Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
Bónus býður nú
uppá framköllunarþjónustu
Morgunblaðið/Bjami
Vistvænir
tauburðarpokar
Fyrirtækið Húfugerð og Tau-
prent hefur nýlega hafið fram-
Íeiðslu á vistvænum burðarpok-
um úr taui og hefur forstöðumað-
ur fyrirtækisins, Bjarni Olafsson,
gert samning við Skógræktarfé-
lag Islands og Landvernd þess
efnis að hlutfall af andvirði hvers
poka renni til samtakanna.
Tilgangurinn var sá að fá pokana
viðurkennda sem vistvæna vöru því
væntanlegir viðskiptavinir eru fyr-
irtæki, sem vilja gjaman vera til
fyrirmyndar í umhverfismálum.
Þarna gefst þeim kostur á að
styrkja ímynd sína í tvennum skiln-
ingi, annarsvegar rennur hluti and-
virðis til uppgræðslu og umhverfis-
vemdar og hinsvegar eru þessir
pokar vistvænir og þá er jafnframt
hægt að þvo og nota aftur og aftur.
Pokana er hægt að fá í ýmsum
útgáfum og þá er hægt að fá af-
I VIKUNNI var farið að taka við
filmum til framköllunar í Bónus.
Viðskiptavinirnir setja sjálfir film-
una í sérstakan poka sem þeir
merkja og láta síðan í kassa. Að
tveimur dögum liðnum má sækja
filmuna.
Það kostar 435 krónur að láta
framkalla 12 mynda fiimu, 15
mynda fiima er á 501 krónu, 699
krónur kostar að láta framkalla 24
mynda litfilmu og 36 mynda filmu-
framköllun kostar 963 krónúr.
Ef um stækkun er að ræða kostar
145 krónur að stækka mynd í
13X18. Mynd sem er 20X30 kostar
340 krónur og eftirtaka 34 krónur
hver mynd.
Þjónustan er veitt nú þegar í versl-
unum Bónus í Kópavogi, í Hafnar-
firði og á Seltjarnarnesi. ■
greidda með stuttum fyrirvara.
Tauburðarpokunum er ekki ætlað
að koma í stað einnota plastpoka.
Þeir eru fyrst og fremst hugsaðir
sem auglýsing eða bónusgjöf frá
fyrirtæki til viðskiptavinar. Tildrög-
in að framleiðslunni voru þau að
burðarpokamir passa mjög vel inn
í framleiðslulínu fyrirtækisins þar
sem fyrirtækið framleiðir ýmsar
aðrar áprentaðar vörur úr taui, svo
sem derhúfur og auglýsingafána.
Tæki sem mælir mengun
DEB þjónustan á Akranesi hefur
hafið innflutning á búnaði sem
mælir eiturefni í lofti og vatni.
í fréttatilkynningu segir að bún-
aðurinn henti vel fyrirtækjum í
skipa- og málmiðnað og í efna- og
matvælaiðnaði. Með vatnsmæli-
tækjunum er auðvelt að mæla
mengun í ám og vötnum, s.s.við
fiskeldisstöðvar og frárennsli.
Tækin sem mæla loftmengun eru
tvenns konar. Annars vegar þau
sem mæla magn einnar lofttegund-
ar og annars vegar stærri búnaður
sem mælir fleiri lofttegundir í einu.
Meðal annars er fluttur inn bún-
aður frá Neotronics og þegar óæski-
legt magn af efni er vælir loftmæli-
tækið. Geta menn þá forðað sér,
eða ef slys verður vísar ýlfrið björg-
unarmönnum leið. ■
VERÐKÖNNUN
VIKUNNAR
Bónus Faxafeni kr. Hagkaup Skeifunni kr. Fjarðar- kaup kr. Garða- kaup kr. Kjöt og fiskur Mjódd kr. Nóatún v/Nóatún kr.
Ömmu-flatkökur 1 pk. 28 39 37 37 36 36
Bugies-nasl 1 pk. 141 15 156 193 209 214
Rautt Merrild-kaffi 500 g 239 265 249 249 277 269
Kók 2 itr. 137 149 148 149 149 154
Rauð epli 1 kg (ópökkuð) 77 139 129 89 99 98
Swiss Miss-kakóduft 737 g 399* 375** 365** ekki til 436 472**
Lambakótilettur í kjötborði 1 kg ekki til 764 657 777 795 759
Bökunarkartöflur 1 kg 59 99 94 79 79 69
Maggi-grænmetissúpa 1 pk ekki til 56 56 71 69 77
Marie-súkkulaðikex frá Frón 1 pk. 69 69 107 99 103 116
Rauð paprika 1 kg 459 749 599 669 703 728
Tómatar 1 kg (íslenskir) 93 99 215 149 119 98
Kínakál 1 kg 99 199 148 137 223 239
Agúrka 1 kg 109 149 139 145 195 159
Hraunbitar frá Góu 400 g 137 148 158 208 179 ekki til
Eldhúsrúllur 2 stk. ekki til 99 98 98 108 98
‘sykurlaust **með sykurpúðum Hagkaup Fis Papco Fis Eva
Innkaup í ferðalagið
SVO virðist sem kaupmenn séu í stríði um verð á
grænmeti þessa dagana. Til að mynda var kínakál
rösklega 125% dýrara í Nóatúni en Bónus sl. þriðju-
dag, en þá hafði verðið nýlega verið lækkað um
tæp 30% í Bónus.
Rauðar paprikur voru ríflega 60% dýrari í Hagkaup
en í Bónus og var munur á kílóverði 269 krónur. Mik-
ill munur var á hæsta og lægsta verði á tómötum, sem
Bónus selur á 93 kr. kg meðan Fjarðakaup selur kílóið
á 215 krónur.
Augljóst er að misjafnlega dýrt er að fylla innkaupa-
körfuna fyrir verslunarmannahelgina og allar líkur eru
á að verð á grænmeti og ávöxtum sé ekki hið sama í
dag og það var á þriðjudag.
Grænmeti, og sérstaklega kartöflur, var misjafnlega
ásjálegt og í Hagkaup var megnið af kartöflunum
grænt. I Bónus virtust þær aðallega óhreinar. ■
ÁÁ/BT/GRG
Visa kynnir
akstursleið um Evrópu
Visa ísland hefur gefið út bæklinginn „VISA-
leiðin um Evrópu,“ þar sem kynnt er aksturs-
leið um nokkra áhugaverða staðir í Evrópu. Á
þessari leið er einnig að finna hótel þar sem
gull- og farkorthafar njóta sérstakra vildar-
kjara.
Sigmar B. Hauksson, markaðsfulltrúi hjá Visa
sagði að leiðin lægi um fjögur lönd, Lúxemborg,
Þýskaland, Sviss og Frakkland. Þessi lönd hefðu ver-
ið valin því flestir íslendingar sem leigja sér bíl erlend-
is byija ökuferðina í Lúxemborg. Fjölmargt væri að
sjá á þessari leið, hótelin væru öll fjölskylduhótel,
verðið á herbergjunum hagstætt og á flestum þeirra
væru góð veitingahús.
Hann sagði að vildarkjörin væru mismunandi eftir
hótelum, stundum fælust þau í stærra herbergi fyrir
Morgunblaðið/Þorkell
F.v er Sigmar B. Hauksson, markaðsfulltrúi, Eydís
Einarsdóttir og Lára Ingadóttir, sem sjá um Far-
klúbbinn og Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri.
lægra verð, sums staðar fengi fólk vín og blóm upp
á herbergin og einnig væri veittur beinn afsláttur.
í bæklingnum kemur fram hvað hægt er að skoða
á leiðinni og einnig er í honum að finna nákvæma
lýsingu á akstursleiðinni að hótelunum. ■
Vínarbrauð Bergþóru
eru einföld ódýr og bragðgóð
BERGÞÓRA Gústavsdóttir er matráðs-
kona á Hótel Djúpuvík norður á Strönd-
um. Af henni fer orð um að hún sé lista-
kokkur og frábær listamaður frá náttúr-
unnar hendi. Hún gerir til dæmis feg-
urstu borðskreytingar úr rekaviðsbút,
þangi og mosa.
„Blessuð vertu. Listaverkin í náttúrunni
™ eru svo mörg að það þarf ekkert að hafa
fyrir þessu,“ segir hún hæversk. Daglegt
líf var á Djúpuvík nýlega og naut þar
mgi m.a. gestrisni Bergþóru og hjónanna Evu
^ Sigurbjömsdóttur og Ásbjörns Þorgilsson-
^ ar sem reka hótelið.
Hótel Djúpavík er fyrrum kvenna-
% braggi. Þar bjuggu síldarsöltunarstúlkur á
5S velmektarárum Djúpuvíkur þegar silfri
hafsins var mokað upp. Nú er öldin önn-
ur. Þorpið er í algerri einangrun á veturna. Á
sumrin lifnar staðurinn við og fólk flyst í sumar-
húsin sín og Hótel Djúpavík er þekktur áningar-
staður ferðamanna. Bergþóra kemur með vor-
inu, líkt og lóan og sér um matseld á hótelinu.
Hún gaf okkur uppskrift að ljúffengum vatns-
deigsvínarbrauðum, sem væru „sko ekkert mál“.
500 g hveiti
400 g smjörlíki
1 bolli vatn
rabarbarasulta
4 msk. flórsykur
1 msk. kakó
1 -2 msk. heitt vatn
1. Smjörlíki mulið og blandað saman við hveiti.
2. Hnoðað saman og vatni smám saman bætt
út í.
3. Deiginu skipt í 6-8 hluta og hver flattur út
í jafnstórar lengjur.
4. Rabarbarasultu er smurt í miðjuna á hverri
lengju.
5. Hver Jengja brotin saman utan um sultuna.
Athugið að bijóta vandlega saman á endum.
6. Bakað við 180 gráður í 20 mín.
7. Flórsykur sigtaður saman við kakó og heitu
vatni blandað við. Glassúr látinn leka yfir iengj-
ur til skrauts.
Vel má frysta vínarbrauðin og síðan hita í
ofni eða láta þiðna við stofuhita. Stundum not-
Vínarbrauð-
in við kerta-
skreytingu
sem Berg-
þóra gerði
úr rekaviði,
þangi og
mosa.
Morgunblaðið/Ingvar
ar Bergþóra eplafyllingu í stað sultu. „Ég nota
súr matarepli, saxa þau smátt og set í miðjar
lengjurnar. Þegar þær eru bakaðar strái ég
kanilsykri á þær í stað glassúrsins og ber með
þeyttum ijóma." ■
Brauðbretti
úr tré eru betri
en bretti úr plasti
NYLEGA komust rannsóknar-
menn í Bandaríkjunum að því að
skurðarbretti úr viði eru mun
hreinlegri og því öruggari en
samskonar bretti úr plasti.
Því hefur löngum
verið haldið fram
að matarafgangar
hafi tilhneigingu
taka sér bólfestu í
litlum raufum sem
myndast á viðar-
brettum. Erfitt væri
að þrífa brettin
sómasamlega og því
væru þau sælureitur
alls kyns baktería.
Rannsóknir við Wisconsin-Madison
háskóla hafa nú sýnt fram á að bakt-
eríum líður mun betur á skurðar-
brettum úr plasti.
í tímaritinu Redbook er greint frá
niðurstöðum sem komu vísindamönn-
unum verulega á óvart. Þeir létu
salmonellu-bakteríur og aðra sýkla
sem algengir eru í matvælum á ólík
skurðarbretti, bæði úr við og plasti.
99,9% baktería drápust innan 3ja
mínútna á viðarbrettum, en þær voru
talsvert lífseigari á plastbrettunum.