Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 14

Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 14
14______________ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993_ Quo Vadis Islands II Markaðssetning o g vísindi í lokuðu hagkerfi eftir Alfreð Jolson Kaup og sala er næstum eins gamalt og maðurinn. Upphaflega var verslað með vöruskiptum. Þessi verslunarmáti er reyndar oft notað- ur ænn þann dag í dag. Nútíma vísindi markaðssetningar er kennd í skólum og fyrirtækjum um allan heim. Það er athyglisvert að Japan, land, sem var með -mjög lokuðu samfélagi og sem var mjög fast- heldið á rótgróna siði, er orðið eitt mesta markaðsveldi heimsins. Jap- anir komu auga á mikilvægi við- skiptavinarins í viðskiptum og hafa fest sig í sessi sem eitt mestá fjár- málaveldi heims. - Mér finnst að kristið samfélag ætti að tileinka sér hugsunarhátt eintaklingsins og stefna að því að verða farsælt markaðssetningar- þjóðfélag. Eitt mikilvægasta atriði markaðssetningar er að meta og virða viðskiptavininn sem persónu. Viðskiptavinurinn er kóngur. Það verður að þjóna viðskiptavininum og virða hann. Þörfum viðskipta- vinarins verður að fullnægja. Það er dásamlegur atburður þeg- ar viðskiptavinurinn gengur inn í búðina eða sýningarsalinn. Það verður að taka á móti honum og bjóða hann velkominn. — „Get ég aðstoðað?", „Er eitthvað sem ég get gert fyrir yður?“, „Gerið svo vel að Iitast um, ég er hérna til að aðstoða yður“. Aldrei má stöðugt ónáða viðskiptavininn. Því miður verð ég að segja eftir að hafa verið viðskiptavinur á ís- landi í fimm ár, að svona móttaka er undantekning frekar en regla. Oft er enginn sölumaður sjáanleg- ur. Enginn tekur á móti þér. Ný- lega, þegar ég var á leiðinni út úr verslun birtist einhver úr hliðarher- bergi. I öðru tilviki er ég var kom- inn út úr búðinni átti ég hálft í hvoru von á að einhver kæmi hlaup- andi á eftir mér. Það var aðeins draumur. Enginn kom. í enn einu tilfelli var ég að fjárfesta í bíl. Það var eins og ég væri ósýnilegi maðurinn í búðinni. Enginn sölu- maður birtist. Ég fór og festi kaup á bíl annars staðar. Arabar, Afr- íkubúar og Indvetjar myndu koma hlaupandi á eftir viðskiptavininum undir sömu kringumstæðum. Af hvetju er þetta allt of oft al- gengt hér- á íslandi. Er það af því að sölufólkið heldur að viðskipta- vinurinn sé of sjálfstæður, að hann vilji ekki láta trufla sig? Eða er sölumaðurinn sjálfur kóngurinn, frekar en viðskiptavinurinn? Finnst honum eða henni of lítillækkandi að eiga við svona óvita? Ég myndi kalla þetta mikil mistök í markaðs- setningu og eru þau alltof algeng hérna. Svona á sér stað annars staðar líka en á litlu markaðssvæði eins og hérna er það alltof áberandi. Kannski er þetta fólk illa laun- að, eða að sölumaðurinn fær litla eða enga hagnaðarprósentu af sölu, eða hreinlega kærir sig kollóttan um viðskiptavininn. Matvælaiðnaðurinn þarfnast hæfileika á sviði markaðssetningar, sölu og útstillinga. Alltof oft er „Mér finnst að kristið samfélag ætti að til- einka sér hugsunarhátt eintaklingsins og stefna að því að verða frasælt markaðssetningarþjóð- félag. Eitt mikilvæg- asta atriði markaðs- setningar er að meta og virða viðskiptavin- inn sem persónu.“ ólag á útstillingum. Stundum virð- ist enginn hugsun liggja að baki útstillingum. Við afgreiðslukassa stórmark- aða (sérstaklega þar sem vörur eru rafmerktar) er hinum keyptu vör- um (oft mjög dýrum) hrúgað sam- an. Mjög sjaldan er nokkra hjálp að fá við að koma vörunum í plast- pokana. Afgreiðslufólkið horfir góðlátlega á meðan viðskiptavinur- inn baslast við að koma vörunum í pokana og koma þeim frá. í sum- um löndum er pökkunarfólk sem hjálpar viðskiptavininum og flýtir þannig fyrir. Héma er líka um að ræða kæruleysi. í mörgum búðum er líka óljóst hvaða matvæli eru fáanleg og hvar þau eru staðsett. Avextir og græn- meti er viktað og verðlagt en við- skiptavinurinn verður sjálfur að loka pokanum. í Bandaríkjunum Alfreð Jolson er í flestum tilfellum fólk til aðstoð- ar viðskiptavininum og jafnvel fólk til að koma vörum út í bíl. Þetta fólk er oft mjög þægilegt í fram- komu, hjálpsamlegt og vingjarn- legt. Slíkt þekkist næstum ekki hérna. Er það vegna þess að ekki er til starfsfólk eða að það vill ekki þjóna, að það sé of stolt? í sumum þróunar- og vanþróun- arlöndum tíðkast það ef viðskipta- vinur biður um ákveðna vöru, sem ekki er fáanleg að sölumaður segir við viðskiptavininn. „Því miður, við höfum ekki þessa vöru en þið fáið Fór alltaf fram úr áætlunum í þijú ár sem dagskrársljóri eftir Svavar Gestsson „Lygi.“ „Persónurógur." „Falsanir." „Grófasta tilraun til mannorðs- morðs að yfirlögðu ráði sem íslensk þingsaga þekkir." „I skugga leyniþjónustu Stasi.“ „Skilur aðeins leikreglur alræðis og ofsókna." „Þeir menn eru sekir nema þeir beri glóandi járn ...“ „Upptrénaður stalínisti.“ „Undir askloki hans eru allir sekir.“ „Sannleikurinn er kallaður auka- atriði." „Helsti lærifaðir Svavars, Jósep heitinn Stalín, notaði ekki silki- hanska á fólk ...“ „Róttæknin er orðin rógtækni." „Aðferð öfundar og haturs til að níða niður náungann." „Og núnaþegar falshugsjónirnar hafa sprungið eins og blöðrur stendur rógtæknin eftir Merði Val- garðssyni. Eini munurinn er sá að Svavar hefur brjóst verra.“ „Sú ógæfa henti íslenska þjóð fyrir nokkrum árum að stalínisti settist í stól menntamálaráðherra." Það sem fram kemur hér á und- an er ekki úr safni orðabókar Há- skóla íslands yfir verstu hrakyrði íslandssögunnar um menn og mál- efni. Hér er ekki valinn úr dómum Hæstaréttar sá bálkur ummæla sem sverastur er og hefur verið dæmdur dauður og ómerkur. Nei. Hér var birt sýnishorn úr grein Hrafns Gunnlaugssonar sem er „rithöfundur og kvikmyndaleik- stjóri og hefur verið settur fram- kvæmdastjóri Ríkissjónvarpsins til eins árs“ svo notaður sé hans eigin titill í Morgunblaðinu núna um helgina, nánar tiltekið laugardag- inn 24. júlí. Og greinin er um mig! Ég verð að játa að þegar ég hafði barist í gegnum þennan fúkyrða- flaum sagði ég við sjálfan mig eins og amma mín sagði stundum um menn sem féllu í viðjar persónuleik- ans og misstu stjórn á skapi sínu: Ja hérna, aumingja maðurinn — og þá átti ég við Hrafn Gunnlaugs- son. Mér varð hugsað til þess að ég stæði varla undir þessum óþverra öllum jafnvel þó að í vesal- ing mínum sameinaðist allt mann- hrat íslandssögunnar eða jafnvel heimsins. Svo datt mér í hug að láta það eiga sig að svara greininni af því að hún dæmdi sig sjálf ög væri til marks um að höfundur greinarinnar væri reiður og sár. Sem er kannski ekki skrýtið þegar hagsmunatengslin hafa verið sönn- uð upp á hann í opinberri skýrslu. Veðrið er svo gott En satt best að segja voru afar ómerkilegar (hvað annað!) ástæður fyrir því að ég ákvað fyrst að neita mér um að svara sóðakastinu sjálfu. Það er að segja þær ástæð- ur að veðrið er svo gott hér í kjör- dæminu að með ólíkindum er og muna elstu menn ekki annað eins. Hin ástæðan er sú að sakargiftirn- ar eru bornar fram af svo mikilli vanstillingu að það er varla ástæða til að taka mark á þeim. Þó leyfi ég mér allra náðarsamlegast að halda því fram að það sé of langt gengið að telja mig meiri skepnu en Mörð Valgarðsson. 0g við nán- ari umhugsun sýndist mér óhjá- Svavar Gestsson kvæmilegt að svara tveimur efnis- atriðum greinarinnar sem eru jafn- framt einu rökstuddu efnisatriðin. Fyrst það að Hrafn bregður á loft gömlum ósannindum sem hann hefur eftir formanni Rithöfunda- sambands íslands. Ekki veit ég hversu lengi Þráinn Bertelsson hef- ur geð í sér til að láta Hrafn nota ummæli sín með þessum hætti. Hitt veit ég að það er skynsamleg- ast að halda sér við staðreyndir. Staðreyndin er sú — og kemur reyndar glöggt fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar — að fjármun- ir til kvikmyndagerðar á íslandi hafa margfaldast vegna alþjóð- „Eg tel að meginhættan við vinnubrögð Hrafns Gunnlaugssonar felist ekki í geðvonskuköst- um hans sjálfs. Megin- hættan felst í því að hann hafi með hags- munatengslum sínum og of- eða misnotkun þeirra spillt fyrir öðr- um íslenskum lista- mönnum.“ legra samninga sem höfundur þess- arar greinar gerði sem mennta- málaráðherra. Hugverk frá Hugverki hf. Annað atriðið sem ég vildi svara í grein Hrafns er eina raunverulega efnisatriðið sem beinlínis snertir málflutning minn. Ég hélt því fram á Alþingi að hann hefði farið fram úr fjárhagsáætlunum sem dag- skrárstjóri sjónvarpsins og ég taldi og tel að það hafí verið fullgild rök fyrir því að ráða hann ekki. Hrafn heldur því fram að ég hafi farið með rangt mál. Þetta sé rógur eins og annað sem frá mér komi. Hann ber fyrir sig Ólaf Jónsson rekstrar- ráðgjafa hjá fyrirtæki sem heitir Hugverk hf. og fínnst mér raunar nafnið einkar athyglisvert á heim- ildarýni Hrafns Gunnlaugssonar. Ég veit ekkert um þær tölur sem koma frá Hugverki; ég hef hins vegar undir höndum beinharðar hana í verslun Jóns Jónssonar.“ Þetta er þjónusta og hefur venju- lega þau áhrif að viðskiptavinurinn kemur aftur í búðina, þar sem svona góð þjónusta er til staðar. Það er mjög sjaldan að vísað er í aðra verslun hérna. Mikilvægt þjónustuhlutverk í hveiju þjóðfélagi er starf þjónsins, karl eða kvenkyns, á veitingastað. Það er kannski vandamál þar sem þjórféð er fastákveðið og viðskipta- vinurinn getur hvorki launað góða þjónustu eða refsað vonda. Aftur verð ég að segja með til- liti til fimm ára reynslu hérlendis að þjónustan á veitingastöðum gæti verið betri. Oft eru undir- stöðuatriðin ekki í lagi, en það eru undantekningar, svo sem veitinga- fy! salurinn á Hótel Holti. Þjónninn verður alltaf að vita hver er súpa dagsins og hveijir eru sérréttir dagsins svo að hann þurfi ekki alltaf að hlaupa fram í eldhús til að spyija. Þetta er undirstaða þjónustu og tímasparnaðar. Það verður að taka á móti við- skiptavini með brosi og fylgja hon- um að því borði sem hann kýs, eins og frekast er kostur. Viðskiptavinurinn ætti að fá smá tíma til að koma sér fyrir og njóta andrúmslofts staðarins. Síðan kem- ur þjónn og býður drykk. Ef hann er ekki þeginn, þá verður að láta hæfilegan tíma líða, svo að við- skiptavinurinn getur valið sér mál- tíð. Þjónninn kemur síðan að borð- inu og býður fram þjónustu sína: „Get ég aðstoðað?“ eða „Má ég mæla með einhveiju?“ Þjónninn má aldrei vera of ágengur, en hann verður samt að vera til staðar, fullur af athygli og tilbúinn að þjóna. Kvenþjónn er ekki fallegt líkneski til að dást að og sem stöðugt lítur upp í loftið eða eitthvað annað. Það ætti ekki að vera erfitt að ná athygli þjóns- ins. Þegar aðalmáltíðin hefur verið borin fram, getur þjónninn einstöku sinnum nálgast viðskiptavininn og staðreyndir Ríkisútvarpsins sjálfs. Þær tölur eru ekki hugverk: 1986 gerði áætlun sjónvarpsins ráð fyrir því að innlend dagskrár- deild sjónvarpsins, IDD, fengi 125.307.000 kr. í rekstur. Raunin varð 149.398.000 kr. Mismunurinn er 19,2%. 1987 gerði Sjónvarpið ráð fyrir að veija 141.075.000 kr. í rekstur. Niðurstaðan varð 205.832.000 kr. Þar fór Hrafn því 45,9% fram úr áætlun. 1988 gerði áætlunin ráð fyrir 202.692.000 kr. í rekstur IDD en Hrafn fór í 219.625.000 kr. eða 8,4% fram úr áætlun. Inni í tölunum eru framlög úr Menningarsjóði útvarpsstöðva fyrir árin 1987 og 1988. Tölurnar eru frá hagdeild Ríkisútvarpsins. Því miður hefur Hrafn Gunn- laugsson ekki afsannað það sem sagt var í vetur. Opinberar tölur segja annað. Að lokum þetta: Eg tel að meginhættan við vinnubrögð Hrafns Gunnlaugsson- ar felist ekki í geðvonskuköstum hans sjálfs. Meginhættan felst í því að hann hafi með hagsmunatengsl- um sínum og of- eða misnotkun þeirra spillt fyrir öðrum íslenskum listamönnum. Það hefur þegar heyrst að komið hafa fram kröfur um það að listamenn verði ekki látnir fara með yfirstjórn listasjóð- anna. Það var kerfi sem var komið á í minni tíð í ráðuneytinu og ég tel mjög mikilvægt að varðveita — til þess að efla ábyrgð og forystu listamanna sjálfra í menningarlíf- inu hér á landi. Ég tel þess vegna ekki að það eigi að breyta til um skipan þessara sjóða og það væri slæmt ef þeir sem sjá ofsjónum yfír öllum framlögum til menning- armála notuðu mál Hrafns Gunn- laugssonar til þess að sölsa undir sig menningarsjóðina. Það þarf auðvitað að fyrirbyggja hagsmuna- tengsl. Það er unnt með einföldum reglum og með heiðarlegu fólki. Það er nóg til af heiðarlegu fólki. Vandinn er sá að sumir þeir sem með almannafé fara gera ekki greinarmun á sjálfum sér og þeim

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.