Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þótt þú hafir ástæðu til að reiðast yfir þróun mála á vinnustað ættir þú ekki að missa stjóm á skapinu. Vinafundur í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Troðnar slóðir reynast þér vel í viðskiptum í dag, en þú þarft að sýna þolinmæði í samskiptum við bam eða ástvin. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Eitthvað getur farið úr skorðum heima í dag. Láttu ekki ættingja gjalda þess þó hann eigi þar einhveija sök. Krabbi (21. júní - 22. júlf) >*$0 Það bitnar á þér síðar ef þú lætur skapið hlaupa með þig í gönur í dag. Sýndu fag- mennsku í starfí og allt gengur þér í haginn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ef þú sýnir ekki aðgát við innkaupin í dag gætir þú keypt einhvem óþarfa. Finndu þér afsökun til að komast hjá leiðinda sam- kvæmi. Meyja (23. ágúst - 22. september) Vertu ekki að ráðskast of mikið með aðra í dag, þeir gætu tekið það nærri sér. Þú þarft ekki að beita hörku til að ná árangri. Vog (23. sept. - 22. október) Oft er flagð undir fögru skinni og útlitið getur blekkt. Síðdegis nærð þú góðum árangri við lausn verkefnis í vinnunni. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Vinur eða starfsfélagi geta valdið þér gremju í dag, en fjölskyldulífíð bætir þar úr og þú nýtur kvöldsins heima. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Þú þarft að sýna lipurð og lagni í viðskiptum við ráða- menn í dag. Með góðri sam- vinnu við félaga næst góður árangur. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þér verður mest úr verki út af fyrir þig og án afskipta frá öðrum. Þá þarft þú ekki heldur að reiða þig á skap- styggan félaga. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Ágreiningur getur komið upp varðandi fjármálin. Sýndarmennska höfðar litt til þín og þú kýst heldur féiagsskap traustra vina. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú eyðir frístundum í glímu við verkefni úr vinnunni. Ættingi þarfnast aukinnar umhyggju og aðstoðar í dag. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staðreynda. DÝRAGLENS -------------------------- ffl/l/lA HL e/ZJjN ViK&lST VEEA œs>/s BýSHA ALGehHSJ HVÍLÍtd tNNéAS íe/F/ICALÍ/r) AdAMNA > m þ&GA/Z. PA£> Ff/Z AE> LLOMA FKA/H AAdAKh CIG/N Si/ídA- Ge/tejj/NGi T/ GRETTIR TOMMI OG JENNI UÓSKA 1“r-Dnim a ivi r\ rbKDINAND SMÁFÓLK Halló, ó, ert þetta þú, stóri bróðir? you're atcamranpi'mnot' HA HA HAHAHAÍ/ Þú ert í sumarbúðum, en ekki ég! HA HA HA HA! BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Pólveijamir Gawrys og Las- oki þurfa almennt ekki mikið af háspilum til að láta eftir sér að dobla mótherjana. Það kom því á óvart að þeir skyldu hlífa Þor- láki Jónssyni við rauða miðann í þessu spili: Austur gefur, allir á hættu. Vestur ♦ KG86 ♦ Á765 ♦ 105 + D75 Norður ♦ D732 ¥ G1093 ♦ 9863 ♦ 10 Suður ♦ - Austur ♦ Á10954 ¥62 ♦ K72 ♦ K93 ¥ KD4 ♦ ÁDG4 ♦ ÁG8642 Vestur Norður Austur Suður Lasoki Guðm. Gawrys Þorl. — Pass Pass 1 lauf Pass 1 hjarta 1 spaði Dobl* 2 spaðar Pass Pass 3 tíglar 3 spaðar Pass Pass 4 hjörtu Pass 5 tíglar Allir pass *stuðnings-dobl: sýnir 3-lit í hjarta Dálkahöfundur hefur oft átt betri spil fyrir svari á einu hjarta og leið því ekkert allt of vel þegar ljóst var að Þorlákur ætl- aði ekki að spila minna en geim. Þorlákur trompaði spaðaút- spilið og virti blindan fýrir sér með nokkurri vanþóknun. Lagði svo niður hjartakóng. Lasoki dúkkaði eldsnöggt og Þorlákur þakkaði þannig fyrir sig: Tók laufás og trompaði lauf. Svínaði síðan tíguldrottningu. Trompaði aftur lauf (sem nú var orðið frítt) og svínaði aftur í tromp- inu. Tígulásinn tók kóng Gawrys og þrír fríslagir á lauf komu slögunum upp i 11. Spilið hrynur auðvitað ef Las- oki drepur strax á hjartaás og spilar spaða. Hinu megin náðu Balicki og Zmudizinki að stansa í 4 tíglum, sem eiga að vinnast ef sagnhafi spilar beint af aug- um: trompar út laufið og svínar tvisar í trompi. En hann hafði ekki trúað á draumaleguna og fór að fikta í hjartanu. Jón og Sævar brugðust ekki í vörninni, tóku á hjartaás og héldu áfram með spaðann. Einn niður. Umsjón Margeir Pétursson Þessi staða kom upp á milli- svæðamótinu í Biel á sunnudaginn í mikilvægri skák gamalkunnra stórmeistara. Lajos Portisch (2.585), Ungveijalandi, 56 ára, hafði hvítt og átti leik, og Boris Gulko (2.635), Bandaríkjunum, 46 ára, var með svart. Gulko lék síðast 23. - Rf6xd5?, drap hvítan riddara á d5. Svar Ungveijans hefur vafa- laust komið honum mikið á óvart: 24. Dxd5+! og svartur gafst upp, því ekki má hann taka drottninguna. Eftir 24. - Hxd5, 25. Hf8 er hann mát og 24. - Be6, 25. Dxe5 tap- ar manni. Portisch á mjög góða möguleika á að komast áfram, en stigahæsti skákmaður Ungveijalands, Júdit Polgar, hefur átt við mótlæti að stríða. Ferill Portisch er afar glæsilegur, hann hefur þegar komist átta sinnum í áskorenda- keppnina, þar af sex sinnum óslit- ið frá 1973 til 1987.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.