Morgunblaðið - 29.07.1993, Blaðsíða 41
í
I
I
I
i
I
I
I
I
1
Vj,KWí'Wt* f''*® sn&k B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 29. JÚLÍ 1993
41
Colin Jackson.
Reuter
■ COLIN Jackson frá Bretlandi
setti Evrópumet í 110 metra grinda-
hlaupi á alþjóðlegu fijálsíþróttamóti
í Sestriere á Italíu í gær. Hann
hljóp á 12,97 sekúndum, en fyrra
metið sem hann átti sjálfur var
13,04 sekúndur. Heimsmetið virðist
vera innan seilingar hjá Jackson,
en það á Bandaríkjamaðurinn
Roger Kingdom, 12,92 sek.
■ ÁRANGUR Jacksons er mjög
góður, sérstaklega þegar það er
haft í huga að mótvindur mældist
1,6 m/sek. meðan á hlaupinu stóð.
Fyrir mótið höfðu mótshaldarar
sagt að hver sá sem setti heimsmet
fengi sportbíl af Ferrari gerð að
launum, en enginn var svo heppinn.
■ „HINN fullkomni staður til að
ná heimsmetinu verður Stuttgart;
á heimsmeistaramótinu í næsta
mánuði," sagði Walesbúinn Colin
Jackson eftir hlaupið. „Það er ekki
hægt að segja að ég hefði náð
metinu ef ekki hefði verið mótvind-
ur. Það er einfaldlega ekki þannig,"
sagði hann.
■ ÓLYMPÍUMEISTARINN
Mark McKoy varð síðastur í hlaup-
inu, og fátt virðist benda til þess
að hann keppi á HM. Hann neitar
að fara á úrtökumót Kanada-
manna fyrir mótið, segir það ekki
henta sér að fljúga þangað núna.
■ SERGEI Bubka var ansi ná-
lægt því að setja heimsmet í stang-
arstökki, og krækja sér þar með í
Ferrari í Sestriere. í annarri til-
raun við 6,14 metra fór hann vel
Sir, en rak sig í á niðurleiðinni.
Hg QUINCY Watts frá Bandaríkj-
unum, Ólympiumeistari í 400
metra hlaupi, kunni vel við sig i
þunna loftinu í Sestriere og náði
þriðja besta tíma ársins í 400 metra
hlaupi, 44,13 sek.
■ FRANKIE Fredericks frá
Namibíu fann sig líka vel og sigr-
aði bæði í 100 og 200 metra hlaupi.
■ HEIKE Drechsler tapaði
óvænt í langstökki, stökk aðeins
7,12 metra meðan landa hennar
Susen Tiedtke stökk 7,19 og sigr-
aði. Drechsler kunni ekki eins vel
við sig nú í Sestriere og fyrir ári,
þegar hún stökk 7,63 metra og
setti nýtt heimsmet.
■ MELVIN Stewart, heimsmet-
hafi og fyrrum Ólympíumeistari {
sundi, sigraði í 200 metra flugsundi
á bandaríska meistaramótinu í
sundi. Stewart hafði tekið sér árs-
hlé frá sundinu eftir Ólympíuleik-
ana í Barcelona og reynt fyrir sér
sem leikari. Hann hafði lítið æft
fyrir mótið og kom árangur hans
því á óvart, honum ekki síst.
■ STEWART hefur lýst þvi yfir
að hann ætli að keppa á Ólympíu-
leikunum 1996, í Atlanta í Banda-
ríkjunum.
■ JAVIER Sotomayor frá Kúbu
sem setti nýtt heimsmet í hástökki
á þriðjudaginn, er sannfærður um
að enginn að núverandi keppinaut-
um hans muni bæta metið. „Þetta
met mun standa um nokkur ár,
nema það sé einhver óþekktur tán-
ingur sem er að gera góða hluti
einhversstaðar og ég veit ekki um,“
sagði Sotomayor.
KNATTSPYRNA
Stórsigur Stjöm-
unnar á Dalvík
Stjarnan mætir Akranesi í úrslitaleik bikarkeppni kvenna
„ÞAÐ var mikil barátta í byrjun leiksins og taugaspenna, en þegar
við fórum að skora kom munurinn á liðunum í Ijós og sigur okkar
var auðveldur," sagði Laufey Sigurðardóttir, sem stjórnaði Stjörn
unni til sigurs á Dalvík, 1:6, í undanúrsiitum bikarkeppni kvenna
í gærkvöldi. Stjarnan leikur því í fyrsta skipti til úrslita um bikar-
inn; mætir bikarmeisturunum frá Akranesi, fyrrum félögum
Laufeyjar. „Það verður gaman að leika gegn mínum gömlu félög-
um í úrslitaleiknum, sem verður án efa spennandi,11 sagði Laufey.
Dalvíkurstúlkurnar veittu
Stjömustúlkum harða keppni
til að byrja með, en eftir að Guðný
Guðnadóttir skoraði fyrsta mark
Stjörnunnar á 20.
Anton mín., komu tvö önn-
Benjamínsson ur strax {kjölfarið —
skrífar Elísabet Sveinsdótt-
ir og Guðný skoruðu mörkin á 23.
og 25. mín., og þá var sigur Stjörn-
unnar í öruggri höfn. Ásgerður
Ingibergsdóttir bætti fjórða mark-
inu við fyrir leikhlé. Seinni háfleik-
ur var vart byijaður þegar Laufey
Sigurðardóttir skoraði, 0:5, og á
65. mín. skoraði Guðný Guðnadótt-
ir sitt þriðja mark, 0:6. Mínútu síð-
ar skoraði Dalvík sitt eina mark og
var það Helga Eiríksdóttir að verki
úr vítaspyrnu.
Yfírburðir Stjörnunnar vom
miklir og kom munurinn á 1. og
2. deild í ljós í leiknum í snerpu,
knatttækni og styrk. Aðalbjörg
Hólm Stefánsdóttir, markvörður
Dalvíkinga, kom í veg fyrir að
Stjaman skoraði fleiri mörk. Þá lék
Iris Gunnlaugsdóttir vel í baráttu-
glöðu liði heimamanna. Stjörnuliðið
var jafnt, en Laufey Sigurðardóttir
stjómaði leik liðsins á miðjunni eins
og herforingi.
„Eg er stolt af stelpunum, þrátt
fyrir tapið. Þær börðust mjög vel,
en reynslan hafði mikið að segja,“
sagði Þórunn Sigurðardóttir, þjálf-
ari og leikmaður Dalvíkurliðsins,
en hún er sú eina sem áður hefur
leikið í undanúrslitum keppninnar.
Morgnnblaðið/Golli
Guðný GuAnadóttir sækir að marki Dalvikinga, en þær Iris Gunnlaugsdóttir og Jónína Jónsdóttir eru til varnar og
ekki tilbúnar að sleppa Guðnýu að marki sínu. Guðný var á skotskónum og skoraði þijú mörk fyrir Stjörnuna.
GOLF / LANDSMOTIÐ 3. FLOKKUR
Július sterkari í einvígi
JÚLÍUS Steinþórsson úr Golf-
klúbbi Suðurnesja varð fyrsti
sigurvegari landsmótisns, en
hann sigraði í 3. flokki karla
eftir mikla og spennandi
keppni við Magnús Gunnars-
son úr Golfklúbbi Reykjavíkur.
mr
pg er auðvitað mjög ánægður
■■ með sigurinn og það sem var
fyrir mestu var að þetta var jafnt
og spennandi allan tímann, Við
Magnús vomm jafnir eftir fyrri níu
holurnar og vorum sjö höggum á
undan næsta manni þannig að þetta
var einvígi í lokin og hafðist ekki
fyrr en á síðustu holunni," sagði
sigurvegarinn ánægður að aflokn-
um skemmtilegum en erfiðum
hring.
Það má segja að það hafi verið
taugastíð á milli þeirra á seinni níu.
Morgunblaðið/Óskar S.
Júlíus Steinþórsson.
„Ef marka má púttin sem við vomm
að missa þá voru þetta örugglega
taugamar. Það vom mörg pútt sem
við misstum en hefðu átt að fara
niður við eðlilegar kringumstæður.
Annars gekk þetta upp og niður
hjá mér í mótinu og í dag var sér-
staklega erfítt því það var hvasst
og kalt, en það skánaði þó undir
kvöldið," sagði Júlíus sem tók í
fyrsta sinn þátt í landsmóti og sag-
ist ætla að mæta á næsta mót að ári.
Magnús Gunnarsson úr golf-
klúbbi Reykjavíkur varð í öðru sæti
og var tiltölulega ánægður með
það. „Ég er nokkuð ánægður með
spilamennskuna nema hvað pútter-
inn minn fór að svíkja mig um tíma.
Ég úórpúttaði á tveimur holum í
röð, á þrettándu holu og þeirri fjórt-
ándu. Fyrir utan það var þetta í
nokkuð góðu lagi,“ sagði Magnús.
Lewis látinn
Reggie Lewis, fyrmm fyrirliði
Boston Celtics, er látinn.
Lewis sem fékk aðsvif í leik með
Boston fyrir þremur mánuðum,
29. apríl, og hneig niður, lék
ekki með Boston eftir það. Við
rannsókn þá kom í ljós að hann
var með hjartagalla og honum
ráðlagt af þijátíu hjartasérfræð-
ingum á sjúkrahúsi í Boston að
hætta að leika körfuknattleik.
Lewis leitaði á annað sjúkrahús,
þar sem honum var tjáð að það
væri allt í lagi fyrir hann að
leika körfuknattleik. Það kom
fram á þriðjudaginn, að það var
ekki rétt, því að hann hneig nið-
ur þegar hann var að leika sér
að skjóta að körfu og lést.
Lewis, sem var 27 ára, er
annar kunni leikmaðurinn í
NBA-deildinni sem hefur látist
á stuttum tíma. Serbinn Drazen
Petrovic hjá New Jersey Nets
lést í bifreiðaslysi á hraðbraut í
Þýskalandi 7. júní.
Lewis var stigahæsti leikmað-
ur Celtic sl. tvö ár. Hann skor-
aði að meðaltali 20.8 stig í leik.
■ FRANK Rijkaard ákvað í gær
að ganga til liðs við sitt gamla fé-
lag Ajax, eftir að hafa leikið með
AC Milan. Rykaard, sem er 30
ára, skrifaði undir tveggja ára
samning og sagðist ætla að ljúka
knattspyrnuferli sínum með Ajax.
M SPÆNSKA knattspymufélagið
Real Madrid ætlar að kaupa sló-
venska miðjumanninn Petr
Dubowski, sem er 21 árs. Hann
hefur undanfarið leikið með Slovan
Bratislava. Brasilíski vamarmað-
urinn Claudemir Vitor, sem einnig
er 21 árs, er kominn til Real
Madrid frá San Paulo, en spænski
landsliðsmaðurinn Rafael Alkorta
er farinn frá Real til Athletic
Bilbao.
■ HOLLENSKI landsliðsmiðheij-
inn Peter van Vossen, sem hefur
leikið með Anderlecht hefur gert
þriggja ára samning við Ajax.
■ NIl Lamptey frá Gana, sem
hefur verið í herbúðum And-
erlecht, er í láni hjá Eindhoven.
Hann skoraði tvo mörk þegar félag-
ið gerði jafntefli, 2:2, við Antwer-
Sen um sl. helgi í vináttuleik.
I RONNIE Whelan, fyrrum fyr-
irliði Liverpool, sem átti við meiðsli
að stríða sl. keppnistímabil, hefur
skrifað undir nýjan samning, sem
gefur honum aðeins laun fyrir hvern
leik sem hann tekur þátt í. Samn-
ingurinn verður endurskoðaður um
áramót.