Morgunblaðið - 10.08.1993, Side 33

Morgunblaðið - 10.08.1993, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 1993 33 Minning Ásgeir Sumarliða son vélstjóri Fæddur 7. ágúst 1932 Dáinn 3. ágúst 1993 var að hlífa henni of mikið. Við munum hvemig hún heimtaði að klifra með okkur upp um fjöll og kletta í vorferðinni okkar þó það væri henni afar erfitt. Hún hló bara og sagði: „Ég fer bara hægt eins og gömul kona, verið ekkert að bíða eftir mér.“ Hver leiddi svo sönginn í rútunni á eftir nema hún Ása! Hún var tíður gestur í félagsmiðstöðinni okkar, Ekkó, og í kringum hana var æviniega líf og fjör og stór hópur vina. Hver man ekki þegar Ása fékk frí af spítalanum til að vera með okkur á árshátíð skólans, þó hún ætti að fara í hjartaþræðingu morg- uninn eftir? Það skal þó enginn halda að henni væri ekki ljóst hve alvarleg- ur sjúkdómur hennar var, en neitaði að gefast upp og lifði lífínu lifandi. Starfsfólk barnadeildar Landspítal- ans hefur sagt frá kjarki hennar þar og hvernig stóri vinahópurinn sem kom í heimsókn hleypti lífi og fjöri í heimsóknartímana og ekki síst hverngi hún taldi kjark í meðsjúkl- inga sína. Burt er kölluð ung og falleg kona, sem átti til að bera marga bestu kosti mannanna. Þeir eru margir unglingarnir í Kópavogi sem velta fyrir sér fallvaltleika lífsins þessa dagana. Við þau og alla sem þekktu Ásu viljum við segja: „Geymið góðu minningarnar um hana og hugsið til hennar ef ykkur brestur kjark. Pjölskyldu hennar sendum við samúðarkveðjur. Verði mér hugsað að veðrahami lægðum í undarlegri kyrrð um óbuganleikans blóm: Ljósbera á mel, lilju á strönd, biáhvíta fjörumöl, eða burnirót á syllu: Þá veit ég ekki fyrr til, vinur minn góður, en ég hugsa til þín og heimti seigluna aftur. Beri mig í eftirleit að upprunans lindum og reyni þar að lesa af lifandi vatninu lögmál þolgæðis og lögmál drengskapar: hvað niðar þá í hlustum nema nafn þess vinar, sem lógmál þau bæði borið hefur ófölskvuð dýpra flestum mönnum í dulu bijósti. Og hvenær fáum við þakkað sem þessa höfum notið? (ÓlJóh.Sig.) Kveðja frá kennurum og nem-. endum Starfsdeildar Kópavogs og starfsfólki í félagsmiðstöð- inni Ekkó. Það var í austan brælusudda, seinnihluta sumars 1966. Ég stóð á einni af síldarbryggjunum í Nes- kaupstað með nokkrar 20 lítra smur- olíufötur meðferðis á leið út í síldar- skipið Oddgeir frá Grenivík. Það lá í skiparöðinni, að minnsta kosti 6. skip frá bryggju. Ég stóð þarna dijúga stund og var að velta því fyrir mér hvaða leið út í skipið væri skást að fara. Átti ég að fara yfir þilförin eða ef til vill stefnin eða nota pallana? Allar voru leiðirnar erfiðar með smurolíuföturnar með- ferðis. Sem ég stend þarna hjá fötunum, fremur ráðalítill, er kallað glaðlega: „Ég skal skutla þessu yfir fyrir þig á bátnum." Ég áttaði mig ekki alveg strax á því hvaðan röddin kom eða hvort henni var beint til mín. Eftir að hafa litið vel í kringum mig nokkra stund kom ég auga á skipsj- ullu, með einum manni, fyrir aftan skipin. Þaðan kom kallið. Ég horfði á manninn sem talaði, bjóst við að þarna færi einhver sem ég þekkti, annars hefði hann varla boðið fram hjálpina en svo var ekki, þennan mann bar ég engin kennsl á, taldi mig raunar ekki hafa séð hann áður. Þegar föturnar voru komnar um borð í Oddgeir tókum við tal saman. Þá kom í ljós að sá sem hafði tekið á sig krókinn og fyrirhöfnina til þess að hjálpa mér, ókunnungum, var Ásgeir Sumarliðason sem kvadd- ur er í dag hinstu kveðju. Þannig hófust kynnin sem voru í fyrstu bara kunningsskapur en breyttust, eftir því sem árin liðu og leiðirnar lágu meira saman, í vin- áttu. Um haustið settumst við báðir í fyrsta bekk Vélskóla íslands, þar vorum við sessunautar veturlangt. Á þeim árum var megnið af námsefni skólans á erlendri tungu, oftast dönsku eða norsku, sem okkur bekkjarfélögunum gekk heldur illa að skilja og fannst sannast sagna efnið alveg nógu strembið fyrir þótt við þyrftum ekki til viðbótar að læra það á erlendri tungu. í fyrstu fór því mikill tími, heima eftir skóla, að komast í gegnum textann. Tungu- mál, hvort sem það var íslenska eða þau erlendu tungumál sem þá voru kennd, lágu opin fyrir Ásgeiri, þó hafði hann ekki langa formlega skólagöngu, einungis barnskólann. Dönskuna og enskuna hafði hann lært í bréfaskóla með hjálp útvarps- ins á þeim tíma, með góðum árangri. Þrátt fyrir skamman undirbúning, á mælikvarða nútímans, skémmri en margir okkar höfðu, stóð hann okkur flestum framar á þessu sviði. Þegar það síðan vitnaðist, að mörg- um af okkur bekkjarfélögunum gengi illa að komast í gegnum er- lenda námsefnið bauð hann, líkt og fyrr um haustið í Neskaupstað, fram aðstoð sína. Eftir það hittist ákveð- inn hluti bekkjarins á heimili Ás- geirs og Fanneyjar í Auðbrekkunni í Kópavoginum, tvisvar í viku þenn- an vetur. Þar var ekki bara farið yfir námsefnið helur líka notið rausnarlegra veitinga húsfreyju og spjallað saman um allt sem við kom lífinu og tilverunni. Frá kvöldunum í Auðbrekkunni eigum við bekkjarfélagarnir sérstak- lega ljúfar minningar og ég veit ég tala þar fyrir munn okkar allra. Um vorið skildu leiðir, við fórum báðir á sjóinn, höfðum fyrir fjölskyldu að sjá og tókum okkur frí frá náminu um skeið, ég í eitt ár en Ásgeir í fjögur. Þrátt fyrir það rofnaði sam- bandið ekki þótt samskiptin minnk- uðu um tíma. Leiðirnar lágu síðan aftur saman og þá á sviði félagsmál- anna. Ásgeir sat í stjórn Vélstjórafé- lags íslands frá árinu 1981 allt til dauðadags. Þar reyndist hann, eins og annars staðar traustur félagi, félagi sem gott var að ráðgast við og þiggja ráð frá. Nú þegar komið er að leiðarlokum streyma minningarnar fram, minn- ingar um fjölmargt sem henti okkur á vegferðinni, atvik sem segja, eftir því hvernig við er brugðist, frá manngerðinni sem.hver manneskja hefur að geyma. Eftir tæplega 30 ára kynni lýsir atvikið í Neskaupstað forðum manngerð Ásgeirs Sumarl- iðasonar, hjá honum sat hjálpsemin og drenglyndið í fyrirrúmi. Þessir eiginleikar mótuðu öll hans störf og samskipti við aðra, enda var Ásgeir vinamargur og vinsæll á sínum vinnustað. Nú skilja leiðir, við hjónin færum eiginkonu hans, Fanneyju Sumar- liðadóttur, og börnunum, okkar bestu samúðarkveðjur. Helgi Laxdal. Minning Maurice Eyjólfsson Látinn er í Manitoba í Kanada Maurice Eyjólfsson. Maurice var ís- lenskur í báðar ættir. Foreldrar hans voru Friðrik Eyjólfsson og Arnheiður Guttormsdóttir skálds J. Guttorms- sonar og Jensínu J. Daníelsdóttur. Maurice var fæddur 14. apríl 1927 og var því 66 ára þegar hann lést. Kynni okkar Ástríðar af Maurice voru ekki löng í árum mælt, en því ánægjulegri sem þau urðu nánari. Hann var einstakt Ijúfmenni, áhuga- samur um allt sem íslenskt var, bæði hér heima og í íslendinga- byggðum Kanada. Hann var um langa hríð lykilmaður við undirbún- ing hátíðarhalda í Gimli í tilefni ís- lendingadagsins og hlakkaði mjög til að leggja sitt af mörkum til þess mikla fagnaðar Kanadamanna af íslenskum ættum nú. Svo fór þó ekki, því dauðinn kallaði örfáum dögum áður, hinn 27. júlí sl. Maurice átti farsælan feril í Man- itoba og gegndi fjölda trúnaðar- starfa fyrir fylkið. Hann var meðal annars sáttasemjari fylkisins og naut mikils trúnaðar og trausts beggja aðila, enda hefur framganga hans og lundarfar vel hentað manni sem lægja þurfti öldur og setja niður deilur. Um skeið gegndi hann jafnframt embætti vara atvinnumálaráðherra Manitoba. Maurice var formaður stjórnar Bethel-stofnunarinnar og stjórnarmaður í Lögbergi-Heims- kringlu. Hann var jarðsettur í fæðingarbæ sínum Riverton 3. ágúst sl. að lok- inni minningarathöfn í Winnipeg. Mauricel var elstur þriggja sona Arnheiðar og Friðriks og lifir ný yngsti bróðirinn einn, Unnsteinn Dennis Eyjólfsson. Davíð Oddsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldreigi, hveim er sé góðan getur. (Hávamál) Mig langaði að minnast Ásgeirs tengdaföður míns með örfáum orð- um. Hann lést aðfaranótt hins 3. ágúst eftir þriggja vikna sjúkrahús- legu, en hann fékk heilablóðfall 13. júlí og komst aldrei til meðvitundar aftur. Með Ásgeiri er horfinn góður maður yfir móðuna miklu. Ég kynnt- ist Ásgeiri fyrst fyrir tæpum áratug þegar ég kom sem tilvonandi tengda- dóttir hans inn á heimilið. Ég man ennþá eins og það hefði gerst í gær hversu innilega og hlýlega Ásgeir tók á móti mér í fyrsta sinn og alla tíð síðan var hann mér afskaplegg góður eins og ég væri hans eigin dóttir og þau hjón bæði. Ásgeir var frá Gróustöðum í Geiradal í A-Barðastrandasýslu. Foreldrar hans voru Sumarliði Guð- mundsson og Signý Björnsdóttir, en þau eru bæði látin. Sumarliði faðir hans var þúsundþjalasmiður, hvort sem var á járn eða tré, og laginn við allar vélar þótt sjálfmenntaður væri í þeim efnum. Hefur Ásgeir vafalítið fengið þar góðan heiman- mund, enda lagði hann vélstjóra- starfið fyrir sig sem ævistarf. Upp úr tvítugsaldri hleypti hann heim- draganum og fór til sjós í Grundar- firði og Stykkishólmi. Síðan lá leiðin til Reykjavíkur og var hann vélstjóri á ýmsum bátum fram til ársins 1970. Þá gerðist hann vélstjóri á milli- landaskipum og var farmaður til dauðadags. Mestan þann tíma var hann hjá Hafskip, fyrst á Langánni og síðan á Skaftá. Hann var síðan stuttan tíma hjá Nesskip og lauk starfsævinni hjá Eimskip. Ásgeir kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni Fanney Sumarliðadótt- ur frá Siglufirði árið 1963. Þau eign- uðust þijá syni. Þeir eru Sumarliði matreiðslumeistari í Stykkishólmi, Ásgeir framleiðslumaður í Reykjavík og Steinþór verkamaður í Reykjavík. Líf farmannsins kostar mikla fjar- vistir frá heimili, fjölskyldu og vin- um. Það gefst oft lítill tími til að stunda áhugamál, sem Ásgeir hafði þó mörg. Hann hafði gott tóneyra og átti létt með að töfra fram ljúfa tóna á rafmagnsorgelið sitt. Sjálf- sagt muna hann margir þegar hann tók fram harmonikkuna og spilaði á böllunum í Króksfjarðarnesi í gamla daga. Hann hafði líka unun af lestri góðra bóka og af leikhúsferðum sem voru stundum alltof fáar. Ævikvöld- inu ætlaði hann að eyða við smíðar ýmiskonar og hafði safnað ýmsum verkfærum til þess, því þá átti loks að gefast til þess tími. Sá tími kom aldrei því að hann þurfti að leggja af stað í sína síðustu siglingu miklu fyrr en nokkur bjóst við, en það skip er ekki með viðvaning í vélar- rúminu. Það er undarleg tilfinning að eiga aldrei eftir að koma í Víkurbakkann, þannig að hann komi brosandi á móti okkar og bjóði okkur velkomin. Brosið var alltaf til staðar þegar hann tók á móti barnabörnunum sín- um, enda breiddu þau alltaf faðminn á móti honum og voru mjög hænd að honum. Þeirra missir er mikil! að fá ekki að alast upp með afa sín- um sem var svo stoltur af þeim. Elsku Fanney mín, þú hefur missti mikið, en minningin um góðan mann lifir. Megi góður Guð veita þér og fjölskyldu þinni styrk í sorginni. Hrafnhildur Hallvarðsdóttir. Ásgeir vinur okkar er farinn í sína síðustu ferð. Góður drengur er allur, alltof fljótt. Ásgeir var fæddur 7. ágúst 1932 í Garpsdal, í A-Barðastrandarsýslu, sonur hjónanna Signýjar Björnsdótt- ur og Sumarliða Guðmundssonar, þess kunna hagleiksmanns. Ásgeir kvæntist 1. janúar 1963 Fanneyju Sumarliðadóttur, ættaðri frá Siglu- firði. Eignuðust þau þijá syni, þá Sumarliða matsvein, Ásgeir fram- reiðslumann og Steinþór sem enn er í foreldrahúsum. Barnabörnin eru orðin fjögur, augasteinar ömmu og afa. Hugur Ásgeirs beindist fljótt að sjómennsku og varð það hans lífs- starf. Hann hóf sjómennsku sína á fiskiskipum. Árið 1958 fór hann á mótornámskeið og í Vélskólann 1967 og tók svokallað II. stig. Smiðjutíma sinn tók hann hjá Krist- jáni Gíslasyni. Ásgeir hóf störf hjá Hafskipi 1970 sem fjórði vélstjóri á m/s Langá, þá kominn með konu og þijá unga syni. Á þeim tíma drífur hann sig, með dyggri aðstoð Fanneyjar, í Vélskól- ann og lýkur 3. og 4. stigi, jafnframt því að þau koma sér upp húsnæði. Á síðustu árum Hafskips er Ásgeir orðinn yfirvélstjóri á m/s Skaftá. Eftir það sigldi hann um tíma á skipum Sambandsins og Nesskips en síðustu árin a skipum Eimskips. •— Kynni okkar Ásgeirs hófust þegar við sigldum saman á m/s Langá fyrir rúmum 20 árum og vinátta tókst einnig með fjölskyldum okkar sem ekki hefur borið skugga á síð- an. Þau hjónin voru samhent og frá- bær heim að sækja og vildu hvers manns vanda leysa. Ásgeir var hæg- lætis maður í eðli sínu en gat sannar- lega skipt skapi ef þannig stóð á. Hann hafði gaman af tónlist og spil- aði sjálfur á harmonikku einnig var hann víðlesinn og hafði gaman af ferðalögum. Og hafa þau hjónin ekið vítt og breitt um meginland Evrópu og Bretland mörg undanfar- in ár. Góður drengur er allur og enginn fær því breytt. Það er erfitt að minn- ast látins vinar og fátt um orð, en Ásgeir Sumarliðason var sá skipsfé- lagi sem flestir sjómenn vilja eiga, mér hlotnaðist það. Ótal myndir úr starfi og leik líða um huga minn, þær gleymast ekki. Við Hrafnhildur sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur. Lárus Hallbjörnsson. PHILCO M Þvottavélar á verði sem allir ráða við! Þær nota HEITT OG KALT vatn - spara tíma og rafmagn •Fjöldi þvottakerfa eftir þinu vali •Sérstakt ullarþvottakerfi •Fjölþætt hitastilling •Sparnaðarrofi •Stilling fyrir hálfa hleðslu L85-800 sn. Verð 57.500,- 54.625,m Stgr. (D II 3c MUnXlÁN Heimilistæki hf 49.875,- SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 00 . FAX 69 15 55

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.