Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 4

Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 4
VEÐUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993 Spáð aðgerðalitlu veðri um mestu ferðahelgi ársins Útlit fyrir að fólk dreifist meira um landið en áður VEÐURHORFUR I DAG. 29. JUU YFIRUT: Um 400 km austnorðaustur af Langanesi er 990 mb lægð sem þokast vestur og grynnist. Frá henni liggur lægðardrag með suðaustur- strönd landsins. Yfir N-Grænlandi er síðan 1.018 mb hæð. SPA: Norðlæg átt, víða strekkingur vestanlands en hægari austantil. Afram nokkuð vætusamt á Norður- og Norðausturlandi, en sunnantil verður nokkuð bjart veður. Þar má búast við 11-17 stiga hita, en áfram verður svalt norðan heiða. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðanátt, fremur hæg. Skúrir norðan- og austanlands, en bjartviðri um sunnanvert landið. Hiti frá 6 til 16 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Norðan- og norðaustangola eða -kaldi. Skýj- að norðan- og austanlands, en bjartviðri um sunnan- og suðvestanvert landiö. Hiti 8 til 15 stig. HORFUR Á SUNNUDAG: Norðvestangola, víða skýjað vestan- og norð- anlands en bjartviðri suðaustan- og austanlands. Hiti 8 til 10 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsimi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt Léttskýjað f r r * r * f f * f f f f r * r Rigning Slydda & Hálfskýjað Skýjað Alskýjað v Ý V Skúrír Slydduél Él * * * * * * * * Snjókoma Sunnan, 4 vindstig. Vindörín sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig V Súld = Þoka ít'9-. ■p FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Fært er orðið um flesta hálendisvegi. Fært er orðið um Syðra-Fjallabak og um Nyrðra-Fjallabak. Gæsavatnaleið og Sprengisandsleið úr Skaga- firði og Éyjafirði eru enn ófærar. Víða er unnið við vegagerð, og eru vegfarendur að gefnu tilefni beðnir að virða þær merkingar sem þar eru. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ígrænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veöur Akureyri 6 rigning Reykjavlk vantar Björgvin 13 skýjað Helsinkl 16 skýjaö Kaupmarmahöfn 16 skýjaö Narosarasuaq 12 heiðskfrt Nuuk 9 léttskýjaö Ósló 18 akýjað Stokkhólmur 17 skúr Þórahöfn 10 skýjað Algarve 28 heiðsklrt Amsterdam 19 skýjað Barceiona 28 heiöskírt Berlín 17 rignlng Chicago vantar Feneyjar 26 halfskýjað Frankfurt 21 rigning Glasgow 16 skúr Hamborg 19 skúr London 22 skýjað LosAngeles 18 alskýjað Lúxemborg 17 rigning Madríd 35 heiðskírt Malaga 28 heiðskfrt Mallorca 27 heiðskirt Montreal 21 iéttskýjað New York 25 heiðskírt Orlando 23 þokumóða Parí8 21 alskýjað Madeira 23 léttskýjað Róm 27 heíð8kírt Vín 20 skúr Washington 28 léttskýjað Wlnnipeg 15 8kýj8ð Áhöfn þyrlunnar ÁHÖFN þyrlunnar í útkallinu í Skerjafjörðinn. Á myndinni sjást þeir Benóný Ásgrimsson flugstjóri, Hafsteinn Hreiðarsson flugmaður, Árni Jónasson sigmaður, Halldór B. Nellet spilmaður og Sigurður E. Sigurðs- son læknir. Gæsluþyrlan í þijú útköll á einum degi Var orðið spum- ing um mínútur - segir Benóný Ásgrímsson um skútuslysið TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar fór alls í þrjú útköll sl. þriðjudag en það er óvenjumikill fjöldi útkalla á einum degi. Benóný Ásgrímsson sem var flugstjóri í tveimur útkallanna segist vart muna eftir degi þar sem jafn mikið var að gera hjá þyrlunni. Síðasta útkallið var kl. 23.24 eftir að skútu hvolfdi í Skerjafirði. Fann þyrlan annan skipbrotsmanna í sjónum þrátt fyrir að skyggni væri orðið slæmt. Segir Benóný að þar hefði það verið spurning um mínútur áður en myrkur hefði haml- að leitinni. Fyrsta útkall dagsins var sjúkra- flug vegna umferðarslyss á Snæfells- nesi en síðdegis um daginn var þyrl- an kölluð út vegna leitarinnar að trillusjómanninum á Nökkva frá Flateyri. „Við fórum í það útkall um sexleytið og vorum komnir norður í Breiðafjörð þegar við heyrðum að Guðbjartur hefði tekið manninn um borð,“ segir Benóný. „Þá snerum við aftur til baka og lentum í Reykjavík um klukkan níu um kvöldið.“ í Ijósaskiptunum Útkallið vegna skútunnar í Skeija- firði kom síðan um hálftólfleytið. „Það mátti ekki miklu muna þar því farið var að rökkva og komið fram í ljósaskiptin er við hófum leitina að manninum sem saknað var af skút- unni,“ segir Benóný. „Þetta var mín- útuspursmál því maðurinn var orðinn mjög þrekaður þegar við náðum hon- um upp úr sjónum. Það var einkum tvennt sem hjálpaði okkur við að finna manninn svo fljótt sem raun varð á. í fyrsta lagi var leitarsvæðið mjög afmarkað og það hjálpaði okk- ur mikið og í öðru lagi var maðurinn í rauðu björgunarvesti. Það er spurn- ing hvort við hefðum komið auga á hann dökkklæddan." Tyrknesk stiómvöld Handtöku- skipun á HalimAl TYRKNESK sljórnvöld hafa gefið út handtökuskipun á hendur Hal- im A1 fyrrum eiginmanni Sophiu Hansen. Skuli hann handtekinn hvar og hvenær sem til hans náist. Eftir að Halim hefur verið hand- tekin er gert ráð fyrir að hann verði færður í fangageymslur. Síðan verði hann færður ríkissaksóknara í Ist- anbúl til yfírheyrslu. Samtök um vestræna samvinnu Helmut Schmidt heldur fyrirlestur HELMUT Schmidt fyrrum kansl- ari V-Þýskalands er væntanlegur til íslands í september í boði Sam- taka um vestræna samvinnu. Að sögn Jóns Hákonar Magnússonar formanns SVS mun Schmidt flylja fyrirlestur á vegum samtakanna laugardaginn 25. september. Helmut Schmidt er 74 ára gam- all. Hann var kanslari Sambandslýð- veldisins Þýskalands í stjóm jafnað- armanna á árunum 1974 til 1982. Meðan hann gegndi því embætti kom hann í opinbera heimsókn til Islands sumarið 1977. Frá árinu 1983 hefur Helmut Schmidt verið aðalritstjóri dagblaðsins Die Zeit, sem gefíð er út í heimaborg hans, Hamborg. Hin síð- ari ár hefur hann jafnframt verið eftirsóttur ræðumaður og fyrirlesari vestanhafs og austan. Fyrirlestur Schmidts hér á landi mun fyalla um stöðu efnahags- og stjómmála í Evrópu nú á dögum, með sérstöku tilliti til stöðu og hags- muna íslands, að sögn Jóns Hákonar Mágnússonar. Helmut Schmidt, fyrrum kansl- ari V-Þýskalands. HÁTT í fjögur þúsund manns eru þegar búnir að ákveða að fara á Þjóðhátíð í Eyjum um Verslunarmannahelgina og hafa á þriðja þúsund miðar selst í forsölu. Á aðrar stórar útihátíðir eins og bindindismótið í Galtalækjarskógi og Eiðar '93 er ekki eins skýrt hversu margir koma enda auðvelt að komast þangað á eigin vegum. Svo virðist sem það sé að færast í aukana að fólk leyti minna en áður á skipulagðar útihátíð- ir og frekar á staði þar sem færra fólk er. Hátt í tvö þúsund farþegar munu á lendingarljósum á Egilsstaðafiug- fljúga á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í dag og á morgun og tvö þúsund til viðbótar eiga pantað far með Herjólfi. A bindindismótið í Galtalæk hafa um 500 keypt miða í forsölu en þá eru börn ekki talin með þar sem þau fá ókeypis inn á svæðið. í Galta- lækjarskóg mæta árlega um verslun- armannahelgina átta til tíu þúsund manns að sögn Guðna R. Björnsson- ar, blaðafulltrúa mótsins. Hann sagði að venjan væri að um 90% af gestum mótsins kæmu á bflum. Jónas Jóhannsson framkvæmda- stjóri Eiða ’93 segir að í fyrra hafi langflestir komið á bflum á hátíðina. Ef hins vegar hægt verði að kveikja velli muni þota frá flugfélaginu Atl- anta fljúga með mótsgesti frá Reykjavík til Egilsstaða. Margir leita að ró og næði Ferðamáti landsmanna um versl- unarmannahelgina virðist vera að þróast í það að fólk leiti sífellt meira á rólegri og fámennari staði, þar sem ekki eru skipulögð hátíðarhöld. Þetta sagðist Ómar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Austurleiða, hafa orðið mikið var við í fyrra og núna aftur í ár. Hann sagði að hjá Austurleiðum hefðu undanfamir dagar verið á ró- legri nótunum og fólk virtist ætla að dreifast á fleiri staði en áður. Dæmi um þetta er að á Búðum á Snæfellsnesi verða um 300 til 400 manns í tjöldum og er búinn að vera biðlisti síðan sl. sunnudag. Þetta er árlegur viðburður á Búðum. Rólyndisveður um helgina „Það er útlit fyrir að það verði rólyndisveður um mest allt landið föstudag, laugardag og sunnudag. Norðanáttin er að ganga niður á föstudaginn og þá verður væntan- lega ennþá svalt og einhver væta fyrir norðan en öllu bjartara og sæmilega hlýtt um landið sunnan- vert. Á laugardaginn verður hæglæt- isveður á Iandinu, hægur vindur og víðast verður úrkomulaust eða úr- komulítið og það ætti sumstaðar að sjást til sólar einkum þó um landið sunnan- og austanvert,“ sagði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Á sunnudaginn sagði hann að útlit væri fyrir hæga vestanátt með skýj- uðu veðri um landið vestanvert og með norðurströndinni en þokkalega björtu í öðrum landshlutum. 16 Heimild: Veðurotofa Islanda (Byggt é veðurapá.kl. 16.15 (gœr) ÍDAGkl. 12.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.