Morgunblaðið - 19.08.1993, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993
Útsölur út um allt
og kjarakaup á alls konar vörum
HELGARTILBODIN
AUGLÝSINGAR um útsölur og
einstök vildarkjör eru ráðandi á
auglýsingasíðum dagblaðanna
um þessar mundir. Ekki virðist
skipta máli hvort fólk vill fjár-
festa í bíl, ísskáp, sviðakjamma
eða slátturvél. Allt er hægt að
fá með afslætti einhvers staðar.
Auglýstur er allt að 70% afslátt-
ur en algengt er að hann sé á bilinu
20-30%. Þeir verslunarstjórar sem
Daglegt líf ræddi við í vikunni voru
sammála um að fyrst og fremst
væri verið að rýma til fyrir nýjum
vörum og „hreyfa við fólki.“ Kváðu
þeir viðbrögð góð við auglýsingum
um lækkað verð. Enginn viður-
kenndi að verslun gengi illa eða
meira væri um útsölur nú en áður.
Versnandi efnahagur hefur í för
með sér að fólk sparar meira við
sig og segja má að erfiðara sé fyr-
ir verslanir að „tæla“ viðskiptavini
til sín nú en áður. Þeir sem ferðast
um Evrópu þessar vikur veita at-
hygli útsölum í mörgum verslunum
og því virðist útsöluæðið ekki aðeins
ganga yfir á íslandi.
Verslunarhættir hér hafa tekið
breytingum seinni ár og nægir að
nefna að fyrir um 10 árum voru
matvörubúðir um 200 talsins á
Stór-Reykjavíkursvæðinu en eru nú
innan við 100. Það sem áður var
sérverslun er nú oft deild innan
stærri verslunar. Svo virðist sem
innkaup kaupmanna séu hagkvæm-
ari en áður sem skilar sér í lægra
vöruverði. Samkeppni við verslanir
í öðrum Evrópuborgum kann að
hafa sitt að segja.
Skammgóður vermlr?
Kaupmenn losa um pláss og pen-
inga á útsölum eða tilboðsdögum
og með því er rýmt fyrir nýjum
vörum. Þá njóta neytendur góðs af,
svo fremi þeir kaupi ekki aðeins „af
því það er svo ódýrt.“ Ef til vill er
útsöluflóðið skammgóður vermir
fyrir kaupmenn. Neytendur gætu
nefnilega tekið uppá að neita að
kaupa nema gegn verulega miklum
afslætti í framtíðinni. ■
^
n i i
[í A9EWS 3 D/JGAR ÉFTÍR T
TILBOÐIN eru ekkert sér-
stök að þessu sinni en sitt lít-
ið af hveiju sem boðið er upp
á. Það er ekki mikið um að
ávextir og grænmeti séu á
sérstöku tilboðsverði nema
þjá Hagkaup og Pjarðarkaup-
um, en þjá Nóatúni er hægt
að kaupa eitt brauð og fá það
næsta ókeypis og lamba-
hjörtu og lifur eru á tveimur
stöðum á tilboði.
Bónus
Tilboðin gilda frá og með deginum
í dag og fram á laugardag.
súkkulaðikex 3x250 g.........199 kr.
Ariel 5 kg og Lenor-fylling.1369 kr.
bl. hakk lamba/folalda.299 kr. kg
Luna te ljós 30 stk...........99 kr.
frosin gróf og fín smábrauð..149 kr.
Bónus appelsín 21........... 98 kr.
komflex 1 kg.................212 kr.
Viðskiptavinum skal bent á að í Bón-
us fá viðskiptavinir 10% afslátt af
öllum kjötvörum.
Fjarðarkaup
Tilboðin gilda 18., 19. og 20. ág-
úst.
hangilæri............ 998 kr. kg
hangiVampartur úrb.....863 kr. kg
óhreinsuð svið.........196 kr. kg
Islenski málningalítrinn
á 758 kr., en sá danski á 295 kr.
Ó.M.-búðin, Grensásvegi 14, hefur nýhafið innflutning á
danskri innimálningu, sem er mun ódýrari en sú íslenska,
sem fyrir er, skv. lauslegri könnun, sem Daglegt líf gerði.
Sé miðað við lítra af hvítri innimálningu er verðmunur
157%.
„Málningin er aðeins framleidd i
einni stærð og í einni gerð sem
þýðir að ekki þarf að liggja með
stóran lager,“ segir Hjörtur Aðal-
steinsson, eigandi Ó.M.-búðarinnar.
Eingöngu hvít málning er seld í
5 1 og sprautur með litarefnum fást
í 20 litatónum. Hvítu málninguna
má nota eina og sér, en ef fólk vill
gerast litaglatt, þarf ekki annað en
að velja sér lit, kaupa sprautu og
blanda litnum út í hvítu málning-
una.
Fimm lítra fata af hvítu málning-
unni kostar 1.475 krónur og ein
litasprauta, sem dugir í fimm lítra
af hvítu málningunni, kostár 199
krónur. Samkvæmt því kostar einn
lítri af hvítri málningu 295 kr., og
litaður lítrinn er á 335 kr.
Danska málningin ber 5% gljá-
stig og er góð á stofur, svefnher-
bergi og ganga. Ef hún er á hinn
bóginn notuð á svæði, sem meira
mæðir á, svo sem á böðum og í
eldhúsum, borgar sig að bæta herði
út í málninguna, segir Hjörtur.
Hjá BYKO í Breidd fengust þær
upplýsingar að lítrinn af hvítri
málningu með gljástigi 10 frá
Hörpu hf. kostaði 758 krónur. Fjór-
ir lítrar væru á 2.889 kr., og 10
lítra fata 6.789 kr. Hvít málning
frá Málningu hf. er nokkrum krón-
um ódýrari á sama stað. Lítrinn
kostar 751 kr. Fjögurra lítra fata
kostar 2.846 kr. og 10 lítra fatan
er á 6.686 kr. Um það bil 100 krón-
ur bætast við ofangreind verð í
BYKO ef um sérblandanir er að
ræða. ■
JI
hreinsuðsvið............296 kr. kg
lambahjörtu.............299 kr. kg
lambalifur..............199 kr. kg
vatnsmelónur.............59 kr. kg
gularmelónur........7..65 kr. kg
spergilkál...............99 kr. kg
Garðakaup
íste, 3 bragðteg.............63 kr.
Sunquick - brúsi fylgir.....377 kr.
Musli bar hollustusælg......229 kr.
Marino-kaffi 500 g..........199 kr.
Haust-hafrakex...............99 kr.
lambalæri...............598 kr. kg
lambahryggur............598 kr. kg
svínalærisneiðar........555 kr. kg
svínabógur..............495 kr. kg
F&A
Tilboðin gilda frá fimmtudegi til
miðvikudags og veittur er 4% stað-
greiðsluafsláttur.
Elitesse-súkkul.kex, 40 stk.555 kr.
KP-salthnetur 550 g.........176 kr.
Princess niðurs. tómatar 400 g ..40 kr.
Hortexniðurs.jarðarb.823g....ll0 kr.
Idum-tómatsósa 540 g.........87 kr.
Dawn WC-pappír, 2 rúllur.....29 kr.
Hagkaup
Tilboðin gilda frá 19.-25. ágúst.
KelloggsComp375g............Í79 kr.
Jacobs-pítubrauð............109 kr.
Humall ýsusteikur 720 g.....269 kr.
íslenskar g^ulrætur.....199 kr. kg
íslenskt hvítkál.........49 kr. kg
íslenskar rófur..........49 kr. kg
Kjöt og fiskur
Super eldhúsrúllur 4 stk....149 kr.
Super WC-pappír, 8 stk......149 kr:
Super-appelsínusafi 11.......77 kr.
Super-eplasafi 11............77 kr.
Super-hveiti 2 kg............69 kr.
Super-kaffi 500 g...........179 kr.
nautahakk...............489 kr. kg
Nóatún
lambalifur..............199 kr. kg
lambahjörtu.............199 kr. kg
lambanýru.............. 99 kr. kg
hrossabjúgu.............372 kr. kg
beikon-sparipakki.......786 kr. kg
Borgames saltkjöt.......324 kr. kg
óhreinsuð svið..........199 kr. kg
Londonlamb..............799 kr. kg
jarðarbeijagrautur 11.......129 kr.
Prik-þvottaefni70dl.........299 kr.
lambahryggir............588 kr. kg
lambalæri...............599 kr. kg
MS fínt bakarabrauð. Kaupir eitt
og færð það næsta frítt. ■
Það er gúrkutíð
mm AGÚRKUR hafa verið á
55 hagstæðu verði undan-
H farna daga og í Hagkaup
SS5 voru viðskiptavinum
OC jafnvel gefnar gúrkur
SMb fyrir skömmu. Þegar
hægt er að kaupa kílóið
af gúrkum á allt að 19
krónur er freistandi að
9 kaupa nokkur kíló og
sjóða niður.
Má frysta eða setja strax í
edlklög
Hjá leiðbeiningastöð heimil-
anna tjáði Steinunn Ingimundar-
dóttir Daglegu lífi að ef agúrk-
urnar væru settar í vissa legi
mætti geyma þær svo mánuðum
skipti, jafnvel í ár. Sumir frysta
gúrkurnar og þá eru þær þvegn-
ar og skomar niður með osta-
skera. Þær eru settar í plast og
geymdar þangað til síðar. Þegar
lögurinn er tilbúinn eru gúrkum-
ar settar frosnar út í löginn og
látnar þiðna í honum. Gúrkurnar
geymast mánuðum saman í frysti
eigi að nýta þær á þennan hátt.
Við fengum eftirfarandi upp-
skriftir hjá Steinunni Ingi-
mundardóttur.
Gúrkubitar í ediklegi
1 Vi kg gúrkur
1 -2 rauðar paprikur
saltpækill:
2 I vatn
200 g salt
edikslögur:
1 I edik
400 g sykur
nokkrar ferskar dillkrónur
2 tsk. heill pipar
2-3 stk. spænskur pipar
1. Hreinsið gúrkur vel og kljúfið
eftir endilöngu. Skafið fræin úr
og brytjið niður í 4-5 sentimetra
bita.
2. Blandið í saltpækil og látið
suðu koma upp. Kælið alveg.
Hellið yfir gúrkubitana og látið
standa opið á köldum stað í 2
daga.
3. Færið gúrkubitana í hreinar,
soðnar krukkur og dreifíð pap-
rikuræmum milli laga.
4. Sjóðið saman edik og 100
grömm af sykri. Hellið sjóðandi
vatni yfir gúrkumar og látið
standa í 2-3 daga á köldum stað.
5. Hellið legi af gúrkunum og
hitið hann með restinni af sykrin-
um. Bætið í dilli, pipar og
spænskum pipar. Sjóðið í 2 mín-
útur
6. Hellið sjóðandi vökva yfirgúrk-
ur og lokið krakkum strax.
Ef krukkumar era hafðar á köld-
um stað má geyma þær í marga
mánuði, jafnvel ár.
Gúrkusneiðar I edikslegi
300 g rauð paprika
200 g agúrkur
200 q súr epli
4 dl edik
150-200 g sykur
1 msk. salt
1 tsk. svarturpipar
2 tsk. sinnepskorn
I kg agúrkur
300 g sykur
30 g salt
2-3 msk. dillfræ
3-4 sinnepskorn
lögur:
2 dl borðedik
1 /4 dl vatn
1. Þvoið gúrkur í köldu og skerið
þunnt niður.
2. Blandið saman sykri, salti og
dilli.
3. Leggið gúrkur í hrein soðin
glös og setjið kryddblöndu milli
laga.
4. Blandið saman ediki og vatni
og hellið yfir gúrkumar. Seljið
sinnepskomin efst í glasið. Lokið
glösum strax. Sinnepskomin eru
sett til að forðast getjun og myglu
en auk þess gefa þau líka gott
bragð.
Gúrkumauk
200 g laukur
1. Þvoið paprikuna og skafið úr
þeim fræin. Hreinsið lauk og
saxið hvoratveggja smátt. Setjið
í örlítið af sjóðandi vatni og látið
krauma í tíu mínútur. Síið vatn
frá.
2. Flysjið eplin og skerið smátt.
3. Þvoið gúrkur og saxið.
4. Sjóðið saman edik, sykur, salt,
pipar og sinnepskom.
5. Látið grænmetið allt út í og
sjóðið
í loklausum potti í 15-20 mínútur.
6. Setjið maukið á hreinsuð, soðin
glös og lokið strax. Maukið
geymist lengi í kæli, allt að ár.
Steinunn segir að maukið sé
gott að nota í sósur og
sérstaklega karrýsósur,
salatsósur og í ídýfur.
Þá er einnig gott að smyija
maukinu á brauð og setja kæfu
eða skinku yfir. ■
grg