Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.08.1993, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1993 Deilt um Kúrileyjar Tókíó. Reuter. JAPANIR brugðust í gær ókvæða við fregnum um að for- sætisráðherra Rússlands útilok- aði að Japanir fengju aftur Kúri- leyjar í Kyrrhafi. „Hafi forsætis- ráðherrann [Viktor] Tsjernó- myrdín virkilega sagt þetta myndi það stangast á við grund- vallarstefnu rússnesku stjórnar- innar,“ sagði Terusuke Terada, talsmaður japanska utanríkis- ráðuneytisins, í gær. „Það væri mikið harmsefni." Tsjemómyrdín hefur verið í heimsókn á Kúrileyj- um sem Rússar hemámu af Jap- önum í lok seinni heimsstytjald- arinnar. Fréttastofan Interfax hafði það eftir Tsjernómyrdín á þriðjudag að Rússar myndu aldr- ei láta þær af hendi enda væru þær hluti Rússlands. Engar við- ræður færu heldur fram um framtíð eyjanna. Hægur hag- vöxtur í Þýskalandi EFNAHAGS- og framfarastofn- un Evrópu (OECD) segist gera ráð fyrir að það muni taka Þjóð- veija lengri tíma að vinna sig út úr efnahagskreppunni en þýska ríkisstjómin áætlar. Segir í ársskýrslu OECD um efnahag Þýskalands að einungis megi búast við 1% hagvexti í Þýska- landi á næsta ári. „Það er kreppa í þýsku efnahagslífi og ekkert bendir til að henni muni linna í bráð,“ segir í skýrslunni. Tilræði í Kaíró HASSAN al-Alfi, innanríkisráð- herra Egyptalands, særðist al- varlega er skotið var á bifreið hans í miðborg Kaíró í gær. Að minnsta kosti einn lífvarða hans lét lífið í tilræðinu og fregnir herma að nokkrir nærstaddir vegfarendur hafí einnig týnt lífí. Enginn hefur enn lýst yfir ábyrgð á ódæðinu en talið er að íslamsk- ir heittrúarmenn, sem vilja breyta Egyptalandi í íslamskt ríki, hafi staðið þar að baki. Atvinnuleysi eykst RÚMLEGA fímmti hver Finni var atvinnulaus í júlímánuði og segja efnahagssérfræðingar litl- ar líkur á að atvinnuástand. muni fara batnandi á næstunni. í júní- mánuði var atvinnuleysi í Finn- landi 19,5% en 20,4% í júlí. Á sama tíma í fyrra var atvinnu- leysi 15,1%. „Að okkar mati mun atvinnuleysi halda áfram að auk- ast á næsta ári,“ segir Ilkka Nio, hjá finnska vinnumálaráðuneyt- inu. Hann benti einnig á að á írlandi og Spáni væri atvinnu- ieysi moira. „Við erum ekki í efsta sæti,“ sagði Nio. Heildar- framleiðsla hefur dregist saman um 11% í Finnlandi á síðustu tveimur árum. Súdanir ósáttir SÚDANIR hafa mótmælt þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að setja þá á lista yfír þjóðir sem styðja hryðjuverkastarfsemi. Segja Bandaríkjamenn súdanska stjómarerindreka hjá SÞ í New York hafa verið viðriðna áform um viðamikil sprengjutilræði þar í borg. „Við hvetjum Bandaríkja- stjóm til að benda á eitt einasta dæmi þar sem súdanskur ríkis- borgari var viðriðin hryðjuverk," sagði embættismaður hjá sú- danska utanríkisráðuneytinu. Sagði hann engar sannanir hafa verið lagðar fram í þessum efn- um. Reuter Tefja heimferð Demjanjúks ÞRIGGJA manna nefnd dómara við hæstarétt ísraels hafnaði í gær kröfu þriggja gyðingasamtaka um að efnt verði til nýrra réttarhalda yfír John Demjanjúk fyrir meinta stríðsglæpi gegn gyðingum í seinna stríðinu. Full- trúar samtakanna reiddust úrskurðinum og féllst dómari, Meir Shamgar, þá á að hlýða öðra sinni á rök þeirra og endurskoða ákvörðunina á morgun, föstudag. Hann er þó í hópi átta hæstaréttardómara sem til þessa hafa úrskurðað að láta beri Demjanjúk lausan úr fangelsi og var formaður dómaranefndarinnar sem hreinsaði hann af ákæra um að vera ívan grimmi, gasklefastjóri í útrýmingarbúðum nasista í Treblinka. Á myndinni, sem tekin var í gær, er Demjanjúk í fangaklefa sínum ásamt syni sínum og nafna (t.h.) og tengdasyni (t.h.). Þúsundir KGB-njósn- ara hjá FBI? Washington. Reuter. BANDARÍSKA alríkislögreglan FBI kannar nú hvað hæft sé x fullyrðingum ónafngreinds fyrr- um starfsmanns sovésku leyni- þjónustunnar KGB að rúmlega þúsund bandarískir embættis- menn hafi njósnað fyrir Sovétrík- in sálugu, að því er fram kemur í nýrri bók um FBI sem kom út í Bandaríkjunum í gær. Ronald Kessler, höfundur bókar- innar „FBI: Innviðir öflugustu lög- reglu heims“, sagði í viðtali í gær að margir meintra njósnara hefðu verið mjög háttsettir og haft að- gang að mikilvægustu ríkisleyndar- málum. Hann sagði að á síðustu mánuðum hefðu margir fyrrverandi og núverandi embættismenn verið bendlaðir við njósnir í þágu KGB. FBI sendi frá sér yfirlýsingu í tilefni fullyrðinga Kesslers að stofn- unin hefði „hafið að nýju rannsókn á ýmsum málum sem tengdust starfsemi fyrrum KGB eða arftaka hennar." Fulltrúi hjá FBI sem ósk- aði nafnleyndar sagði hins vegar að fullyrðingar Kesslers um að fjöl- margir háttsettir embættismenn hefðu verið bendlaðir við njósnir væra ýkjur. Talsmaður Skandinaviska Enskilda-bankans í Svíþjóð útskýrir bættan hag Vaxtalækkanir hleyptn lífi í rekstur bankans Stokkhólmi. The Financial Times. SKÝRT hefur verið frá því að hagur sænskra banka fari nú mjög batnandi eftir nokkurra ára kreppu sem virtist um hríð ætla að ríða sumum þeirra á slig. Hagnaður varð á starfsemi Nordbanken, sem var lengi í miklum kröggum, á fyrra misseri þessa árs og Skandinaviska Enskilda Banken, SE, hefur einnig stórbætt stöðuna. Bjönx Svedberg, talsmaður SE, sagði að meginástæðan fyrir bættum hag væri að vextir hefðu lækkað verulega undanfarna mánuði sem hefði orðið til að auka veltuna. Svedberg taldi að sögn banda- ríska dagblaðsins Wall Street Jour- nal að nokkurt tap yrði sennilega á rekstrinum í ár, byrðin vegna tapaðra útlána væri þyngri en svo að úr rættist á skömmum tíma. Á hinn bóginn urðu lægri vextir til þess að auka mjög tekjumöguleika bankans vegna aukinna útlána, einnig jók vaxtalækkunin mjög lík- urnar á því að ýmsir viðskiptavinir sem standa höllum fæti lifðu krepp- una af, að sögn Svedbergs. Hann nefndi ennfremur að bankinn hefði hagnast mikið á sveiflum sem urðu á verðbréfamörkuðum. Svedberg tók fram að einnig hefði bankinn gripið til hagræðing- ar í rekstri og dregið úr áhættusöm- um lánveitingum. SE-bankinn hefur dregið til baka umsókn um ríkis- styrk enda sýnir uppgjör fyrir ann- an ársfjórðung að hagnaður verður af rekstrinum en heildartapið á misserinu verður þó um 3.000 millj- ónir ísl. króna. Hlutabréf í SE-bank- anum og fleiri sænskum lánastofn- unum hækkuðu í verði á mörkuðum við tíðindin í fyrradag. Wall Street Journal segir að auk sænsku bankanna tveggja hafi stærsti banki Noregs, Den Norske Bank, sem var í miklum erfiðleik- um, skýrt frá umskiptum í afkom- unni og telur blaðið að þar sé einn- ig um að ræða áhrif lækkandi vaxta er hleypt hafi lífi í reksturinn. Haft er eftir stjórnanda Den Norske Bank, Finn Hvistendahl, að um „tímamót" sé að ræða. Brundtland kemur umhverfisráðherra til varnar Ummælin skiljanleg eft- ir framkomu Gummers Ósló. Reuter. Þotuhrap MILDI þótti, að enginn skyldi slasast er JAS-þotan hrapaði. Kraftaverk þótti að engan skyldi saka er þotan hrapaði niður í trjá- lund í miðborg Stokkhólms 8. ágúst sl. Flugmaðurinnn missti stjórn á flugvélinni, skaut sér út og sveif til jarðar í fallhlíf. I niðurstöðum rannsóknamefnd- GRO Harlem Brundtland for- sætisráðherra Noregs sagðist í gær styðja umhverfisráðherra landsins þegar hann gagnrýndi Breta fyrir litlar mengunar- varnir en hann hefði vissulega gengið of langt er hann kallaði arinnar segir að hálf-sjálfvirkur hreyfibúnaður stjórnflata hafi ekki greint örar og miklar stýrishreyf- ingar flugmannsins. Hafi stýritölv- umar ýkt allar hreyfingar með þeim afleiðingum að þotan vaggaði vængjum ákaft og varð á endanum breskan starfsbróður sinn „drullusokk" þótt ummælin væru skiljanleg. Thorbjörn Bemtsen umhverfis- ráðherra Noregs kallaði John Gummer umhverfisráðherra Bret- lands drullusokk á kosningafundi stjórnlaus. Skýrt er tekið fram að flugmann- inum verði ekki kennt um að þotan varð stjómlaus og hrapaði. Hönnuð- ir þotunnar era sakaðir um að hafa vanmetið getu hins hálf-sjálfvirka stýribúnaðar þotunnar og er gerð krafa um að þeir endurbæti hann. Anders Björk varnarmálaráðherra sagði í gær að engar ábendingar væri að fínna í niðurstöðum rann- sóknamefndarinnar um að stöðva smíði Jas 39 Gripen-þotunnar. á mánudag. Var það í því sam- hengi að Bretar gerðu ekkert til að draga úr mengun sem leiddi til súrs regns í Noregi. Brundtland sagði í samtali við norska útvarpið í gær að ummæli Berntsens væru skiljanleg í ljósi viðræðna sem ráðherrarnir áttu í New York fyrr á þessu ári. „Það er ekki hægt að una því er bresk- ur umhverfisráðherra vísar á bug og gerir Iítið úr vandamálum sem tengjast súru regni þegar norskur umhverfisráðherra færir þau í tal við hann,“ sagði norski forsætis- ráðherrann. Gummer dónalegur Berntsen segir í samtali við Dagbladet sem birtist í gær að hann hafi verið ógætinn í orða- vali, „en breski umhverfisráðherr- ann var dónalegur (frekk), and- styggilegur (ufyselig) og hroka- fullur,“ eins og hann orðaði það. Stýritölvurnar höfðu ekki undan Stokkhólmi. Reuter. SÆNSK orrustuþota af gerðinni Jas 39 Gripen hrapaði niður í mið- borg Stokkhólms fyrra sunnudag þar sem tölvukerfi sem sér um að hreyfa stýrifleti hafði ekki undan að vinna úr stýrishreyfingum flugmannsins, að því er fram kemur í niðurstöðum nefndar sem rannsakaði orsakir slyssins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.