Morgunblaðið - 19.08.1993, Side 20

Morgunblaðið - 19.08.1993, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 Keypti tvo skrokka og sagðist hafa sparað heil ósköp „HVAÐ ætlarðu að gera með tvo heila skrokka,“ spurði ég konu á miðjum aldri sem stóð við kjötborðið í Hag- kaup þar sem hún beið eftir dilkakjöti úr sögun. Það var mikil örtröð þennan dag enda ekki á hverjum degi sem kílóið af lambakjöti kostar 299 krónur. Uppþvottaduft í öryggisumbúðum komið á markaðinn FYRIR nokkrum árum borðuðu nokkur íslensk börn uppþvottaduft og hlutu af varanlegan skaða. Að sögn Herdísar Storgaard hjá Slysavarnafélagi íslands er í uppþvottaduftinu sódi sem brenndi í sundur vélinda barnanna. Þau geta því ekki borðað eðlilega og fæðan sem þau fá þarf að vera maukuð. Nú er upp- þvottaduftið frá Finish komið í ör- yggisumbúðir, plastbrúsa með ör- yggistappa. Finish kemur í tveimur stærðum, eins kílóa og þriggja kílóa pakkningum. „Þetta er ekki lengi að fara á mínu heimili,“ sagði hún. Hún virtist dálítið hvumsa að kona skyldi rjúka á hana og spyrja slíkrar spumingar en þegar við höfðum talað saman dálitla stund fræddi hún mig á því hvernig hún nýtti kjötið. Hún benti á innpakkaðar lærissneiðar í frysti og sýndi mér hvað kílóið kostaði, næstum þús- und krónur, og þegar talið barst að slögunum sem stundum lenda í tunnunni hjá fólki kom í ljós að konan kann að nýta það hráefni sem hún er með í höndunum. Stundum lætur hún saga slögin í rif sem hún grillar eða steikir í ofni en síðan hefur hún aðrar aðferðir, fyllir slögin með sveskjum, eplum og lauk, kryddar vel, vefur í pylsu og steikir í ofni og ber fram sem veislumat. Hún býr stundum til kæfu og benti á að það gerði gæfumuninn að nota vel af þriðja kryddi í hana og mikinn lauk. Hún veit- ir sér stundum að nota súpukjöt í kæfuna eða jafnvel leggi. Rúllupylsu býr hún iðulega til úr slögum og lætur þá reykja fyrir sig. Helmingl ódýrara hangikjöt en ella Þegar leið á samtal okkar og kjötskrokkarnir voru löngu komnir í körf- urnar sagðist hún líka láta reykja tvö lærin og þar með væri hún komin með hangikjötsálegg og jólalærið ef því væri að skipta. Það kostar um 190 krónur að láta reykja hvert kíló og tveggja og hálfs kílóa hangikjöts- læri kostar hana á þennan hátt 1.250 krónur, þ.e.a.s. þegar kílóverðið er 299 krónur. Hún benti á að færi hún út í búð og keypti sér bara tveggja og hálfs kílóa hangikjötslæri myndi það kosta hana 2.500 krónur, þ.e.a.s. kílóið af læri með beini kostaði iðulega rúmlega þúsund krón- ur. Þetta þýðir helmings mun. Kauplr grænmeti á tilboðsverði Við vorum komnar að grænmetisborðinu og bæði agúrkur og spergilkál á hlægilegu verði. Ég spurði hana svona í lokin hvort hún sultaði niður agúrkumar og syði niður spergilkálið. „Auðvitað," sagði hún og þarmeð var hún rok- in, sagðist ætla í Bónus að kaupa brauð þeir væru með tilboð „þú kaupir eitt og færð næsta frítt. Gott að eiga brauð í kistunni“. Ég er viss um að matarreikningamir á þessu heimili eru í lagi. grg m Morgunblaðið/bje Ódýra kjöfiö má nýta á ýmsa vegu Konan kvaðst láta reylqa 2 læri sem hún keypti á 299 krón- ur kílóið. Tveggja og hálfs kilóa læri kostar hana þá um það bil 1,250 krónur þegar búið er að reykja það. Færi hún í Hagkaup til að kaupa tveggja og hálfs kílóa hangikjöts- læri yrði upphæðin um 2.500 króm— --m h'm bvrfti að borga. Klakar með merki þekktra gosdrykkja AÐDÁENDUR frostpinna og klaka hafa eflaust tekið eftir því í sjoppum og verslunum að klak- ar með merki Mix og Egils-app- elsíns hafa verið á boðstólum undanfarið. Þessi framleiðsla er afrakstur samstarfs Ölgerðar- innar Egils Skallagrímssonar hf. og Emmess-ísgerðarinnar, sem byggir á því að ísgerðin fær hrá- efni frá Ölgerðinni og sér síðan um alla framleiðsluna. Uppistaðan í framleiðslunni er svokallað sýróp, sem notað er í bæði mix og appelsín. Guðlaugur Guðlaugsson sölustjóri Emmess- ísgerðarinnar segir að með þessari framleiðslu sé verið að bregðast við komandi samkeppni erlendis frá þar sem þekkt vörumerki eins og mars, snickers og bounty hafi verið færð yíir á ísframleiðslu. Heildsöluverð Egils-ísnálarinnar er 47 kr. en algengt útsöluverð er um 79 kr. Heildsöluverð Mix stór- klakans er 39 kr. en algengt útsölu- verð er um 67 kr. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.