Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
Stokkhólmur hugsanlega fundarstaður
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði að tilhögun samn-
ingafundarins hefði ekki verið
ákveðinn. Hann yrði væntanlega
haldinn á þriðjudag og sagði Þor-
steinn ekki ólíklegt að íslendingar
myndu stinga upp á Stokkhólmi
sem fundarstað. Ráðherramir taka
báðir þátt í viðræðunum ásamt
starfsbræðrum þeirra frá Noregi
en ekki er ákveðið hvaða embættis-
menn fara með þeim. Þorsteinn
sagði að sjávarútvegsráðuneytið
myndi bjóða fulltrúum helstu hags-
munaaðila að vera samráðsaðilar í
viðræðunum. Hann sagði ekki frá-
gengið hveijum yrði boðið að senda
fulltrúa en nefndi LÍÚ, Sjómanna-
sambandið og Farmanna- og físki-
mannasambandið.
Lenti á vegriði
Morgunblaðið/Ingvar
HARÐUR árekstur varð á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar laust eftir kl. 9 í gær-
kvöldi. Bifreið fór yfír á rauðu ljósi, lenti á öðrum bíl og stöðvaðist loks uppi á vegriði eftir að hafa farið
yfír umferðareyju. Engan sakaði við áreksturinn en að sögn lögreglu er ökumaður bflsins sem árekstrinum
olli grunaður um ölvun við akstur.
Laun landverkafólks í Alþýðusambandi Islands á fyrsta ársfjórðungi 1993
Hagsmunaaðilum
boðið til viðræðna
SJÁVARÚTVEGS- og utanríkisráðherra hittust á fundi síðdegis
í gær til að ræða efni og tilhögun viðræðna þeirra við starfsbræður
þeirra í Noregi um veiðar íslenskra skipa í „Smugunni" í Barents-
hafi. Málin skýrðust, að sögn sjávarútvegsráðherra, en ekki hefur
verið ákveðið hvað lagt verður fyrir Norðmenn. Fundurinn verður
á þriðjudag og er líklegt að íslendingar stingi upp á Stokkhólmi sem
fundarstað.
Kaupmáttur heildarlauna
jókst um 1% frá síðasta ári
Bréfastafli
KASSARNIR tveir sem bárust
forsætisráðuneytinu með bréfum
frá fólki víða um heim.
Tveir kass-
ar af mót-
mælabréfum
SKRIFSTOFA Simon Wiesen-
thal-stofnunarinnar í ísrael hef-
ur sent Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra yfir 6.000 mótmælabréf
þar sem krafist er ákæru á hend-
ur Edvald Hinrikssyni. Að sögn
Alberts Jónssonar deildarsljóra
í forsætisráðuneytinu hafa bréf
borist ráðuneytinu frá því í maí
en á þriðjudag bárust síðan tveir
kassar í einu með bréfum.
Bréf þau sem hér um ræðir eru
öll eins og útbúin af Simon Wiesen-
thal-stofnuninni en síðan skrifar
fólk nafn sitt undir.
Aðspurður segir Albert að ráðu-
neytið muni svara þessum bréfum,
að vísu ekki hveiju fyrir sig því
slíkt væri of mikið mál. „Við höfum
ekki tekið endanlega ákvörðun um
hvemig við svömm þessu en vænt-
anlega verður skrifað bréf til Wies-
enthal-stofnunarinnar. “
GREITT tímakaup hjá landverkafólki innan Alþýðusambands ís-
lands hafði hækkað meira á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en umsam-
in 1,7% hækkun kauptaxta skv. kjarasamningum sem gerðir voru
vorið 1992. Þannig hækkaði greitt tímakaup í dagvinnu um 3% frá
fyrsta ársfjórðungi 1992 til sama tímabils í ár. Á því tímabili hækk-
aði hins vegar framfærsluvísitalan einnig um 3% þannig að kaup-
máttur greidds tímakaups í dagvinnu er óbreyttur. Þetta kemur
fram í Fréttabréfi Kjararannsóknamefndar um mat á launum á
fyrsta ársfjórðungi 1993.
Fram kemur í fréttabréfinu að hækkunin aðallega rakin til hærri
greitt tímakaup hjá verkakonum bónusgreiðslna í fískvinnslu, þar
hækkaði mest eða um 5% og er sem bónus er nú þriðjungur af
Ný fimm manna stjórn Tímans kosin
Steingrímur verður
í sljóm Mótvægis
HLUTHAFAFUNDUR í Mótvægi, hinu nýja félagi um rekstur dag-
blaðsins Tímans, kaus nýja stjóra fyrir félagið í gærdag. Jafnframt
var ákveðið að auka hlutafé í 30 milljónir en vilyrði eru komin fyrir
25 milljónum króna og þar af búið að ganga frá tæpum 20 milljón-
um. Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins var
meðal þeirra sem kosnir voru í hina nýju stjórn.
Steingrímur segir að hann hafí
farið með umboð fyrir hlut Fram-
sóknarflokksins á fundinum en það
hafí ekki verið ætlun sín að leita
eftir sæti í stjóminni. Hins vegar
hafi ekki náðst samkomulag um
uppstillingu í stjórnina og því hafi
þetta orðið niðurstaðan. Hin nýja
stjóm kemur saman á föstudag til
að kjósa sér formann og segir Stein-
grímur að ekki komi til greina af
hans hálfu að taka það embætti að
sér. Hann sagði starfí sínu lausu sem
formaður fyrri stjómar á fundinum.
Fjallahjól
Islendingur stefnir á þátttöku í
heimsmeistaramótinu 7
liUMrtðm
á Holidayhm?
onjEJvrrzgrr?: ~r,- rr.-j.-;.-
2£"i&2£s3& Stofuun rekstrar-
ftíaga uudirbáiu
'2S
Bell-þyrlur
Stjórnvöldum standa til boða tvær
notaðar Bell-þyrlur 16
Valsmenn unnu
Valur sigraði Mypa 47 frá Finn-
landi í fyrri leik liðanna í Evrópu-
keppninni 51
Leiðarí
Samstarf þjóðanna á norðurslóðum
26
Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá
► Softís semur um Louis - Hörku-
samkeppni á poppmarkaði -
Gagnrýnin á Evrópubankann áttí
sér jákvæðar hliðar - Hamagang-
ur á vatnsmarkaði í Bretlandi
► Fréttamenn í fremstu víglfnu
- Stjama Marilu Henner rís hátt
- Óklæðileg klipping i tisku í
Hollywood - Útlaginn með Clint
Eastwood
greiddu tímakaupi verkakvenna í
fiskiðnaði. Greitt tímakaup iðnað-
armanna hækkaði um 3,9%, verka-
karla um 3,2%, afgreiðslukvenna
um 2,9% en um 1,9% hjá af-
greiðslukörlum. Hjá skrifstofukon-
um hækkaði greitt tímakaup um
1,2% en dróst saman um 0,3% hjá
skrifstofukörlum frá fyrsta árs-
fjórðungi.
Lengri vinnuvika
Mánaðarlaun landverkafólks í
fullu starfí hækkuðu um 4% frá
fyrsta ársfjórðungi 1992 eða að
meðaltali úr 106 þús. kr. á mánuði
í 111 þús. Þar sem verð á vöru
og þjónustu hækkaði um 3%, jókst
kaupmáttur heildarlauna um 1% á
tímabilinu. Hækkuðu tekjurnar
mest hjá verkafólki en Kjararann-
sóknarnefnd segir ástæðu þess að
heildarlaun verkafólks hækkuðu
meira en tímakaup þess í dagvinnu
sé að leita í lengri vinnudegi og
meiri yfirvinnu en á fyrsta árs-
fjórðungi á síðasta ári. Að meðal-
tali lengdist vinnuvika landverka-
fólks um hálfa klukkustund á tíma-
bilinu. Vinnuvikan lengdist mest
hjá verkakonum eða um rúmlega
eina klukkustund að meðaltali.
Slasaðist
í bílveltu í
Skötufírði
STÚLKA slasaðist alvarlega þeg-
ar bíll fór út af í botni Skötufjarð-
ar við ísafjarðardjúp síðdegis í
gær. Þrennt var í bílnum. Oku-
maður og farþegi í framsætí hlutu
minniháttar meiðsl og fengu að
fara heim eftir skoðun á sjúkra-
húsinu á ísafirði.
Stúlkan sem slasaðist sat í aft-
ursæti bifreiðarinnar og var ekki í
bílbelti. Hún var flutt á Borgarspítal-
ann í Reykjavík eftir að læknar á
qúkrahúsinu á ísafirði höfðu kannað
meiðsl hennar. Ökumaðurinn missti
vald á bílnum í lausamöl með fyrr-
greindum afleiðingum.
Með Steingrími í stjórninni eru
Jón Sigurðsson kennari, Steingrímur
Gunnarsson leiðsögumaður, Bjarni
Þór Óskarsson lögfræðingur og
Bryndís Hlöðversdóttir lögfræðingur
ASÍ.
Aðspurður hvort til greina komi
að kvennablaðið Vera sameinaðist
hinu nýja félagi segir Steingrímur
að hann hafi ekki heyrt slíkt. Hins
vegar hafí margar kvennalistakonur
sýnt málinu áhuga og gerst hluthaf-
ar. Hann fagni samstarfí við þær.
Ný þjónusta í Morgunblaðinu
Kjarabót fyrir
lesendur blaðsins
í tengslum við neytendaumfjöll-
un Daglegs lífs í Morgunblaðinu er
lesendum boðið upp á nýja þjónustu
í dag, svonefnda „kjarabót“. Á bls.
23 bjóða 15 fyrirtæki lesendum
afslátt af vöru og þjónustu. Yfir-
skrift síðunnar með 15 afsláttarm-
iðum er „Klipptu út kjarabót". Af-
sláttarmiðamir eru í líkingu við það
sem erlendis er nefnt „kúbonar" en
hafa í blaðinu hlotið heitið kjarabót.
Til að geta nýtt sér afsláttinn sem
er i boði þarf lesandinn að klippa
út miðana og afhenda við kaup á
vörunni eða þjónustunni. Afsláttur-
inn er ýmist í formi króna eða pró-
senta. í blaðinu í dag er boðinn
afsláttur af kvenreiðhjólum, golf-
pokum, skólatöskum, pizzum,
skyrtum, ís, geisladiskum, bíómið-
um, ljósatímum, bílaþvotti, sturtu-
klefum, gróðurmold, vítamíni,
hjólabarða- og smurþjónustu og
raftækjum.
Stefnt er að því að lesendur geti
gengið að kjarabótinni vísri á
fímmtudögum og geta þeir sem
áhuga hafa á að bjóða lesendum
rm*
gH*
j|]U
Morgunblaðsins afsláttarkjör á vöru
sinni eða þjónustu haft samband
við starfsfólk auglýsingadeildar.
Sjá bls. 23: „Klipptu
út kjarabót“.