var það mikið
gæfuspor svo umhyggjusamur sem
hann reyrfdist henni alla tíð. Höfðu
þau því gengið saman sinn æviveg
í rúmlega 51 ár.
Petrína var glæsileg kona, vel
klædd og stórmyndarleg húsmóðir.
Gestgjafahlutverkið var henni í blóð
borið. Minnumst við vinir hennar
\
t
Ástkær unnusti minn, sonur, faöir,
bróðir okkar, tengdasonur og mágur,
HÖSKULDUR HEIÐAR
BJARNASON,
Bjarkargrund 36,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju
föstudaginn 30. júlí kl. 11.00.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Unnur Sólveig Jónsdóttir,
Ingibjörg Guðlaugsdóttir,
Hafþór, Sandra Rós,
systkini hins látna
og aðrir vandamenn.
Eríidr\kkjur
(ilæsileg kaííi-
Iilítðborð íiillegir
Síilir og mjög
gðð jljÓllllStíL
Upplýsingar
ísúna22322
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, tengdafaðir og afi,
EINAR Þ. MATHIESEN,
Litlubæjarvör 2,
Bessastaðahreppi,
er lést 25. júlí, verður jarðsunginn frá
Bessastaðakirkju föstudaginn 30. júlí
kl. 13.30.
Erna S. Mathiesen,
Jens G. Einarsson, Kristfn Ósk Þorleifsdóttir,
Árni Sv. Mathiesen, Sigrún Ósk Sigurðardóttir,
ÓlafurTr. Mathiesen, Ingibjörg Harðardóttir,
Einar Þ. Mathiesen, Svanhildur Jóhannesdótttir,
Svava E. Mathiesen, Ingvar Guðmundsson,
Kristján Geir Mathiesen,
Svava E. Mathiesen
og barnabörn.
heimsóknanna til þeirra hjóna hér
í bæ og einnig í sumarhús þeirra í
Gilslaug í Fljótum. Þar dvöldu þau
hjónin á hveiju sumri og langt fram
á haust, ef veður leyfði. Þar var
þeirra unaðsreitur, enda fagurt
landslag og blábetjalyngið náði al-
veg heim að bæjardyrum.
Ef ég komst ekki í heimsókn til
þeirra hjóna komu þau bara fær-
andi hendi með bláberin til mín.
Eg, eins og aðrir vinir þeirra, á
eftir að sakna samverustundanna
með Petrínu og Björgvini og þakka
alla vináttu og tryggð í minn garð,
þann tíma er leiðir okkár lágu sam-
an. Petrína var góður brids-spilari
og virkur þátttakandi í Bridgefélagi
kvenna hér áður fyrr. Þrátt fyrir
heilsuleysi síðari ára þótti henni
gaman að taka í spil og spilaði þá
við kunningja sína ef heilsan leyfði.
Petrína hélt andlegri reisn til
hinstu stundar.
Petrína eignaðist einn son, Jó-
hann Símonarson, skipstjóra og
mikinn aflamann, og gladdist hún
yfír velgengni hans og fylgdist með
störfum hans á sjónum. Jóhann er
kvæntur Helgu Gunnarsdóttur og
eiga þau fjögur börn, öll voru þau
Petrínu mjög kær, og sýndi hún
okkur vinum sínum myndir af þeim.
Eg kveð Petrínu með þessum
fátæklegu kveðjuorðum og er þá
efst í huga þakklæti fyrir vináttu
og tryggð hennar við mig.
Innilegar samúðarkveðjur til ást-
vina hennar allra.
Blessuð sé minning hennar.
Halla Bergþórsdóttir.
Elsku Peta mín.
Nú ert þú farin eitthvað langt í
burtu. Mig langar til að hafa þig
ennþá hjá mér, en ég veit að þér
líður miklu betur þar sem þú ert
núna. Nú þarftu aldrei að pústa þig
eins og þú kallaðir það að taka
astmalyfin.
Kannski hittumst við aftur í
himnaríki. Ég sé þig fyrir mér þar
sem þú ert eitthvað að argast í
honum Lykla-Pétri. Þá getum við
sest niður í grasið sem er miklu
grænna en grasið á jörðinni til þess
að riíja upp allt það sem við sáum,
hlustuðum á, töluðum um, fundum
fyrir og gerðum saman.
Manstu þegar við drukkum kaffi,
borðuðum kandís og skoðuðum
dönsku blöðin? Manstu þegar ég fór
til Ameríku og þú hélst að ég kæmi
aldrei til baka? Manstu þegar ég
borðaði hafragrautshræring, en
þverneitaði að borða skyr eins og
Venni, af því að ég vildi gera alveg
eins og þú? Manstu þegar við spiluð-
um kasjón og ég fékk alltaf alla
tvistana? Manstu, að við hreinsuð-
um flugurnar úr gluggakistunni á
Gilshaug með jókerum? Manstu
þegar ég sofnaði hjá ykkur Venna,
og hann hélt á mér yfir í íbúðina
til pabba og mömmu, en þú komst
á eftir með nammi vafið inn í eld-
húsrúllubréf og settir á rúmstokk-
inn minn?
Manstu þegar við týndum ber í
sveitinni? Manstu, að þú sagðir
mér, Evu og Nonna, að við ættum
að drekka nýmjólk, en ekki létt-
mjólk af því að léttmjólk væri ekki
nógu góð? Manstu þegar við héldum
okkur í uppblásna bananann og lét-
um okkur fljóta í lauginni á Gils-
haug? Manstu, að ég vildi geyma
„snýtibréf* í erminni eins og þú?
Manstu þegar Eva systir braut róf-
una á Felix ketti sem var uppi á
píanóinu og pabbi límdi það vitlaust
á? Manstu þegar þú leyfðir mér
stundum að hlusta á ballerínuspila-
dósina? Manstu þetta allt saman
eins og ég? Þakka þér fyrir að hafa
leyft mér að vera vinkona þín.
Sigrún Erla.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
INGÓLFUR ÁSBJÖRNSSON,
Byggðavegi 115,
Akureyri,
fyrrum bóndi í Stóra-Dal,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar 26. júlí, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeir, sem vildu minn-
ast hins látna, láti Fjórðungssjúkrahús Akureyrar njóta þess.
Maria Guðmundsdóttir,
Guðrún Ingólfsdóttir, Ingi Jóhannesson,
Sóley Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Hjartkær eiginmaður minn,
SÆVALDUR SIGURJÓNSSON,
Grundargerði 15,
rteykjavík,
er lést 23. júlí sl., veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 30. júlí kl. 15.00.
Jóna Halldórsdóttir.
+
Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls móður okkar, tengda-
móð ur, systur, ömmu og langömmu,
JÓNU VILHJÁLMSDÓTTUR
frá Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir færum við kvenfélaginu Líkn, Vestmannaeyjum,
og Oddfellowreglunni í Vestmannaeyjum og Reykjavík.
Ásta Vigfúsdóttir, Adolf Óskarsson,
Lára Vigfúsdóttir, Jóhann F. Guðmundsson,
Soffia Vilhjálmsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.