Morgunblaðið - 29.07.1993, Qupperneq 20
-tr
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
NATO undirbýr
loftvemd í Bosníu
New York, Washington, Sar^jevo. Reuter.
BOUTROS Boutros-Ghali, framkværadastgóri Sameinuðu þjóðanna, seg-
ir að herflugvélar Atlantshafsbandalagsins ættu að geta byijað að
veita gæsluliðum SÞ í Bosníu vernd úr lofti snemma í næstu viku.
Hann sagði í gær að enn væri eftir að ganga endanlega frá nokkrum
skipulagsatriðum, m.a. samþykkja reglur sem yfirmenn herliðsins yrðu
að hlíta varðandi beitingu vopnavalds.
Framkvæmdastjórinn sagði að Serbar hefðu verið að verki. Yfirmað-
einnig þyrfti að skipuleggja eftirlit á
jörðu niðri og ákveða hvemig skuli
verða háttað stjóm árásaraðgerða
úr ratsjárflugvélum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti seg-
ir stjórn sína munu íhuga vandlega
beiðni um aðstoð bandarískra her-
flugvéla fari SÞ fram á hjálp. Skotið
var á franska gæsluliða á þriðjudag
og sunnudag. Var talið að Bosníu-
ur gæsluliðsins hótaði að næst yrði
goldið í sömu mynt.
Viðræður deiiuaðila héldu áfram
í Genf í gær en leiðtogar Króata,
Serba og múslima hittust augliti til
auglitis á þriðjudag í fyrsta sinn um
langa hríð. Ekkert lát varð þó á bar-
dögum í gær, einkum í norðurhluta
landsins.
Hugljúfur áróður
gegn hvalveiðum
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
HUGUÚF bandarísk kvikmynd um vináttu götustráks og háhyrnings
er á góðri Ieið með að verða beitit vopn í baráttunni gegn hvalveiðum,
en rúmlega tvær milljónir manna sáu myndina fyrstu sýningardagana
í Bandaríkjunum.
Myndin um hvaiinn Villa er gerð
af Wamer Brothers en framleiðandi
er Richard Donner sem meðal ann-
ars framleiddi Lethal Weapon og er
hann yfirlýstur hvalavinur. Eftir
hjartnæma sögu um frelsun háhym-
ingsins er gefið upp símanúmer í
myndarlok fyrir þá sem vilja fá
sendan bækling og límmiða gegn
hvalveiðum og hafa undirtektir verið
góðar. Einnig fylgir með kort til Gro
Harlem Brundtland forsætisráðherra
Noregs. Á því em mótmæli við
hrefnuveiðum Norðmanna og þarf
einungis að undirrita og setja kortið
í póst.
Villi íslenskur?
Þess má geta að líklegt er að há-
hymingurinn Keiko, sem leikur Villa
í myndinni, sé íslenskur að uppruna.
Aðstandendur myndarinnar fengu
Keiko frá sædýrasafni í Mexíkó og
að sögn Jóns Kr. Gunnarssonar, sem
á sínum tíma veiddi háhyminga fyr-
ir hönd Sædýrasafnsins, var einn
háhymingur, sem veiddist út af
Austfjörðum, sendur þangað árið
1979. Veit Jón ekki til þess að aðrir
háhymingar hafí verið seldir þangað.
Yamaha ekki fyrstir
ÞAÐ er ekki allskostar rétt sem sagt var á forsíðu Morgunblaðsins
í gær og byggt á frétt Reuters-fréttastofunnar að Yamaha-verk-
smiðjurnar hafi orðið fyrstar til að kynna rafknúið reiðhjól. A.m.k.
tveir aðrir aðilar hafa boðið rafmagnshjól til sölu.
Gísli Júlíusson rafmagnsverk-
fræðingnr hjá Landsvirkjun er
áhugamaður um rafknúin farar-
tæki. Hann benti Morgunblaðinu á
að Sinclair-fyrirtækið í Bretlandi
hefði kynnt rafknúið reiðhjól á síð-
asta ári. Samkvæmt bæklingi frá
fyrirtækinu kostar hjólið 499 pund,
eða um 54.000 íslenskar krónur,
en hjólið frá Yamaha kostaði um
90.000. Hjólið frá Sinclair kallast
Zike og getur rafhlaðan í því knúið
hjólið í klukkustund án endur-
hleðslu en lengur ef hjólreiðamað-
urinn hleypur undir bagga með því
að nota fótstigin.
Gísli hafði einnig í fórum sínum
augiýsingu í fréttabréfí frá því í
maí á þessu ári sem nefnist Batt-
ery Vehicle Review þar sem boðin
eru rafknúin reiðhjól til söiu.
Rennireið Sinclairs
Verkfallsvarsla
Reuter
HOLLENSKIR flutningaprammaeigendur koma hér í
veg fyrir að sojabaunafarmi verði skipað upp í Rotter-
dam í gær. Yfír þeim gnæfír mokstursáhald eitt mik-
ið, sem verður ekki við komið vegna varðstöðu eigend-
anna. Þeir eru í verkfalli, vilja að núverandi farmgjalda-
kerfi verði fest í lög.
Ásakanir General Motors um iðnaðarnjósnir
Volkswagen
styður Lopez
Wolfsburg. Reuter.
FORSTJÓRI þýsku bílaverksmiðjunnar Volkswagen (VW),
Ferdinand Piech, vísaði í gær á bug ásökunum þess efnis að
Ignacio Lopez de Arriortua framleiðslustjóri hefði gerst sekur
um iðnaðarnjósnir. Piech sagði að fyrirtækið stæði hiklaust
með Lopez og það hefði hreina samvisku.
Piech sagði að málatilbúnaður ar sem sæi ofsjónir yfir velgengni
allur á hendur Lopez, sem sakaður
er um að hafa stolið áætlunum um
bílaframleiðslu General Motors
næstu ára áður en hann réðst til
VW, bæri keim af öfund keppinaut-
Rússar græða á risaeðlum
Melbourne. Reuter.
RÚSSAR hafa ákveðið að fara ótroðnar slóðir í gjaldeyrisöflun með
því að senda risaeðlur á sýningar í útlöndum. í næsta mánuði verður
Stóra rússneska risaeðlusýningin opnuð í Ástralíu.
Vonast er til að aðgangseyrir að
risaeðlusýningunni nemi a.m.k. fímm
milljónum ástralskra dollara, jafn-
virði 241 milljóna króna, en helming-
urinn rennur óskiptur til rússnesku
steingervingastofnunarinnar.
Á sýningunni yerða meðal annars
sýndar 24 heilar beinagrindur úr
risaeðlum og öðrum forsögulegum
dýrum. Steingervingamir eru taldir
vera allt að 120 miiljóna ára gamlir.
samkeppnisaðila.
Vart hafði blaðamannafundi
Piech lokið er stjórnendur Adams
Opels, dótturfyrirtækis General
Motors í Þýskalandi, lýstu vandlæt-
ingu sinni í garð keppinautarins.
Vísaði það á bug fullyrðingum
Piechs um að ásakanirnar á hendur
Lopez væri hefndaraðgerð af hálfu
GM þar sem Lopez starfaði þar til
VW keypti hann til sín sl. vetur.
Boðaði GM/Opel til fréttamanna-
fundar í dag þar sem til stóð að
svara ásökunum VW út í æsar en
Piech sakaði GM um að hafa beitt
lágkúrulegum aðferðum og misnot-
að þýska réttarkerfið til þess að
koma höggi á keppinaut.
Slakað á
IGNACIO Lopez de Arriortua
framleiðslusljóri Volkswagen
(VW) hefur dvalist í afslöppun í
Marbella á Spáni í framhaldi af
ásökunum um að hafa stundað
iðnaðarnjósnir skömmu áður en
hann fór frá General Motors til
VW.
SUMARTILBOÐ
20% afsláttur af öllum íþróttaskóm fram að verslunarmannahelgi
Skóverslun Kópavogs Hamraborg 3,sími 41754