Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
Yfirlitssýning á
verkum Louisu
Matthíasdóttur
OPNUÐ verður á Kjarvalsstöð-
um laugardaginn 21. ágúst kl.
16 yfirlitssýning á verkum eftir
Louisu Matthíasdóttur.
Louisa Matthíasdóttir fæddist í
Reykjavík árið 1917 og stundaði
listnám í Danmörku, París og New
York en þar hefur hún búið undan-
farin 40 ár.
Louisa hefur um langan tíma
notið viðurkenningar sem listmál-
ari í Bandaríkjunum og hér á ís-
landi hafa verk hennar alltaf vakið
mikla athygli enda sækir hún
myndefnið að miklu leyti til íslands
og segir sjálf að ekkert landslag
sem hún hafi séð síðar á ævinni
hafi haft sömu áhrif á sig og lands-
lagið í æsku. Fyrir utan landslags-
og borgarlandslagsmyndir eru
mannamyndir, sjálfsmyndir og
uppstillingar meginviðfangsefni
hennar. I sjálfsmyndunum er hún
í senn skoðandinn og hið séða,
listamaðurinn og myndefnið. Þær
bera með sér að öll tilfinningasemi
hefur verið yfírstigin og hún leit-
ast við að horfa hlutlaust á sjálfa
sig. Um uppstillingamar gildir það
sama og um mannamyndir hennar,
hún leitar ekki upp myndefni sín
heldur notar í uppstillingar sínar
það sem hendi er næst, hversdags-
lega hluti sem rekja uppruna sinn
til eldhússins, vínflöskur, glös,
formfagurt litríkt grænmeti eld-
húsáhöld ýmiskonar, oft hníf og
skurðarbretti. Málverk hennar er
agað og hreint, allt pijál hefur
verið hreinsað burt af myndfletin-
um og eftir stendur kristalstær
kjami eða hugmynd sem hún vinn-
ur með útfrá strangt öguðum
form- og litrænum forsendum.
Louisa Matthíasdóttir
Á sýningunni eru um fimmtíu
myndir sem spanna allan hennar
feril. Elsta myndin á sýningunni
er frá því um 1939 og sú yngsta
er máluð á þessu ári. í þeim má
glögglega sjá hina hægfara en
stöðugu þróun í list Louisu undan-
farin 50 ár og hvernig hún smám
saman þróar með sér hin einföldu
og markvissu vinnubrögð sem ein-
kenna list hennar í dag.
í tilefni sýningarinnar hefur ver-
ið gefin út vönduð sýningarskrá
með 20 litmyndum sem spanna
allan feril hennar og einnig er í
sýningarskránni grein eftir Krist-
ínu Guðnadóttur safnvörð um Lou-
isu, list hennar og feril. Á meðan
á sýningunni stendur verða seld
plaköt árituð af Louisu.
Sýningin er opin daglega frá kl.
10 til kl. 18 og stendur til sunnu-
dagsins 12. september.
(Fréttatilkynning)
Hrafnkötluþing
STOFNUN Sigurðar Nordals og áhugamenn um rannsokmr a
Hrafnkels sögu Freysgoða gangast fyrir ráðstefnu í Menntaskólan-
um á Egilsstöðum 28. og 29. ágúst nk. og hefst hún kl. 10 árdegis
báða dagana.
Hvatamaður að þinginu er dr.
Hermann Pálsson, fv. prófessor í
Edinborg, og flytur hann þar fyrir-
lestur sem nefnist „Málið á Hrafn-
FASTEIGNASALA
SuAurlandsbraut 10
Ábyrgð - Reynsla - Öryggi
Hilmar Valdimarsson.
SÍMAR 687828 og 687808
kels sögu“. Auk Hermanns halda
Guðrún Nordal, Helga Kress, Jón
Hnefill Aðalsteinsson, Páll Páls-
son, Sveinbjöm Rafnsson, Sverrir
Tómasson og Stefán Karlsson er-
indi á þinginu. Fjalla erindi þeirra
um uppruna sögunnar, söguefni,
byggingu og inntak og samband
hennar við aðrar fornsögur.
Ráðstefnustjóri verður Úlfar
Bragason, forstöðumaður Stofnun-
ar Sigurðar Nordals. í tengslum
við ráðstefnuna verður farið á
Hrafnkötluslóðir undir leiðsögn
heimamanna.
(Fréttatilkynning)
Ingibjörg Haraldsdóttir
Bragi Ólafsson
Sigurður Pálsson
Skáldakvöld á Hótel Borg
Besti vinur ljóðsms
BESTI vinur ljóðsins stendur fyrir skáldakvöldi á Hótel Borg í kvöld,
fimmtudaginn 19. ágúst, kl. 21. Þar munu sjö skáld lesa úr nýjum
eða væntanlegum bókum.
Eftirtalin skáld koma fram;
Bragi Ólafsson, sem nýlega sendi
frá sér bókina Ytri höfnin, Ingibjörg
Haraldsdóttir, Jón Stefánsson les
úr bókinni Hún spurði hvað ég tæki
með mér á eyðieyju, Kristín Omars-
dóttir sem gefur út ljóðabók í haust,
Kristján Þórður Hrafnsson, sem
sendir frá sér bókina Húsin og göt-
urnar, Sigurður Pálsson les úr bók-
inni Ljóð línudans, sem kemur út í
haust og Þorsteinn Gylfason sem
gefur út bók með ljóðaþýðingum.
Þetta er fyrsta ljóðakvöld Besta
vinar ljóðsins í tvö ár, en Besti vin-
urinn stóð fyrir fjölmörgum skálda-
kynningum á árunum 1986-91.
Skáldakvöldið er haldið í Gyllta
sal Hótel Borgar sem nú hefur ver-
ið gerður upp.
Upplestrinum í kvöld verður út-
varpað beint á Rás 2 í umsjón Þor-
steins J. Vilhjálmssonar. Kynnir á
skáldakvöldinu er Hrafn Jökulsson.
Aðgangseyrir er 300 kr.
Sigríður og Nína Margrét
í Listasafni Sigurjóns
Tónlist
Ragnar Björnsson
Ómetanleg er sú stefna for-
ráðamanna Listasafns Siguijóns
að veita ungu fólki á listabrut,
fólki sem enn er í reglubundnu
námi, tækifæri til að koma fram,
sýna kunnáttu sína og hæfileika,
eða kannske hæfileikaleysi á
stundum, sem líka er nauðsynlegt
að vera vitandi um, og bera þetta
síðan á borð fyrir fullu húsi
áheyrenda. Miklar undirtektir fá
forráðamenn safnsins við þessa
stefnu í mikilli aðsókn á tónleik-
ana og endist þeim kraftur og
áhugi til að halda þessu áfram
sem allra lengst.
Sigríður Jónsdóttir, mezzó-
sópran kallar hún sig, er enn í
námi og enn vantar punktinn
yfir i-ið. Sigríður er mjög vel
músíkölsk og hefur sérlega fal-
lega framkomu á sviði. Öll með-
ferð hennar á verkefnunum sýnir
semsagt gott „músíkalitet“, sem
reyndar þarf ekki að hafa nein
teljandi tengsl við listsköpun, en
það er jú annað mál. Sumum
hættir e.t.v. til að blanda þessu
tvennu saman og heppilegast er
vitanlega þegar hvorutveggja
þetta rennur saman í einn farveg.
Undirritaður getur hugsað sér
listsköpun á sviði tónlistar án
verulegs „músíkalitets", en flutn-
ingur án þessara innri átaka og
fæðingar, sem listsköpun getur
nefnst, er ekki nema hluti sann-
leikans. Oft bregður fyrir mjög
fallegum augnablikum í rödd og
meðferð Sigríðar á verkefnunum,
sem lofar góðu í framtíðinni.
Það sem á vantar er stuðning-
ur við tónmyndun og þá sérlega
á efra raddsviðinu, þar verður
tónninn gjarnan of loftkenndur
og fyrir kemur að tónninn er
ekki alveg hreinn. Þetta er og
bundið því að hún virðist eiga
erfitt með að losa um hömlur,
þora að opna gáttir tilfinning-
anna, leyfa sönglínunni að
blómstra og jafnvel að hætta að
hengja sig svo mikið á texta og
fraseringar, þora að leyfa því sem
inni býr að svífa fijálsu um sali,
það er það sem áheyrandinn vill
fá og ég trúi því að Sigríður eigi
til ónýtta orku, sem við áheyrend-
ur viljum fá, temmilega óbeisl-
aða.
En allt hefur sinn tíma, stend-
ur í merkri bók og velviljaður
gagnrýnandi hlýtur að benda á
það sem honum finnst að og trú-
ir að geti komið viðkomandi að
gagni.
Best fannst mér meðferð Sig-
ríðar á lögum sem höfðu í sér
húmor, þó var Fuglinn í fjörunni
í hraðara lagi, varð dálítið óróleg-
ur fyrir bragðið, íslenskt vöggu-
ljóð þarf að vera einfalt í flutn-
ingi, þannig nýtur þessi perla sín
best. Kvæðið um litlu hjónin var
skemmtilega mótað, en lengra
mátti ekki ganga. Schubert-,
Brahms- og Schumann-lögin eru
erfiðar uppgáfur og urðu sum
dálítið þunglamaleg, e.t.v. vegna
of mikils vandvirknishugsunar-
háttar.
Betur áttu við Sigríði lögin
eftir Samuel Barber og lögin eft-
ir Gabriel Fauré, þar sem mjög
reynir á píanóið. En kannske
naut rödd og skilningur Sigríðar
sín best í seinna aukalaginu.
Summertime, kannske ætti Sig-
ríður að velta því sviði fyrir sér.
Nína Margrét Grímsdóttir er
góður píanóleikari, þótt mér
fyndist hún stundum ofgera í
sönglögunum. Abegg-tilbrigðin
eftir R. Schumann lék hún af
öryggi, em minni pedall, á stund-
um, hefði ekki skaðað, briljans
sumra tilbrigðanna hefði við það
fengið meiri glæsileik. Jeux d’E-
au eftir Ravel er ekki auðvelt í
flutningi og var margt fallegt í
leik Nínu, en nokkuð fannst mér
hún byija verkið í hröðu tempói,
hætt er við að nokkur óróleiki
slæðist inn og leikur vatnsins
nýtur sín ekki betur þannig.
HÁTÚN
Til sölu stórglæsil. 3ja herb. 97 fm
nýl. íb. á 2. hæö.
NÝTT Á SKRÁ:
ÆSUFELL ^
Vorum aS fá i sölu mjög góöa 7 herb.
134 fm íb. á 4. hæð í lyftuh. Nýtt
eldh. Mikiö útsýni. Verð 8,5 millj.,
FURUGRUND-4RAOG
EINSTAKLINGS
Vorum að fá í sölu fallega 4ra herb.
ca 100 fm íb. á 1. hæð. 24 fm ein-
staklíb. í kj. Gott verð.
GNOÐARVOGUR
Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. íb.
á 1. hæð.
ÁLFTAMÝRI -
ATH. SKIPTI
Falleg 3ja herb. endaíb á 4. hæö.
Skipti á stærri eign æskii.
LAUSAR ÍBÚÐIR:
KARLAGATA
Til sölu ágæt 3ja herb. íb. á 1. hæö.
Verö 5,3 millj.
VESTURBERG
3ja herb. 74 fm íb. á 5. hæö í lyftuh.
íb. er nýmál. Nýtt gler. Húsið nýviög.
aö utan. Gott útsýni.
JÉ* Hilmar Valdimarsson,
|| SigmundurBöðvarssonhdl.,
"" Brynjar Fransson.
011 KA 01 07A LARUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmoastjori
L I I 3U"L I V / V KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.loggilturfasteignasau
Nýtt á söluskrá - auk annarra eigna:
Fyrir smið eða laghentan
í Smáíbúðahverfi endaraðhús með 4ra-5 herb. ib. á tveimur hæðum
115 fm. Ennfremur þvottahús og góð geymsla í kjallara. Þarfnast nokk-
urra endurbóta. Skipti æskileg á 2ja-3ja herb. íb. í hverfinu. Gott verð.
2ja herbergja ódýrar íbúðir
M.a. við Gunnarsbraut lítil séríbúð í kjallara. Laus strax. Og við Njáls-
götu lítil á 3. hæð í vel byggðu steinhúsi.
Skammt frá Borgarspítalanum
Sérfbúð í tvíbýli. 3ja herb. íbúð á neðri hæð 82 fm nettó. Allt sér. Öll
eins og ný. 40 ára húsnæðisl. kr. 3,6 millj. Tilboð óskast.
Daglega leita til okkar
traustir kaupendur, sumir með miklar og góðar greiðslur. Sérstaklega
óskast íbúð í vesturborginni eða nágr. með góðu forstofuherbergi og
sér snyrtingu. Ennfremur góðar eignir sem næst miðborginni.
• • •
Gott skrifstofuhúsnæði ósk-
ast sem næst miðborginni.
Opið á laugardaginn. _____________________________
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
FASIEIGNASALAH
MENNING/LISTIR
Myndlist
Erla sýnir í
Listahorninu
Myndlistarkonan Erla Sigurðar-
dóttir sýnir í Listahomi Upplýsingam-
iðstöðvar fyrir ferðamenn, Skólabraut
31, Akranesi.
Á sýningunni eru krítar- og vatns-
litamyndir og eru þær allar unnar á
þessu ári. Erla stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla Islands
1984-1988 og lauk prófi úr málara-
deild. Sumarið 1991 var hún við nám
við Europaaische Akademi fiir Bild-
ende Kunst í Þýskalandi. Hún starfar
nú við myndskreytingu bamabóka,
auk kennslu við Myndlistarskóla
Kópavogs.
Erla hefur haldið nokkrar einka-
sýningar, m.a. í Slunkaríki á ísafirði,
Bókasafni Akraness og í Reykjavík.
Auk þess hefur hún tekið þátt í sam-
sýningum hér heima og erlendis. Þessi
sýning Erlu í Listahorninu hófst 16.
ágúst og lýkur 15. september og er
opin alla virka daga.
Steinvör I Nesbúð
Steinvör Bjamadóttir sýnir vatns-
litamyndir í Nesbúð við Nesjavelli frá
18. ágúst.
Tónlist
Styrktartónleikar
Kammerklúbbsins
Kammerklúbbur Ópemsmiðjunnar
heldur sína 3ju styrktartónleika, í dag
fimmdudaginn 19. ágúst kl. 20.30 í
sal FÍH, Rauðagerði 27.
Á efnisskránni verða finnsk, þýsk,
ensk, frönsk og ítölsk sönglög.
Þeir söngvarar sem koma fram á
tónleikunum em: Björk Jónsdóttir,
Ingunn Ósk Sturludóttir, Jóhanna V.
þórhallsdóttir, Magnús Torfason, Sig-
ríður Gröndal og Þórunn Guðmunds-
dóttir. Með þeim leika: Hallfriður Ól-
afsdóttir, Kristinn Örn Kristinsson,
Vilhelmína Ólafsdóttir og Þórhildur
Björnsdóttir.