Morgunblaðið - 19.08.1993, Page 7

Morgunblaðið - 19.08.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 7 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Sighvatur Jónsson, íslandsmeist- ari í fjallahjólreiðum. Sigrún Árnadóttir framkvæmda- sljóri Rauða kross íslands. Stefnir á heimsmeistara- mót í fjallahjólreiðum EINN AF keppendum í íslandsmeistaramótinu í fjallahjólreiðum um síðustu helg, Sighvatur Jónsson, hefur hug á að keppa í heimsmeistara- mótinu í fjallahjólreiðum. Mótið fer fram í Frakklandi eftir nokkrar vikur. Sighvatur keppti á Moongoose fjallahjóli á sunnudaginn og tryggði sér Islandsmeistaratitilinn í flokki 16-18 ára. „Ég held að almennt séu íslenskir hjólreiðamenn í meðlagi miðað við það sem gerist erlendis. Hjólreiðar eru það ný keppnisgrein að okkur vantar meiri reynslu. Þess- vegna held ég að það sé sterkur leik- ur að prófa að keppa í heimsmeistara- mótinu, til að sjá hvar við stöndum," sagði Sighvatur í samtali við Morgunblaðið, en hann er 16 ára gamall og á því framtíðina fyrir sér. „Einar Jóhannsson hefur keppt talsvert erlendis í götuhjólreiðum og staðið sig vel, hann varð framarlega í keppni á Ítalíu og náði svo verð- launasæti í keppni í Danmörku," sagði Sighvatur. „Fjallahjólreiðar eru af öðrum toga en götuhjólreiðar. Á fjallahjólum er farið um slóða og erfiða vegi. Þetta reynir mikið á út- hald, hendur og fætur. Til að halda mér í þjálfun, þá hjóla ég til og frá vinnu, á kvöldin og um helgar. Það vantar betri aðstöðu fyrir hjólreiðar í höfuðborginni þar sem þúsundir manna eiga reiðhjól. Mér fínnst mjög gaman að hjóla eftir stígum í Öskju- hlíð, og eins er fallegt að fara um stígana í Elliðaárdal. Þeir sem keppa á heimsmeistara- mótinu eru margir hveijir á sérsmíð- uðum keppnishjólum. Við notum um 13 kg þung hjól, en þeir bestu hafa sérsmíðuð 10 kg hjól og það munar mikið um þessi kíló ,“ sagði Sighvatur. Rauði kross Islands --------------------7--- Sigrún Árna- dóttir var ráðin fram- kvæmdastjóri SIGRÚN Árnadóttir var ráðin framkvæmdasljóri Rauða kross íslands á stjórnarfundi á þriðju- dag. Sigrún var áður deildar- stjóri innanlandsdeildar RKÍ en hefur gegnt starfi framkvæmda- sljóra frá maí síðast liðnum. Staðan var þá auglýst og 55 umsóknir bárust. Sigrún er 32 ára. Hún nam þjóð- félagsfræði við Háskóla íslands og útskrifaðist 1988. Sigrún hóf störf hjá RKÍ haustið 1990. Hún veitti fræðslumiðstöð félagsins forstöðu í tvö ár og hélt síðan utan til starfa á aðalskrifstofu kanadíska Rauða krossins í Ottawa við fræðslu um alþjóðleg mannúðarlög og alþjóða- starf Rauða kross hreyfingarinnar. Hún kom heim og tók við starfi deildarstjóra innanlandsdeildar RKÍ snemma á þessu ári. -----*—♦—*----- Deilt um lóðaúthlutun til aldraðra FULLTRÚAR minnihlutans í borgarráði benda á í sameigin- legri bókun að meirihlutinn hafi i tillögu á fundi byggingarnefndar aldraðra mótmælt að skilyrði hafi verið sett um byggingaraðila við úthlutun lóðar. Tillaga meirihlut- ans kom fram vegna skýrslu starfshóps á vegum félagsmála- ráðuneytisins. í sameiginlegri bókun minnihlut- ans í borgarráði segir að í tillögu Sjálfstæðisflokksins, sem samþykkt var á fundi byggingarnefndar aldr- aðra, sé því mótmælt að sett hafi verið skilyrði um verktaka, bygg- ingaraðila við lóðaúthlutanir. Fram kemur í bókuninni að í úthlutunar- bréfi til Réttarholts og Ármanns- fells frá 25. október 1989 undirrit- uðu af Davíð Oddssyni segi orðrétt: „Athygli er vakin á því, að hönnun mannvirkja skal unnin á vegum Ármannsfells hf...“ og síðar, „Ár- mannsfell hf. skal byggja íbúðir og ...“ Þá segir í bókuninni að það sé afar sérkennilegt að taka fram í úthlutunarbréfí hver eigi að byggja og hanna, sérstaklega þegar úthlut- unin er til beggja aðila. Við venju- legar úthlutanir sé slíkt aldrei gert. í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins í borgarráði, er bent á að byggingarfélagið Ármannsfell hf. hafi fyrst sótt um lóðina við Hæðargarð ásamt Samtökum aldr- aðra. Réttarholt sótti síðan um lóð- ina og í framhaldi af því ákvað borgarráð að úthluta Réttarholti og byggingarfélaginu Ármannsfelli lóðina sameiginlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.