Morgunblaðið - 29.07.1993, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
fclk f
fréttum
NAM
Nýútskrifaður
Danaprins
Jóakim, yngri sönur Margrétar
Danadrottningár og Hinriks
prins, útskrifaðist frá Næsgaard-
landbúnaðarskólanum í Danmörku
um miðjan júlí. Þeir 55 nemendur
sem voru brautskráðir höfðu allir
köflóttar derhúfur á höfðinu og
átti prinsinn þá hugmynd. Ekki vit-
um við hvort nemendur skólans eru
vanir að bera höfuðföt við útskrift-
ina, en getum leitt að því að svo
sé ekki.
Jóakin er sagður all ánægður
með einkunnina og kveðst feginn
að prófín séu að baki. „Ég er að
hugsa um að fara í frekara nám,
en fyrst ætla ég að njóta lífsins,
þótt það snúist ekki eingöngu um
að sitja með fætuma upp í loft og
glas í hendinni," sagði hann i sam-
tali við Politiken.
Prinsinn fer fyrst í frí til Frakk-
lands, þar sem fjölskyldan á býli,
en síðan hefst vinnan á Schacken-
borg á Suður-Jótlandi, þar sem Jóa-
kim rekur stórt bú.
Margrét hertogaynja af Argyll, sem var
þátttakandi í einhveiju mesta skilnaðar-
hneyksli í Bretlandi á þessari öld, er látin.
Skírnamafn hertogaynjunnar var Ethel Marg-
aret Whigham og var hún af ríku foreldri en
faðir hennar auðgaðist á textíliðnaði. Cole
Porter fjallaði um hana í einu vinsælasta lagi
sínu, You’re the Top. Hún varð fræg beggja
vegna Atlantsála er hún giftist fyrsta sinni
golfkappanum og verðbréfamiðlaranum banda-
ríska Charles Sweeny. Kunnust varð hún þó
er hún skildi við annan eiginmann sinn, hertog-
ann af Argyll, en þau felldu hugi saman í lest
frá París til Lundúna. í dómi í skilnaðarmálinu
var henni lýst sem lausgirtri drós og þyrfti
marga menn til að svala fýsnum hennar. Eitt
helsta sönnunargagnið í málinu var mynd af
hertogaynjunni í ástarbríma með friðli sínum
og skýldu þijár perlufestar nekt hennar. Mynd-
in var tekin í baðherbergi hennar og sást ein-
ungis neðri hluti líkama elskhugans. Gekk
hann undir nafninu „Höfuðlausi maðurinn" og
hefur enn ekki verið upplýst hver var þar á ferð.
Hertogaynjan átti í kostnaðarsömum máia-
ferlum á seinni árum auk þess sem henni hélst
illa á fé. Fyrir nokkrum árum varð hún hart-
nær gjaldþrota og er talið að það hafi stuðlað
að vanheilsu hennar. Hún var áttræð er hún
lést á mánudaginn var á hjúkrunarheimili í
London.
Reuter
Hertogayiy'an af Argyll er látin en hún öðlað-
ist heimsfrægð er eiginmaður hcnnar krafð-
ist skilnaðar fyrir dómstólum vegna framhjá-
halds hinnar fögru konu sinnar.
Claudia sem hefur lengi neitað
því að vera í ástarsambandi með
Albert Mónakóprins hyggst gift-
ast Julio Bocca, að því er fregnir
herma.
ANDLÁT
Lausláta hertogaynjan
FYRIRTÆKI
Þeir voru samein-
ingartákn Flugieiða
Margrét Danadrottning brosir hér stolt til Jóakims prins sem ber
höfuðfatið með prýði.
Þeir Amaldur Halldórsson og
Kristinn Ásgeirsson, sem nú
eru 22ja ára, hittust síðast þegar
þeir voru tólf ára og þar áður að-
eins tveggja ára gamlir. Þegar þeir
hittust að þessu sinni og síðast var
það fyrir tilstuðlan Morgunblaðsins
og Flugleiða. Sjálfír gera þeir grín
að því að eftir 50 ár muni þeir enn
hittast og fá mynd af sér í Morgun-
blaðinu. Þeir hefðu eflaust ekki
þekkt hvor annan ef þeir hefðu hist
á götu, en greinilegt var að þeim
þótti gaman að uppátækinu.
Léku í auglýsingu 2ja ára
Forsaga málsins er sú, að þegar
Loftleiðir og Flugfélag íslands sam-
einuðust fyrir 20 árum vom tveir
2ja ára guttar fengnir til að vera
með í auglýsingum á vegum fyrir-
tækisins. Annar, Amaldur Hall-
dórsson, er sonur Halldórs Guð-
mundssonar sem þá starfaði hjá
GBB auglýsingstofunni og sá um
auglýsingaherferðina. Hinn, Krist-
inn Ásgeirsson, átti frænda sem
starfaði á sömu stofu. Vom þessir
tveir valdir úr hópi nokkurra
drengja sem til greina komu.
Vilja safna heimildum
Að vonum muna þeir ekki eftir
myndatökunum, nema það sem þeir
hafa séð á prenti og á fílmu. „Það
hefur vaknað áhugi hjá mér nú á
seinni ámm að sanka að mér öllum
myndunum. Ég gerði heiðarlega til-
raun til þess að leita að sjónvarps-
auglýsingunum, því þær eiga að
vera til á fílmum," sagði Kristinn.
„Á tímabili, hélt maður fyrir augun
þegar auglýsingarnar birtust í sjón-
varpinu eða reif myndirnar út úr
blöðunum. En núna hefur maður
gaman af því að sjá þetta."
Undir þetta tekur Amaldur og
segir að löngu eftir að auglýsing-
arnar vom hættar að birtast var
verið að ganga til hans og spyija:
Varst þú ekki í Flugleiða-auglýsing-
unni?
— Lékuð þið í fleiri augiýsingum
eftir þetta?
„Nei, það varð ekkert meira í
kringum þetta hjá mér, þó svo að
áhuginn hafi svo sem verið fyrir
hendi,“ svarar Kristinn. Öðm máli
gegndi með Arnald. „Jú, ég lék í
Claudia Schiffer segir að hún hafi aldrei ætlað sér að verða sýningar-
stúlka. Það voru örlögin sem réðu því, segir hún.
Morgunblaðið/HF
Arnaldur Halldórsson (t.v.) með gömlu Loftleiðahúfuna og Kristinn
Ásgeirsson með Flugfélagshúfuna. Á milli þeirra er Elvar Þór Frið-
riksson 3ja ára með Flugleiðahúfu.
Auglýsingarnar
frá Flugleiðum
vöktu mikla at-
hygli fyrir 15-20
árum og margir
muna ennþá eftir
þeim " Arnaldi
Halldórssyni (t.v.)
og Kristni Ás-
geirssyni.
mörgum auglýsingum þegar ég var
yngri, en það er sjálfsagt vegna
tengsla minna við auglýsingastof-
una.“
Háskólanám og Ijósmyndun
— En hvað skyldu ungu menn-
irnir hafa fyrir stafni nú?
Kristinn lauk prófí frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti fyrir
ári og hefur starfað sem sölumaður
hjá Kötlu. Hann stefnir á .stjóm-
málafræði í Háskólanum í haust.
Arnaldur er hins vegar að læra ljós-
myndun og hefur af þeim sökum
dvalist bæði í London og París. Nú
liggur leiðin til New York, þar sem
hann býst við að ljúka námi eftir
tvö ár.
HJÓNABAND
Brúðkaup
Sýningarstúlkan Claudia Schiffer,
sem gegnum tíðina hefur verið
orðuð við Albert Mónakóprins, er
sögð hafa tekið bónorði — ekki Al-
berts heldur balletstjörnunnar Julio
Bocca. Þau munu hafa hist í veislu
nokkurri í Buenos Aires og líkt og
leikkonan Júlía Roberts og söngvar-
inn Lyle Lovett munu þau hafa gert
upp hug sinn á örfáum vikum. Eða
svo segir sagan. Þó eru ekki nema
í vændum?
nokkrir mánuðir síðan hún sagði við
fjölmiðlafólk þegar verið var að orða
hana við Albert, að eins og allir vin-
ir hennar vissu þá væri hún of ung
til að gifta sig strax. Auk þess væru
þau Aibert bara vinir. Hún sagði
ennfremur að þegar þar að kæmi
vildi hún giftá sig í hvítum kjól í
kirkju og halda veislu fyrir fjölskyldu
og vini.
Allar líkur eru á því að Claudia
haldi áfram sýningarstörfum, því
hún segist hafa unun af starfínu.
Hún hafi þó aldrei ætlað sér að verða
módel og það hafí komið flestum sem
þekktu hana á óvart þegar hún hóf
störf, því hún kveðst hafa verið mjög
feimin og óframfærin á yngri árum
og það eimi eftir af því ennþá. „Það
er þó kannski ekkert verra,“ segir
hún.