Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
7
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sighvatur Jónsson, íslandsmeist-
ari í fjallahjólreiðum.
Sigrún Árnadóttir framkvæmda-
sljóri Rauða kross íslands.
Stefnir á heimsmeistara-
mót í fjallahjólreiðum
EINN AF keppendum í íslandsmeistaramótinu í fjallahjólreiðum um
síðustu helg, Sighvatur Jónsson, hefur hug á að keppa í heimsmeistara-
mótinu í fjallahjólreiðum. Mótið fer fram í Frakklandi eftir nokkrar
vikur.
Sighvatur keppti á Moongoose
fjallahjóli á sunnudaginn og tryggði
sér Islandsmeistaratitilinn í flokki
16-18 ára. „Ég held að almennt séu
íslenskir hjólreiðamenn í meðlagi
miðað við það sem gerist erlendis.
Hjólreiðar eru það ný keppnisgrein
að okkur vantar meiri reynslu. Þess-
vegna held ég að það sé sterkur leik-
ur að prófa að keppa í heimsmeistara-
mótinu, til að sjá hvar við stöndum,"
sagði Sighvatur í samtali við
Morgunblaðið, en hann er 16 ára
gamall og á því framtíðina fyrir sér.
„Einar Jóhannsson hefur keppt
talsvert erlendis í götuhjólreiðum og
staðið sig vel, hann varð framarlega
í keppni á Ítalíu og náði svo verð-
launasæti í keppni í Danmörku,"
sagði Sighvatur. „Fjallahjólreiðar eru
af öðrum toga en götuhjólreiðar. Á
fjallahjólum er farið um slóða og
erfiða vegi. Þetta reynir mikið á út-
hald, hendur og fætur. Til að halda
mér í þjálfun, þá hjóla ég til og frá
vinnu, á kvöldin og um helgar. Það
vantar betri aðstöðu fyrir hjólreiðar
í höfuðborginni þar sem þúsundir
manna eiga reiðhjól. Mér fínnst mjög
gaman að hjóla eftir stígum í Öskju-
hlíð, og eins er fallegt að fara um
stígana í Elliðaárdal.
Þeir sem keppa á heimsmeistara-
mótinu eru margir hveijir á sérsmíð-
uðum keppnishjólum. Við notum um
13 kg þung hjól, en þeir bestu hafa
sérsmíðuð 10 kg hjól og það munar
mikið um þessi kíló ,“ sagði Sighvatur.
Rauði kross Islands
--------------------7---
Sigrún Árna-
dóttir var
ráðin fram-
kvæmdastjóri
SIGRÚN Árnadóttir var ráðin
framkvæmdasljóri Rauða kross
íslands á stjórnarfundi á þriðju-
dag. Sigrún var áður deildar-
stjóri innanlandsdeildar RKÍ en
hefur gegnt starfi framkvæmda-
sljóra frá maí síðast liðnum.
Staðan var þá auglýst og 55
umsóknir bárust.
Sigrún er 32 ára. Hún nam þjóð-
félagsfræði við Háskóla íslands og
útskrifaðist 1988. Sigrún hóf störf
hjá RKÍ haustið 1990. Hún veitti
fræðslumiðstöð félagsins forstöðu í
tvö ár og hélt síðan utan til starfa
á aðalskrifstofu kanadíska Rauða
krossins í Ottawa við fræðslu um
alþjóðleg mannúðarlög og alþjóða-
starf Rauða kross hreyfingarinnar.
Hún kom heim og tók við starfi
deildarstjóra innanlandsdeildar RKÍ
snemma á þessu ári.
-----*—♦—*-----
Deilt um
lóðaúthlutun
til aldraðra
FULLTRÚAR minnihlutans í
borgarráði benda á í sameigin-
legri bókun að meirihlutinn hafi
i tillögu á fundi byggingarnefndar
aldraðra mótmælt að skilyrði hafi
verið sett um byggingaraðila við
úthlutun lóðar. Tillaga meirihlut-
ans kom fram vegna skýrslu
starfshóps á vegum félagsmála-
ráðuneytisins.
í sameiginlegri bókun minnihlut-
ans í borgarráði segir að í tillögu
Sjálfstæðisflokksins, sem samþykkt
var á fundi byggingarnefndar aldr-
aðra, sé því mótmælt að sett hafi
verið skilyrði um verktaka, bygg-
ingaraðila við lóðaúthlutanir. Fram
kemur í bókuninni að í úthlutunar-
bréfi til Réttarholts og Ármanns-
fells frá 25. október 1989 undirrit-
uðu af Davíð Oddssyni segi orðrétt:
„Athygli er vakin á því, að hönnun
mannvirkja skal unnin á vegum
Ármannsfells hf...“ og síðar, „Ár-
mannsfell hf. skal byggja íbúðir og
...“ Þá segir í bókuninni að það sé
afar sérkennilegt að taka fram í
úthlutunarbréfí hver eigi að byggja
og hanna, sérstaklega þegar úthlut-
unin er til beggja aðila. Við venju-
legar úthlutanir sé slíkt aldrei gert.
í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í borgarráði, er bent
á að byggingarfélagið Ármannsfell
hf. hafi fyrst sótt um lóðina við
Hæðargarð ásamt Samtökum aldr-
aðra. Réttarholt sótti síðan um lóð-
ina og í framhaldi af því ákvað
borgarráð að úthluta Réttarholti og
byggingarfélaginu Ármannsfelli
lóðina sameiginlega.