Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1993
Hönnunarsamkeppni um nýtt Hæstaréttarhús
Um helmingur tillagna
utan auglýstrar línu
RÚMLEGA helmingur alls 40 tillagna sem bárust í samkeppni um
nýtt hús fyrir Hæstarétt íslands liggur utan byggingarlínu samsíða
vesturgafli Landsbókasafns, sem áður hafði verið auglýst á vegum
borgarskipulags og skipulagsstjórnar ríkisins. Fimm af sex tillögum
sem verðlaunaðar voru liggja utan línunnar, þar á meðal verðlauna-
tillagan, að sögn Þorvaldar S. Þorvaldssonar, forstöðumanns
borgarskipulags. Þorvaldur sagði jafnframt að skrýtið væri ef
arkitektar hefðu tekið til greina þessa línu við gerð tillagna sinna,
þar sem skýrt væri tiltekið í samkeppnislýsingu að nýta mætti alla
lóðina.
Þorvaldur sagði að áður en
ákveðið hafí verið að fara út í sam-
keppni um byggingu Hæstaréttar-
húss hafi Ingimundur Sveinsson,
arkitekt, verið fenginn til að gera
tiliögur um byggingu á lóðinni, á
vegum dómsmálaráðuneytisins. í
framhaldi af því hafi verið ákveðið
að auglýsa samkvæmt skipulags-
lögum og lýst eftir ábendingum í
sambandi við byggingu á lóðinni.
Þar hafi verið sett inn umtöluð
byggingarlína, í línu við vesturgafl
Safnahússins.
Frestur til athugasemda
rennur út um helgina
Þorvaldur sagði frest til að koma
á framfæri sjónarmiðum vegna
auglýsingarinnar renna út nú um
helgina. Frá upphafi hafi hins veg-
ar verið gert ráð fyrir að úrslit
samkeppninnar lægju fyrir áður
en fresturinn væri úti, svo hægt
væri að nota samkeppnina til að
ákvarða staðsetningu hússins.
Þess vegna hafi umrædd lína
hvergi verið nefnd eða sýnd í sam-
keppnislýsingu.
Steindór Guðmundsson, yfir-
maður framkvæmdadeildar Inn-
kaupastofnunar ríksins og formað-
ur dómnefndar í samkeppninni,
sagði nefndina hafa vitað af um-
ræddri línu. Tilgangurinn með
samkeppninni hafi meðal annars
verið sá, að arkitektar fengju til-
lögurétt um staðsetningu bygging-
arinnar á lóðinni, og síðan yrðu
gögnin send borgaryfirvöldum.
„Ráðgjafar dómnefndar voru borg-
arverkfræðingur og forstöðumaður
borgarskipulags, þannig að þeir
komu að málinu allan tímann,“
sagði hann.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 19. AGUST
YFIRLIT: Um 150 km SV af Reykjanesi er 979 mb lægð sem þokar norð-
austur og síðar austnorðustur. Heldur vaxandi hæðarhryggur er yfir norð-
austur Grænlandi, en minnkandi hæðarhryggur er yfir Englandi.
SPÁ: A- og SA, 4-6 vindstíg. Rigning eða súld með köflum um allt S-
vert landið, en bjart með köflum N-lands. Er kemur fram á daginn gengur
vindur smám saman I NA 5-7 vindstig NV-lands, en með kvöldinu i öðrum
landshiutum. Hiti verður um 11 stig S-lands, en sumsstaðar yfir 15 stig
fyrir norðan. Með NA-áttinni fer að kólna og blotna um N-vert landið, en
S-lands léttir til.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: N-strekkingur um allt land. Súld eða rigning á
N- og A-landi en nokkuð bjart veður S- og V-lands. Hiti 5-8 stig N-til en
allt að 14 stig syðra.
HORFUR Á LAUGARDAG: NV átt, nokkuð stif NA-til en hæg V-lands.
Súld NA-lands en yfirleitt þurrt annars staðar. Afram svalt, einkum N-
og A-lands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg eða NV átt. Smáskúrir víð NA-
ströndina en annars þurrt og víða léttskýjað. Heldur hlýnandi veður. Nýir
veðurfregnatimar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22. 30.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfreqnir: 890600.
o
Heiöskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
ÍM
Léttskýjað
* r *
* /
r * /
Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
♦ *
* * *
Snjókoma
Á
Skýjað
Alskýjað
V V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörirnar vindstyrk,
heil fjööur er 2 vindstig.
10° Hitastig
Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐÁ VÉGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Vtða er
þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri samkvæmt
merkingum þar. Hálendisveglr erufærirfjallabilum, Gæsavatna- og Dyngju-
fjallaleiðir ennþá ófærar vegna snjóa sama er að segja um Hrafntinnusker.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og t
grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í
UMHEIM
ísl. tíma
hitl veftur
Akureyri 16 okýjað
Reykjavík 11 súld
Bergen 13 skýjað
Helainki 11 rigníng
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Narssarssuaq 9 akýjað
Nuuk 6 skýjað
Osló 18 léttskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 23 skýjað
Amsterdam 17 skýjað
Barcelono 28 léttskýjað
Berlín 17 skýjað
Chlcago 28 mistur
Feneyjar 27 skýjað
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 15 mistur
Hamborg 16 hálfskýjað
London 22 léttskýjað
Los Angeles 22 mistur
Lúxemborg Madrkl 23 35 léttskýjað skýjað
Malaga 27 alskýjað
Msllorca 27 léttskýjað
Montreal 24 skýjað
NewYork 23 skúrá sið.klst.
Orlando 34 léttskýjað
París 26 léttskýjað
Madelra vantar
Róm 27 heíðskírt
Vín 22 léttskýjað
Washington 29 mlstur
Wlnnlpeg 22 léttakýjað
V
fDAG kl. 12.00
Heimild: Veöuretofa islandc
(Byggt á veðurapá kl. 16.15 i gmr)
Á tölti
REYNIR og Skúmur eru við þröskuldinn á A-úrslitum í tölti T 2,
en hann hafnaði í 6. sæti.
Heimsmeistaramótið í Hollandi
Hiiirik stendur vel
að vígi í skeiðinu
Spaarnwoude. Frá Valdimar Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
HINRIK Bragason og Eitill frá Akureyri standa nú vel að vígi
eftir tvo fyrstu sprettina af fjórum í 250 metra skeiði er þeir
náðu besta tíma 22,4 sek. Eitill lá ekki fyrri sprettinn. Aðalkeppi-
nauturinn, Vera Reber, Þýskalandi, á Frosta frá Fáskrúðabakka,
kom næst á 22,7 sek. og Magnús Lindquist, Svíþjóð, á Hrammi
frá Akureyri og Sigurbjörn Bárðarson á Höfða frá Húsavík eru
jafnir í þriðja til fjórða sæti á 23,4 sek. Heimsmeistarinn í grein-
inni Ulf Lindgren, Svíþjóð, á Hrafnkatli frá Sauðárkróki, og
Thomas Haag, Sviss, á Klaka frá Schloss Neubronn, eru £vo jafnir
í fimmta sæti á 23,7 sek.
Reynir Aðalsteinsson hafnaði í
sjötta sæti á Skrúmi frá Geirshlíð
í tölti T 2 sem er fyrir fimmgangs-
hesta. Þetta þýðir að hann á góða
möguleika á að komast í A-úrslit
því sjötti hestur í B-úrslitum vinn-
ur sér rétt til þátttöku þar. Atli
Guðmundsson keppti einnig í
þessari grein og hafnaði í 13.
sæti. Einnig fór fram forkeppni í
hlýðni og varð þar efst Sandra
Feldmann, Þýskalandi, á Glampa
frá Erbeldingerhof. Enginn Is-
lendingur keppti í þessari grein
en úrslit fara fram á sunnudag
og mæta þá tíu efstu keppendur
til leiks. Seinni umferð í 250 metr-
unum fer fram á laugardag.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Keflavík
Tekinn með 8.000
töflur af sterum
Keflavík.
TÆPLEGA þrítugur líkamsræktarmaður sem búsettur er á höfuðborg-
arsvæðinu var tekinn með liðlega 8 þúsund töflur af steralyfjum í flug-
stöð Leifs Eiríkssonar á þriðjudagskvöldið. Um var að ræða 8.167 töfl-
ur sem bera heitið „Methanbrstenolone" og virðast eiga uppruna í
Sovétríkjunum eftir merkingum að dæma og kom fram hjá manninum
að lyfið gengi undir nafninu „rússneskur boli“.
Innflutningur steralyfja sem slíkra
hefur ekki verið ólöglegur hér á landi.
Matthías Halldórsson aðstoðarland-
læknir sagði að embættið hefði lagt
að fjármálaráðuneytinu að herða
reglur og torvelda þannig innflutning
þessara efna en það hefði ekki geng-
ið eftir.
Óvissa um aðgerðir
Samkvæmt upplýsingum tollgæsl-
unnar á Keflavíkurflugvelli byggðust
aðgerðimar gegn manninum í fyrra-
kvöld á því að í tollareglugerð sé
ferðamönnum heimilt að flytja inn
„hæfilegt magn“ af lyfjum en hér
hafði augljóslega verið um óhæfílegt
magn fyrir einstakling að ræða.
Að sögn Einars Birkis, deildar-
stjóra hjá tollgæslunni, verður málið
sent sýslumanni til afgreiðslu og
kvaðst hann ekki geta fullyrt um
hvort lagt yrði hald á lyfín eða hvaða
viðurlög maðurinn sem flutti þau inn
ætti yfir höfði sér.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
„Rússneskur boli“
STERALYFIN sem tollgæslan
fann í fórum ungs manns við
komuna til landsins. Maðurinn
var að koma frá Amsterdam og
hafði falið steralyfin kyrfilega í
farangn sínum, en skarpskyggn
tollvörður uppgötvaði þau.
Mokveiði á loðnumiðum
MOKVEIÐI var á loðnumiðunum
í gær eftir nokkuð tregan afla
að undanförnu. Hvergi er lönd-
unarbið enda tefur löng sigling
á miðin mjög veiðarnar. Um 210
þúsund tonn af loðnu hafa borist
á land á vertíðinni.
Þórshamar GK landaði á Þórs-
höfn í nótt. Að sögn Péturs Sæ-
mundssonar skipstjóra hefur loðnan
verið dreifð að undanförnu en tók
að þéttast í fyrrinótt og var góð
veiði í gær. Loðnan veiddist á tveim-
ur svæðum, 330 mflur út af Norður-
landi og 60 mílum sunnar. Rúmlega
30 klst. sigling er á miðin og tefur
það mjög veiðamar. Spáð er brælu
á loðnumiðunum næstu daga.