Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.08.1993, Blaðsíða 48
yéæQuci! ttrgtuiHiifrlto MORGVNBLAÐW, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK Stw 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 ÞRIÐJUDAGUR 10. AGUST 1993 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK. Landsins forni fjandi 22 sjómíiur norðvestur af Vestfjörðum Mikill hafís mið- -að við árstíma ÓVENJU mikill hafís er norður og norð-vestur af Vestfjörðum miðað við árstíma. I ískönnunarflugi sem Landhelgisgæslan fór í gær mældist hann næst landinu 22 sjómílur norð-norðvestur af Kögri og 22 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Að sögn Þórs Jakobssonar, deildarstjóra hafíssdeildar Veðurstofunnar, er ástæðan norðanáttir sem ríkt hafa norður af landinu í sumar. Venjulega minnkar hafísinn mikið yfir sumarmánuðina og fram í lok september. Næst landi er hafísínn 30 sjómíl- ur norður af Horni, 22 sjómílur norð-norðvestur af Kögri, 22 sjómíl- ur norðvestur af Straumnesi, 60 sjómílur norðvestur af Barða og 60 ,— sjómílur vest-norðvestur af Bjarg- töngum. Til samanburðar má geta þess að í byijun júní var ísbrúnin næst landi 60 sjómílur norðvestur af Straumnesi. Þór segir að þegar hafíss verði vart á sumrin sé það yfirleitt vegna vestanátta sem hreki ísinn austur á bóginn úr Grænlandssundi til ís- lands. Að þessu sinni sé um að ræða ís sem haldist hafi við vegna norðanátta. „Vonandi verða vestan- áttir ekki ríkjandi á næstu vikum. Þær gætu valdið því að hafísinn ykist,“ segir hann. Hann segir að ekki sé hætta á að hafísinn nái landi þar sem sól sé hátt á lofti en hann geti þvælst fyrir á miðum og truflað samgöng- ur. Þór segist vilja minna skip- stjómarmenn á að senda Veðurstof- unni upplýsingar um hafís verði þeir hans varir. |MP^^ - - - r > " • ■■, •' • . V-,'• t ■ ... •■.' SilSÉlÉÉÉÍ Morgunblaðið/Halldór B. Nellett Stefnir í verulega nafnvaxtahækkun hjá viðskiptabönkunum á morgun Búnaðarbanki og Lands- banki hækka vexti um 3-5% Forsætisráðherra segir að gengið verði eftir að vextir lækki með verðbólgunni BANKASTJÓRN Búnaðarbankans hyggst í dag tilkynna hækkun nafnvaxta, á bilinu þrjú til fjögur prósentustig. Bankastjórn Lands- banka mun taka ákvörðun um nafnvaxtahækkun upp á þrjú til fimm prósentustig. Jafnframt er búizt við hækkun nafnvaxta hjá sparisjóð- unum, en vaxtabreytingadagur er á morgun. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra segir að þegar verðbólgan lækki á ný, verði gengið fast eftir því að vextir bankanna lækki með henni. hratt niður með verðbólgunni.“ Forsætisráðherra sagði að ríkis- stjórnin myndi fylgja því fast eftir að nafnvextir myndu fylgja lækkun verðbólgunnar. „Við munum til við- bótar fylgja því eftir að raunvextir, sem bankarnir hafa viljað miða við, fylgi eftir raunvöxtum á pappírum ríkisins, sem hafa verið að lækka á undanförnum vikum. Þar hefur orð- ið meiri lækkun en menn áttu von á svona snemma." Dómsmálaráðherra fangelsis eina lausn vandans ÞORSTEINN Pálsson, dómsmála- ráðherra, segir að bygging nýs fangelsis sé eina leiðin til að leysa þann vanda sem steðji að í örygg- ismálum á Litla Hrauni. Hann seg- ir að framkvæmdir við nýtt fang- elsi hefjist væntanlega í upphafi næsta árs. Ráðherra mun í dag gera ríkisstjórninni grein fyrir til- lögum um úrbætur í þessum mál- um sem Haraldur Johannessen, forsijóri Fangelsismálastofnunar, setti fram á fundi þeirra í gær. „Það er ljóst að fangelsið er ekki nægilega vel úr garði gert til að hægt sé að treysta því að fangar sleppi ekki þaðan út. Margt bendir líka til þess að mistök hafi átt sér stað í gæslu fanganna,“ segir Þor- steinn. Hann segir að strax þurfi að gera brýnustu ráðstafanir í öryggis- skyni en stærsta viðfangsefnið sé bygging nýs fangelsis. Unnið hafi verið að framgangi þess máls á und- anfömum mánuðum í samræmi við framkvæmdaáætlun sem fangelsis- málanefnd vann og ríkisstjórnin sam- þykkti. Uppfylla þarf mannréttindakröfur Þorsteinn segir að fangelsismál hafi verið vanrækt í áratugi. Ástæð- umar segir hann vera skort á póli- tískum vilja auk þess sem almenning- ur hafi hingað til ekki sýnt því áhuga að þessum málum væri sinnt sem skyldi. „Á hveijum tíma eru ýmis mál sem kalla á athygli manna en það eru engir pólitískir þrýstihópar á bak við úrbætur í fangelsismál- um,“ segir hann. Þorsteinn segist sannfærður um að meiri skilningur sé nú en áður á nauðsyn þess að öryggismál í fang- elsum séu í lagi en bendir jafnframt á að huga þurfi að fleiru. „Fangelsið þarf að vera öruggt og mannhelt en það þarf líka að uppfylla lágmarks mannréttindakröfur vegna þeirra sem þar eru vistaðir. Því miður upp- fylla ekki öll okkar fangelsi í dag lágmarkskröfur um aðbúnað fanga,“ segir Þorsteinn. Sjá einnig bls. 25 „Braut ...“ Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbankans, sagði að vaxtahækk- un yrði ákveðin í dag og yrði á bil- inu þijú til fjögur prósentustig. Hann vildi ekki nefna ákveðna tölu éða tjá sig að 'öðru leyti um hina fyrirhuguðu hækkun fyrr en hún lægi fyrir. Halldór Guðbjarnason, banka- stjóri Landsbankans, sagði að hjá bankanum stefndi í nafnvaxta- hækkun, þijú til fimm prósentustig. „Við höfum þá verðbólguspá, sem nú liggur fyrir, til viðmiðunar en við hækkum okkur ekki eins og kannski væri ástæða til ef við fylgd- um verðbólguspánni til hins ýtrasta. Við viljum ekki fara eingöngu eftir henni,“ sagði Halldór. Búizt við hækkun hjá sparisjóðum Hallgrímur G. Jónsson, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs vélstjóra, sagði að vaxtaákvörðun sparisjóð- anna myndi liggja fyrir í dag. „Það er ekki mikill áhugi á vaxtahækk- unum hjá okkur. Það er enn verið "að reikna áhrifin og spá í það hver verðbólgan verður næstu mánuði. Vextirnir ráðast af því hvort verð- bólgan hjaðnar fljótlega eða ekki. Þetta er því ekki vandalaust, en það er hætt við að einhver hækkun verði.“ íslandsbanki hækkaði nafnvexti óverðtryggðra útlána um 4-5% hinn 30. júlí síðastliðinn. Þá hélt Lands- bankinn hins vegar að sér höndum um vaxtabreytingar og Búnaðar- bankinn og sparisjóðirnir breyttu vöxtum óverulega. Vextirnir verði jafnfljótir niður aftur Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði, er hann var spurður álits á vaxtahækkunum bankanna: „Meg- inmálið er að þegar verðbólgan hnígur á nýjan leik, sem hún mun gera mjög fljótlega, verði bankarnir jafnfljótir að lækka vextina og þeir eru nú að hækka þá. Ef raunvextir hækka í raun ekki, sem er kannski alveg á mörkunum eins og dæmi var um hjá Islandsbanka á dögun- um, er ekki stór hætta á ferðum. Aðalatriðið er að vextirnir gangi íslenskur sjómaður í haldi iögreglu í Mobile Alabama L Slóst við öryggisvörð og tók af honum skammbyssu ÍSLENSKUR sjómaður á flutningaskipinu Akra- nesi, sem er í eigu Nesskipa hf., er í fangelsi í borginni Mobile í Alabama í Bandaríkjunum eft- ir að hafa lent í átökum við öryggisvörð og tek- ið af honum skanimbyssu síðastliðinn laugardag. Sjómaðurinn náðist skömmu síðar og vantaði eitt skothylki í byssuna þegar hann var handtek- inn. Sendiráð íslands í Washington var beðið um aðstoð í málinu og þar fékkst staðfest að maður- inn væri enn í haldi. Skipið sigldi hins vegar frá Mobile á sunnudag. Hilmar S. Skagfield, aðalræðismaður Islands í Tallahassee í Flórída, sagði að sjómaðurinn hefði farið óviljandi inn á lokað öryggissvæði á höfninni í Mobile. Þar hafi vopnaður vörður komið aðvífandi á bíl og ætlað að taka hann fastan. Sjómaðurinn hafi séð sitt óvænna, lagt öryggisvörðinn og tekið af honum byssuna. Byssan var spennt og eitt skot hljóp úr henni í jörðina. Sjómaðurinn var enn með byssuna er hann náðist. Ætlaði að stytta sér leið „ Forráðamönnum Nesskipa höfðu ekki borist mikl- ar upplýsingar um atburðinn er Morgunblaðið innti þá fregna í gær, en svo virtist sem maðurinn hefði verið á leið um borð í skipið kl. fimm að morgni laugardags. Hann hafi ætlað að stytta sér leið, og hafí þá farið um svæði þar sem ekki væri ætlast til mannaferða. Hilmar Skagfield sagði að samkvæmt upplýsing- um frá lögfræðingi mannsins lægi ekki fyrir neinn grunur um glæpsamleg áform, en áætlað er að maðurinn komi fyrir dómara á miðvikudag. Trygg- ingafé var ákveðið 180 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.