Morgunblaðið - 29.07.1993, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
39
Að vera hafður
Frá Jóhönnu Tryggvadóttur
Bjamason:
Laugardaginn 24. þ.m. birtist í dálk-
inum „Bréf til blaðsins" grein eftir
Svein M. Sveinsson, framkvæmda-
stjóra Plús-Film hf., sem hann nefndi
Evrópuferðir-Ríkisútvarpið-Plús-
Film. Segist hann í greininni vilja
upplýsa lesendur um samskipti
nefndra fyrirtækja haustið 1989. Vil
ég nú taka fram staðreyndir málsins.
í samningi Plús-Film og Evrópu-
ferða 1. ágúst ’89 skyldu Evrópu-
ferðir greiða Plús-Film 550 þúsundir
fyrir það verkefni að kvikmynda fyr-
ir ferðaskrifstofuna kynningarefni í
Norður-Portúgal. f hjálögðum samn-
ingi er nákvæmlega tilgreint með
hvaða hætti staðið skyldi að mynda-
tökum og hvemig greiðslum skyldi
hagað. Fullyrðingar framkvæmda-
stjóra Plús-Film um að Evrópuferðir
hafi ekki staðið við greiðslur eru
ósannar. Skal nú tilgrein með hvaða
hætti greiðslurnar voru inntar af
hendi:
Þetta var greiðslan til Plús-Film
en hvernig stóðu þeir við sinn hluta
samningsins? Við fengum eina aug-
lýsingamynd vorið 1990 og ekkert
meira.
Svik Plús-Film við okkur eru aug-
ljós sé borið saman orðalag samnings
þeirra og Evrópuferða annars vegar
og orðalag Sveins M. Sveinssonar
um sama hlut í grein hans hins veg-
ar. í samningnum frá 1. ágúst ’89
stendur: „Plús-Film mun vinna að
því að koma hinni breyttu útgáfu af
myndinni til sýningar í Ríkissjón-
varpinu eða Stöð 2. í grein Sveins
stendur hins vegar „að reynt yrði
að selja kynningarmynd Evrópuferða
til RUV eða Stöðvar 2.
Samning Plús-Film og RÚV þann
21. nóv. ’89 fengum við fyrst að sjá
í jan. ’92. Í honum stendur m.a.:
„Sjónvarpið öðlast óskoraðan rétt
yfir notkun þáttanna á íslandi og
annars staðar á Norðurlöndum þar
á meðal réttinn til að dreifa þeim á
myndsnældum." Á öðrum stað stend-
ur: „Þættirnir voru teknir upp í ág-
úst 1989.“
Upphæð samnings: kr. 550.000
19.09. 89 Greitt með peningum kr. 186.616
02.10. 89 2 ávísunum kr. 43.740
22.05. 90 ávísun kr. 50.000
07.06. 90 ávísun kr. 50.000
23.05. 90 víxli pr. 23.06. kr. 51.541
23.05. 90 víxli pr. 23.07. kr. 52.199
06.06. 90 ferðaúttekt kr. 100.000
06.06. 90 peningum kr. 100.000
06.06. 90 Afsl. Plús-Film til Evr.ferða kr. *63.384
Alls kr. 634.096 kr. 486.616
10.07. 91 Innh.kostn. víxla m/fjárnámi kr. 36.740
Samtals greitt Plús-Film Greiðsla umfram samning kr. 670.836 kr. 184.220
Alls kr. 670.836 kr. 670.836
VELVAKANDI
ÞAKKIRTIL
FARARSTJÓRA OG
SAMFERÐAFÓLKS
VIÐ HJÓNIN keyptum okkur
ódýra ferð til Cala d’Or á Mall-
orca hjá Samvinnuferðum-
Landsýn 15. júní síðastliðinn.
Umsagnir í auglýsingabæklingi
létum við okkur í léttu rúmi
liggja, enda ætlunin að sleikja
sólina og slappa af. Stór hópur
íslendinga, u.þ.b. 90 manns, var
með í för til 2-4 vikna dvalar á
sama stað.
Því er skemmst frá að segja,
að frá því að flugvélin lenti í
Palma vorum við öll sem eitt
borin á höndum frábærra farar-
stjóra, sem leystu hvers manns
vanda og miklu meira en það.
Vissulega var samferðafólkið
frábært, en fararstjórarnir gátu
á sinn elskulega hátt laðað fram
hið jákvæða í hveijum og einum
og gert þennan stóra hóp að
einni stórri fjölskyldu, þar sem
enginn „nörd“ þreifst. Hafi þau
Herdís, Ingó og Gréta enn á ný
hjartans þökk fyrir samveruna.
Ekki sakar að geta þess, að
Þórhallur Sigurðsson (Laddi) og
Sigríður, Baldur Brjánsson og
Gulla og Sóley Jóhannsdóttir
(Dansstúdíó Sóleyjar) voru á
staðnum og KK kíkti við.
Laddi og Sigríður gátu fengið
einn og einn til að brosa út í
annað öðru hvetju, jafnvel feng-
ið mig til að segja einn eða tvo
„djóka“. Baldur doblaði okkur
upp úr skónum, Gulla í salatið
og Sóley gat tælt mig, stirða
fitubollu, í leikfimi á hverjum
morgni.
Enn á ný þakkir til fararstjór-
anna Herdísar, Ingós og Grétu,
skemmtikraftanna og jazzbal-
letkennarans auk alls samferða-
fólksins. Þakka frábæra ferð.
Saxi rafvirki
(eða svoleiðis).
TAPAÐ/FUNDIÐ
Úr og hringur töpuðust
FERKANTAÐ kvenúr með
brúnni leðuról og hringur töpuð-
ust á gæsluvelli milli Háteigsveg-
ar og Meðalholts. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 675979
eða 632061. Bryndís.
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA fannst við stræt-
isvagnaskýlið við Austurbrún 6
sl. mánudag. Upplýsingar í síma
37849.
Hjólkoppur tapaðist
HJÓLKOPPUR tapaðist undan
Toyota-bifreið, líklega á Álfta-
nesafleggjaranum, í Garðabæ
eða Hafnarfirði, nýlega. Finnandi
vinsamlega hafi samband í síma
650036.
Týndur vasahnífur
SVISSNESKUR vasahnífur,
mikill dýrgripur, með mörgum
fylgihlutum tapaðist við fjöl-
skyldugarðinn í Laugardal sl.
sunnudagskvöld. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 36958.
Gullarmband tapaðist
GULLARMBAND, keðja, tapað-
ist sl. laugardag. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 42849.
Fundarlaun.
Gallajakki tapaðist
BLÁR telpnagallajakki með gler-
augum í tapaðist á Gull- og silf-
urmótinu í Kópavogi á dögunum.
I vasa á jakkanum voru gler-
augu. Stúlkan var í KR-liðinu.
Hafi einhver orðið jakkans var
er hann vinsamlega beðinn að
hringja í síma 10322. \
Fjallahjól fannst
PROSTYLE fjallahjól fannst á
Langholtsvegi sl. mánudag. Upp-
lýsingar í síma 686143.
að fífli
Er ekki venja Sjónvarpsins að
gera skriflega verksamninga við
menn áður en verk er unnið? Port-
úgalsþættirnir eru eign Evrópuferða,
gerðir að frumkvæði þeirra og í sam-
ráði við og með fulltingi ferðamálayf-
irvalda í Portúgal. Það er kjarni
málsins og framhjá því verður ekki
litið. Hluta efnisins sem við höfðum
kostað töku á, tveir 45 mínútna
þættir, framseldu Plús-Film-menn
Sjónvarpinu og stungu greiðslunni í
eigin vasa.
Plús-Film var ráðið sem verktaki
hjá okkur og réttarbrot Sjónvarpsins
gagnvart Evrópuferðum fólst í því
að það notaði sér, við gerð sinna
þátta, aðstöðu og kostnað sem Evr-
ópuferðir höfðu hinn 1. ágúst 1989
samið um við Plús-Film hf. og lagt
til í Portúgal við gerð kvikmynda-
þátta fyrir Evrópuferðir.
Evrópuferðir fengu engar myndir
frá Plús-Film þótt framkvæmdastjór-
inn fullyrði hið gagnstæða. Ástæða
þess að við greiddum ekki fyrir sýn-
ingu auglýsingamyndar sem unnin
var af PIús-Film upp úr efni frá okk-
ur er sú að Sjónvarpið greiddi röng-
um aðila fyrir sýningu Portúgalsþátt-
anna. Kostnaðinn við birtingu augl.
myndarinnar hefði með réttu átt að
draga frá greiðslum til okkar fyrir
sýningu þeirra.
Sveinn M. Sveinsson endar grein
sína í „Bréfi til blaðsins" þannig:
„Undirritaður bendir Jóhönnu á að
það sem hún vill að aðrir geri henni,
það skal hún einnig gera öðrum.“
Takk sömuleiðis, Sveinn!
Með þökk fyrir birtinguna.
JÓHANNA TRYGGVADÓTTIR
BJARNASON,
forstjóri Evrópuferða.
Pennavinir
Tvítugur Breti með áhuga á tón-
list (Depeche mode og Madonna):
Paul Burns,
132 Evesham Road,
Headless Cross,
Redditch,
Worcs. B97 5ER,
England.
Grísk 24 ára stúlka, verkfræð-
ingur, með áhuga á bréfaskriftum,
dansi, sundi, borðtennis og segl-
brettasiglingum. Vill skiptast á frí-
merkjum og póstkortum:
Tina Koroli,
M. Alexandrou 41,
17121 Athens,
Greece.
Frá Ghana skrifar 24 ára karl-
maður með áhuga á íþróttum og
tónlist:
Gamaliel K. Sackey,
Old Towe,
P.O. Box 1276,
Oguaa,
Ghana.
LEIÐRÉTTIN G AR
Rangflokkaður
Ólafur Þ. Benediktsson, bæjar-
fulltrúi á Bolungarvík, var í blaðinu
á þriðjudag ranglega sagður í
Framsóknarflokknum. Hið rétta er
að han er bæjarfulltrúi Alþýðu-
flokksins. Beðizt er velvirðingar á
þessum mistökum.
Ekki fyrrverandi
bæjarstjórn
í bréfi Hallgríms Guðmundsson-
ar, bæjarstjóra í Hveragerði, sem
birtist hér í blaðinu í gær, slæddust
inn tvær villur og er önnur þeirra
meinleg.
Um leið og Morgunblaðið biðst
afsökunar á mistökunum eru setn-
ingarnar birtar aftur, og nú réttar.
„Ingvar segir, að það hafí verið
mikil hagræðing, þegar bæjar-
stjórnin á sínum tíma tók á leigu
sorpgámana, sem er valinn staður
í miðju íbúðarhúsahverfi við hlið
áhaldahúss bæjarins. Að áliti Ing-
vars hefur „duglítil bæjarstjórn" (sú
núverandi) hins vegar ekkert að-
hafst til að fjarlægja þess sömu
gáma og finna þeim annan stað!“
Hlaut doktorsgráðu
í japönskum fræðum
HINN 27. júlí 1993 hlaut Eyþór
Eyjólfsson doktorsgráðu í jap-
önskum fræðum og málvísindum
við Ludwig-Maximilians-háskól-
ann í Miinchen, Þýskalandi.
Fyrir doktorsritgerð sina hlaut
Eyþór fýrstu ágætiseinkunn
(magna cum laude). Ritgerðin, sem
gefin verður út á næsta ári í Þýska-
landi undir titlinum Die Vernebelte
Welt des Japanischen, Einige lingu-
istische Aspekte des Nihonjin-ron,
„Hinn þokukenndi heimur japönsk-
unnar, málvísindaumræður frá
sjónarhóli Nihonjin-rons“, fjallar
um þjóðerniskenndar umræður í
Japan um sérkenni japanskrar
tungu og áhrif þessara sérkenna á
hugsunarhátt og sjálfsímynd Jap-
ana
Eyþór Eyjólfsson fæddist í
Reykjavík 29. júlí 1963, sonur Eyj-
ólfs G. Jónssonar og Ingu Jónu Sig-
urðardóttur. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík 1983 og hóf nám við Ríkishá-
skólann í Moskvu sama ár. Sumar-
ið 1984 hóf hann nám í japönskum
fræðum og málvísindum við Ludw-
ig-Maximilians-háskólann í
Munchen. Sumarið 1989 lauk hann
magister-prófí við sama háskóla og
Dr. Eyþór Eyjólfsson
innskrifaðist í doktorskúrs við há-
skólann í Hiroshima. Ritgerð sína
vann hann við Háskólann í Hiros-
hima og að hluta til við Háskólann
í Munchen.
í maí sl. hóf Eyþór starf sem
framkvæmdastjóri við norska sjáv-
arafurðafyritækið Cocoon Ltd. in
Tokyo. Eyþór er með fasta búsetu
í Japan.
............................
Verslunarmannahelgi '93
Hótel Örk
Mekka ferdamannsins
Stutt frá stærstu sumarbústaðabyggð landsins
Lykill að ógleymanlegri helgi
meö börnunum, vinunum, félögunum,
elskunni, pabba, mömmu, systkinum
Ódýrari en þú heldur!
Fjölskyldur, einstaklingar, pör, hóparl
Þiö komið meö grillmatinn - viö bjóðum ykkur
ókeypis grillaðstööu í sundlaugargaröinum.
Los Dos Paragayos alla daga. - Píanóbar öll kvöld.
Skapiö ykkar eigin hátíð um heigina
Sundlaug, barnalaug, heitir pottar, gufubað,
vatnsrennibraut, trambolin, golfvöllur, púttbrautir,
tennisvelir, skokkbrautir, ýmsar gönguleiöir o.fl.
Stutt í Eden, Tívolí og Eidhesta
Flýtlð ykkur hægt í umferðinni.
Pantanir og upplýsingar í síma 98-34700.
HÓTEL ÖDK
HVERAGERÐI • SÍMI 98-34700