Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF PIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 21 VIKUNNAR 1 Hvað kosti a kartöflurr Nýjar kártöflur fluttárí Í2,5kgar 2 kg. pokum pokum i lausu í álpappír Hagkaup 199 79,60 89 Bónus 58,40 Nóatún 199 74 69 89 Kjöt og fiskur 159 82 69 Fjarðarkaup 187 84 63,60 57 139 Garðakaup 149-199** 74,50 71,60 KEA, Akureyri 199 85 Kaupfélag ísfirðinga __ 113,20 KASK, Höfn 158 2 87,60 Kaupfélag Árnesinga, Selfossi 224 í/ÍSSSi 86>40 ‘Kilóverð í krónum **( Garðakaupum fengust íslenskar kartöflur frá tveimur dreifingaraðilum; Banönum hf. á149 kr/kg og Ágæti hf. á 199 kr/kg. | Hátt verð er á íslenskum kartöflum miðað við útlendar VERÐ á nýjum íslenskum kartöflum hefur farið ört lækk- andi, en helst þó enn hátt. Samkvæmt skyndiverðkönnun, sem Daglegt líf gerði sl. þriðjudag í sex verslunum á höfuðborgar- svæðinu og fjórum úti á landi, voru ódýrustu nýju íslensku kartöflurnar í Garðakaupum í Garðabæ þar sem kílóið var á 149 kr. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga á Höfn í Hornafirði var með næst ódýrustu íslensku kartöflurnar, 158 kr./kg og Kjöt og fiskur í Mjódd bauð kartöflur á tilboðsverði þennan dag á 159 kr./kg. Athygli vakti að nýjar íslenskar kartöflur reyndust dýrastar í Kaup- félagi Árnesinga á Selfossi, sem segja má að sé næstur Þykkvabæn- um. Þar kostaði kílóið af nýjum ís- lenskum kartöflum 224 kr. Fyrstu íslensku kartöflurnar af premier-tegund komu á markað fyrir rúmum þremur vikum og kost- uðu þá 359 kr./kg út úr búð. Verð á erlendum kartöflum er mun lægra, eins og sést í meðfylgjandi töflu, og munar allt að 159% á verði innlendra og innfluttra kartaflna í Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi. Verð á erlendum kartöflum reyndist lægst hjá Bónus, en þar kostuðu hollenskar kartöflur í 2,5 kílógramma pokum 58,40 krónur kílóið. „Við flytjum kartöflurnar inn beint frá Hollandi og sér Mata hf. um dreifingu í verslanir okkar. Enn sem komið er höfum við ekki tekið inn nýjar íslenskar þar sem okkur finnst ekki komið nógu skikkanlegt verð á þær. Ég á þó von á því að íslenskar kartöflur verði komnar í verslanir okkar í næstu viku og kaupum við þá beint af bónda úr Þykkvabænum. Verðið er ekki al- veg komið á hreint, en það verð sem ég vil sjá á íslenskum kartöflum er 70-80 kr./kg út úr búð. Hvort mér verður að ósk minni veit ég ekki,“ segir Jón Ásgeir Jóhannes- son, verslunarstjóri í Bónus. Hjá Fjarðarkaupum kostuðu hol- lenskar kartöflur í 2,5 kílógramma pokum 63,60 kr., en dýrustu hol- lensku kartöflurnar voru, sam- kvæmt könnuninni, í Kaupfélagi ísfírðinga þar sem kílóverðið var 113.20 kr. Guðmundur Björnsson, sölustjóri hjá Banönum hf., segir að heildsölu- verð hollensku kartaflnanna sé 69.20 kr. og þeirra íslensku 160 kr. „Eins og venja er njóta allir viðskiptavinir einhverrar viðskipta- vildar í formi afsláttar, sem getur numið allt að 25% frá útgefnu heild- söluverði," segir Guðmundur. Hjá Ágæti hf. stendur heildsölu- verð íslensku kartaflnanna nú í 170 kr./kg. „Verðið er þó svolítið flökt- andi og fer það eftir umfangi við- skipta hvaða verð menn fá. Þeir stærstu fá náttúrlega mest, eins og gengur og gerist í öllum viðskiptum, allt upp í 25% afslátt," segir Oddur Ingason, sölustjóri hjá Ágæti. Sölustjórar vildu engu spá um framvindu kartöfluverðs enda lægju ekki fyrir tæmandi upplýsingar um uppskeruhorfur í ljósi næturfrosta og uppskerubrests síðustu daga. ■ Undur ef við önnum markaðnum til jóla „ALMENNT tel ég að flestir kartöflubændur séu á þeirri skoðun að það eigi að banna innflutning í ákveðinn tíma, eða á meðan verið er að selja íslensku framleiðsluna," segir Páll Guðbrandsson, kartöflu- bóndi í Þykkvabæ og fulltrúi kartöflubænda í innflutnings- nefnd landbúnaðarráðuneytis- ins. Að sögn Páls er ómögulegt að giska á uppskerutölur. „Nætur- frostið sem gerði um daginn, fór hryllilega með sprettuna og víst er að uppskeran í ár verður langt undir meðalári. Það má þykja kraftaverk ef við getum annað markaðnum fram að jólum. Oft hafa innlendir kartöfluframleið- endur annað markaðnum allt árið. Um mánaðamótin maí/júní þurfti hins vegar að grípa til inn- flutnings, en samkvæmt búvöru- lögunum ganga íslenskar land- búnaðarvörur fyrir innfluttum. Ég tei að það sé happadrýgst fyrir alla ef íslenskir kartöflu- bændur fá að sitja að markaðn- um á meðan íslenska framleiðsl- an er að klárast," segir Páll. Að sögn Ragnheiðar Árna- dóttur, deildarstjóra í landbúnað- arráðuneytinu, hafa um 1.600 tonn af kartöflum verið flutt til landsins frá því í maí og til dags- ins í dag eða um 100 tonn á viku. „Gefin var út tímabundin heimild til innflutnings í vor sem átti að nema úr gildi 3. ágúst, en vegna lélegs árferðis og næturfrosta var fyrirtækjunum heimilaður meiri innflutningur og eru kart- öflur á leiðinni til landsins núna,“ segir Ragnheiður. Vangaveltur eru uppi um hvort setja eigi tímabundið bann á innflutninginn og er von á nið- urstöðu í því máli á næstu dög- um. Það magn af innfluttum kartöflum sem, nú þegar er til í landinu að meðtöldu því sem er á leiðinni, ætti að duga fram að mánaðamótum. Grænmetisdagar í DAG hófust grænmetisdagar l\já Hagkaup. Þar á nú að ríkja mikil upp- skerustemmning og bændur koma í verslanir og kynna vörur sínar. Ýmis tilboð verða þessar tæpu tvær vikur sem grænmetisdagarnir eru í gangi. Þessa vikuna eru það gulrætur, gulróf- ur og hvítkál sem eru á tilboðsverði. Eitthvað verður um að viðskiptavinir fái að smakka grænmeti í pítum og í búðunum verða svokallaðar grænar eyjur þar sem íslenskt grænmeti verður kynnt sérstaklega. Telma tómatur og Gunni gúrka koma í heimsókn og gleðja smáfólkið. ■ kelloggs corn pops JACOBS prruBRAon ÁÐUR 149,- huhall íSTEIKOR t RASPl fið.- st ÍSLLNSKAR gulrætur íslenskt HVtTRÁL ÍSLENSKAR rÓFUR HLBOÐ VIKÖNNAR HAGKAUP - allt / einni ferb

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.